Morgunblaðið - 15.09.1995, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
MORGUNBIAÐIÐ
FRÉTTIR
» Forseta og rábherrum dœmdar 7 9-20% kauphcekkanir, en öbrum cebstu embœttismönnum
helmingi minna:
=*T 1\J (
Þá er nú búið að finna „góðærið" hans Davíðs . . .
F.V. JÓN M. Guðjónsson, Þorvarður Hjaltason, Guðrún Einarsdótt-
ir og Lárus Gunnsteinsson með veiði úr Vesturdalsá í Vopnafirði.
„Hafbeitar-
árnar“ úr
sögunni?
KÝLAVEIKI laxinn úr Kollafirðin-
um sem fannst í Hellisá á Síðu
gæti leitt til þess að það legðist
af að sleppa hafbeitarlaxi í ár, þar
sem annað hvort er lítið eða ekk-
ert af villtum náttúrulegum laxi.
Nú þegar hefur verið tekið fyrir
frekari flutning hafbeitarlaxa í
þær ár þar sem þetta hefur verið
stundað og mikil óvissa ríkir um
hvort heimilað verði aftur að flytja
lax í ár með þeim hætti.
Sigurður Már Einarsson fiski-
fræðingur við Veiðimálastofnun
sagði í samtali við Morgunblaðið
í gær að reglugerð númer 401 frá
árinu 1981 bannaði flutning laxa
á milli landshluta, en undanþágu-
ákvæði væru fyrir hendi, þ.e.a.s.
að flytja mætti lax þannig ef fyrir
lægi samþykki Fisksjúkdóma-
nefndar og viðkomandi veiðifélags
auk jákvæðrar umsagnar veiði-
málastjóra við sh'kum erindum.
Sigurður sagði að fiskifræðingar
Veiðimálastofnunar hefðu ávallt
óttast þessa flutninga og varnagl-
arnir hefðu fyrst og frem'st verið
til að koma í veg fyrir hugsanlega
dreifíngu á sjúkdómum milli
vatnakerfa.
Hafbeitarlaxi hefur verið sleppt
í allnokkrar ár; Norðlingafljót og
Reykjadalsá í Borgarfirði, Laxá í
Miklaholtshreppi og Núpá á Snæ-
fellsnesi, Hellisá á Síðu, Brynju-
dalsá í Hvalfirði, Hólmkelsá við
Ólafsvík og Hvolsá og Staðarhólsá
í Dölum.
Alltaf verið sandur
Mikil umræða hefur verið um
sandburð frá Kráká niður alla
Laxá í Aðaldal og eru margir á
því að þar liggi rótin að því að
níðursveifla hefur verið í Iaxveiði
í ánni síðustu sumur. Að sandur-
inn spilli svo hrygningarstöðvum
laxins að í óefni sé komið. Veiði-
tímanum í ánni er nú lokið og
sagði Orri Vigfússon formaður
Laxárfélagsins í samtali við
Morgunblaðið að um 1100 laxar
hefðu veiðst og vissulega hefðu
menn viljað sjá fleiri laxa í ánni
í sumar. „Ég er ekki að gera lítið
úr því að sandburðurinn sé slæmt
mál, en það hefur verið sandburð-
ur í ánni í hundruð ára, en sveifl-
ur alltaf verið í veiðinni. í þetta
skipti var Hafrannsóknarstofnun-
in búin að vara við því að sjór
væri með allra kaldasta móti og
það gæti komið niður á heimtum
úr hafi. Sérstaklega á ársfiski úr
sjó í okkar tilviki,“ sagði Orri.
Hann sagði enn fremur:
„Heildarveiði í Laxá hefur
sveiflast nokkuð upp og niður
milli ára, rétt eins og í öllum lax-
veiðiám, þó kannski minna en víða
annars staðar. Það sýna aflatölur
úr ánni síðustu 100 til 150 árin.
Þær sýna einnig, að fram til árs-
ins 1970 nam meðalveiðin um
1000 löxum, en þá hófst mikil
ræktun í ánni sem skilaði þeim
árangri að meðalveiðin nær tvö-
faldaðist og er nú um 1900 laxar
á ári. Sveiflur hafa líka minnkað.
