Morgunblaðið - 16.09.1995, Side 22

Morgunblaðið - 16.09.1995, Side 22
22 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ KVENNARÁÐSTEFNAN í KÍNA Morgunblaðið/Margrét Heinreksdóttir ÍSLENSKU fulltrúarnir á kvennaráðstefnunni í Huairou. Mikið rigndi á meðan á ráðstefnunni stóð. Ráðstefnan mun skila árangri um heim allan Peking. Morgunblaðið. IUPPHAFI hvers vinnudags á fjórðu kvennaráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna í Peking hef- ur íslenska sendinefndin, 10-11 manns, komið saman til fundar, ýmist kl. 8.00 á gistihúsinu eða kl. 9.00 á skrifstofu sinni í ráð- stefnumiðstöðinni. Þar hafa fulltrú- ar gert grein fyrir viðræðum í vinnu- hópum þeim og nefndum sem þeir sátu í daginn áður, vinnubrögð kom- andi dags verið skipulögð. Sendi- nefndin hefur tekið þátt í vinnu við öll þau ágreiningsmál sem uppi hafa verið og því í mörg hom að líta. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra hefur verið skráður formaður íslensku sendinefndarinnar, en þar sem hann þurfti að fara heim til íslands strax í byrjun hennar kom það í hlut varaformannanna tveggja, Sigríðar Lillýjar Baldurs- dóttur, formanns undirbúnings- nefndarinnar, og Hjálmars Hannes- sonar sendiherra að leiða störf ís- lensku sendinefndarinnar. En hvemig er unnið á svona ráð- Ráðstefnu kvenna á vegum Sameinuðu þjóðanna í Peking lauk í gær. Margrét Heinreksdóttir hefur verið í Peking o g fylgst með ráðstefnunni. KONUR mótmæla undir regnhlífum skuldum þróunarlandanna á fundinum í Huairou. Á spjöldunum eru m.a. áskoranir um að skuldir verði felldar niður. stefnu. Sigríður Lillý segir frá því: „Daglega hafa verið allsheijarfund- ir, þar sem þjóðhöfðingjar og for- menn sendinefnda hafa flutt ávörp þjóðlanda sinna svo og fulltrúar stofnana SÞ og samtaka sem hafa áheyrnaraðild á ráðstefnunnni. Þá er allsherjarnefnd þar sem gengið er frá öllum samþykktum og tveir hópar sem vinna í framkvæmdaá- ætluninni og takast á við gerð yfír- lýsingar ráðstefnunnar. Við gerum ráð fyrir að héðan komi tvö formleg skjöl, annarsvegar framkvæmdaá- ætlun um málefni kvenna til alda- móta, hinsvegar stutt yfírlýsing ráð- stefnunnar. Samhliða þessum vinnuhópum er starfandi tengsla- hópur um heilbrigðismál og sam- starfshópar ýmiss konar. ísland sit- ur á hveijum morgni fundi með Vesturlöndum í samstarfshópi sem kallast JUSCANZ og í eiga sæti fulltrúar Japans, Bandaríkjanna, Sviss, Kanada, Ástralíu, Noregs og Nýja-Sjálands. Þar að auki er ótrú- legur fjöldi aukafunda þannig að við getum verið og erum að frá Sigríður Anna Þórðardóttir alþingismaður Nánast ekkert samstarf milli norrænu nefndanna Peking. Morgunblaðið. „Þ AÐ SEM er nú kannski einna áhugaverðast hérna á ráðstefn- unni eru hinir fjölmörgu mjög áhugaverðu fundir, sem kallast „special events“ um allt mögu- legt og ég verð að játa að þeir eru miklu skemmtilegri en vinnufundir ráðstefnunnar, þar sem löngum tíma er varið til að karpa um einstök orð og hug- tök. Og ég verð að viðurkenna að það er ekki alltaf skemmti- legit en þar verðum við auðvitað að vera, láta vinnuna ganga fyr- ir öðru, því að til þess erum við konar hingað. En við reynum að komast inn á milli á sérstöku fundina og skiptum þeim á milli okkar.“ Það er Sigríður Anna Þórðar- dóttir þingmaður sem svo mælir. „Meðal annars var sérstakur fundur fyrir þingmenn sem siija ráðstefnuna haldinn 7. septem- ber í Höll alþýðunnar og dagur- inn kallaður „þingmannadagur- inn“. Fundurinn var haldinn að tilhlutan IPU, Alþjóða þing- mannasambandsins (Inter Parl- iamentary Union), sem íslenskir þingmenn eiga aðild að. „Það kom mér á óvart hvað þarna var stór hópur kvenna, ég geri ráð fyrir að þær hafi verið hátt í þúsund talsins, allar þingmenn. Nokkrir framsögumenn fluttu þarna erindi, m.a. konur frá Senegal, Rússlandi, Svíþjóð og fleiri svæðum, Iagðar voru fram ýmsar merkilegar upplýsingar, þ.á m. alveg nýjar tölur um fjölda þingkvenna í ýmsum lönd- um. Síðan var samþykkt yfirlýs- ing, eða eins konar fram- kvæmdaáætlun, sem búið var að vinna að fyrirfram, um hvernig þingmenn gætu stuðlað að því að auka hluta kvenna á þingum og í stjórnkerfunum. í hádegis- verðarboði í framhaldi af fund- inum.