Morgunblaðið - 15.09.1995, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 43
FRETTIR
VII. Hamrtíqil
Reykjavegur
frá Reykjanestá
að Nesjavöílum y? ^ ^
oð Nesjavöllum '
fS rv. Djupavatn '' f ^-'4/1
J \ ab Kaldárseli-v...vellir fW
: .í
VI. Bláfjalla-
skáli í Hamragil
V. Kaldársel í Bláfjallaskála
ab Þorbirni ab Sandfelli '-III. Sandfell að Djúpavatni
REYKJANESVEGURINN
Ný gönguleið kynnt
og könnuð
UTIVIST stendur fyrir könnunar-
ferð, ef veður leyfir, á Reykjavegin-
um sunnudaginn 17. september í
samvinnu við Ferðamálasamtök höf-
uðborgarsvæðisins og Ferðamála-
samtök Suðurnesja.
Reykjavegurinn, sem svo hefur
verið nefndur, er gönguleið sem verð-
ur stikuð eftir endilöngum Reykja-
nesskaga á milli Reykjaness og
Nesjavalla í Grafningi. Þessi fyrir-
hugaða gönguleið verður sjö dagleið-
ir og gengið á milli skála.
A sunnudaginn verður þátttakend-
um skipt í sjö hópa undir fararstjórn
og gengur hver hópur eina dagleið.
Hveijum hópi verður ekið á upphafs-
stað gönguferðar og sóttur að göngu
lokinni. Þátttökugjald er ekkert og
sem flestir hvattir til að koma með.
Farið verður frá BSÍ kl. 9 og þátttak-
endur hvattir til að koma tímanlega
til skráningar. Suðurnesjamenn geta
komið í þijár vestustu dagleiðirnar
við Fitjanesi kl. 9.30 og við Bláa
lónið kl. 9.45.
Kynning á leiðinni og nánari upp-
lýsingar verða við Íslandslíkanið í
Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn
16. september milli kl. 14 og 16. Þar
verður einnig hægt að skrá sig í ferð-
ina.
Keppni í
hugmynda-
förðun
KEPPT verður í annað sinn í
Hugmyndaförðun á Islandi laug-
ardaginn 16. september. Keppnin
er fyrir förðunarfræðinga, snyrti-
fræðinga og annað áhugafólk um
förðun.
Keppnin hefst stundvíslega kl.
13 á sameign Borgarkringlunnar.
Keppendur hafa eina og hálfa
klukkustund til að ljúka verkinu.
Dómnefnd mun þá skoða hug-
myndirnar og verður öllum heim-
ilt að skoða verkin meðan á vinnu
þeirra stendur. Dómnefnd skipa:
Anna Toher, framkvæmdastjóri
Farða hf., Þórarinn Jón Magnús-
son, ritstjóri Vikunnar, Heiðar
Jónsson, snyrtir, Henný Her-
mannsdóttir, danskennari, og Pál-
ína Jónmundsdóttir. Fyrir kl. 16
UPPSETT hár og kjóll í anda
Jacqueline Kennedy og stíll
sem kenndur var við bresku
stúlkuna Twiggy voru ein-
kenni tískunnar á sjöunda
áratugnum.
verða úrslit kynnt og hlýtur vinn-
ingshafi veglegan bikar til eignar.
Síðasta úti-
vistarhelgin í
Viðey
NtJ ER framundan síðasta sumar-
helgin með fastri dagskrá í Viðey.
Eftir sem áður er þó hægt að fá
leiðsögn og aðra þjónustu fyrir
hópa og einstaklinga sem þangað
leggja leið sína.
A laugardag verður að venju
gönguferð sem hefst við kirkjuna
kl. 14.15. Þá verður farin ný leið
um austanverða norðurströnd eyj-
arinnar. Verkamenn í átaksvinnu
hafa nýlega lokið gerð stígs áþess-
um slóðum og þarna virðist vera
fallegasta gönguleiðin um eyna.
Staðarhaldari verður leiðsögumað-
ur, lýsir örnefnum og segir sögu
eyjarinnar og næsta umhverfis.
