Morgunblaðið - 16.09.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.09.1995, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Alþjóðlegnr dagur til verndar ósonlaginu - 16. september 1995 í ÁR eru 50 ár liðin frá stofnun Sameinuðu þjóðanna. Einn af mikilvægustu áföngum í starfi Sameinuðu þjóðanna er hin nána og víðtæka samvinna milli ríkja, vísinda- manna, iðnaðar, ýmissa samtaka og almenn- ings um að afstýra þeirri ógn sem stafar af þynningu ósonlags- ins. Samvinna af þessu tagi er einsdæmi í sögu Sameinuðu þjóðanna. Mikilvægasti áfang- inn í þessu samstarfí er samþykkt Montreal- bókunarinnar, þann 16. september 1987, um takmörkun á notkun efna sem eyða ósonlaginu. Ákveðið var hjá Sameinuðu þjóðunum að tilnefna 16. september sem alþjóðlegan dag til verndar ósonlaginu, til að vekja athygli á þeirri stöðugu ógn sem þynning ósonlagsins er og þessari árangursríku alþjóðlegu samvinnu. Ósonlagið, sem vemdar jörðina fyrir skaðlegum geislum sólar, er að þynnast af völdum efna sem los- Gunnlaug Einarsdóttir uð eru af manna völd- um við yfirborð jarðar. Helstu efnin sem valda þynningunni eru klórflúorkolefni (CFC), m.a. notuð í kælikerf- um, úðabrúsum og sem hreinsiefni, og halónar í slökkvitækjum. V etnisklórflúorkolefni (HCFC) eiga einnig þátt í ósoneyðingunni. Ósonlagið hindrar að megnið af skaðlegum útfjólubláum geislum sólar (UV-B) nái til jarðar. Meiri geislun leiðir til aukinnar tíðni húðkrabbameins og augnsjúkdóma og getur hugsanlega leitt til útrýmingar á svifþörungum sem eru grunnurinn að lífkeðju hafs- ins og skaðað landbúnaðarfram- leiðslu. - Uggvænlegar vísindalegar niður- stöður, sem komu fram um miðjan áttunda áratuginn, urðu til þess að sérfræðingar á vegum Umhverfis- stofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) og Alþjóða veðurmálastofn- unarinnar (WMO) komu saman til Áætlað er að ósonlagið, segir Gunnlaug Ein- arsdóttir, muni ekki færast í fyrra horf fyrr en eftir miðja næstu öld. að ræða viðbrögð við ósoneyðing- unni. Þetta leiddi til Vínarsáttmálans árið 1985 um vernöun ósonlagsins. Tímamótasamkomulag náðist um bókun við Vínarsáttmálann í Mon- treal 16. september 1987, Montreal- bókunin. Þar voru samþykktar að- gerðir til að draga strax úr losun klórflúokolefna í iðnvæddum ríkjum og jafnframt samþykkt skuldbind- ing fyrir þróunarlöndin til að gera slíkt hið sama 10 árum síðar. Með staðfestingu Montreal-bókunarinn- ar gáfu aðildarríkin fordæmi fyrir frekari alþjóðlegri samvinnu um umhverfismál. Ríkisstjórnir sam- þykktu fjárfrekar aðgerðir til þess að takmarka efnanotkun, jafnvel áður en endanleg niðurstaða um orsakir og afleiðingar þynningar ósonlagsins lágu fyrir. Þannig var ISLENSKT MAL Umsjónarmaður Gísli Jónsson 817. þáttur Svo segir fornt orð, að laun heimsins séu vanþakklæti. Eftir afburðagott sumar á Austurlandi mátti lesa hér í blaðinu 7. sept. s.l. litla fréttagrein, þar sem sagði að austan: „Þar verður sumri blótað og haustið móttekið á dagskrá sem stendur í fimm daga.