Morgunblaðið - 16.09.1995, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Ráðstefna Norræna bindindisráðsins
stendur yfir hér á landi
Ofbeldi á samleið
með áfengi
BENGT Göransson, formaður Norræna'bindindisráðsins. Morgunbiaðið/Ásdis
FJALLAÐ verður um tengsl áfeng-
is og ofbeldis á ráðstefnu Norræna
bindindisráðsins sem hófst í gær á
Grand hótel Reykjavík, en ráðstefn-
unni lýkur í dag. Þar kemur meðal
annars fram að 95 prósent þeirra
sem eru í fangelsi á Islandi frömdu
glæpinn undir áhrifum áfengis.
„Reynt hefur verið að draga úr
afbrotum með því til dæmis að
þyngja refsingar eða lengja fanga-
vist, en hvorugt virðist virka. Tengsl
ofbeldis og áfengisneyslu eru það
mikil að til þess að ná niður ofbeldi
er árangursríkast að minnka að-
gengi að áfengi,“ segir Bengt Gör-
ansson, formaður Norræna bindind-
isráðsins, en hann er fyrrverandi
mennta- og menningarmálaráð-
herra Svíþjóðar.
„Það þarf að gera það eins erfítt
og mögulegt er að nálgast áfengi,
meðal annars með því að fækka
dreifingar- og sölustöðum. Þá er
nauðsynlegt að leggja áherslu á
tímabundið bindindi, til dæmis að
enginn neyti áfengis við akstur,
börn og unglingar fái ekki að kaupa
áfengi og ófrískar konur neyti ekki
áfengis.“
Aukning áfengisneyslu og
ofbeldis á Norðurlöndum
Göransson segir að ástæðan fyrir
því að þessi ráðstefna sé haldin
núna, sé að ofbeldi hafi aukist veru-
lega á Norðurlöndum samfara
áfengisneyslu. Tengsl ofbeldis og
áfengisneyslu séu skýr, enda hafí
komið fram í nýlegri könnun að 95
prósent þeirra sem séu í fangelsi á
Islandi hafí framið glæpinn undir
áhrifum áfengis.
Rökstuðning fyrir því að besta
leiðin til að draga úr neyslu sé að
minnka aðgengi að áfengi tekur
Göransson frá Svíþjóð. Þar hafi
sala á milliöli verið leyfð í öllum
verslunum, en við það hafi neysla
rokið upp, sérstaklega meðal barna
og unglinga. Þetta hafí orðið til
þess að sala á milliöli í verslunum
hafi aftur verið bönnuð. Þá var
áfengisneyslan í Svíþjóð komin í
7,7 lítra á hvert mannsbarn, en
núna sé hún 6,2 lítrar.
„Fyrir utan hversu lokkandi það
er að heimsækja ísland er markmið-
ið með þessari ráðstefnu að koma
VALHÚS
FASTEIQMASALA
REYKJAVÍKURVEGI 62
S: 565 1122
GRÆNAKINN - EINB.
Vorum að fá 6 herb. 150 fm tvfl. einb.
ásamt 35 fm bílsk. Góð eign. Góð lán
áhv. Skiptí mögul. á ód. eign. Verð
11,7 millj.
HNOTUBERG - EINB.
Vorum að fá einb. á tveimur hæðum. Á
aðalhæð eru 4 herb., stórar stofur,
eldh. og bað. Á neðri hæð er tvöf. bílsk.,
íbherb., geymslur o.fl. Eignin er laus
nú þegar.
STEKKJARHV. - RAÐH.
Mjög gott 7 herb. 164 fm raðh. á tveim-
ur hæðum ásamt bílsk. Góð eign. Verð
13,5 millj.
GARÐAFLÖT - GBÆ
5-6 herb. 117 fm einb. á einni hæð
ásamt bílsk. og góðri vinnuaðst. Verð
11,4 mllj.
HVERFISGATA - HF.
5 herb. 117 fm íb. á tveimur hæðum.
Verð 7,0 millj.
TRAÐARBERG
6 herb. 160 fm ib. á neðri hæð i litlu
fjölb. Gullfalleg eign sem vert er að
skoða. Laus fljótl.
HJALLABRAUT - HF.
Vorum að fá 6 herb. 156 fm endaíb. á
2. hæð. Góð áhv. lán. Verð 10,5 millj.
BREIÐVANGUR
Mjög góð 5 herb. 132 fm endaib. ásamt
íbherb. í kj. Bílskúr. Góð áhv. lán.
HÓLABRAUT - SÉRH.
5 herb. 115 fm íb. ásamt bílsk. Góö
lán. Verð 8,9 millj.
SUÐURGATA - SKIPTI
4ra-5 herb. íb. í nýl. húsi. Sérinng. Allt
sér. Rúmg. innb. bílsk. Skipti æskil. á
3ja-4ra herb. íb.
