Morgunblaðið - 15.09.1995, Qupperneq 29
28 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 29
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
STJÓRNARFORMAÐUR: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
VEGVISAR TIL
VELFERÐAR
UNGT FÓLK frá Vestmannaeyjum hlaut fyrstu verð-
laun í hugmyndasamkeppni 15-20 ára unglinga,
Hugvísi, síðast liðið vor. Nú hefur það bætt um betur.
í Morgunblaðinu í gær er greint frá því að þetta unga
fólk hafi unnið þriðju verðlaun í Evrópukeppni ungra
vísindamanna, sem fram fór í Newcastle á Englandi á
dögunum á vegum Evrópusambandsins. Þetta er frábær
árangur sem verðskuldar athygli og umfjöllun.
Verðlaunaverkefni þessara ungu Vestmannaeyinga var
byggt á rannsóknum á hrygningaratferli og líffræði loðnu
við Islandsstrendur. Það er við hæfi að ungt fólk úr
þessum þekkta útgerðar- og fiskvinnslubæ velji sér rann-
sóknarverkefni tengt undirstöðuatvinnuvegi okkar.
Framtak og frammistaða þess lofar og góðu um framhald-
ið. En mikilvægt er að tengja menntun og vísindalegar
rannsóknir betur atvinnulífinu í landinu. Staðreynd er
að þær þjóðir, sem veija mestum fjármunum í menntun
og rannsóknir, búa við betri lífskjör og meira efnahags-
legt öryggi en aðrar.
Rétt er að minna á aðra athyglisverða nýjung í skóla-
starfi okkar, Nýsköpunarkeppni íslenzkra grunnskóla-
nema, sem studd hefur verið af Samtökum iðnaðarins
og ýmsum fyrirtækjum. Guðrún Þórsdóttir, kennslufull-
trúi á Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, fjallar um þessa
keppni í grein hér í blaðinu 8. september sl. og segir
hana „tilraun til að rækta og virkja auðlind hugvitsins“
hjá uppvaxandi kynslóð.
Menntun og þekking eru áhrifamesta vopn í lífsbar-
áttu þjóðar og þegna. Það er því eðlilegt að fræðslukerf-
ið sæti viðvarandi gæðaaðhaldi. En það má heldur ekki
gleyma að fjalla um það sem vel er gert. Og Nýsköpunar-
keppni grunnskólanema og Evrópusamkeppni ungra vís-
indamanna varða veg til betri framtíðar. Með starfi af
þessum toga er sáð til síðari tíma uppskeru, bæði á vett-
vangi menningar og efnahagslegrar velferðar.
KVIKMYND UM
JÓN LEIFS
IKVÖLD verður frumsýnd ný íslenzk kvikmynd, skáld-
verk um ævi Jóns Leifs, tónskálds, eða öllu heldur
um þann hluta ævi hans fyrst og fremst er hann var
aðallega búsettur í Þýzkalandi. Þessi kvikmynd er merki-
leg af mörgum ástæðum. Þetta er líklega fyrsta íslenzka
kvikmyndin í fullri lengd, sem gerð er um nafnkunnan
einstakling, sem markað hefur djúp spor í menningar-
sögu lands og þjóðar á þessari öld. Það urðu örlög Jóns
Leifs, eins og margra mikilla listamanna, bæði fyrr og
síðar, að samtímamenn hans áttu erfitt með að skilja
verk hans og raunar einnig manninn sjálfan. Rúmum
aldarfjórðungi eftir lát hans eru menn að vakna til vitund-
ar um, að Jón Leifs var eitt merkasta tónskáld í Norður-
Evrópu á þessari öld.
í annan stað er ástæða til að lýsa aðdáun á þeim kjarki,
sem hópur ungs fólks undir forystu Hilmars Oddssonar,
höfundar kvikmyndarinnar, sýnir með því að ráðast í
þetta verk og vinna það svo vel, sem raun ber vitni og
sýningargestir munu sjá. Með kvikmyndinni um Jón
Leifs hefur verið unnið listrænt afrek, en jafnframt mun
myndin stuðla áð því að þjóðin öll kynnist betur þessum
merka listamanni og verkum hans, sem eiga sér djúpar
rætur í sögu þjóðarinnar og náttúru landsins.
