Morgunblaðið - 15.09.1995, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
FRÉTTIR
Verkalýðsfélög mótmæla kjaradómi
Kröfur um upptöku
kjarasamninga
VERKALÝÐSFÉLÖG víðsvegar
um land hafa ályktað gegn launa-
hækkunum sem Kjaradómur úr-
skurðaði opinberum embættis-
mönnum og kostnaðargreiðslum
sem forsætisnefnd Alþingis hefur
ákveðið til alþingismanna.
í ályktun Verkalýðsfélags Húsa-
víkur segir m.a. að þeir aðilar, sem
síðastliðinn vetur hafi höfðað hvað
mest til ábyrgðarkenndar launa-
manna og nauðsynjar þess að varð-
veita efnahagslegan stöðugleika
hafi nú kastað grímunni. Það verði
ekki liðið að þeir sem hafí aðstöðu
til geti tekið það sem þá lysti án
tillits til annarra og íslensk verka-
lýðshreyfing hljóti að krefjast upp-
töku þeirra samninga sem gerðir
voru í vetur og krefjast sambæri-
legra lífskjara við þau sem
sjálftökuliðið telji sér hæfa.
Stjórn Sóknar í Reykjavík lýsir
furðu sinni á niðurstöðu Kjaradóms
og skorar á ríkisstjórn og Alþingi
að endurskoða vanhugsaða og sið-
lausa ákvörðun sína tafarlaust og
vinna heldur markvisst að því að
eyða því mikla launamisrétti sem
sé til staðar í landinu.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Verkalýðsfélagsins Fram á Sauðár-
króki mótmælir einnig úrskurði
Kjaradóms og segir að úrskurðir
um tugþúsunda hækkanir til emb-
ættismanna og skattfríar greiðslur
til alþingismanna hafi misboðið
réttlætiskennd almenns launafólks
þannig að tæpast verði við unað.
Þess er krafist að ákvarðanir um
kostnaðargreiðslur þingmanna
verði felldar úr gildi og alþingis-
og embættismönnum verði úr-
skurðaðar 2.700 krónur á mánuði.
Mickey Jupp
rokkar á Islandi
BRESKI blúsrokkarinn Mickey
Jupp er kominn til landsins á ný
og mun koma fram á þrennum
tónleikum á Kaffi Reykjavík með
rokkbandi Björgvins Gíslasonar.
í fréttatilkynningu segir að
Mickey Jupp sé talinn í hópi bestu
laga- og textahöfunda í bresku
rokki og rytmablús, en hann er
einnig afbragðs söngvari og hefur
verið kallaður „Chuck Berry Bret-
lands“.
Tónleikar Mickey Jupps og
rokkbands Björgvins Gíslasonar
verða eins og fyrr segir á Kaffi
Reykjavík föstudaginn 15. sept-
BRESKI blúsrokkarinn
Mickey Jupp.
ember, laugardaginn 16. septem-
ber og sunnudaginn 17. septem-
ber.
Fyrirlestur um boð-
skap Maríu meyjar
. HELGINA 16. og 17. september
dvelur hér á landi bandarísk kona
að nafni Annie Kirkwood. Hún
hefur tekið á móti upplýsingum frá
Maríu mey og hefur bók hennar
með þeim upplýsingum verið gefín
út í íslenskri þýðingu og nefnist
Boðskapur Maríu til mannkynsins,
segir í frétt frá Leiðarljósi hf.
I fréttatilkynningunni segir
ennfremur: „Annie er hjúkrunar-
fræðingur að mennt og taldi hvað
eftir annað, þegar hún meðtók
fyrstu skilaboðin frá Maríp, að
Maríu hefði orðið á mistök, þar
sem Annie er ekki kaþólsk. En
María svaraði því til að það væri
^ hún ekki heldur og að henni væri
mjög umhugað um að boðskapur
hennar næði til fólksins. Boðskap-
urinn snýr að væntanlegum heims-
breytingum og því hvemig hægt
er að undirbúa sig fyrir þær. Þeim
spurningum er svarað í bókinni
sem fyrst kom út 1991 en mikið
af spádómum Maríu hefur gengið
eftir. Um helgina kemur Annie
Kirkwood til með að miðla nýjum
upplýsingum um framtíðina frá
Maríu."
