Morgunblaðið - 16.09.1995, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 16.09.1995, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR: EVRÓPA ERLENT Svíar undirbúa Evrópukosningar SVÍAR kjósa fyrsta sinni fulltrúa til Evrópuþingsins á morgun og segja fréttaskýrendur að líta megi á þessar kosningar sem ann- að þjóðaratkvæði þeirra um aðild að Evrópusambandinu. Meðal frambjóðenda eru dyggir stuðn- ingsmenn ESB, en þar er einnig að finna menn sem hafa miklar efasemdir um ágæti þeirrar stofn- unar sem þeir vilja láta kjósa sig til. Segja má að kjörorð Mið- flokksins lýsi kosningabaráttunni: Njá (nei-já). Myndin sýnir vegfar- endur gangaframhjá kosninga- spjaldi i Stokkhólmi. Svíar sam- þykktu með naumum meirihluta að ganga í ESB, en virðast nú á báðum áttum um réttmæti þeirrar ákvörðunar. Forseti Evrópuþingsins Vill leiðtogafund um Eystrasalt Rönne á Borgundarhólmi. Reuter. KLAUS Hánsch, forseti Evrópu- þingsins, hefur lagt til að haldinn verði leiðtogafundur um málefni Eystrasalts með þátttöku allra ríkja á þeim slóðum og fulltrúum Evrópu- sambandsins. Hánsch sagði á fundi með þing- mönnum frá Norðurlöndum og Eyst- rasaltsríkjunum að hann teldi Eyst- rasaltið vera evrópskt hafsvæði. „Söguieg umskipti eiga sér nú stað á þessu svæði, sem rekja má til enda- loka Sovétríkjanna og yfirráða þeirra yfír Mið- og Austur-Evrópu. Evrópusambandinu ber að taka þátt í þessari þróun,“ sagði Hánsch. Evr- ópuþinginu væri umhugað um að stöðugleiki, lýðræði og framþróun yrðu tryggð í ríkjunum við Eystra- salt og að tryggð yrðj aukin sam- vinna þeirra og aðildarríkja Evrópu- sambandsins. Kvaðst hann sjá fyrir sér að slíkur leiðtogafundur gæti farið fram um leið og fundur Mið- jarðarhafsleiðtoga með fulltrúum ESB sem verður á Spáni í nóvember. Hánsch vék að breytingum sem orðið hefðu á ESB með aðild Svía, Finna og Austurríkismanna. Þung- amiðja sambandsins hefði færst til norðurs og því væri nú svo komið að mikilvægi Eystrasaltssvæðisins og Austur-Evrópu fyrir ESB væri fyllilega sambærilegt við ríkin sunn- an Miðjarðarhafs. Tvær krónur af hveijum þremur sem Evrópusambandið ver til efna- hagsaðstoðar renna til ríkja Austur- Evrópu og Eystrasaltsríkin þijú, Eistland, Lettland og Litháen, sækja það fast að fá aðild að sambandinu. Hánsch gat þess að hann sæi fyr- ir sér að unnt yrði að taka til meðferð- ar efnahagsaðstoð við Eystrasaltsrík- in og nánari samvinnu allra ríkja á þessum slóðum. Hann gat þess að hann teldi að ísland og Noregur gæti tekið þátt í slíkum fundahöldum þótt ríkin stæðu utan ESB. Hánsch vék ekki að því hvern hann teldi vera heppilegan fundar- stað fyrir slíkan leiðtogafund. Svisslendingar vænd- ir um stífni og tregðu Brussel. Reutcr. STJÓRNVÖLD í Sviss tregðast við að innleiða evrópskar regiur um auk- in atvinnu- og búseturéttindi Evr- ópubúa í landinu. Heimiidarmenn innan Evrópusambandsins segja að þessi afstaða Svisslendinga kunni að gera að engu áform um gerð ýmissa tvíhliða samninga Sviss og ESB. Svisslendingar hafa farið fram á að gerðir verði tvíhliða samningar við Evrópusambandið um margvísleg hagsmunamál. Sú ósk þeirra kom fram eftir að Svisslendingar höfðu hafna aðild að samningnum um Evr- ópska efnahagssvæðið (EES). Heimildarmenn Reuters-frétta- stofunnar segja