Þrotlaust rannsóknarstarf Hjálmars H. Ragnarssonar,
tónskálds, sem í tæpa tvo áratugi hefur unnið að rann-
sóknum á tónlist og ævi Jóns Leifs er nú að skila sér
með margvíslegum hætti hérlendis og erlendis m.a. í
þessari kvikmynd en þeir Hilmar Oddsson og Hjálmar
skrifuðu handrit myndarinnar ásamt Sveinbirni I. Bald-
vinssyni.
Fjögurra síðna menningarblað Morgunblaðsins í dag
er helgað umfjöllun um kvikmyndina um Jón Leifs með
samtölum við aðstandendur myndarinnar og helztu leik-
endur. Með því vill Morgunblaðið undirstrika mikilvægi
þessa framtaks hinna ungu kvikmyndagerðarmanna og
listamanna, sem að þessu verki hafa kömið.
MÓTMÆLAFUNDUR ASÍ
Viðbrögð fundargesta á mótmæíafundinum á Ingólfstorgi
Morgunblaðið/Kristinn
Launahækk-
anir verði
felldar úr
Gremja ríkti meðal fundarmanna á afar fjölsótt-
um útifundi verkalýðsfélaganna á Ingólfstorgi
í gær, að sögn Önnu Gunnhildar Olafsdótt-
ur, sem ræddi einnig við nokkra fundarmenn.
HARÐORÐ ályktun vegna
ákvarðana um launahækk-
anir til handa alþing-
ismönnum, ráðherrum og
helstu embættismönnum þjóðarinnar
var einróma samþykkt og fram kemur
í ályktun fundarins að ef ákvarðanir
um launahækkanir verði ekki felldar
úr gildi krefjist launafólk sömu kjara-
bóta sér til handa við fyrsta tækifæri.
Að sögn lögreglu voru um 10 þúsund
manns á fundinum.
Útifundurinn fordæmdi ákvarðanir
um launamál þingmanna, ráðherra og
helstu embættismanna. Olíðandi sé að
forráðamenn þjóðarinnar gangi fram
fyrir skjöldu til þess að bijóta niður
þá stefnu að lægstu laun hækki meira
en önnur laun, að ekki sé talað um
sjálftöku Alþingismanna á sérstökum
skattfríðindum.
Fundurinn gerir í ályktuninni kröfu
um að ákvarðanimar verði felldar úr
gildi og áðumefndir hópar axli ábyrgð
á stöðugleika á sama hátt og almennt
launafólk gerði í síðustu samningum.
„Það gengur ekki upp að jafnlauna-
stefna gildi bara fyrir neðri enda launa-
‘stigans og að það sé einungis almennt
launafólk sem axli efnahagslega
ábyrgð. Samþykki stjómvöld ekki kröf-
ur launafólks mun það krefjast sömu
kjarabóta sér til handa við fyrsta tæki-
færi,“ segir í ályktuninni.
Upphaf nýrrar göngu
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, var fyrsti frum-
mælandi á fundinum. Guðmundur tók
fram að fæstir launþegar myndu trúa
þvf væri þeim boðin jafnmikil launá-
hækkun og embættismönnum nú.
Ýmsir í þeim hópi hefðu hins Vegar
ekki einu sinni haft fyrir því að þakka
fyrir sig heldur haft á orði að hækkun-
in hefði mátt koma fyrr. Ekki væri
hægt að væna aimenna launþega um
að hafa ekki stuðlað að stöðugleika og
nú hefðu þeir fyllst réttlátri reiði. Reið-
in væri upphaf nýrrar göngu. Nóg
væri komið af fátækt á íslandi.
Hann sagði að siðfræði samninganna
hefði falist í því að veita þeim lægst
launuðu mesta kauphækkun. „Allt hef-
ur þetta snúist á annan veg. Samning-
amar byggjast nú á hugmyndafræði
sem er brostin og siðferði sem er blint.
Slíkir samningar eru marklausir og að
engu hafandi. Kjarasamningar verka-
fólks hljóta því að vera lausir og það
er okkar að fylgja því eftir," sagði hann.
Almenn hneykslan og reiði
Magnús L. Sveinsson, formaður VR,
sagði að launahækkanimar hefðu vak-
ið almenna hneykslan og reiði. Reiðin
stafaði fyrst og fremst af tvennu. Ann-
ars vegar væru þær launahækkanir
sem ákveðnar hefðu verið með kjara-
dómi ekki í neinu samræmi við það sem
ráðamenn þjóðarinnar hefðu sagt að
láglaunafólk yrði að hafa að leiðarljósi
við gerð kjarasamninga í febrúar. Hins
vegar, og það væri það sem vekti mesta
reiði og hneykslun fólks, væri sú
ákvörðun að stór hluti launa þing-
manna skyldi vera skattfijáls sam-
kvæmt lögum sem þingmenn hefðu
sett um sín eigin kjör. „Sprengju hefur
verið kastað inn í þjóðfélagið með þess-
um gjömingi,“ sagði Magnús.