BREIÐVANGUR - 3JA
Vorum að fá 3ja herb. 90 fm íb. á 1.
hæö í góðu fjölb. Áhv. 5,2 millj. Verö
6,6 millj.
ÁLFASKEIÐ - 3JA
Góð 3ja herb. íb. á 2. hæð. Áhv. húsbr.
4,0 millj. Verð 6.450 þús.
GOÐATÚN - GBÆ
Mikið endurn. 3ja herb. íb. ósamt bílsk.
Verð 5,2 millj.
TRYGGVAGATA - LAUS
Góð 2ja herb. 67 fm íb. í góðu fjölb.
Verð 5,4 millj.
BRATTAKINN
2ja-3ja herb. ib. á 1. hæð. Verð 4,7 millj.
HRÍSMÓAR - GBÆ
Mjög góð 2ja herb. 61 fm íb. á efstu
hæð í litlu og snotru fjölbh. Verð 5,6 m.
Gjörið svo vel að líta inn!
_ Sveinn Sigurjónsson sölustj.
(p Valgeir Kristinsson hrl.
upp einskonar aðferðarfræði um
hvernig best sé að gera fólki ljós
tengsl ofbeldis og áfengis," segir
Göransson. „Þessu þarf að koma á
framfæri, ekki síst til þeirra sem
skipuleggja umhverfi okkar, eins
og stjórnmálamanna og bæjar-, og
sveitarstjórnarmanna."
Ránatíðni og áfengisneysla
minnst á Islandi
’ Árni Einarsson, framkvæmda-
stjóri fræðslumiðstöðvar í fíkni-
vömum, sem hélt fyrirlestur í gær
um tengsl áfengis og ofbeldis á
íslandi, segir að það sé siáandi hér
á landi hvað áfengi komi mikið við
sögu í ofbeldismálum, hvort sem
það sé inni á heimilum eða á al-
mannafæri. Þá hafi auðgunarbrot
mikið verið tengd við eiturlyf hér á
landi, vegna þess að kostnaðarsamt
sé að fjármagna neyslu, en komið
hafi í ljós að áfengi sé oftar í spilinu.
Hann segir að aukningu á áfeng-
isneyslu á Norðurlöndum megi
rekja til þess að dreifingastöðum
fjölgi stöðugt, t.d. veitingastöðum
og krám. Þetta sé áberandi í flestum
af stærri byggðarkjörnum Norður-
landa, þ.á m. Reykjavík, og hafi
skilað sér í auknu ofbeldi.
Þá segir hann að tölur um áfeng-
isneyslu á hverju Norðurlandanna
fyrir sig endurspegli tíðni á ránum
í hveiju landi. Hér á landi sé minnst
um rán eða 29 á hveija 100 þúsund
íbúa og einnig minnst áfengisneysla
eða 4^58 lítrar á hvert mannsbarn
á ári. í Danmörku sé áfengisneyslan
mest á Norðurlöndum eða 11,96
lítrar á hvert mannsbarn og þar er
ránatíðni líka hæst eða 331,19 á
hveija 100 þúsund íbúa.
OPIÐ ALLAR HELGAR
FOLD
FASTEIGNASALA
Laugarvegi 170, 2 hæð. 105 Reykjavík.
Sími 552 1400 - Fax 551 1405.
SMARARIMI 56
MÐMn^
Ém
Erum með á sölu þetta glæsilega ca 190 fm einbýlishús, sem er
á eftirsóttum stað í Grafarvogi. Húsið, sem stendur hátt og á
útsýnisstað, afhendist fullbúið að utan og með grófjafnaðri lóð en
fokhelt að innan. Möguleiki er að fá húsið afhent á öðrum
byggingarstigum, t.d. tilbúið undir innréttingar. Teikningar og allar
upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar.
5521150-552 1370
LÁRUS Þ, VAIDIMARSSON, íramkvæmbasijori
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, ioggiuur íasuignasaii
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Elns og nýtt - frábært verð
Ágætt timburh. 160 fm ein hæð á úrvalsstað í Mosfbæ. Góður bílsk.
um 40 fm. Eignarlóð ræktuð 1312 fm. Laust fljótl.
Hlíðar - skammt frá Miklatúni
Mjög rúmg. neðri hæð 160 fm. Allt sér. Sér þvotta- og vinnuh. í kj.
og rúmg. geymsla. Bílsk. Trjágarður. Þetta er eign í sérfl. öll eins og ný.
Gott verð - góð kjör
Sólrík 3ja herb. íb. á 1. hæð um 70 fm miðsvæðis í Kóp. Nýtt eíkarpark-
et. 40 ára húsnlán kr. 2,8 millj. Verð aðeins kr. 5,3 millj. Tilboð óskast.
