Morgunblaðið - 16.09.1995, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 16.09.1995, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 13 KARLAR GEGN OFBELDI Hópurinn, samtök maka þolenda kynferðislegs ofbeldis Stuðningur annarra karla bjargaði hjónabandinu KARLMENN eiga ekki að láta konur um að beijast gegn ofbeldi. Við verðum að taka þátt í því, enda erum við á vissan hátt þolendur líka þegar konur okkar hafa verið beittar kyn- ferðislegu ofbeldi. Það er einnig mjög mikilvægt fyrir karlmann að geta rætt við aðra karla um þá reynslu sem það er að uppgötva að konan, sem þú elskar, hefur þurft að þola slíkt ofbeldi." Þetta segja tveir menn, sem eru í forsvari fyrir Hópinn, samtök maka þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis. Þeir óska nafn- leyndar, en segja hér frá starfi Hópsins. Hópurinn var settur á laggirnar í október 1992, í kjölfar sjónvaips- þáttarins Þögnin rofín, sem sýndur var á Stöð 2. Þar var fjallað um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. í hópi eiginkvenna karl- anna, sem mynda hópinn, eru marg- ar sem hafa orðið fyrir slíku of- beldi, en sumar kvennanna hafa orðið fyrir nauðgun á unglingsárum eða síðar. Þá hafa konur, sem gift- ar eru þolendum kynferðislegs of- beldis, einnig leitað til hópsins, enda er hann opinn báðum kynjum. „Við hittumst fyrst fimm karl- menn, sem allir áttu það sameigin- legt að vera kvæntir konum, sem orðið höfðu fyrir kynferðislegu of- beldi. A þessum þremur árum, sem liðin eru frá fyrsta fundi, höfum við hist reglulega og núna höfum við símatíma tvisvar í viku, bjóðum körlum að koma í einkaviðtöl og höfum einnig hópfundi. Við höfum haft fast húsnæði fyrir fundi frá því í apríl 1994 og fengið styrk frá syeitarfélögum á höfuðborgarsvæð- inu og félagsmálaráðuneytinu. Starfsemina byggjum við að hluta á reynslu kvenna af rekstri Stíga- móta.“ Þeir segja að vandinn við starf- semina sé sá, að karlmenn séu oft mjög lokaðir og eigi erfítt með að ræða tilfínningamál við ókunnunga. „Hingað hafa borist um 50 símtöl og um 30 hafa komið í einkaviðtöl. Hópstarfíð er hins vegar borið uppi af 10 mönnum." Konan óvirkari en ella Oft líður langur tími í sambúð þar til kona segir manni sínum frá því ofbeldi sem hún hefur þurft að þola. „Þessi tími, þegar karlmaður- inn veit ekkert, reynist oft erfiður. Það koma upp alls konar aðstæður, konan fær reiðiköst eða grætur og maðurinn sklilur alls ekki hvers vegna. STnám saman missir hann trú á sig, efast um sjálfan sig og kennir sér um líðan hennar. Þá tek- ur hann oft einn ábyrgð á ýmsum hlutum og konan verður ekki eins virk í sambandinu og hún gæti verið. Þetta höfum við flestir reynt.“ Þeir segja að þegar þeir hafi frétt af reynslu eig- inkvennanna hafí þeir í fyrstu ekki vitað hvemig þeir ættu að bregðast við. „Konan á oft mjög erfitt með að ræða þetta, svo karlinn fær ekki svör þaðan. Hann hefur hins vegar mjög mikla þörf fyrir að skilja, fá að vita hvemig hann eigi að bregð- ast við, hvemig hann geti sem best stutt við bakið á henni.“ Þeir eru sam- mála um að stuðn- ingur annarra karla hafí bjargað hjónaböndum þeirra. „Það er óskaplega erfítt að vinna úr þessu á eigin spýtur. Um leið og þú heyrir aðra karla tala um hvaða vandamál þeir eigi við að glíma og hvernig þeir ráðist gegn þeim, þá færð þú aðra sýn á vandann.“ Erfitt að vera afskiptur Þegar konan tekur það stóra skref að leita sér hjálpar, þá krefst það þátttöku karlsins. Það er hins vegar reynsla þeirra að í fyrstu sé karlinn afskiptur og það geti reynst honum erfítt. „Þegar konan mín var farin að ræða sín mál við konumar í Stígamótum þá breyttist hún,“ segir annar. „Hún varð miklu sjálf- stæðari og í raun bjó ég með nýjum einstaklingi. Það reyndi því mjög á sambandið, sem var komið í fastar skorður." Þeir segja að karlmennirnir verði að geta bakkað, haldið sig til hlés og tekið svo þátt í að byggja sam- bandið upp að nýju. „Til þess þarf aðstoð. Þegar konan er reið, sár og á erfitt með að tjá sig þá verður hún að fá að ráða ferðinni. Karlinn verður bara að vera til staðar, en hann verður að fá útrás fyrir tilfinn- ingar sínar með því að ræða við aðra í sömu spomm. Það er mjög erfítt fyrir karlmanninn að vera allt í einu aukaatriði í lífí konunn- ar, en hins vegar er það einnig eðlilegt á ákveðnu tímabili." Reiðina þarf að losna við Reiði er tilfinning sem allir karl- amir í Hópnum þekkja. „Karlmenn em aldir upp við að vera stórir og sterkir og fyrstu viðbrögð eru oft heiftarleg reiði. Þú hatar gerandann og vilt vinna honum mein. Þetta hatur verðum við að losna við, til að geta byijað nýtt líf.