Morgunblaðið - 16.09.1995, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 23
KVENNARÁÐSTEFNAN í KÍNA
Drífa
Hjartardóttir
varaþingmaður
*
Islensku
konurn-
ar áttu
ærið er-
indi til
Peking
Peking. Morgunblaðið.
ÞAÐ fréttist til Peking frá ís-
landi, að þar væri því haldið
fram, að íslenskar konur hefðu
greinilega ekki átt annað erindi
á óopinberu ráðstefnuna í Kína
en að skora á Vigdísi Finnboga-
dóttur að bjóða sig áfram fram
til forseta. Þær voru býsna undr-
andi á þessari frétt íslensku
konurnar, sem daglega höfðu
rifið sig á fætur eldsnemma á
morgnana til að komast sem
fyrst út í Huairou, en þangað
var hálfrar annarrar klukku-
stundar ferð með strætisvagni.
Tímann sem fór í ferðirnar milli
gistihúss kvennanna í Peking
og Huairou notuðu konurnar til
að lesa og rökræða það sem þær
sáu og heyrðu, á morgnana und-
irbjuggu þær daginn, á kvöldin
var farið yfir efni sem þær
höfðu viðað að sér.
„Ég tel að íslenskar konur
hafi átt heilmikið erindi til Pek-
ing,“ sagði Drífa Hjartardóttir,
forseti Kvenfélagasambands Is-
lands. „Við vorum nú ekki svo
margar, aðeins 18 konur á
óopinberu ráðstefnunni og ég
fullyrði að við höfðum ærið er-
indi, bæði vegna þess fróðleiks
og reynslu, sem við færum með
okkur heim og vegna þess sem
við höfðum sjálfar fram að færa
í erindum og þátttöku í umræð-
um.
Ráðstefnan var afskaplega
fjölbreytt, ótal fyrirlestrar og
fundir, formlegir og óformlegir.
Minnisstæðastur verður mér þó
sennilega mannréttindadómstóll
sem settur var á svið, þar sem
konur frá ýmsum löndum komu
fram og vitnuðu gegn ríkis-
stjórnum þeirra. Sérstaklega er
eftirminnileg blind kona sem
skýrði frá því er henni var
nauðgað af vinnuveitendum sín-
um, feðgum. Hún reyndi að
kæra, en var sagt að þar sem
hún væri blind gæti hún ekkert
sannað og fór svo að henni var
sjálfri varpað í fangelsi.
Drifa hafði verið boðin í heim-
sókn til aðalstöðva kínversku
kvenfélagasamtakanna, opin-
berra regnhlífasamtaka allra
kvennasamtaka í Kína. Samtökin
höfðu fengið nýtt glæsilegt hús-
næði, 14 hæða hús með 300 skrif-
stofum og fundarsölum. Hún
kvaðst hafa hitt þarna forseta
og varaforseta samtakanna í
mjög formlegri móttöku, þar
sem gestgjafar og gestur hefðu
skýrt frá sínum samtökum. Hún
sagði að þær hefðu lagt mikla
áherslu á hve miklar breytingar
hefðu orðið á kjörum og réttind-
um kvenna eftir bytlinguna en
það væri engu að síður áhyggju-
efni, að tveir þriðju hlutar þeirra
unglinga sem hættu skólanámi
væru stúlkur og áhersla væri
lögð á að breyta því.
ÍSLENSKA sendinefndin á 4. kvennaráðstefnunni í Kína. Frá vinstri: Ingunn Guðmundsdóttir, Elín Líndal, Ragnheiður Elfa
Þorsteinsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Sigríður Lillý Baldursdóttir, Margrét Einarsdóttir, Drífa Sigfúsdóttir, Inga Jóna
Þórðardóttir, Sturla Siguijónsson og Sigríður Anna Þórðardóttir.
A KINAVERÐI
3 silkiplöntur
í trékassa kr. 495
Reykelsi
100 kr. pakkinn
Bergfléttur
Minni kr. 660
Stærri kr. 1.490
i
i