Morgunblaðið - 15.09.1995, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Nýherji hefur fengið umboðið fyrir Canon skrifstofuvélar
Fyrri umboðs-
aðili heldur
sínustriki
NÝHERJI hf. hefur gengið frá samn-
ingum við japanska stórfyrirtækið
Canon þess efnis að fyrirtækið taki
við umboði fyrir Canon skrifstofuvél-
ar en fram til þessa hefur Skrifvélin
hf. verið með þetta umboð. Forsvars-
menn Skrifvélarinnar segjast þó ekki
af baki dottnir og hyggjast halda
sölu og þjónustu á Canon skrifstofu-
vélum áfram.
Að sögn Erlings Asgeirssonar,
framkvæmdastjóra verslunarsviðs
Nýheija, verða vörumar frá Canon
uppistaðan í þeim skrifstofutækjum
sem Nýhetji kemur til með að selja.
Hann segir þetta vera mjög góða
viðbót við fyrra vöruúrval Nýheija.
Þar á meðal sé að finna reiknivélar,
faxtæki, tölvuprentara og ljósritun-
arvélar af öllum stærðum og gerðum.
„Canon er eitt af stærstu fyrirtækj-
um heims á þessu sviði, með mikið
vöruúrval og markaðshlutdeild. Þetta
er því gríðarlegur ávinningur fyrir
Nýheija."
Að sögn Erlings verður Hans Pet-
ersen hins vegar eftir sem áður með
umboð fyrir ljósmyndavörur frá Can-
on enda hafi aldrei komið til álita
að nein breyting yrði þar á.
Ekki hættir
Forsvarsmenn Skrifvélarinnar
segja hins vegar langt því frá að
fyrirtækið muni hætta sölu á þessum
vörum. Fyrirtækið sé búið að vera
umboðsaðili fyrir Canon í 26 ár og
hafí selt gríðarlega mikið af tækjum
á markaðnum hér og ætli sér að
halda því áfram. Þeir verði áfram
með allar rekstrarvörur og tækjabún-
að sem fyrirtækið hafi verið með.
Þeir segja það hins vegar vera
mjög einkennilegan hlut ef þetta
gerist. Hins vegar sé ekki séð fyrir
endann á þessu máli. Það sé kannski
tímanna tákn að fyrirtæki séu að
hrifsa af öðrum umboð sem þeir
hafi verið með og unnið markaði
fyrir en fyrirtækið hafi sín sambönd
og hyggist halda starfseminni ótrautt
áfram.
Magnús Reynir Jónsson
STARFSMENN Nýherja flytja vörur úr fyrstu Canon-sending-
unni til fyrirtækisins í aðalstöðvar þess við Skaftahlíð.
TFfyll fynr skrBWBHjM ■ i m
ir? IIÍL mm tliwH? i fl WmtL'
11 I VMifö&iVi' |j| Jr
Auðlind með276milljóna
króna hlutafjárútboð
ALMENNT útboð hlutabréfa hjá Hlutabréfa-
sjóðnum Auðlind hf., hefst í dag. Nafnverð út-
boðsins er 200 milljónir króna og er mögulegt'
að greiða allt að 90% kaupverðs með skulda-
bréfi til tíu mánaða.
Hlutabréfasjóðurinn Auðlind er í vörslu Kaup-
þings, sem er umsjónaraðili útboðsins. Upphafs-
gengi bréfanna er 1,38 og er markaðsverð út-
boðsins því 276 milljónir. Sjóðurinn hefur vaxið
töluvert á síðustu misserum. 31. ágúst síðastlið-
inn voru 560 milljónir króna í honum, í lok reikn-
ingsársins 30. júní sl. um 500 milljónir en 279
milljónir á sama tíma árið áður.
21% raunávöxtun
Raunávöxtun í Auðlind hf. hefur verið 20,9%
síðastliðið ár, en 29,8% á ársgrundvelli síðast-
liðna sex mánuði. Á síðastliðnu ári hefur eigna-
samsetning sjóðsins breyst nokkuð og hefur
stefna hans verið sú að fjárfesta meira í hluta-
bréfum en áður. Eignir sjóðsins skiptast nú þann-
ig að um 60% eru í hlutabréfum, 18% í skulda-
bréfum, 16% í ríkisverðbréfum og 6% í erlendum
verðbréfum.
Mögxileiki á greiðslu-
dreifingu til 10 mánaðá
Bjarni Ármannsson, framkvæmdastjóri Auð-
lindar hf., segir það hafa komið vel út að auka
hlutfall hlutabréfanna enda hafi ávöxtun sjóðsins
verið góð á þessum tíma. Hann vill engu spá um
áframhaldandi ávöxtun og segir hana að mestu
ráðast af þróun á hlutabréfamarkaði. „Afkoma
fyrirtækja, með skráningu á Verðbréfaþingi ís-
lands, hefur batnað verulega á síðustu misserum
og er það meginástæðan fyrir hækkandi gengi
hlutabréfanna. Verð hlutabréfa er þó lítið hærra
nú en það var um mitt ár 1991, þegar hlutabréfa-
vísitala VÍB náði hámarki. Ekki er séð fyrir end-
ann á efnahagsbatanum og milliuppgjör fyrir-
tækja á Verðbréfaþinginu sýna að rekstur flestra
gengur vel. Fátt bendir því til annars en hluta-
bréfaverð eigi eftir að hækka frekar, sem myndi
án efa treysta stöðu sjóðsins."