hins vegar að krafan um gagnkvæmni sé ávallt efst á blaði í slíkum viðræðum Evrópusam- bandsins. Svisslendingar hafi reynst ófáanlegir til að ganga að kröfum um aukin atvinnu- og búseturéttindi Evrópubúa í landi sínu. Þetta hafí komið fram á fundi Mario Monti, markaðsstjóra Evrópusambandsins með svissneskum embættismönnum. Ottast straum innflytjenda Evrópusambandið hefði boðið Svisslendingum aðgang að hinum gríðarstóra vinnumarkaði aðildarríkj- anna og þátttöku í ýmsum verkefnum á sviði vísinda og mennta. Viðbrögð Svisslendinga hefðu á hinn bóginn verið „ófullnægjandi". Stjómvöld í Sviss óttuðust að fólk frá ríkjum utan sambandsins myndi streyma til lands- ins, atvinnulausir flykkjast þangað og að glæpamenn gætu óáreittir vals- að inn í landið. „í þau skipti sem ný ríki hafa bæst í hóp Evrópusam- bandsríkja hefur það aldrei gerst að innflytjendur flytji sig í stórum straumum frá eldri aðildarríkjum til hinna nýju, jafnvel þótt hagsæld sé þar mun meiri“ sagði einn heimildar- manna Reuters. Forseti Vestur-Evrópusambandsins í heimsókn Viljum vera viðbúnir og hafa vopnin tiltæk Morgunblaðið/Þcirkell SIR Dudley Smith, forseti Vestur-Evrópusambandsins, er þeirr- ar hyggju að öryggi Evrópu verði aðeins tryggt með samvinnu. LÝÐRÆÐISRÍKI Evrópu verða að efla öryggi sitt með samvinnu þótt aðstæður hafí gerbreyst og við- fangsefnin séu önnur. „Við verðum að koma á skipulagi sem er eins laust við lausa enda og glufur og kostur er. Það þarf að koma í veg fyrir skyndileg átök eins og við erum vitni að nú í Bosníu-Herzegóv- ínu. Við þurfum að vera fær um að slökkva slíka elda býsna hratt, sjá til þess að deiluaðilar ræðist við af skynsemi áður en í óefni er kom- ið,“ segir sir Dudley Smith, forseti þingmannasamtaka Vestur-Evr- ópusambandsins. Smith er staddur hér á landi í opinberri heimsókn til Alþingis, mun ræða við hérlenda ráðamenn og heimsækja vamarliðið í Keflavík. Hann flytur erindi á fundi Samtaka um vestræna samvinnu/Varðbergs í dag og fjallar m.a. um VES, Evr- ópusambandið (ESB) og Atlants- hafsbandalagið (NATO). ísland varð aukaaðili að VES 1992 en í sambandinu eru alls 27 ríki. Því er að sögn Smiths ætlað að vera hin evrópska stoð vamar- samstarfsins í NATO og sérstök varnarsamtök ESB-ríkjanna; síðar- nefnda atriðið mun verða mjög til umræðu á ríkjaráðstefnu ESB á næsta ári. Skortur á óvinum? Hann var spurður hver væru að hans mati helstu viðfangsefnin í sambandi við mótun framtíðar- stefnu í vamar- og öryggismálum Evrópu. „Varnir Evrópu þurfa að vera svo traustar og fullkomnar að engin freisting vakni hjá aðilum utan álfunnar til að gera árás, að öllum sé ljóst að svaraðyrði af fullri hörku,“ sagði Smith. „Eg segi ekk- ert um það hver gæti fengið slíka hugmynd, heimurinn er svo stór og það hefur verið efnt til mjög undar- legra stríða og hálfgildings stríða síðustu 10-15 árin.“ -Sumir segja að NATO sé í leit að nýjum, stórum óvini. Á VES einhvem slíkan? „Ég held að það sé varasamt að segja að skortur sé á óvinum! Ég held að NATO éigi engan sérstakan óvin en það eru mörg ríki sem eru ekki endilega hlynnt bandalaginu, ekki vinveitt. Þetta er enn og æ spumingin um að vera viðbúinn, hafa vepnin tiltæk. NATO og VES eru varnarsam- tök, við gerum engar landakröfur á hendur öðrum þjóðum en ætlum að veija eigin lönd. í framtíðinni hygg ég að varnir álfunnar verði skipulagðar með öðrum hætti og ísland muni taka þátt í því starfi, með sínum hætti, því að þið hafíð ekki eigin herafla.