Morgunblaðið - 15.09.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 13
LAIVIDIÐ
Hausti faguað á Selfossi með
tveggja daga dagskrá
Selfossi - HAUSTINU verður fagnað á Selfossi
með tveggja daga dagskrá, föstudag og laugar-
dag, 15. og 16. september. Á Haustdögum á
Selfossi, en svo nefnist dagskráin, verður áhersla
lögð á sunnlenskar afurðir en verslanir og fyrir-
tæki á Selfossi bjóða viðskiptavinum sínum hag-
stæð tilboð þessa daga.
Meðal dagskráratriða verður sérstæð keppni
kjötiðnaðarnema í kjötskurði. Að dagskránni
stendur samstarfshópur fyrirtækja og félaga á
Selfossi en sá hópur stóð einnig fyrir dag-
skránni Sumar á Selfossi.
Bíla- og listsýningar
Dagskrá föstudagsins hefst klukkan 13 með
sýningu og sölu á íslenskum ostum í anddyri
Mjólkurbús Flóamanna. Þá hefst einnig sýning
á verkum Ásmundar Jónssonar listmálara í Lista-
safni Ámesinga við Tryggvagötu. Þennan dag
verður einnig bílasýning frá Heklu við Hótel
Selfoss, sýning á Sýslumannstúni við Austurveg
á búvélum framleiddum í smiðju KÁ og torfæm-
bílar verða sýndir á tröppum Bæjar- og héraðs-
bókasafnsins. Þá verður ýmislegt fleira á döf-
inni, loftkastali í tilefni opnunar verslunarmið-
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
SVEINBJÖRN Guðjónsson og Guðmundur
Geirmundsson t.h. undirbúa Anton Hart-
mannsson, kjötiðnaðarnema, undir fag-
keppnina á laugardag.
stöðvarinnar Kjarnans í KÁ, götuboltakeppni við
veitingahúsið Brúarsporðinn og bjórhátíð verður
þessa daga á Kaffi-krús.
Fyrsta fagkeppni kjötiðnaðarnema
Fyrsta fagkeppni kjötiðnaðarnema hérlendis
fer fram í Kjötvinnslu Hafnar-Þríhyrnings klukk-
an 10-12 og 13-15. Klukkan 10.30 og 14 býður
Skógræktarfélag Selfoss upp á skoðunarferðir
í Hellisskóg. Bakkabræður koma akandi í bæinn
og fara yfir Ölfusárbrú klukkan 13.30 á 70 ára
gamalli bifreið sinni. Þeir munu heilsa upp á
almenning í miðbænum að lokinni innreið í bæ-
inn. Selfoss og Ægir keppa þennan dag til úr-
slita í knattspyrnumóti HSK. í leikhléi verður
firmakeppni'í kassabílaralli og eftir knattspyrnu-
leikinn takast sunnlenskir torfærukappar á í
torfærukeppni á malarvellinum.
Götuleikhús
og dansleikir
Ferðagetraun verður í Suðurgarði þar sem
boðið er upp á afsláttarferðir til Agadir, götuleik-
hús verður í miðbænum klukkan 14-14.30 og
fara leikararnir um bæinn. Fjölbrautaskóli Suð-
urlands verður til sýnis milli klukkan 13 og 17
og klukkan 16 verða tónleikar við KÁ, en dag-
skránni lýkur með dansleik á Hótel Selfoss og
í Inghól. Gert er ráð fyrir að fjöldi fólks leggi
leið sína um Selfoss til þess að fylgjast með og
njóta þess sem Selfyssingar bjóða upp á er þeir
fagna haustkomunni.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
GILBERT Yok Peck Khoo
ásamt starfsfólki sínu.
• •
Oðruvísi
töðugjöld
Fagradal - Hjónin Sólveig og Jó-
hannes á Höfðabrekku í Mýrdal
buðu Skaftfellingum upp á sérstök
töðugjöld sem var kínverskur
matur.
Kínakokkurinn Gilbert Yok
Peck KHoo, eigandi veitingastað-
arins Shanghæ í Reykjavík, sá um
eldamennskuna ásamt starfsfólki
sínu. Góð mæting var að Höfða-
brekku og líkaði mönnum matur-
inn mjög vel.
Kvenfélag Sauðárkróks 100 ára
Afmælissýnmgin Geng-
in spor í Safnahúsinu
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
HELGA Sigurbjörnsdóttir,
KVENFÉLAG Sauðárkróks
heldur um þessar mundir upp
á það að eitt hundrað ár eru
liðin frá stofnun félagsins,
með afmælissýningu í Safna-
húsinu á Sauðárkróki.
Hið skagfirska kvenfélag,
eins og heiti þess var upphaf-
lega, var stofnað þann 25.
ágúst 1895 og var félags-
svæði þess allur Skagafjörð-
ur.
Markmið félagsins var að
efla og bæta hag heimilanna,
meðal annars með því að
auka menntun kvenna og
þekkingu þeirra, bæði varð-
andi heimilishald og almenna
menntun. Þá voru einnig
mjög ofarlega í hugum stofn-
endanna ýmiss konar umönn-
unar og líknarmál, og hefur
sá málaflokkur verið einna
fyrirferðarmestur hjá félag-
inu allt frá stofnun þess.
í tilefni þessara tímamóta, var-
opnuð sýning á hug- og handverkum
kvenfélagskvenna í Safnahúsinu,
sem nefnist „Gengin spor“, og kenn-
ir þar margra grasa.
Nytjahlutir ýmiss konar allt til
listaverka prýða sýninguna, en auk
þess er í einum bás á sýningarsvæð-
inu saga félagsins rakin í ljósmynd-
um og myndband frá síðustu dægur-
lagakeppni félagsins vekur óskipta
athygli.