Þegar komið verður af norður-
ströndinni verður að lokum gengið
um hluta Sundbakkans og farið í
skólann þar sem ljósmyndasýning-
in verður skoðuð sem þar hefur
verið í sumar.
Á sunnudag messar sr. Jakob
Ág. Hjálmarsson kl. 14 í Viðeyjar-
kirkju. Að messu lokinni eða kl.
15.15 verður síðan staðarskoðun.
Hún byijar í kirkjunni en síðan er
farið um næsta nágrenni Stofunn-
ar, fornleifagröfturinn skoðaður og
útsýnið af Heljarkinn. Þessu lýkur
um kl. 16.
Veitingar eru seldar í Viðeyjar-
stofu. Bátsferðir eru báða dagana
úr Sundahöfn á klukkustundar
fresti frá kl. 13 og sérstök ferð
verður með kirkjugesti kl. 13.30.
Haustferð í
Hrafntinnusker
FERÐAFÉLAG íslands efnir um
helgina til nýstárlegrar helgarferð-
ar inn á Torfajökulssvæðið sem er
eitt fjölbreyttasta og litríkasta
fjallasvæði landsins. Gist verður í
nýjum og glæsilegum gönguskála
félagsins í Hrafntinnuskeri.
Farið verður á laugardags-
morgni og ekið inn fyrir Laugafell
hjá Fjallabaksleið syðri og gengið
þaðan í skálann með viðkomu í
íshellunum. Á sunnudeginum verð-
ur gengið til Landmannalauga.
Þetta er 7-10 km gönguleiðir og
séð verður að hluta til um flutning
á farangri. Haustið þykir mörgum
verða einn fegursti og besti ferða-
tíminn í óbyggðum.
Nánari upplýsingar um ferðina
fást á skrifstofu Ferðafélagsins að
Mörkinni 6. Um helgina er einnig
ferð í Þórsmörk á dagskránni.
HEIÐAR Jónsson og Bjarkey
Magnúsdóttir í snyrtivöru-
verslun sinni á Laugavegi 66.
Heiðar og Bjark-
ey opna snyrti-
vöruverslun
HEIÐAR Jónsson og Bjarkey
Magnúsdóttir hafa opnað snyrti-
vöruverslun á Laugavegi 66, 2.
hæð.
Þau bjóða upp á persónulega
þjónustu og leiðbeiningar við val á
snyrtivörum, sérstaklea litavöru.
Námskeið í litgreiningu, fatastil og
framkomu, förðun og fleiru verða
á staðnum sem fyrir voru á Vestur-
götu 19.
Sálarrannsókn-
arþing- í Munað-
arnesi
HALDIÐ verður í Munaðarnesi dag-
ana 15. til 20. september ráðstefna
og ársþing Nordisk Spiritual Union.
NSU eru samtök sálarrannsóknar-
félaga á Norðurlöndum og er þetta
í fyrsta skipti sem slíkt ársþing er
haldið á íslandi. Forseti NSU er
Daninn Vagn Rose.
Sálarrannsóknarfélag íslands,
SRFÍ, hefur séð um undirbúning
og dagskrá. Guðmundur Einarsson,
verkfræðingur, núverandi varafor-
seti SRFÍ, er einnig varaforseti
NSU. Guðmundur hefur verið full-
trúi íslands í stjórn NSU frá 1976.
Forseti SRFÍ er Gunnar St. Ólafs-
so'n.
Árið 1948 var haldinn undirbún-
ingsstofnfundur NSU í Árósum í
Danmörku og þar mættu sr. Jón
Auðuns og Hafsteinn Björnsson
miðill sem fulltrúar SRFÍ. Um átta-
tíu manns munu sækja ársþingið
og er helmingur þeirra frá Dan-
mörku, Svíþjóð og Finnlandi. Boðið
verður upp á fyrirlestra, skyggni-
lýsingar, umbreytingamiðil, heilun
og námskeið auk einkafunda hjá
um 10 miðlum, flestum frá íslandi.
Ný skoðunar-
stöð í Garðabæ
BIFREIÐASKOÐUN íslands mun
í dag, föstudaginn 15. september,
opna nýja skoðunarstöð fyrir fólks-
bíla í Garðabæ. Stöðin er staðsett
í húsnæði bensínstöðvar Skeljungs
á Garðatorgi (v/Vífilsstaðaveg -
Bæjarbraut).