Heimar - sérhæð - frábært verð
Sólrík 5 herb. neðri hæð um 125 fm. Mikið endurn. Allt sér. Góð lán.
Skípti æskil. á 3ja-4ra herb. íb. Verð aðeins kr. 9,1 millj.
Sumarhús á Vatnsleysuströnd
Nýl. timburh. grunnfl. um 40 fm. Hæð og portbyggt ris. Vönduð viðar-
klæðning. Góð viðbygg. 50 fm m. 3 m vegghæð. Eignarland 6000 fm.
Uppsátur f. bát í fjöru. Ýmis konar skipti.
í meira en hálfa öld
hefur Almenna fasteignasalan útvegað traustum viðskiptamönnum sín-
um íbúðir og aðrar fasteignir af flestum stærðum og gerðum.
Sérstakl. óskast að þessu sinni:
Iðnaðarhúsn. 130-150 fm, helst á „Höfðanum" fyrir fjárst. athafna-
mann sem er að flytja til borgarinnar.
Einbhús - sérb. m. 4ra-5 herb. íb. Má þarfn. endurb. Engin makaskipti.
Einbhús í Smáíbhverfi. Margt kemur til greina.
Einbhús - ein hæð, helst í Heimum, Vogum eða nágrenni.
• • •
Opið ídag kl. 10-14
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 14. júlí 1944.
ALMENIMA
FASTEIGNASALAN
LAUCAVE6118 S. 552 1150-552 1370
Jóhanna Signrðardóttir um
hugmyndir menntamálaráðherra
um íslenskar varnarsveitir
Alvarlegt að ráð-
herra setji fram svo
fráleita hugmynd
JÓHANNA Sigurðardóttir, for-
maður Þjóðvaka, segist telja hug-
myndir Björns Bjarnasonar
menntamálaráðherra um að
kanna forsendur þess að stofna
íslenskt þjóðvarðlið eða heima-
varnarlið vera algjöra kúvendingu
í öryggis- og vamarmálum íslend-
inga, og hún telji að það sé mjög
alvarlegt að ráðherra í ríkisstjórn
setji fram svona fráleita hug-
mynd.
„Eg tel hana fullkomlega
óábyrga og raunverulega úr takt
við allt sem samstaða hefur verið
um, þ.e. að ísland sé vopnlaus
þjóð, og þetta sé úr samhengi við
það sem íslenska þjóðin hefur
gert kröfur um til annarra þjóða
að draga saman í vígbúnaði. Hin
hiiðin á málinu er kostnaðurinn
við þetta sem er auðvitað út í
hött á sama tíma og verið er að
þrengja alls staðar að í þjóðfélag-
inu og skera niður í velferðarkerf-
inu, því þetta kostar auðvitað
mikia fjármuni," sagði Jóhanna í
samtali við Morgunblaðið.
Ógeðfelld tilhugsun
Kristín Halldórsdóttir, þing-
kona Kvennalista, segir Kvenna-
listann vera andvígan hugmynd-
inni um að stofnaðar verði varnar-
sveitir.
„Við höfum bent á það að ís-
lendingar hafa alltaf verið vopn-
laus þjóð og verða það vonandi
um aldur og ævi. Okkur finnst
það mjög ógeðfelld tilhugsun að
hafa hér íslendinga gráa fyrir
járnum og teljum raunar að her-
sveit af þessari stærðargráðu
hefði ekki mikið að segja gagn-
vart raunverulegri ógn. Þetta
myndi að sjálfsögðu kosta eitt-
hvert fé og ef menn telja að það'
fé sé til þá treystum við okkur til
að benda á margt annað sem
okkur þætti viturlegra að verja
því fé til. Þar vil ég fyrst og fremst
benda á skammarlega lítið fram-
lag okkar til þróunarmála, til
stuðnings við flóttamenn. Land-
helgisgæslan er ekki nægilega í
stakk búin til að sjá um sitt hlut-
verk og við erum ekki nægilega
vel búin til að sinna björgunar-
störfum með sóma,“ sagði Kristín.
Hún sagði nauðsynlegt að snúa
frá þeirri sýn á öryggismálin sem
fyrst og fremst snúist um hernað-
arstyrk, og Kvennalistinn líti á
það sem stærsta öryggismál þjóð-
arinnar að byggja á varðveislu
umhverfisins.
„Það eru fyrst og fremst ýmsar
hættur sem steðja að okkur í
umhverfinu sem ógna jarðarbúum
og tilvist þessarar þjóðar. Við
þurfum ekki síst með tilliti til
þeirra tilrauna með kjarnorku-
sprengjur sem bæði Frakkar og
Kínveijar eru að gera að auka
umfjöllun um þau efni og beita
okkur fyrir því að menn snúi af
þeirri braut,“ sagði Kristín.