Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.09.1995, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Hagrætt fyrir 15 milljónir JAKOB Björnsson bæjarstjóri lagði á fundi bæjarráðs fram lista yfir útgjaldalækkan- ir/tekjuaukningu ýmissa deilda og stofnana bæjarins sem svara til 15 miiljóna króna. Við afgreiðslu á frumvarpi, að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyrir yfírstandandi ár var tek- in inn frádráttarliður „vegna rekstrarhagræðingar“ að upphæð 15 milljónir króna. Forstöðumönnum deilda og stofnana bæjarins var í fram- haldi þess gert að hagræða í rekstri og færa niður kostnað svo ná mætti þessari upphæð. Fram kom á fundi ráðsins í gær að til að ná fram tekju- aukningu er lagt til að selt fæði á leikskólum bæjarins hækki um 15% frá og með 1. október næstkomandi. Lóðarspilda keypt af KE A SAMÞYKKT hefur verið að Akureyrarbær kaupi lóðar- spildu milli lóðanna Hafnar- strætis 100 og Skipagötu 14, tæplega 50 fermetra að stærð af Kaupfélagi Eyfirðinga. Lóð- arspildan er akstursleið að bílastæði og er hún keypt á fasteignamatsverði, 412,544. KA fær ekki styrk BÆJARRÁÐ sá sér ekki fært að verða við erindi handknatt- leiksdeildar KA sem leitaði eftir styrk frá Akureyrarbæ til utanfarar meistaraflokks KA í handknattleik til þátt- töku í Evrópukeppni bikar- hafa, en Iiðið spilar í fyrstu umferð við Viking frá Stavan- ger í Noregi í október. AKUREYRI Um 3 þúsund manns mættu á útifund verkalýðsfélaganna í Eyjafirði í gær Krefjumst nýrra samninga fyrir ASI-fólk um áramót „VIÐ HLJÓTUM að lýsa undrun okkar á því, að á sama tíma og stjórn- völd eru að berja saman ijárlög og lýsa þungum áhyggjum af afkomu ríkissjóðs og boða víðtækan niðurskurð á ijárveitingum til heilbrigðismála, menntunar og menningar, skuli laun æðstu embættismanna, þingmanna og ráðherra hækkuð um tugi þúsunda á mánuði og að auki komi kjarabót í formi undanskots frá skatti. Við hljótum að líta svo á að hér sé um ófyr- irgefaniegan tvískinnungshátt að ræða og til þess fallinn að rýra enn og grafa undan trausti landsmanna á þingmenn og ríkisstjórn," sagði Björn Snæbjörnsson formaður Verkalýðsfélagsins Einingar á útifundi verkalýðs- félaganna í Eyjafirði sem haldinn var á Ráðhústorgi á Akureyri í gær. Talið er að vel yfir þrjú þúsund manns hafi sótt fundinn en margir urðu við áskorun ASÍ um að leggja niður vinnu eftir hádegi í gær til að mótmæla hækkun launa æðstu ráða- manna. Nýjar siðferðisreglur Björn sagði alþingismenn bíta hausinn af skömminni með því að undanþiggja sjálfa sig þeirri skyldu, sem þeim þætti sjálfsagt að aðrir bæru, að greiða skatt af tekjum sín- um. Kæmist slíkt á væru alþingis- menn að setja sjálfum sér nýjar sið- ferðisreglur. Björn nefndi að við samninga fyrr á árinu hefði verkafólk fengið 5.400 til 7.400 króna launahækkun á tveggja ára tímabili og þá hefði for- sætisráðherra talið það í efstu mörk- um þess sem hægt væri að fara án þess að efnahagskerfíð hryndi. Frá þeim tíma hefði fjöldi vinnustétta samið um meiri hækkanir en almenn- ir launamenn fengu og væri launabil- ið sífellt að aukast. „Það hlýtur að kalla á það að við krefjumst nýrra samninga fyrir ASÍ- fólk um næstu áramót. Það þolir ekki lengri bið, a.m.k. ekki ef þeir sem telja mánað- arlaun í hundruðum þúsunda eiga að fá miklu meiri hækkanir en við höfum samið um,“ sagði Björn. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir fyrsti varaforseti ASI sagði í ávarpi sínu að verkalýðshreyfingin hefði sýnt mikla ábyrgð við gerð kjara- samninga síðustu 5 ár, of mikla af sumra mati, en litið hafi verið svo á að allir yrðu að vinna sig saman út úr vandanum. Frá því gengið var frá síðustu kjarasamningum hefðu t.d. einstakir hópar opinberra starfs- manna fengið meiri launahækkanir en samið var um í febrúar, verðlag hefði farið hækkandi í kjölfar GATT, SVR hefði hækkað fargjöld og fleira. „Þolinmæðin hefur verið að þynnast og nú er hún á þroturn," sagði Ingi- björg „Það kaldranalega við þetta allt er að dropinn sem fyllti mælinn var ákvörðun um laun og skattamál helstu ráðamanna þjóðarinnar. Þeirra sem hafa sagt okkur að við yrðum að vera varkár því að 2.700 króna launahækkun til fólks með 60 þúsund krónur á mánuði gæti hvolft þjóðarskútunni. Þeirra sem hafa ver- ið að segja almenningi að hann verði að axla ábyrgð, skera niður neyslu og spara til að mæta erfiðum tím- um.