Meðalþyngdin hefur auk þess allt-
af verið með því mesta sem þekk-
ist hér á landi. Hvað varðar sand-
burðinn, þá er talið að minni sand-
burður auki laxgengd. Upp-
græðsluverkefnið við Kráká Iofar
því góðu og Landsvirkjun hefur
unnið að því í sumar að finna út
hvernig hefta megi sandburðinn
enn frekar. Er vonandi að árang-
ur af þessu átaki verði góður,“
sagði Órri.
Ýmsar tölur
Um 670 til 680 laxar eru komnir
á land úr Haffjarðará. Nóg er af
fiski í ánni, en hann hefur tekið
fremur illa að undanförnu. Mest
af laxinum er legið og lítið hefur
bæst við af nýjum fiski sem gæti
hleypt lífí í veiðina. Margir hafa
dundað sér við að veiða væna sjó-
bleikju í hinu fimalanga og breiða
Sjávarfljóti.
Lokatölur úr Norðurá virðast
vera um 1660 laxar og er ekki
fyrirsjáánlegt að nein á nái hærri
tölu í sumar. 1648 er lokatalan
úr Þverá ásamt Kjarrá og í báðum
ánum, þ.e.a.s. Norðurá og Þverá,
var afar rólegt síðustu vikumar.
Eitthvert slangur af laxi, en allur
draugleginn og lítt áhugasamur
að taka agn.
Milli 340 og 350 laxar hafa
veiðst í Stóru-Laxá í Hreppum
sem þykir gott á þeim slóðum.
Aflinn hefur þó verið heldur mis-
skiptur, því tvö neðstu svæðin
sem eru seld saman hafa gefið
hátt í 300 laxa. Það er þó haft
fyrir satt að eitt og eitt skot hafi
komið ofar að undanförnu.
Sameining á Vestfjörðum
Allir í einu
sveitarfélagi
ÞORSTEINN Jó-
hannesson læknir
er oddviti sjálf-
stæðismanna á ísafirði,
formaður bæjarráðs og
formaður sameiningar-
nefndar sveitarfélaganna
á Þingeyri, Mýrarhreppi,
Mosvallahreppi, Flateyri,
Suðureyri og ísafirði.
Sameiningamefndin
hefur samþykkt-tillögu
um sameiningu sveit-
arfélaganna. Samþykkt
um eitt sveitarfélag
verður lögð undir dóm
íbúanna 11. nóvember
og kosningar um nýja
sveitarstjórn 11. maí
1996.
- Hversu gömul er sam-
einingarnefndin ?
„Samstarfsnefndinni um
sameiningu sveitarfélaga var
komið á fót um áramótin
’93-’94. Súðvíkingar vildu ekki
vera með frá upphafi og Bolvík-
ingar vildu koma inn í hana með
ákveðnum skilyrðum sem ekki
var fallist á af fulltrúum ann-
arra sveitarfélaga vegna 108.
greinar sveitarstjórnarlaganna.
En sameiningarviðræður
þessara sex hreppa hafa staðið
yfir frá því í janúar 1994. Síð-
ustu sveitarstjórnarkosningar
breyttu ekki miklu um sameing-
arviðræður en menn fóru sér þó
hægar og hinn erfiði vetur olli
því að menn hittust ekkert sem
heitið gat. Á hinn bóginn tel ég
að fólk hafi skynjað betur mikil-
vægi og nauðsyn sameiningar
eftir hinn harða vetur.“
- Hvers vegna er sameining
sveitarfélaganna nauðsynleg?
„Hún er nauðsynleg vegna
þess að mörg hinna smærri sveit-
arfélaga hafa ekki bolmagn til
að standa undir lögbundinni
þjónustu við íbúana. Hún er líka
nauðsynleg vegna þess að of
stórum hluta tekna sveitarfélag-
anna er eytt í yfirstjóm þeirra.