“ Sigríður Anna var spurð að því hversvegna íslensku þing- konurnar hefðu ekki átt aðild að mótmælum norrænna þing- kvenna gegn kjarnorkutilraun- um, sem fram fóru þennan dag. „Reyndar voru það eingöngu Danir sem stóðu að þessum mót- mælum. Þeir höfðu undirbúið þau nokkuð vel fyrirfram með því t.d. að láta prenta boli með mótmælum á kínversku og frönsku og haft samband við fjölmiðla fyrirfram, sem fylgd- ust með þeim þegar þær komu morgni til kvölds, þyrftum að vera að a.m.k. áttföld til að geta „dekk- að“ alla ráðstefnuna. Loks er svo allur lobbíisminn á göngunum og hann er bæði milli landa og milli hópa, t.d. Evrópusambandshópsins og JUSCANZ-hópsins, bæði sér- staklega boðaðir fundir og tengsla- hópar um ýmsa þætti fram- kvæmdaáætlunarinnar. Málefnin sem um hefur verið deilt eru hin sömu og voru hitamál á undirbúningsfundunum í New York en það hefur verið allt annar taktur í deilunni. Þetta hafa verið t.d. spumingar um rétt kvenna til að ráða eigin líkama og nota getnaðar- vamir, bann við þvinguðum fóstur- eyðingum. Páfagarður hefur dregið í land með afstöðu sína frá því á undirbúningsfundunum og virðist vera að fallast á að minnsta kosti „status quo“ frá Kairó-ráðstefnunni. Yfírleitt er það meginstefna á ráðstefnum Sameinuðu þjóðanna að komast að sameiginlegri niðurstöðu, „concensus", en nú stefnir í að þjóð- um verði gert fært að gera fyrir- vara við einstakar greinar fram- kvæmdaáætlunarinnar, þannig að hún sjálf geti verið sterkt og gott plagg, en hugsanlega með fyrirvör- um af hálfu einstakra þjóðlanda. Þá kristallast hvaða lönd það eru sem vilja skertan rétt kvenna á til- teknum sviðum. Þegar nær dregur samþykkt skjalsins má búast við frekari um- ræðum um hugtakið „gender", sem var notað í skjalinu frá Nairobi, og merkir, að því er við viljum telja, félagslega þróað kynhlutverk sem gefi konum og körlum færi á að þróa hlutverk sín, að breyttu breyt- anda. Kaþólsku löndin, einkum í Suður-Ameríku, geta ekki sætt sig við þetta og vilja skilgreina hugtak- ið með orðunum maður og kona í gegnum allt skjalið. Síðast en ekki síst mannréttinda- þátturinn. Að mínu mati fjallar öll framkvæmdaáætlunin um mannrétt- indi kvenna en í þrengri skilningi á hugtakinu er tekist á um grundvall- armun á tilfínningu fólks fyrir því hvað mannréttindi séu. Við höldum því fram að mannréttindi séu eign sérhvers einstaklings og engin stjómvöld, hvorki veraldleg né trúar- leg, geti skert þau. Við teljum að hið alþjóðlega samfélag sé búið að skilgreina þessi mannréttindi með samþykktum sínum og sættum okk- ur ekki við annað en að konur séu fullgildir „menn“ í skilningi mann- réttinda. Sumir telja hinsvegar, að rétturinn sé yfírvaldanna, verald- legra eða trúarlegra, og þau geti, með skírskotun í þjóðarheill, heill til- tekinna hópa eða trúarhefðir skert mannréttindi. Og það eru svo undar- lega margir sem telja það heill þjóða og hópa að skerða mannréttindi kvenna. „Ég tel,“ sagði Sigríður Lillý að lokum, að þessi ráðstefna sé þegar búin að sanna gildi sitt, því að svo ótrúlega margt hefur skilað sér í undirbúningsvinnunni. Ég efast ekki um að hún muni, eins og hinar þrjár kvennaráðstefnur Sameinuðu þjóðanna, skila konum um allan heim ótvíræðum árangri. út af þingmannafundinum. Við ætluðum að fylgjast með þessu, íslensku þingmennirnir, en misstum af því einhverra hluta vegna, höfum kannski ekki verið nógu fljótar út. Eg hef reyndar haft af því dálitlar áhyggjur og það hefur komið mér á óvart hér, að nán- ast ekkert samstarf hefur verið milli Norðurlandanna. Ég hafði vænst þess að eitthvert óform- Iegt samstarf yrði að minnsta kosti en það hefur ekkert verið til þessa. Ég hef rætt svolítið við norrænar konur, einkanlega þær sem eru í Norðurlandaráði og ég býst við að við reynum að koma saman og spjalla um þetta. Ég tel þetta mjög alvarlegt mál fyrir okkur íslendinga því að við höfum alltaf haft mikið samstarf við Norðurlandaþjóðirnar í öllu starfi á vegum Sameinuðu þjóð- anna.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.