“ Annar þeirra ræddi við gerand- ann, náinn ættingja konunnar sem hafði misnotað hana í bernsku. „Það var mikil og erfíð reynsla, en jafnframt góð fyrir okkur báða. Hann reyndi ekki að afsaka verkn- aðinn. Mér tókst að losna við reið- ina og ég get umgengist hann sem persónu, þótt ég fyrirgefí verknað- inn aldrei." Hinn segir að hann hafi ekki upplifað reiðina strax. „Það tók mig 2-3 ár að horfast í augu við þessa reiði, en auðvitað er hún alltaf fyr- ir hendi.“ Þeir segja að þegar karlarnir frétti af því ofbeldi, sem konur þeirra hafa orðið fyrir, bitni það oft á karlmennskuímynd þeirra. „Einn þeirra karla, sem hingað leitaði, hafði fengið óbeit á sjálfum sér. Flestir bregðast þannig við fréttun- um að þeir fara að velta fyrir sér hvort þessi eða hinn sé líka ger- andi. Það er sama hvar þeir em; ef þeir hitta mann úti í næstu versl- un þá velta þeir þessu fyrir sér. Það er mjög óþægilegt að fást við þess- ar hugsanir, en stundum ganga þær lengra og beinast að körlunum sjálf- um. Það þýðir ekki að hugsa svona, menn geta ekki axlað ábyrgð á verknaði annarra." Tilgangurinn með starfí Hópsins er að ná heilbrigðu lífi á ný. „Við setjum okkur það rnarkmið að fyrr eða síðar verði heimilislífíð gott. Það kostar mikla vinnu. Það vinnst lítið ef konan leitar til Stígamóta, karlinn kemur hingað og svo reyna þau ekki að vinna úr málinu sam- an, inni á heimilinu. Þetta tekst aðeins með samvinnu. Þá verða menn líka að varast að kenna sifja- spellinu eða nauðguninni um allt sem aflaga fer á heimilinu. Auðvit- að þarf fólk að auki að takast á við öll sömu vandamál og í öðrum sambúðum." Engin úrræði fyrir gerendur Þeir segja að enn vanti úrræði fyrir gerendur. „Það hlýtur að vera eitthvað að hjá fullorðnum manni sem misnotar litla stúlku. Almenn- ingsálitið er á þann veg, að slíka menn eigi bara að loka inni. Það er erfítt fyrir okkur að reyna að skilja hugarheim þeirra, en þetta er aðeins einn hópur þjóðfélags- þegna sem þarf hjálp. Sumir endur- taka afbrotið, gangvart einhveijum öðrum og þess vegna er nauðsyn- legt að grípa í taumana. Við þekkj- um líka gerendur, sem hafa sjálfír verið þolendur áður, svo þetta getur haft einhver keðjuverkandi áhrif. Það væri örugglega bót í máli ef þessir menn gætu leitað til ákveðins hóps, í stað þess að finna sjálfir einhvem sálfræðing að ræða við.“ Hópurinn auglýsir starfsemi sína á þjónustusíðu Morgunblaðsins. Þar eru tíundaðir símaviðtalstímar sam- takanna. Sænskur sérfræðingur í meðferð á körlum sem beita ofbeldi er staddur hér á landi eiginmanna sinna TÖLFRÆÐILEGAR kannanir hafa leitt í ljós að a.m.k. fjórða hver kona i Svíþjóð má þola barsmíðar eða hótanir af hálfu sambýlismanns síns. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að þetta hlutfall sé svipað á íslandi," segir Göran Wimmerström, en hann hefur unnið undanfarin ár að því að fá karlmenn, sem beija konur sínar, til að hætta því. Árangur af þessu starfí hefur verið mjög góður og seg- ist Göran vera sannfærður um að dregið hafí úr ofbeldi gegn konum í Svíþjóð frá því að Karlamiðstöðin þar í landi var stofnsett. Göran starfar við Karlamiðstöðina í Stokk- hólmi, en hún hefur það hlutverk að aðstoða karlmenn sem eiga í erfíðleikum. Karlar sem beita konur ofbeldi eru hluti af verksviði mið- stöðvarinnar, sem sett var á stofn árið 1988. Hliðstæðum stofnunum hefur verið komið upp á tíu öðrum stöðum í Svíþjóð. Nýlega var karla- miðstöð að sænskri fyrirmynd opnuð í Noregi. í upphafi var reynt að aðstoða ofbeldismenn við að breyta hegðun sinni með einstaklings- bundinni meðferð. Göran sagði að árangurinn af