Afmælisljóð til félagsins
Þá bauð kvenfélagið öllum bæj-
arbúum til kaffísamsætis í íþrótta-
húsinu sunnudaginn 27. ágúst, þar
sem mikilfengleg afmælisterta, bök-
uð af Halldóri Eiríkssyni bakara-
meistara, sem kom gagnvert frá
Reykjavík til að sinna þessu verki,
skreytti ríkulega búið hlaðborð og
var þar fjölmenni sem fágnaði tíma-
mótunum með kvenfélagskonunum.
Helga Sigurbjörnsdóttir, formað-
ur félagsins, flutti ávarp og bauð
gesti velkomna, en síðan rakti Eng-
ilráð M. Sigurðardóttir sögu félags-
ins í skemmtilegu erindi.
Vinir og velunnarar félagsins
færðu því árnaðaróskir og góðar
gjafir, meðal annars barst gjöf frá
Sigurbjörgu Sigurðardóttur sem
ekki átti þess kost að vera viðstödd
hátíðina, en hér var um að ræða
segulbandsupptökur á viðtölum við
þíjár kvenfélagskonur, sem allar
voru um skeið formenn félagsins og
eru nú allar látnar.
Þá sýndi dansflokkur félagsins
þjóðdansa, en síðan birtust hinir
nafntoguðu Álftagerðisbræður og
sungu nokkur lög við frábærar und-
irtektir, meðal annars afmælisljóð
til félagsins, samið af Ingimar Boga-
syni.
Guðbjörg Bjarman flutti gaman-
mál og kvenfélagskonur heiðruðu
nokkra af velunnurum félagsins með
blómagjöfum og merki félagsins.
Veislustjóri var Herdís Sæmund-
ardóttir.
Bent Larsen teflir
fjöltefii á ísafirði
BENT Larsen, stórmeistari í daginn 17. september.
skák, sem nú tekur þátt í Frið- Fjölteflið verður í Stjórnsýslu-
riksmótinu i Reykjavík, kemur húsinu á ísafirði, efstu hæð, og
að því loknu í heimsókn til ísa- hefst kl. 16. Þátttaka er ókeypis
fjarðar og teflir fjöltefli sunnu- og öllum heimil.
„Ekkert mok á
okkur hér“
Morgunblaðið/Finnbogi Lárusson
GUÐMNUNDUR Magn-
ússon rifjar á heimatún-
inu. Snjóskaflinn er við
slægjuna.
Snjórinn
hjálpaði
grassprettu
við Djúp
Laugarbrekku - „Ég hóf slátt
í byrjun ágúst og þá voru snjó-
skaflar ekki farnir hér fyrir
ofan bæinn. Það hefur aldrei
verið jafnmikið hey af heima-
túninu og það er engin spurn-
ing að snjórinn hefur hjálpað
til með það, varnað frá kali í
vetur og vökvað túnið jafnt
og þétt í allt sumar,“ sagði
Snævar Guðmundsson, bóndi
á Melgraseyri við ísafjarðar-
djúp.
Borgarfjörður eystri - „Það er
ekkert mok á okkur hér,“ seg-
ir Ólafur Hallgrímsson, sjó-
maður, um aflabrögð þriggja
borgfirskra báta sem nú róa
frá Þórshöfn á mið norðan
Langaness.
Ólafur segir ekkert fást á
færi og lítið á línu á heimamið-
um en þeir fá um 800 kg á dag
þar nyrðra. Samkvæmt nýja
banndagakerfinu eru bátarnir
í banni hveija helgi, þijá daga
aðra helgina og tvo daga hina.
Að minnsta kosti sex bátar eru
farnir að róa með línu héðan
en afli mun fremur lélegur.
Fé er komið af fjalli og lömb
heldur rýrari en í fyrra. Það
voraði ekki fyrr en í júní og
gróður því allur mjög seinn til
í sumar. Kal var mikið í túnum
á flestum bæjum en úr bætti
einmuna veður í allt sumar,
helst var hægt að kvartá yfir
of miklum þurrki. Heyfengur
var vonum betri en þó eru
dæmi til að bændur hafi þurft
að heyja mikið upp á Héraði
þar sem tún voru sums staðar
eyðilögð hér neðra. Enn er
veðurblíða en skýjað.
Ferðamannakönnunum lauk
hér á Borgarfirði 15. septem-
ber. Verður þá tímabilið gert
upp og tölur birtar.
Kirkjustarf
að hefjast
Kirkjustarf vetrarins er að
hefjast. Fermingarbörn næsta
árs eru farin að undirbúa sig
og barnastarf hefst upp úr
mánaðamótum. Fyrsta messa
haustsins verður í Bakkagerð-
iskirkju nk. sunnudag. Enginn
organisti er við kirkjuna en að
þessu sinni kemur Guðmundur
Sigurðsson, organisti Lága-
fellskirkju, að sunnan til að
leika á orgel við guðsþjón-
ustuna.
HJOLABRETTI
Mikið úrval af heilum brettum
og brettaplötum.
Lítil bretti, verð frá kr. 990.
Stór bretti, verð frá kr. 1.990.
LINUSKA UTAR
Vandaðir línuskautar, margar gerðir.
* Stærðir 32-38, verð frá kr. 4.900, stgr. kr. 4.U55.
* Stærra en 39, verð frá kr. 8.400, stgr. 7.9SO.
Ármúla 40
Símar: 553 5320
568 8860
l/erslunin
Hjálmar - hllfar - hjól - varahlutir
/vm