Morgunblaðið - 15.09.1995, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
4-
Vel skrifuð og
heilsteypt saga
SKÁLDSAGA Ól-
afs Jóhanns Ólafs-
sonar, Fyrirgefn-
ing syndanna, var
nýlega gefín út í
kilju í Bretlandi en
húp kom fyrst út
hjá Vöku-Helga-
felli árið 1991. Hún
hefur fengið einkar
lofsamlega dóma í
breskum blöðum.
Gagnrýnendur
segja m.a. að Fyr-
irgefning synd-
anpa sé vel skrifuð
og heilsteypt saga,
haganlega saman-
sett, margbrotin
og stíll hennar aðdáunarverður.
Þess má geta að Fyrirgefning
syndanna kom út í innbundnu
■ formi þar í landi síðla árs 1994
og valdi Sunday Telegraph
hana þá bók ársins í Bretlandi.
í Observer segir að stíll sög-
unnar sé meitlaður, „en um
leið er haldið aftur af miklu
tilfínningaflæði en það virðist
vera einkenni á norrænum bók-
menntum; sagan gæti virst
melódramatísk út frá engilsax-
neskum sjónarhóli en einlægni
þessarar fyrstu persónu frá-
sagnar um nagandi samvisku
heldur athygli lesandans. Sekt-
arkennd sögumannsins er eins
og sprengiþráður sem brennur
hægt - hann kann að hafa svik-
ið ungan mann í Danmörku á
hernámsárum þýskra nasista -
brennur í vel skrifuðum texta
og heilsteyptri frásögn."
The Times segir í umsögn
sinni: „Þessi saga um glæp og
refsingu sem skrifuð er í skýr-
um og knöppum stíl, virðist
framan af einungis verða sið-
ferðileg saga. En sú hugmynd
að hefndin eyði manni sjálfum
og ekki sé mögu-
legt að öðlast
sanna fyrirgefn-
ingu syndanna
verður óljósari
vegna flókinnar
byggingar sögunn-
ar, margræðni
hennar og hversu
erfítt er að festa
hendur á henni.
Þetta er áleitin og
margbrotin skáld-
saga.“
Gagnrýnandi
Sunday Times rek-
ur í umsögn sinni
efni bókarinnar og
segir síðan að aðal-
persóna sögunnar geri sér
grein fyrir því að draumar hans
hafí ekki ræst og það ýti undir
biturleika sem vinni gegn hon-
um sjálfum. Þetta rísi hæst í
grótesku en þó algjörlega við-
eigandi niðuriagi sögunnar.
The Birmingham Post segir:
„Pétur Pétursson rifjar upp
fortíð sína í minningarbrotum
sem fléttast lipurlega saman.
Hann kann að virðast auvirði-
leg persóna en Ólafí Jóhanni
tekst með fæmi sinni - með
stíl sem er svo skýr að aðdáun
vekur - að kveikja samúð les-
andans með þessum gamla
manni sem kominn er að fótum
fram.“
Fyrr á þessu ári kom Fyrir-
gefning syndanna út í Quality
Paperback Club í Bandaríkjun-
um en hann er hluti af Book-of-
the-Month-Club, sem er stærsti
bókaklúbburinn þar í landi. Þá
var bókin gefin út í Noregi í
apríl sl. og kemur út um þessar
mundir í Þýskalandi. Fyrri
hluta næsta árs mun Fyrirgefn-
ing syndanna verða gefin út í
Danmörku og Frakklandi.
Ólafur Jóhann
Ólafsson
-kjarni málsins!
LISTIR
KRISTJÁN Jón Guðnason: Goðsaga.
Kristur í Breiðholtinu
MYNPUST
List Gallerí - List-
húsinu Laugardai
MÁLVERK
Kristján Jón Guðnason
Opið alla daga kl. 13-18 til 17. sept-
ember. Aðgangur ókeypis.