Annie Kirkwood heldur fyrir-
lestur um Væntanlegar breytingar
samkvæmt skilaboðum Maríu í
Háskólabíói laugardaginn_ 16.
september frá kl. 14-16. Áheyr-
endum gefst kostur á að leggja
spurningar fyrir hana. Sunnudag-
inn 17. september heldur hún
námskeið í því Hvemig á að und-
irbúa sig fyrir væntanlegar heims-
breytingar og upplifa 1000 ár frið-
ar. Námskeiðið er haldið í bíósal
Hótels Loftleiða og stendur frá
kl. 10-17. Skráning og allar nán-
ari upplýsingar eru í versluninni
Betra lífi í Borgarkringlunni.
Grænmetismarkaður
fyrir kristniboðið
j GRÆNMETISMARKAÐUR verð-
ur haldinn laugardaginn 16.
september í húsi KFUM og K,
Holtavegi 28 (gegnt Langholts-
skóla) í Reykjavík. Markaðurinn
hefst kl. 14 og rennur ágóðinn til
starfs Kristniboðssambandsins í
Eþíópíu og Kenýu.
Það eru nokkrar konur í hópi
kristniboðsvina sem standa fyrir
markaðnum. Þama verður selt
ýmiss konar grænmeti, ailt eftir
því hvað kristniboðsvinir og aðrir
velunnarar vilja leggja fram af
uppskeru sumarsins. Hvers kyns
grænmeti er vel þegið, kál, kartöfl-
ur, gulrætur, ber, sultur, ávextir
o.s.frv., einnig blóm og kökur og
hvað sem er matarkyns. Þessu er
veitt viðtaka í KFUM-húsinu í dag,
föstudag, kl. 17-19.
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Hvar er núllið?
NOKKRIR menn voru að
ræða saman í sambandi við
vegaskilti og hve margir
kílómetrar væru til Reykja:
víkur frá ýmsum stöðum. í
umræðunum kom upp sú
spuming hvar núllið væri
staðsett í Reykjavík, þ.e.
hvaðan fjarlægðirnar væru
mældar. Sumir þeirra héldu
að núllið væri á Hlemm-
torgi, en aðrir að það væri
fyrir framan gamla Geys-
ishúsið á Aðalstræti. Hins
vegar hefur enginn botn
fengist í þetta mál og væri
gaman að fá upplýsingar
um hvar núllið væri?
Velvakandi hafði sam-
band við Vegagerð ríkisins
og fékk þær upplýsingar
að mælt væri frá Lækjar-
torgi og þaðan væru 7 km
að borgarmörkunum.
Misjöfn þjónusta
BJARKI Árnason, sem var
í atvinnuleit bað Velvak-
anda um eftirfarandi:
„Ég hafði fregnir af því
að KASK á Homafirði,
vantáði fólk í vinnu, og
hringdi þangað.
Ég var látinn bíða í
lengri tíma meðan leitað
var að verkstjóra, eða ein-
hveijum til að sinna um-
sókn minni, en enginn
fannst til þess verks. Ég
tel ekki að fyrirtækið vanti
fólk í vinnu miðað við þá
afgreiðslu sem ég fékk
þama.
Ég vil nefna annað dæmi
um afgreiðslu sem var til
fyrirmyndar. Ég sótti um
í frystihúsi úti á landi, og
fékk frá því fyrirtæki bréf
um að því miður væri búið
að ráða í störfin en mér
sérstaklega þakkað fyrir
áhuga minn á fyrirtækinu.
Þetta er kurteisi við þann
sem sækir um og mættu
aðrir taka það sér til fyrir-
myndar.