Hann vitnaði til orða forsætisráð-
herra í Morgunblaðinu II. desember
gildi
sl. Forsætisráðherra hefði sagt að hann
ætti eftir að sjá að ábyrgir menn í
verkalýðshreyfmgunni myndu vilja
glutra niður þeim árangri sem þeir
hefðu átt svo mikinn þátt í að skapa.
Ekki mætti láta einstaka aðila skemma
þetta og ríkisstjórinin hefði ekki leyfí
til að taka þátt í því.
„Þetta er kjami málsins," sagði
Magnús og tók fram að fulltrúar laun-
þega hefðu sýnt fulla ábyrgð við gerð
samninganna og viljað stuðla að því
með hóflegri launahækkun að hún
tryggði áframhaldandi stöðugleika sem
væri forsenda fyrir auknum kaup-
mætti launa. Síðan samningamir vom
gerðir hafi ríkisvaldið hins vegar gert
fjöldann allan af samningum sem hafi
falið í sér miklu meiri launahækkanir
en febrúarsamningamir. Þó gengju
launahækkanimar nú lengst. „Þetta er
ekki í neinu samræmi við það sem
æðstu menn þjóðarinnar vöraðu ábyrga
menn í verkalýðshreyfingunni við í
desember og sögðu þá að ríkisstjómin
hefði ekki leyfi til að taka þátt í.“
Hann tók fram að um 15 milljarðar
töpuðust vegna skattsvika. Þau væra
flokkuð undir siðleysi. „Ég leyfi mér
að jafna þessum gjömingi þingmanna
um skattfríðindi þeim til handa við
skattsvik. Eini munurinn er að þing-
mennimir hafa lögvemdað sig fyrir
skattsvikum, en hvoratveggja er jafn-
siðlaust."
Ávinningi skipt meðal
tekjuhárra
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ,
sagði að verkalýðshreyfíngin hefði
heilshugar lagt sitt Ióð á vogarskálina
í viðleitni til að ná aftur upp ásættan-
legum kjöram fyrir almennt launafólk.
Verkalýðshreyfingin sætti sig hins veg-.
ar ekki við það að nú, þegar talið
væri að efnahagslífið væri að rétta úr
kútnum eftir þrengingamar, væri
ávinningnum einfaldlega skipt út meðal
hinna tekjuliæstu í þjóðfélaginu en
aðrir skíldir eftir.
Krafa til forseta ASÍ á fjölmennasta
fundi um áratugaskeið í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir
ALÞÝÐUHÚSIÐ var troðfullt út úr dyrum á fundinum í gær.
Rífi núgildandi
samninga í beinni
útsendingu
Vestmannae^jum. Morgunblaðið.
VERKALYÐSFÉLÓGIN í Vest-
mannaeyjum hvöttu félagsmenn
sína til vinnustöðvunar í gær og
efndu til fundar í Alþýðuhúsinu til
að mótmæla launahækkunum al-
þingismanna. Alþýðuhúsið var troð-
fullt og mikil hiti í fundarmönnum.
Jón Kjartansson, - formaður
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að fundurinn í gær sé fjölmennasti
og kraftmesti fundur sem verka-
lýðshreyfingin í Eyjum hafi haldið
í áratugi. Talið er að yfir 300
manns hafí verið á fundinum, en
fleiri komust ekki í húsið og varð
fjöldi fólks að hverfa frá.
Skattfijálsa greiðslan kornið
sem fyllti mælinn
„Það var mikil reiði .í fólki og
það krefst þess að samningunum
verði sagt upp tafarlaust. Ein fisk-
vinnslukonan, sem tók til máls á
fundinum, flutti þrumandi ræðu og
sagðist ætlast til þess að sjá for-
seta ASÍ rífa núgildandi samninga
og það í beinni útsendingu," sagði
Jón.'