í HINNI endalausu samkeppni um
athygli og eftirtekt almennings verður
að viðurkenna að myndlistin hefur
látið undan síga hin síðari ár fyrir
ágengari miðlum, þar sem mikið er
látið með umgjörðina, og miklu fé
varið til kynningarmála; sýningar
hinna smærri sala á vegum einkaað-
ila eiga þar einkum undir högg að
sækja. Þessi staða endurspeglar þó
engan veginn hin listrænu gildi þess
sem í boði er; sé t.d. litið til kvik-
mynda nú um stundir kemur í ljós
að meginþunginn í framboðinu er af
amerískum frasa- og formúlumynd-
um, sem búið er að endurgera með
litlum breytingum og enn minni list-
rænum tilþrifum í ár og áratugi.
Á sama tíma má sjá gjörólíkar
myndlistarsýningar uppi í hinum
ýmsu sýningarsölum, þar sem lista-
fólk er að leggja út frá eigin forsend-
um og leita eigin lausna í listinni.
Þannig þrífst fjölskrúðug myndlist
ágætlega á sama tíma og framboð
kvikmynda hér á landi verður stöðugt
fábrotnara, svo litið sé til sömu grein-
ar og fyrr.
Kristján Jón Guðnason hefur ekki
verið áberandi í sýningarhaldi frá því
hann lauk námi við Myndlista- og
handíðaskóla íslands, en hér kemur
í ljós að hann hefur heldur ekki setið
auðum höndum. Þessi sýning í List-
húsinu stingur um margt í stúf við
það sem hefur verið mest áberandi í
málverkinu undanfarin misseri, og
bætir þannig enn við þá fjölbreyttu
flóru, sem myndlistin býður upp á nú
um stundir. Listamaðurinn hefur
einkum leitað fanga í goðsagnir og
þekktar myndir listasögunnar, og
færir þessi myndefni síðan í grófgerð-
an búning einfaldra forma og sterkra
lita, svo minnir um sumt á upphaf
expressionismans. Kristján Jón vinnur
hér upp úr fomum norrænum goð-
sögnum jafnt sem fomgrískum og
kristinni trú, og ávallt er það leitin
að jafnvægi sterkrar myndbyggingar,
sem einkennir verkin.
Hinar goðsögulegu myndir em af
ýmsu tagi. „Goðsaga" (nr. 3) sýnir
Þór á ferð í vagni sínum, og geislar
orkan af þessum formum, sem em
næsta bemsk í einfeldni sinni. Það
er einnig stutt í kímnina í þessum
verkum; í málverkinu „Dauði sálma-
skáldsins eða hlegið að dauðanum"
(nr. 8) er ekki mikil alvara yfir svið-
inu, og „Alfaðir himinhæða eða sá
gamli“ (nr. 7) minnir fremur á þá
góðlegu ímynd heilags Nikulásar sem
kenndur er við jólin en hinn stranga
himnafaðir, sem Michelangelo sýndi
í lofti Sixtínsku kapellunnar og varð
að einni þekktustu guðsímynd mynd-
listarinnar.
Listamaðurinn leikur sér einnig
ófeiminn með listasöguna, þegar hann
tekur fyrir kunn myndefni og stað-
færir þau að nýju. „Innreið Krists í
Breiðholtið" (nr. 10) er ekki síður til-
vísun í verk James Ensor en í kristni-
söguna, en hér hefur Kristján Jón
breytt sósíalískri mótmælagöngu
Ensors í skrúðgöngu á þjóðhátíðar-
daginn, og orðið erfitt að greina nokk-
uð trúarlegt eða félagslegt inntak —
annað en skemmtun bamsins. Á svip-
aðan hátt má heimfæra „Kjúklinga-
ætumar“ (nr. 11) upp á hið þekkta
verk van Goghs, Kartöfluætumar, en
sem fyrr er allur broddur verksins á
bak og burt — aðeins kímnin og form-
ið stendur eftir.
Þrír grófír tréskúlptúrar sem lista-
maðurinn sýnir em í raun viðbót við
málverkin fremur en þrívíð verk, og
hefðu þess vegna mátt sleppa þeim.
Styrkur myndanna er ljósari og má
þar einkum vísa til formsins og litanna
sem fyrr segir, en gamansemin er
einnig mikilvægur þáttur sem lista-
mönnum hættir því miður til að van-
meta.
Eiríkur Þorláksson
Það sem þú heyrir er ekki alltaf það
sem þú vilt heyra. Þess vegna er nauðsynlegt að
getq valið áhugaverða og áreiðanlega umfjöllun
hvenær sem þér hentar.