Hálkuvörn á
hjólbörðum
BIFREIÐASTJÓRI skrif-
aði eftirfarandi bréf til
Velvakanda:
„Maður kemur inn á
einkaleyfisskrifstofu með
uppfinningu sem hann er
beðinn að sýna. Hann fer
úr skónum og sperrir tærn-
ar með þeim ummælum að
hann hafi fundið upp nýja
aðferð til þess að plokka
hænur. Skrifstofumaður-
inn spyr hvers eðlis upp-
finningin sé? „Jú, sjáðu til,
ég geri það með tánum.
Það hefur aldrei verið gert
áður á þennan hátt“. „Nú
já hvað er svona merkilegt
við það?“. „Já datt mér
ekki í hug að þið vissuð
það ekki. Þessi aðferð er
fyrir handalausa". Þeg-
ar ég las um harðkorna
dekkin datt mér ekki annað
í hug en þessi uppfinning
væri eingöngu fyrir trú-
gjarna er horfðu yfir ein-
faldar staðreyndir eðlis-
fræðinnar. Eins og t.d.
miðflóttaaflið; eiginieika
harðra efna við að vinna á
mýkri efnum o.s.frv. Til
þess að þessi harðkorna
uppfinning virki verða
þessi hörðu efni að ná við-
námi við malbikið, þ.a.l.
verður hvert einasta hjól
sem slípirokkur á malbik-
inu. Já og það allt árið um
kring því að það er talið
óþarfi að taka þau af á
sumrin. Af þessu mun
myndast tjöruryk ef ekki
ský þegar allir þessir slípu-
rokkar fara að virka. Samt
er ég viss um að þessi upp-
finning myndi virka mjög
vel á freðmýrum Síberíu
þar sem lítið er um manna-
ferðir og því minni hætta
á að þessar hörðu agnir
skjótist í andlit fólks er þær
losna við slit dekkjanna.
Mér fyndist ekki nema
sanngjarnt að framleiðend-
ur sköffuðu öllum sérstak-
ar tjörugrímur sem og
hlífðargleraugu að
ógleymdum frímiðum að
efnalaugum til hreinsunar
á fötum borgarbúa.
Nei, þessi uppfinning er
víst ekki eingöngu fyrir
auðtrúa, því að almenn-
ingur og sjóðir hans eiga
að taka upp budduna.
Hveiju skiptir það, við
höfum svo oft spáð í fjár-
festingar án þess að hafa
gróðasjónarmiðin að leið-
arljósi."
Tapað/fundið
Hjól hvarf
DÖKKBLEIKT 24 tommu
Icefox gírahjól hvarf úr
hjólageymslunni í Gyðufelli
8 helgina 9.-10. september
sl. Ef einhver hefur orðið
var við hjólið vinsamlegast
hringið í síma 587-7729.
skák
(Jmsjón Margeir
Pétursson
SVARTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp í fjöltefli
Soffíu Polgar (2.485) í
Skákskóla Islands á mið-
vikudaginn. Ungverska
stúlkan var með hvítt, en
Davíð Kjartansson (1.690),
ungur og afar efnilegur
skákmaður, hafði svart og
átti leik.
19. - Hxf3! 20. Kxf3 (Nú
hefur hvítur veika von um
að geta bjargað kóngnum á
flótta eftir 20. - Dxh3, en
Davíð fann mát í tveimur
leikjum:) 20. - Rh4+! og
Soffia gafst upp því 21.
gxh4 - Dxh3 er skák og
mát.
Andstæðingar Soffiu
voru 31 talsins. Auk Dav-
íðs Kjartanssonar náði
Davíð Ó. Ingimarsson að
leggja hana að velli. Átta
skákmenn gerðu jafn-
tefli, en Soffia vann 21
skák, sem er ágætur
árangur, því meðal and-
stæðinga hennar voru
unglingalandsliðsmenn,
sem gerðu flestir jafn-
tefli.
Síðasta umferð Frið-
riksmótsins fer fram í dag
í Þjóðarbókhlöðunni kl. 17.