Hann sagði að fólkið, sem hefði
samþykkt samninga sem fólu í sér
launahækkun upp á 2.700 krónur
á mánuði fyrir þá lægst launuðu,
sem hefðu verið samningar í þess-
um ASÍ-anda eins og það hafi ver-
ið kallað, væri óánægt með að sjá
að allar þær opinberu stéttir sem
á eftir hefðu samið hefðu ekki þurft
að semja í þeim anda og hefðu
fengið meiri hækkanir. 40.000
króna skattfrjálsa greiðslan, sem
þingmenn hefðu síðan skammtað
sér, hefði verið kornið sem fyllti
mælinn hjá verkafólki og því væri
reiði þess nú mikil.
„Ég var að slá því saman í dag
að kauphækkunin, sem þeir lægst
launuðu fengu út úr síðustu samn-
ingum, nemur um 40 þúsundum á
ári sem er sama upphæð og þing-
menn skenktu sér nú í mánaðarleg-
ar skattfrjálsar greiðslur. Það er
því ekki að undra að reiðin sjóði í
verkafólki," sagði Jón.
„Maður er reiður,
virkilega reiður“
MÉR finnst algjört siðleysi
hvemig alþingismenn
hafa hagað sér og dómur
kjaradóms er að mínu
áliti alveg út í hött,“ sagði Valgeir
Jónasson, starfsmaður Pósts og síma,
á útifundi verkalýðsfélaganna vegna
launahækkana alþingismanna, ráð-
herra og æðstu embættismanna á
Ingólfstorgi í gær.
Valgeir sagði að sér fyndist lág-
mark að 40.000 kr. skattfijáls launa-
hækkun yrði tekin af alþingismönn-
um. „Enda era peningarnir ekkert
annað en skattfijáls kauphækkun.
Síðan finnst mér eðlilegt að kaupið
okkar hinna hækki svipað og alþingis-
mannanna eða um það sem okkur
vantar upp í 15%.“
„Maður er reiður“
„Ég er komin hingað til að mót-
mæla launahækkunum til alþingis-
manna. Mér finnst alveg fáránlegt að
þeir skuli hafa skattfrjálsar tekjur og
út í hött hvernig staðið er að hækkun-
inni. Maður er reiður, virkilega reið-
ur,“ sagði Ólöf Guðjónsdóttir, heima-
vinnandi, en sagðist ekki hafa myndað
sér skoðun á því hvað leið væri best
að fara til að bæta úr óréttlætinu.
Nýjum skattareglum mótmælt
„Ég er að sýna samstöðu með
hreyfingunni og mótmæla nýjum
skattareglum alþingismanna sér til
handa. Hins vegar er ég með betri
kauphækkunum og hefði gjaman vilj-
að fá sömu kauphækkum og þeir eru
að fá. Þeir eru að gefa góða línu í
kauphækkunum en skattaleiðin er al-
veg það síðasta,“ sagði Stefán Guð-
mundsson, starfsmaður Islenska álfé-
lagsins. Stefán sagði að sér fyndist
að alþingismenn ættu að hætta við
40.000 kr. skattfijálsa launahækkun.
„Mér finnst að þeir geti sýnt -þjóðinni
að þeir hafi vit og þroska en ekki
svona vitleysu. Þeir gera það þegar
þeir sjá fólkið hérna, alveg örigglega.“
„Sjá sig vonandi um hönd“
Valgeir Ólöf Stefán
Jónasson Guðjónsdóttir Guðmundsson
Garðar Hafdís Kjartan
Ingvarsson Guðmundsdóttir Hjálmarsson
„Dagheimili barnanna minna var
lokað og sjálf lagði ég niður vinnu til
að mótmæla launahækkun alþingis-
manna. Mér fínnst frekar að við ætt-
um fá einhveija sneið af því sem þeir
era að taka sér. Auðvitað hefði verið
hægt að ganga fram af manni á ýms-
an annan hátt en þeir gerðu það á
þennan hátt,“ sagði Gróa Finnsdóttir,
starfsmaður Þjóðminjasafns. Hún var
með börn sín tvö, Sigríði og Finn Ól-
afsböm, á fundinum. Gróa vildi engu
spá um hvort ákvörðun um launa-
hækkun til alþingismanna og ráðherra
yrði dregin til baka. Hins vegar sagð-
ist hún vona að ráðamenn sæju að sér.