þessári meðferð hefði ekki verið nægilega góður og þess vegna hefði meðferðinni verið breytt. Síðustu fjögur ár hefði verið unnið með ofbeldismönnunum í hópum. Telja sig hafa ástæðu til að beija „Síðan við breyttum meðferðinni hefur eng- inn, sem gengið hefur í gegnum meðferðina, beitt ofbeldi. Arangurinn er 100%. Ástæðurnar fyrir betri árangri í hópum eru margvíslegar. Það skiptir miklu máli fyrir ofbeldismanninn að heyra að það séu fleiri sem eiga við sama vandamál að stríða. Menn fá að heyra frá öðrum við hvemig aðstæður þeir búa og hvern- ig þeim líður. Menn koma í hópinn á mismun- andi tímum þannig að þegar þeir byrja eru fyrir menn sem hafa komið í fimm eða sjö skipti. Þetta er hluti af tilraun okkar til að bijóta niður hindranir. Þegar þú ert að betja sambýliskonu þína hefur þú tilhneigingu til að segja að þú gerir það vegna þess að þú hafír verið drukkinn, vegna þess að hún espaði þig til reiði, vegna þess að hún er vit- íaus eða vegna þess að þú áttir slæman dag í vinnunni. Afs- akanimar eru marg- víslegir. Menn sem koma frá öðru menn- ingarsamfélagi bera fyrir sig að í þeirra heimalandi sé í lagi að beija konur. Sumir bera fyrir sig erfíða æsku o.s.frv. Allir ofbeldismenn reyna að sannfæra sjálfa sig um að þeir hafi ástæðu til að beita ofbeldi. í hópvinnunni segjum við mönnunum að þetta sé fyrirsláttur. Að lokum eiga þeir ekki annars úrkosta en að viðurkenna ofbeldisverknaðinn og segja: „Ég kaus að beija konuna rnína." Þegar menn standa frammi fyrir þessari staðreynd koma upp alls kyns sálfræðileg vandamál og menn verða gjarnan þunglyndir. Sjálfsmorðshugleiðingar vakna hjá mörgum. Margir hætta þá tímabundið að koma í meðferðina. Við höfum þá reglu að missi menn úr eftt skipti vérða þeir að byija verkefnið upp að nýju. Aðeins um 30% skjólstæðinga okkar Ijúka nám- skeiðinu á tíu vik- um. Aðrir þurfa að byija upp á nýtt. Meðferðin er því mörgum mjög erfið, en 98% þeirra sem byija í meðferð ljúka henni.“ Göran sagði að í meðferðinni væru mönn- unum settar skýrar reglur sem ekki væri vikið frá. Þeir yrðu að mæta í öll skiptin og sitja hvern tíma til enda. Þeir mættu ekki koma drukknir á námskeiðið og þeir mættu ekki hafa í hótunum. í meðferðinni væri einnig lögð áhersla á að kenna mönnum að hafa eðlileg samskipti við annað fólk. Margir ættu í erfiðleikum með að hafa góð samskipti við föður, móður eða systk- ini. Aðalatriðið væri þó að menn gerðu sér grein fyrir að ef þeir hættu að beija konuna sína myndi þeim og fjölskyldu þeirra líða betur. Göran sagði að ofbeldismennimir kæmu sjálfviljugir til Karlamiðstöðvarinnar. En yfír- leitt hefðu konan, bömin eða aðstandendur þeirra þrýst á þá að gera eitthvað í málinu. Oft stæðu mennimir frammi fyrir því að konan setti þeim tvo kosti, að hætta barsmíðum eða hún skildi við þá. Nokkrir kæmu úr fangelsum og aðrir samkvæmt ákvörðun dómstóla, en samkvæmt sænskum lögum mætti senda menn í meðferð frekar en fangelsi. Umræðan er mikilvæg „Það er mikilvægt að vekja upp umræðu um ofbeldi sem karlmenn beita. Með því móti verður auðveldara fyrir konur, sem eru beittar ofbeldi, að segja nei og fá þær til að rísa upp gegn ofbeldinu. Umræðan er einnig fallin til þess að fá karla, sem beita ofbeldi, til að hugsa. Ég tel einnig að það hafi mikið gildi að hafa miðstöð fyrir karla, sem stunda barsmíð- ar. Ofbeldismennimir vita þá hvert þeir eiga að leita vilji þéir koma sér út úr ofbeldinu. Þá geta aðstandendur þeirra einnig bent þeim á lausn." Göran hefur einnig fengist talsvert við að halda námskeið fyrir verðandi feður. Fræðslan fer fram í nokkur skipti stuttu fyrir barnsburð konunnar og aftur litlu eftir að barnið er fætt. „Markmiðið okkar er að gera föðurinn tengd- ari barninu. Það vita það allir að þegar faðir og barn tengjast nánum böndum gerist eitt- hvað undursamlegt. Við teljum að takist þetta séu minni líkur á að ofbeldi eigi sér stað í fjöl- skyldunni og minni líkur á að hjónabandið endi með skilnaði. Þetta er því mikilvægur hluti af baráttunni gegn ofbeldi á heimilum." Göran Wimmerström

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.