“ Austfírðingar ætluðu sem sagt að blóta þessu góða sumri. Þegar sögnin að blóta stýrir þágufalli, merkir hún að bölva eða formæla. Menn hafa stund- um blótað ótíðinni. En þegar þessi sögn stýrir þolfalli, er hún í merkingunni að dýrka, einkum heiðin goð. Forfeður okkar eiga að hafa blótað Frey og Freyju til árs, friðar og ásta. í fréttinni hefði því væntanlega átt að standa, að þeir fyrir austan ætl- uðu að blóta sumarið, svo sem í líkingu við það, þegar menn blóta þorrann. Þegar nautin blóta, stýrir sögnin engu falli. Þau öskra, og fylgir hvorki þol- fall né þágufall. Sögnin að blóta hefur sam- kvæmt þessu tvær merkingar, hvora annarri andstæða. Svipuð merkingarþróun hefur orðið í sögninni að ragna sem merkti upphaflega að dýrka regin=goð, en merkir nú að bölva. Þá hefur beyging sagnar- innar að blóta heldur en ekki tekið stakkaskiptum. Upphaf- lega var hún sterk tvöföldunar- sögn og voru kennimyndimar blóta, blét, blétum, blótið. Hún beygðist með öðrum orðum eins og gráta. í vísu í Egils sögu hefur t.d. varðveist nútíðarmynd- in blæt, hliðstæð því sem við segjum núna: ég græt. En fyrir lifandi löngu fékk blóta veika beygingu eftir 1. flokki: blóta, blótaði, blótað; nútíð ég blóta. Um uppruna sagnarinnar blóta er margt á huldu. Hún kynni að vera skyld blóð, en ekki síður skyld sögninni að blessa. Auðvitaö standa merk- ingarbreytingar sagnarinnar að blóta í sambandi við trúarbreyt- ingar. Orðið regin, sem fýrr var vitn- að til, beygist: regin, regin, rögnum, ragna. Af samanburði við gotnesku er öruggt að orðið hefur merkt „hin ráðandi öfl“. Grúi mannanafna í íslensku og skyldum málum er, sem vænta mátti, af þessu dreginn, svo sem Ragnheiður, Ragnhildur, Ragnar, Rögnvaldur, Reginn, Reginald og Reynolds. í sam- bandi við mannsnafnið Reginn er þess að gæta að ekki dugir að hafa „eðlilegt" þágufall, frá Regni. Þar koma til áhrif frá hvorugkynsorðinu regn. Kona mun tæplega vilja segjast vera gift *Regni, og verður að taka þann kost að vera gefín Regin. ★ Umsjónarmaður birtir með þökkum svofellt bréf frá Sigurði Eggert Davíðssyni, sálsagnfræð- ingi: „Afskaplega fer það í taug- arnar á mér þegar staglast er á formælendum þessa og hins. Dugar ekki talsmaður, eða full- trúi? Á Eyrinni í gamla daga var formælandi sá er formælti með ljótu orðbragði. Mér datt í hug orðið áhlaups- sveit í stað hraðsveitar, um það sem á amerísku heitir Rapid Deployment Force. Loks er ég hjartanlega sam- mála „skilríkum mönnum" (sjá síðasta þátt), að nota orðið best- vitandi í stað Besserwisser. Vertu svo blessaður í bráð og lengd.“ ★ Til er lýsingarorðið vanur með eignarfalli. Það merkir að vera án, vanta. Handar vanur í Hávamálum er einhendur, hann vantar aðra höndina. Stundum verður okkur orðs vant. Þetta kemur fram í breyttri mynd (veikri) í nokkrum óbeygðum lýsingarorðum, svo sem aflvana og máttvana. Mikill vöxtur hljóp um skeið í samsetninguna „vél- arvana" um skip, og það þó að þau væru ekki vélarlaus. Það dugði mönnum til þessa orðs, að vélin væri biluð. Nú ætla ég að segja fréttamönnum, til hróss, að þeir hafa Iagað þetta að veru- legu leyti og segja til dæmis afl- vana eða með bilaða vél og fleira sem rétt er. Hins vegar er lítil bót að því að breyta orðinu skipaviðgerðir í „skipasmíðaviðgerðir", þótt skipasmíðar megi sjálfsagt lengi bæta. ★ Upp vek þú málið mitt minn guð, hljððfæri þitt; láttu þess strengi standa fyrir stilling heilags anda, svo hafni eg heimsins æði, en hugsi um eilíf gæði. Þannig kvað Bjarni Borgfírð- ingaskáld, og ég tek þessa vísu upp til þess að reyna að vera sanngjam. Mér hefur leiðst svo mikið hvernig atviksorðið upp þrengir sér æ meir inn á mili sagnarinnar að vekja og and- lagsins sem hún stýrir. Menn eru teknir að segja að vekja upp áhuga, vekja upp vonir, vekja upp andúð o.s.frv. Krakkar eru jafnvel farnir að apa þetta eftir hinum fullorðnu: „Viltu vekja mig upp í fyrramálið?