„Fáum bara einhverja
þúsundkalla“
„Ég kom til að fylgjast með, sjá
aðra, og auðvitað finnst mér helvíti
skítt að verið sé að hækka laun alþing-
ismanna svona svakalega og við fáum
bara einhveija þúsundkalla. Mér fynd-
ist sanngjarnara ef þeir gæfu okkur
svona 40.000 kr. í launahækkun. Mér
finnst nóg komið og held ég öllum sem
eru hérna að sýna samstöðu," sagði
Garðar Ingvarsson, starfsmaður á
bílaverkstæði Esso. Hann sagðist trúa
því að hlustað yrði á launafólk. „Þeir
verða að gera það.“
„Okkur var lofað ágóðanum"
„Hér eru allir að mótmæla þvl
sama; hveiju ríkisstjómin er að
skammta sér. Gáfulegra hefði verið
að hækka laun almennra launþega.
Ég hefði viljað að launin mín væru
hækkuð og ekki minna en þeir eru
núna að hækka sig I einu skrefí núna.
Okkar var lofað ágóðanum þegar ár-
aði betur en hann hefur farið annað,"
sagði Hafdís Guðmundsdóttir, starfs-
maður í Suðurbæjarlaug í Hafnar-
firði. Hafdís sagði að yfirvöld hljdu
að hlusta á raddir launafólks. „Fólk
Einar
Hermannsson
Ágúst
Guðmundsson
Elsa
Sveinsdóttir
Gróa Finnssdóttir
er reitt, búið að fá nóg, og ég ætla
rétt að vona að hlustað verði á það.“
„Sýni samstöðu"
„Ég er kominn hingað til að sýna
samstöðu I að mótmæla ósanngjörnum
launahækkunum,“ sagði Kjartan
Hjálmarsson háskólanemi. Kjartan
sagðist vilja launajöfnuð. Um íjörutíu
þúsund króna starfskostnaðargreiðsl-
ur til alþingismanna, sagði hann að
sér fyndist sjálfsagt að alþingismenn
sýndu nótur fyrir kostnaði. Kjartan
sagði að sér heyrðist almenningur
afar ósáttur við launahækkun til al-
þingismanna og ráðherra.
Kjarasamningum verði sagt upp
„Ég er kominn hingað til að berjast
fyrir launajafnrétti í landinu og mót-
mæla launahækkun alþingismanna,
ráðherra og æðstu embættismanna.
Ég vil að launahækkunin verði tekin
af þeim og fyrst og fremst fínnst mér
sjálfsagt að segja upp núgildandi
kjarasamningi. Allar forsendur samn-
ingsins eni brostnar,“ sagði Einar
Hermannsson, starfsmaður í farþega-
afgreiðslu innanlandsflugs Flugleiða,
við upphaf fundarins. Hann sagði að
eins og launin væra í dag þyrftu þau
að hækka um að minnsta kosti 15%.
„Ég yrði sáttur við það,“ sagði hann.
Hann sagði að sér fyndist mjög góð
samstaða meðal launafólks, t.d. hefðu
starfsmenn í innanlandsflugi gengið
út í gær. Hins vegar efaðist hann um
að hlustað yrði á raddir fundarmanna.
„Siðleysi af versta tagi“
Ágúst Guðmundsson sagðist vera
kominn á fundinn til að sýna sam-
stöðu með launafólki. „Með launa-
hækkununum hafa forystumenn þjóð-
arinnar sýnt siðleysi af versta tagi.
Ég hef ekki talað við neinn alþingis-
mann eða neinn af þeim sem fengu
þessa hækkun en enga aðra hef ég
heyrt mæla þessu bót. Ég vil að allt
verði gert sem hægt er að gera til
að stoppa þetta siðleysi forystumanna
þjóðarinnar. Að þeir hætti skilyrðis-
laust við hækkunina," sagði Agúst.
Ágúst sagði að alþingismenn ættu að
fá launahækkun eins og aðrir. „Hvorki
meira né minna,“ sagði hann og taldi
að forystumenn hlytu að hlusta á
raddir fólksins. „Þeir komast ekki upp
með þetta,“ sagði hann að lokum.
Launafólk reitt
„Ég er komin til að mótmæla launa-
hækkun alþingismahna. Mér finnst
hún alltof há og að hætta eigi við
hana,“ sagði Elsa Sveinsdóttir, starfs-
maður hjá Frón. Elsa sagði að sér
fyndist launafólk almennt reitt yfir
hækkuninni. „Mér finnst frekar að
almenningur þyrfi hækkun en ég hef
ekki myndað mér skoðun á þvi hvað
hún þurfi að vera mikil." "