Þá mætast Smyslov og
Hannes Hlífar, Helgi Áss og
Friðrik, Larsen og Helgi
Ól., Þrösturog Jóhann, Mar-
geir og Soffía Polgar, Glig-
oric og Jón L. Fjórða skákin
í PCA-HM í New York er
tefld í dag. Kasparov hefur
hvítt.
Farsi
Víkveiji skrifar...
*
IMorgunblaðinu í upphafi fyrri
viku var fjallað um þær tafir,
sem flugfarþegar verða fyrir í Leifs-
stöð. Þar kom fram m.a. að brott-
fararsalurinn í Leifsstöð er nú
spunginn og fyrirhugað er að fjölga
innskriftarborðum, svo að unnt sé
að minnka biðina.
Víkveiji var staddur í brottfarar-
salnum miðvikudag fyrir viku. Lítt
betra ástand var í salnum, en verið
hafði á sunnudeginum, sem fjallað
var sérstaklega um í áðurnefndri
frétt. Við innskriftarborðin var gíf-
urlegur erill, enda margar flugvélar
áð fara og þurftu farþegar að bíða
mjög lengi eftir afgreiðslu. Þá var
ekki hvert innskriftarborð skipað
afgreiðslufólki eins og á sunnudag,
heldur aðeins annað hvert borð.
Með meiri mannskap við afgreiðslu
hefði verið unnt að stytta biðtíma
farþeganna um allt að helming.
Þeir aðilar, sem hafa rekstur í
Leifsstöð, hafa kvartað sáran undan
dýrri húsaleigu í stöðinni. Vegna
þessara afgreiðslutafa við innritun
hljóta fyrirtækin í flugstöðinni að
verða af talsverðum viðskiptum, því
að þegar farþegamir loks komast
í gegnum vegabréfseftirlit og
vopnaleit, hafa þeir afskaplega tak-
markaðan tíma til þess að skipta
við verzlanir hússins. Ljóst er að
margir hveijir hafa rétt tíma til
þess að ná í flugvélina sína áður
en hún fer af stað og hafa engan
tíma til annars en hlaupa beint út
í vél.
Það er því eins og hálfgerð svika-
mylla sé í gangi í Leifsstöð, flösku-
hálsinn í innritun og vegabréfsskoð-
un er svo mikill að fólk getur ekki
verzlað með eðlilegum hætti inni á
fríhafnarsvæðinu.
xxx
HVERNIG stendur á því, að rík-
ið gefur út sérstaka reglugerð,
sem miðuð er við hagnað af ríkis-
rekinni fríverzlun á Keflavíkurflug-
velli og leggur á gjald, sem svarar
hagnaðinum, á einkareknar fríhafn-
ir Flugleiða á Reykjavíkurflugvelli
og Flugfélags Norðurlands á Akur-
eyri?
Áfengi í einkareknum fríhöfnum
hækkar því um 400 til 600 krónur
og samkvæmt frétt í viðskiptablaði
Morgunblaðsins, segir fulltrúi fjár-
málaráðuneytisins, að fylgzt verði
grannt með því hvort verðið hækki
hjá einkareknu verzlununum. Getur
ekki verið að hagnaðurinn sé mun
meiri hjá Fríhöfninni á Keflavíkur-
flugvelli, sem er eins konar stóri
bróðir í sölu og þar með með mun
hagkvæmari rekstur á hveija selda
flösku? Er unnt að taka mið af einni
verzlun og færa forsendur hennar
yfir á aðra, sem að auki er mun
minni og kostnaðarforsendur allt
aðrar á hverja selda einingu?
Eitthvað hlýtur að vera bogið við
slíkan hugsunarhátt. Greiða ekki
Flugleiðir tekjuskatt af hagnaði sín-
um, hvort sem hann er af áfengis-
sölu eða farmiðasölu? Hvers vegna
þurfa ávallt að ríkja einhver annar-
leg sjónarmið, þegar kemur að sölu
áfengis í þessu landi?