“ Ef menn er fjölkunnugir og illa innrættir, vekja þeir upp drauga, en í flestum öðrum sam- böndum er best að sleppa upp milli sagnarinnar að vekja og þess sem vakið er. ★ Stafsetning? Er í óplægðan akur ég sæ, ég uppskeru vesala fæ; sama hvemig ég gæ, öllu grýtt var á glæ. Það var hreint ekki morgunn í mæ. (Valgarður á Velli; leysti af í sumarleyfí.) ★ Umsjónarmanni var ekki skemmt, þegar ráðherra dóms- mála á íslandi notaði orðbjálfann „óábyrgni“ í sjónvarpsviðtali um það sem á venjulegu mannamáli kallast ábyrgðarleysi. komið í veg fyrir óbætanlegan skaða. Montreal-bókunin hefur verið endurskoðuð tvisvar sinnum, fyrst í London árið 1990 og síðan í Kaup- mannahöfn í lok árs 1992. Endur- skoðunin hefur leitt til þess að flýtt var stöðvun á framleiðslu og notkun klórflúorkolefna og halóna. Einnig hefur fleiri ósoneyðandi efnum verið bætt á lista yfir efni sem stöðva skal framleiðslu og notkun á í ná- inni framtíð. Aðildarríkjum Montr- eal-bókunarinnar er heimilt að setja strangari takmarkanir en bókunin kveður á um. ísland hefur að mestu fylgt takmörkunum Evrópusam- bandsins og var innflutningi nýfram- leiddra halóna hætt um mitt ár 1993 og innflutningi nýframleiddra klórflúorkolefna var hætt þann 1. janúar 1995, ári fyrr en kveðið er á um_ í Montreal-bókuninni. Árið 1990 var stofnaður sérstakur sjóður, Marghliða sjóðurinn (Multil- ateral Fund), til að hjálpa þróunar- löndum við að taka upp nýja tækni og mæta öðrum kostnaði sem hlýst af því að fylgja eftir Montreal-bók- uninni. Aðildarríki Monteral-bókun- arinnar hafa lagt fram nálægt 25 milljörðum íslenskra króna í sjóðinn og úthlutað hefur verið úr honum til rúmlega 700 verkefna í 85 þróun- arlöndum. Ógnunin af þynningu ósonlagsins er ennþá til staðar. Uggvænleg þróun hvað varðar aukna notkun ósoneyð- andi efna hefur átt sér stað í nokkr- um þróunarríkjum þar sem hagvöxt- ur hefur aukist. Iðnvædd ríki (25% jarðarbúa) hafi nær hætt notkun ósoneyðandi efna, en þróunarlöndin og lönd sem hafa átt við mikla efna- hagsörðugieika að etja vegna breyttra þjóðfélagsaðstæðna eiga enn eftir að draga úr notkuninni. Vísindamenn hafa áætlað að ósonlagið hefði þynnst um 4-5% á hveijum áratug ef klórflúorkolefni hefðu verið losuð áfram í jafnmiklum mæli og gert var á áttunda áratugn- um. Þynning ósonlagsins um hvert 1% getur valdið aukningu útíjólu- blárra geisla og leitt til 2% aukning- ar húðkrabbameina og fleiri tilfella blindu á hveiju ári. Árangur af starfi einstakra þjóða og alþjóðlegu átaki síðustu 8 ára er farinn að sjást þar sem nýjustu mælingar hafa staðfest að dregið hefur verulega úr uppsöfnun óson- eyðandi efna í lofthjúpnum. Magn einstakra efna (1,1,1 tríklóretan) í lofthjúpnum hefur jafnvel dregist saman. Skaðlegum áhrifum á heilsu manna hefur þannig verið afstýrt um heim allan. Þrátt fyrir árangur af aðgerðum undanfarinna ára þá er ljóst að mið- að við núverandi takmarkanir mun klórmagnið í lofthjúpnum halda áfram að aukast fram til