Skoðunarstöðin er búin öllum
fullkomnustu tækjum og mun skoð-
unin að öllu leyti uppfylla sömu
skilyrði og skoðanir hjá öðrum
stöðvum Bifreiðaskoðunar. Með til-
komu þessarar nýju stöðvar starf-
rækir Bifreiðaskoðun 13 skoðunar-
stöðvar vítt og breytt um landið auk
þess sem fyrirtækið starfrækir fær-
anlega skoðunarstöð sem skoðar á
20 stöðum víðsvegar um landið.
Opnunartími Garðabæjarstöðv-
arinnar verður alla virka daga kl.
8-18 og mun hún hafa á að skipa
einum skoðunarmanni, Birni Þór
Hannessyni, bifvélavirkja.
Skoðunarstöðin verður opnuð í
dag kl. 15 og eru allir velunnarar
Bifreiðaskoðunar velkomnir að
skoða stöðina og þiggja kaffí og
konfekt.
Hörður Torfa í
Loftkastalanum
HÖRÐUR Torfason heldur auka-
tónleika í kvöld, föstudagskvöld, í
Loftkastalanum í Héðinshúsi við
Seljaveg. Tónleikarnir hefjast kl.
20.
Athugasemd
„AÐ GEFNU tilefni vill Handsal
hf. koma fram með eftirfarandi
athugasemd við frétt sem birtist á
bls. 2 i Morgunblaðinu 14. septem-
ber sl. í umræddri frétt segir frá
því að Vinnuveitendasamband ís-
lands hafi stefnt Hafnarfjarðarbæ
og Handsali hf. vegna greiðslu á
rúmlega 6,5 milljóna króna skulda-
bréfi sem útgefið var af Hyrningar-
steini hf., starfsmannafélagi Hag-
virkis-Kletts hf.
Handsali hf. hefur ekki verið
stefnt til greiðslu á ofangreindri
kröfu og ekki eru gerðar neinar
kröfur á hendur félaginu í þessu
dómsmáli. Handsali hf. var einung-
is stefnt til réttargæslu þar sem
félagið hafði milligöngu um sölu á
umræddu skuldabréfi. Félaginu er
þannig einungis stefnt í málinu af
hálfu VSÍ til að fá fram upplýs-
ingar sem tengjast sölunni á bréf-
inu. Dómsmeðferð í máli þessu mun
ekki snerta hagsmuni Handsals hf.
á nokkurn hátt hver svo sem dóm-
sniðurstaða verður."
REIÐHJOLAUTSALA - VERSLIÐ ODYRT!
Bjóðum ennþá 18 gíra 26" fjallahjól
DIAMOND NEVADA
á frábæru verði. Shimano gírar,
álgjarðir, átaksbremsur, standari,
brúsi, keðjuhlíf og gírhlíf.
Verð aðeins kr. 19.800,
stgr. kr. Ht.it 10.
/------:-----------------------n
rofffi merkin:
GIANT • SCOTT • BRONCO • SCHWINN.
EUROSTAR • DIAMOND • ITALTRIKE • VIVI
10-55%
' Dempara-fjallahjól
Giant GSR-500. Shimano
gírar og góður búnaður.
Verð aðeins kr. 34.900,
stgr. kr. 33.150.
Schwinn Moab SS (mynd).
Shimano Alivio gírar, Tange
gaffall og mjög góður
búnaður. Verðið er ótrúlegt,
kr. 42.000, stgr. kr. 30.000.
I(arahíutir og aukahlutir:
Hjálmar, grifflur,
barnastólar, Ijós,
bjöllur, brúsar,
töskur, slöngur,
hraðamælar
og flest annað
sem vantar á hjólið.
Blikkljós
Stórsniðugt öryggistæki í umferðinni - stórt eða
lítið, bæði með festingu á fatnað og með því
stærra fylgir festing á reiðhjól. Rafhlöður fylgja.
Verð lítið kr. 280, stórt kr. 1.110.
Ármúla 40
Símar: 553 5320
568 8860