Fram til þessa hafa um 6% af eignum Auðlind-
ar verið bundin í erlendum verðbréfum. Bjami
segir að nú ætli sjóðurinn að hasla sér völl á
erlendum mörkuðum í ríkari mæli en áður. „Með
því ætlum við að auka ávöxtun, minnka áhættu,
ná frekari dreifingu eigna og treysta markaðs-
stöðu sjóðsins."
Það hefur færst í aukana að einstaklingar
nýti sér skattafslátt vegna hlutabréfakaupa um
áramót. Einstaklingar sem kaupa fyrir um 130
þúsund krónur geta fengið 80% þeirrar fjárhæð-
ar dregin frá tekjuskattstofni og hjón tvöfalda
þá upphæð. Rúmlega tólf þúsund einstaklingar
nýttu sér þessa heimild á síðasta ári og var það
um 10% aukning frá árinu á undan. Hlutabréfa-
sjóðurinn Auðlind býður þeim sem kaupa hluta-
bréf fyrir 500 þúsund krónur eða minna að greiða
90% af kaupverðinu með skuldabréfi til tíu mán-
aða með fyrsta gjalddaga 1. febrúar 1996. Þessi
möguleiki var einnig fyrir hendi í hlutabréfaút-
boði Auðlindar í fyrra og segir Bjarni að hann
hafi komið sér vel fyrir fjölda fjárfesta, sem áttu
þess ekki kost að greiða allt kaupverðið í einu
lagi. Þannig hafi þeir bæði notið skattahagræðis
og þeirrar hækkunar, sem varð á sjóðnum á tíma-
bilinu.
Rólegt á
mörkuðum
en verðið
hækkandi
London. Reuter.
RÓLEGT var í kauphöllum í Evrópu
og New York í gær vegna óvissu um
hvað við kunni að taka, þótt því sé
spáð að hagstæð efnahagsskilyrði
geti leitt til vaxtalækkana innan
skamms.
í Frankfurt varð mesta hækkun á
einum degi, en heildarhækkunin er
lítil. í London lækkaði FTSE-100
vísitalan um nokkur stig, en gert er
ráð fyrir hækkandi verði.
í Stokkhólmi og Helsinki voru ný
met sett, en lítið var um að vera í
París, því að skýrt var frá því að
Eurotunnel mundi stöðva greiðslur
vaxta af 12 milljarða dollara skuld.
í New York hækkaði Dow Jones vísi-
talan um nokkur stig eftir hádegi.
Minna fékkst fyrir dollarann í
Evrópu, degi eftir hæsta gengi hans
gegn jeni í 15 mánuði og gegn marki
í sjö mánuði.
Örar hækkanir
Kunnugir segja að dollarinn hafi
hækkað svo ört gegn jeni að smáleið-
réttingar sé óhjákvæmilegar öðru
hveiju, en búast megi við meiri
hækkunum.
Dollarinn komst í 103,75 jen í
fyrrinótt og hefur ekki komizt hærra
síðan í júní 1994, en lækkaði síðan
í um 102,60 jen. Hann komst einnig
í 1,50 mörk, en lækkaði síðan.
Síðan Japansbanki lækkaði for-
vexti um helming í síðustu viku hef-
ur dollarinn hækkað um allt að 4,9%
gegn jeni og 2,4% gegn marki.
-----------♦ ♦ ♦------
Kaup á Hand-
sali ekki
til álita
EKKI hefur komið til greina af
hálfu Sjóvá-Almennra að eignast
hlut í fjármálafyrirtækinu Hand-
sali, eins og haldið var fram í frétt
í viðskiptablaði í gær.
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sjóvá-Almennra sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að slíkt
hefði aldrei komið til tals innan
fyrirtækisins og hefði enda aldrei
komið til álita af þess hálfu.
-----------♦■ ♦ ♦-----
Villigötur
í FRÉTT viðskiptablaðs í gær um
póstlista Alnetssamfélagsins um
bandbreiddina á netinu misritaðist
slóðin. Rétt er hún:
http://qlan.is/bandvidd
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
ROTTERDAM-VIKA HJÁ SAMSKIPUM
Hittu okkar
mann
í Hollandi,
Guðmund Davíðsson,
á íslandi í næstu viku
Guðmundur Davíðsson er öllum hnútum
kunnugur í flutningamálum eftir margra ára
starf fyrir Samskip, bæði í Þýskalandi og
Hollandi. Hann veitir nú forstöðu skrifstofu
Samskipa í Hollandi, Samskip b.v. í Rotterdam.
Með Guðmundi koma tveir starfsmenn á
skrifstofu Samskipa í Rotterdam, þeir Wim Van
der Aa og Ed de Wolf. Þeir félagar vilja hitta
sem flesta af viðskiptavinum Samskipa
meðan á dvöl þeirra stendur. Þeir sem flytja
vörur til eða frá Hollandi, eða í gegnum Holland,
ættu að hafa samband við söludeild Samskipa
og fá nánari upplýsingar. Síminn er 569 8300.
SAMSKIP
Holtabakka við Holtaveg, 104 Reykjavík
Sími 569 8300 - Fax 569 8327