aldamóta. Talið er að þynning ósonlagsins muni einnig verða meiri næstu ár, samanber nýbirtar mælingar um ósongatið yfir Suðurskautslandinu sem nú mælist stærra en nokkru sinni fyrr og er nú á stærð við Evr- ópu. Áætlað er að ósonlagið muni ekki færast í fyrra horf fyrr en eft- ir miðja næstu öld, en með frekari takmörkunum á notkun ósoneyðandi efna má flýta'því. Fyrsti alþjóðlegi ósondagurinn gefur tækifæri til að endurmeta þann árangur sem þegar hefur náðst og til að efla samstarf um að takast á við þau viðfangsefni sem við blasa til að tiyggja varanlega verndun ósonlagsins. (Byggt á fréttatilkynningu frá Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóð- anna.) Hiifundur er efnafræðingur lyá Hollustuvernd ríkisins. Svar við svörum Á DÖGUNUM ritaði ég grein hér í Morgun- blaðið um nýsettar reglugerðir félagsmála- ráðherra og orðaval hans og fleiri fram- sóknarmanna í garð útlendinga. Eg sagði að með þessu hefði Fram- sóknarflokkurinn feng- ið á sig rasista-orð og nú væri hans að hrekja af sér þá slyðru. Á einni viku hafa þrír vaskir menn gengið í það verk og er vel. Þráðurinn í þessum svörum er sá að áminn- Hallgrímur ingar mínar sýni ras- Helgason isma í garð framsókn- armanna. Sitt er hvað, hatur og háð. • Hér er á ferð einhver skortur á stíl- Kjami málsins er óbreyttur, segir Hall- grímur Helgason, út- lendingar fá ekki at- vinnuleyfi. skilningi eða einfaldlega skortur á húmor. Þegar Páll Pétursson er búinn að smala í heilu skipsfarmana þarf stórt skáldaleyfi til að landa þeim fyrir lesendur. Þótt ég sé tregur til að veita „lær- iföður“ mínum tilsögn er kannski rétt að Hrafn Jökulsson bæti stíl- fræði inn á stundatöflu síns nýstofn- aða stjórnmálaskóla fyrir framsókn- armenn. Þar mætti til dæmis kenna muninn á „Iron and Irony“. Þarna munar einum litlum staf sem þeir gætu stutt sig við um sinn á hálu ritsvelli. Félagsmálaráðherra lætur aðstoðarmann sinn um að útskýra óheppilegt orðalag hans og skal sú afsökunar- beiðni hér tekin gild. Hann bætir þvi við að yfírmaður sinn sé alls ekki á móti hingaðkomu erlendra flóttamanna. Eftir stendur þó að hann mun ekki veita þeim atvinnuleyfi. Ég átta mig ekki alveg á þessum mótsögnum nema ráð- herrann ætli að veita þeim sérstaka undan- þágu og setja beint á atvinnuleysisbætur. Grein Guðna Ágústs- sonar var góð en myndin, sem henni fylgdi, var þó betri. Það er leiður ávani ritdeilandi manna að draga persónuleg mál inn í almenn málefni og í greinum sínum hafa svarendur bæði farið út í ættir sínar og skattamál mín.-Þá sakar þingmaðurinn sunnlenski mig um að „grýta“ hann „ókunnungan" (prent- villa Morgunblaðsins eða meðvituð ritvilla höfundarins og liður í töfra- formúlu hans „að tefja fyrir öldrun“ sem hann viðraði í greininni?) mann- inn. Ég skil ekki þau rök að enginn megi deila á stjómmálamenn án þess hann sé kunnugur þeim. í bréfí til Velvakanda áfellist mig reiður lesandi fyrir að hvetja „til stór- aukins innflutnings á erlendum flóttamönnum". Ég vil bara minna á að síðastliðið ár kom enginn flótta- maður til landsins. Að öllum svörum samanlögðum er kjami málsins óbreyttur. Útlendingar fá ekki atvinnuleyfí hér á landi. ísland er lokað land. ísland fyrir íslendinga. Höfundur er myndlistarmnður og rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.