“ -Veldur sú staðreynd^ vanda í sambandi við þátttöku íslands í VES, hefur þetta verið gagnrýnt þar? „Það held ég ekki. Ég tel að það væri ágætt ef þið væruð með ein- hvers konar táknrænan her en það er ekki mitt að ákveða slíka hluti, það gera þingið ykkar og þjóðin. Ég hef ekíd heyrt þetta gagnrýnt, ef til vill getur farið svo að einhver geri það en ég tel að hvað sem þessu líður eigið þið rétt á að taka þátt í samstarfínu, eiga fulltrúa í nefndum VES, þótt þið hafið engan her.“ Glæpafár ógmar siðmenningu Smith er spurður hvort líklegt sé að ný rússnesk ógn verði til að efla samvinnuandann hjá Vestur- veldunum. „Ég held að Rússar eigi við nógan vanda að stríða sjálfir, ég held að Rússland sé engin ógn, að minnsta kosti I bili. Mestu áhyggjurnar í tengslum við Rússland eru vegna glæpafárs- ins, ég var að heyra að rússneskir glæpaflokkar séu bytjaðir að at- hafna sig í Bandaríkjunum. Þetta er nú ein af mestu ógnunum við siðmenninguna, ekki kalt stríð eða kjarnasprengjur. Borgir og heil landsvæði gætu komist undir stjórn mafíuflokka, rússneskra glæpahópa og þess háttar manna. Þarna er mikil hætta á ferð sem stjórnmála- menn verða að huga afar vel að.“ -Getur þá farið svo að hefð- bundin varnarsamtök eins og VES og NATO verði á vissan hátt úrelt? „Nei, ég er viss um að svo er ekki. Ég hef lengi mælt með því að við veltum fyrir okkur öðru en því sem kalla má hefðbundinn styrj- aldarrekstur á okkar tímum til að geta brugðist við öllum hugsanleg- um aðstæðum. Það skiptir mig ekki máli hvort Reykjavík er ógnað af herliði sem kemur frá Rússlandi eða öflugum glæpahópi sem gæti komið frá Bret- landi, Bandaríkjunum eða annars staðar að og hygðist leggja undir sig borgina. Við gætum ekki liðið slíkt og unnendur lýðræðis og rétt- arríkisins yrðu að bregðast við þessu. Þetta er spurningin um öryggis- mál í víðasta skilningi orðsins. Þetta snýst um lýðræði og mannréttindi, skipulag og framkvæmdavald til að veija hvorttveggja. Löggæsla þarf ekki eingöngu að merkja að maður hlaupi um, blási í blístru og beiti kylfu. Hún getur merkt mann með vélbyssu eða önnur öflugri vopn.“ ÞINGMANNARÁÐSTEFNA Norðurlandanna og annarra ríkja við Eystrasalt var haldin á Borgundarhólmi í Danmörku þann 12. og 13. september sl. en hún var að þessu sinni skipulögð af Norðurlandaráði. íslenskir fulltrúar á ráðstefnunni voru Geir H. Haarde, Valgerður Sverrisdóttir og Hjörleifur Gutt- ormsson. Flutti Geir aðra opnun- arræðu ráðstefnunnar. Á myndinni eru fulltrúar frá * A þing- manna- ráðstefnu Evrópuþinginu sem sóttu þingið, auk forseta Norðurlandaráðs, f.v.: Brian Simpson, sem er breskur þingmaður og fulltrúi sósíaldemókrata á Evrópuþing- inu. Hann hefur nýlega verið út- nefndur tengiliður Evrópuþings- ins við Noreg, ísland, Sviss og Norðurlandaráð. Geir Haarde, formaður þingflokks Sjálfstæðis- flokksins og núverandi forseti Norðurlandaráðs og Klaus Hánsch, forseti Evrópuþingsins. Hann er Þjóðverji, fulltrúi hægri- manna á Evrópuþinginu og hefur verið forseti þingsins frá 1994.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.