Samkvæmt ársreikningum 1993
var kostnaður yfirstjórnar þess-
ara sveitarfélaga 68 milljónir, þar
af 37 milljónir á ísafirðii Með
sameiningu geta rekstrareining-
arnar orðið stærri og hagkvæm-
ari, og yfirstjómin mun ódýrari.
Sameining kemur líka þjón-
ustufyrirtækjunum til góða því
það verður hægt að samnýta svo
rnargt."
- Hvernig heldur þú að tillög-
unni verði tekið?
„Ég trúi að henni verði vel
tekið. Ég held að fleiri _______
og fleiri séu að sjá
hversu nauðsynleg
sameiningin er. Við
höfum búið við fólks-
flótta frá Vestfjörðum
þrátt fyrir næga at-
vinnu, og ég vil kenna þar um
minnkandi þjónustu smærri
sveitarfélaga."
- Telur þú að ríkið ætti að vera
með skýrari stefnu í samein-
ingarmálum sveitarfélaga?
„Ríkið hefur nokkuð skýra
stefnu en henni hefur ekki verið
nógsamlega framfylgt. Ég hef
þó óljósan grun um að nú sé
góður vilji til þess að koma til
móts við þau sveitarfélög sem
sameinast.
Ég vil taka það fram að við
erum ekki að sameinast fyrir
ríkið, við erum að sameinast
fyrir okkur sjálf. En auðvitað
Þorsteinn Jóhannesson
►ÞORSTEINN Jóhannesson
er fæddur 1951 á ísafirði.
Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1971 og lauk námi í lækn-
isfræði við Háskóla íslands
1977. Hann var 10 ár í Þýska-
landi í almennum skurðlækn-
ingum og hjartaskurðlækn-
ingum og varð doktor frá
Háskólanum í Freiburg árið
1988. Hann er nú yfirlæknir
Fjórðungssjúkrahússins á
ísafirði. Eiginkona hans er
Friðný Jóhannesdóttir, heilsu-
gæslulæknir á ísafirði og eiga
þau einn son, Jóhannes, 17
ára.
gerum við þá kröfu að ríkið
standi við sínar skuldbindingar
og loforð sem gefin voru í tíð
fyrri ríkisstjórnar."
- Hlakkar þú til næsta vetrar
með opin jarðgöng á milli stað-
anna?
„Já, við erum mjög bjartsýn
um góð áhrif jarðganganna.
Verði næsti vetur snjóþungur
kemur það til með að hafa miklu
minni áhrif á mannlífið en verið
hefur fram til þessa.“
- En hvað með ótta sumra um
að Lsafjörður gleypi allt við sam-
eininguna?
„Hann er skiljanlegur en í
hugum okkar ísfirðinga verður
svo alls ekki. Ég veit að margur
ísfirðingurinn hlakkar til að fá
útisundlaug, sem verður í hinu
sameiginlega sveitarfélagi, til
dæmis á Suðureyri. Möguleikar
til útivistar eru geysimiklir, bæði
í Önundarfirði og Dýrafirði.
Með þessu er ég að segja að
ísfirðingar komi til með að
_________ sækja sitthvað til ná-
grannabyggðanna.
Þannig sé ég fyrir mér
samnýtingu í allar átt-
ir.
Það er löngu kom-
“ inn tími til að við hætt-
um að líta á okkur sem ein-
hverja bæjar- eða þorpsbúa og
verðum öll íbúar í einu sameigin-
legu byggðarlagi.“
- Hver verða áhrif sameiningar
á heilbrigðismál byggðanna?
„Vestfirðingar hafa búið við
ótrygga læknis- og heilbrigðis-
þjónustu, til dæmis hefur ekki
tekist að ráða heilsugæslulækni
á Flateyri þrátt fyrir auglýsing-
ar. En með tilkomu ganganna
tel ég að hægt verði að samnýta
heilsugæslulækna á ísafirði eða
bjóða heilsugæslulækni sem
fengist til Flateyrar að vinna
með læknunum á ísafirði."
„Oryggió
eykst við
göng og sam-
einingu