“ „Þetta snýst ekki um það hvort ráðherrar, alþingismenn og embætt- ismenn eigi skilið að fá launahækkun eða ekki. Þetta snýst um það að af- komuvandi láglaunafólks er marg- faldur á við þeirra vanda og það á örugglega skilið að fá mjög umtals- verða launahækkun og hún verður að koma fyrst.“ Ingibjörg sagði það ekki liggja ljóst fyrir hvort forsendur kjara- samninga frá í febrúar væru brostn- ar lagalega, en á því væri enginn vafi að með þessu væru þær siðferði- lega foknar út í veður og vind. Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson TALIÐ er að yfir þrjú þúsund manns hafi komið saman á útifundi j á Ráðhústorgi i gær til að mótmæla launahækkunum æðstu ráða- manna, en í ályktun fundarins segir m.a. að eyfirsku launafólki sé gróflega misboðið vegna þess siðferðis sem birtist í ákvörðunum þeirra þar um. „Við fordæmum þá ákvörðun alþingismanna að skammta sér skattfrjálsar kostnaðargreiðslur á sama tíma og laun- þegar eru skattlagðir fyrir máltíðir og ferðir á vinnustað. Við krefj- umst þess að allir verði jafnir fyrir lögum og skattfríðindi alþingis- manna verði nú þegar afnumin," segir í ályktuninni og einnig að þeim sem launahækkanirnar fengu verði úrskurðaðar 2.700 krónur í launahækkun á mánuði. Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson Nemendasýning Helgi Símonarson í Svarfaðardal 100 ára Beindi kröftun- um að uppbygg- ingu á heimaslóð EFNT verður til nemendasýning- ar og kynningar í Myndlistaskól- anum á Akureyri um helgina, 16. og 17. september. A sýningunni verða verk eftir nemendur skólans einskonar sýn- ishorn af því fjölþætta starfi sem unnið er í skólanum. Allir eru velkomnir í Myndlista- skólann. Opið er báða dagana frá kl. 14.00 til 18.00. Á myndinni er Hildur Gylfadóttir nemandi í grafískri hönnun að undirbúa sýningu Myndlistaskólans sem verður um helgina. HELGI Símonarson frá Þverá í Svarfaðardal hélt upp á 100 ára afmæli sitt í Safnaðarheimili Dal- víkur á miðvikudag, 13. september. Dalvíkurbær og Svarfaðardals- hreppur héldu Helga sameiginlegt afmælishóf og var öllum boðið til veislunnar. Helgi fæddist 13. september 1895 í Gröf í Svarfaðardal, foreldr- ar hans voru Símon Jónsson úr Lágubúð í Skagafírði og Guðrún Siguijónsdóttir í Gröf. Símon, faðir Helga drukknaði 1. maí 1897 en Guðrún ekkja hans bjó um tíma með Jóni Sigtryggi Jónssyni og eignuðust þau einn son, Jón Jónsson á Dalvík, sem nú er látinn. Helgi giftist Maríu Stefaníu Stef- ánsdóttur 4. júní 1927, hún lést 20. nóvember 1963. Börn Helga og Maríu sem upp komust eru Hall- dór, f. 12. júlí 1930, d. 26. október 1958 af slysförum, Sigrún Petrína f. 10. ágúst 1935, Símon f. 14. jan- úar 1941. Árið 1930 keypti Helgi Þverá og hefur búið þar síðan en árið 1972 leigði hann jörðina Símoni syni sínum og Guðrúnu dótturdótt- ur sinni sem búa þar félagsbúi. Helgi lauk gagnfræðaprófi 1919 og kennaraprófi 1923 og stundaði kennslu eftirþað allttil ársins 1945, var m.a. skólastjóri barnaskólans á Dalvík 1924-43. Samhliða kennslu og bústörfum sinnti Helgi mikið félags- og menningarmálum, auk starfa í þágu hreppsins, var t.d. hreppsnefndarmaður í 12 ár og 1961-70 var hann fulltrúi á Búnað- arþingi fyrir Búnaðarsamband Eyjafjarðar. Margir glöddust með afmælisbarninu Fjöldi manns gladdist með Helga á afmælisdaginn, fjölskylda, sveit- ungar og vinir. Haldnar voru ræður til heiðurs afmælisbarninu og al- mennur söngur undir stjórn Jó- hanns Daníelssonar. Þórarinn Hjartarson frá Tjörn flutti Helga kveðskap í tilefni dagsins: Mannlíf og saga í eitthundrað ár umlukin svarfdælskum tindum. Vettvangur æviskeiðs, sveitin og sjár, sig sýndi í fjölbreyttum myndum. Morgunblaðið/Hermína MARGIR glöddust með Helga Símonarsyni sem fagnaði 100 ára afmæli sínu á miðvikudag. Hann ungur sá öldina fæðast á foldu og fylgist með enn, er hún hnígur að moldu. Að loknum árnaðaróskum og ræðum til handa afmælisbarninu, kvaddi Helgi sér hljóðs og talaði til gesta um sitthvað sem hafði á daga hans drifið. Þar kom m.a. fram að vilji hans stóð alla tíð til þess að beina kröftum sínum að Svarfaðar- dal og uppbyggingu á heimaslóð, ■ þrátt fyrir að hann hafi haft tæki- færi til að starfa á öðrum stöðum. Lokaorðin í hans tölu báru hug hans glöggt vitni, en hann bað þess „að yfir þessum dal ríki andi guðs frá strönd til botna“. Aðalfundur Aðalfundur Gilfélagsins verður haldinn í Deiglunni, Kaup- vangsstræti 23, laugardaginn 23. september kl. 13.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Listasumar. Önnur mál. Stjórnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.