Morgunblaðið - 15.09.1995, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 17
ERLENT
Ellefta
Afríkuför
Páfa
JÓHANNES Páll páfi kom í
gær til Kamerún sem er fyrsti
viðkomustaður hans í elleftu
Afríkuför hans sem tekur viku.
Páfi, sem er 75 ára, fer meðal
annars í fyrstu opinberu heim-
sókn sína til Suður-Afríku á
laugardag. Hann neyddist að
vísu til að millilenda í Jó-
hannesarborg þegar hann ætl-
aði til Lesotho í september
1988 vegna slæms veðurs.
Rússnesk
„mafía“
upprætt
YFIRVÖLD í Los Angeles
hafa handtekið ellefu liðsmenn
„rússnesk-armenskrar mafíu“
sem flutti inn rússneskar
vændiskonur til Bandaríkj-
anna, stundaði heróínsölu og
skattsvik sem námu jafnvirði
250 milljóna króna á einu ári.
Mennirnir eru einnig sakaðir
um að hafa kúgað fé af auðug-
um Rússum og Armenum sem
hafa sest að í suðurhluta Kali-
forníu.
Mennirnir voru handteknir
á þriðjudag eftir árs rannsókn
alríkislögreglunnar FBI og
skattrannsóknastofnunarinn-
ar IRS. Höfuðpaur glæpa-
hringsins er Hovsep Miaelian,
44 ára rússneskur innflytjandi
sem kallaði sig „Guðföðurinn“
og ók um í glæsibifreiðum.
Ráðist á börn
á stríðs-
svæðum
GRACA Machel, formaður
nefndar á vegum Sameinuðu
þjóðanna sem rannsakar að-
stæður barna á stríðssvæðum,
sagði í gær að hermenn víða
um heim réðust í æ ríkari
mæli á börn af ásettu ráði.
„Þegar átökin sem eiga sér
nú stað eru könnuð kemur í
ljós að ráðist er vísvitandi á
börn, en slíkt gerðist varla
áður,“ sagði Machel.
Nefndin leggur skýrslu fyrir
allsheijarþing Sameinuðu
'þjóðanna á næsta ári og mun
leggja til að alþjóðalögum
verði breytt þannig að börnum
á stríðssvæðum verði tryggð
aukin vernd.
Olechowski
styður
Walesa
ANDRZEJ Olechowski, fyrr-
verandi fjármála- og utanríkis-
ráðherra Póllands, kvaðst í gær
styðja Lech Walesa forseta í
baráttu hans fyrir endurkjöri í
kosningunum í nóvember.
Hann kvað Walesa nógu sterk-
an leiðtoga til að treysta lýð-
ræðið í sessi, koma á markaðs-
hagkerfí og knýja fram aðild
Póllands að Evrópusambandinu
og Atlantshafsbandalaginu.
Olechowski er leiðtogi
hreyfingar sem beitir sér fyrir
sameiningu miðju- og hægri-
manna og stuðningur hans er
mikilvægur fyrir Walesa, sem
stendur frammi fyrir erfiðri
baráttu við hægrisinnaða
frambjóðendur, einkum Hanna
Gronkiewicz-Waltz seðla-
bankastjóra.
6 Oder por&9
LUsuígqe verseucht
dle Umwelt Ciberall
P ^VF á&OHVAcC
Reuter
ífpÉ
'P'ir 5
Saka Alu-
suisse um
mengun
TVEIR félagar Greenpeace-sam-
takanna á mótmælafundi í Siders
í Sviss styðja hér við bakið á
beinagrindum sem notaðarvoru
til að vekja athygli á meintri
umhverfismengun Alusuisse-fyr-
irtækisins. Er Alusuisse sagt
menga jarðveg á stöðum þar sem
úrgangsefnum frá framleiðslunni
er komið fyrir og er um að ræða
staði í Sviss og Portúgal. A spjald-
inu stendur: „Hvort sem það er í
Wallis [svissneskt hérað] eða í
Portúgal, Alusuisse saurgar um-
hverfið alls staðar“.
Tölvur og tækni
Fimmtudagsblaði Morgunblaösins, 28. september nkv fylgir blaðauki
sem heitir Tölvur og tækni, en þann dag hefst í Laugardalshöll
tölvusýning. í þessum blaðauka verður fjallað um sýninguna, það
nýjasta í tölvutækni, alnetið (Internetið) og tækni því tengdu, aukna
samkeppni á einkatölvumarkaðinum, nýjungar í fyrirtækjatölvum,
CD-ROM tæknina og forrit og leiki á CD-ROM diskum, nýjar
leikjatölvur og tölvubækur. Einnig verður fjallað um nýjustu tækni í
hljómtækjaheiminum og þróun sjónvarps- og farsímatækni.
Þeim, sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blabauka, er
bent á ab tekib er vib auglýsingapöntunum til kl. 13.00
fimmtudaginn 21. september.
Nánari upplýsingar veita Rakel Sveinsdóttir og Dóra Gubný
Sigurbardóttir, sölufulltróar í auglýsingadeild, í síma
569 1171 eba meb símbréfi 569 1110.
-kjarni málsins!