Morgunblaðið - 16.09.1995, Side 41

Morgunblaðið - 16.09.1995, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 41 BRÉF TIL BLAÐSINS irarsiarf Sel- arnarneskirkju fer í fullan gang Frá Sólveigu Láru Guðmundsdóttur: SUMARSTARF kirkjunnar er allt- af að aukast. Sem betur fer þarf fólk á Guði að halda á sumrin líka! Æskulýðsfélag kirkjunnar starfar allt árið. Foreldrar ungra barna hittast í kirkjunni á þriðjudags- morgnum kl. 10-12 allt árið. Helgihald er í kirkjunni hvern helgan dag allt árið. Og barna- starfið er farið að teygja anga sína yfir í sumarmánuðina líka, því nú í sumar eins og í fyrrasumar voru tvö sumarnámskeið fyrir börn í kirkjunni, sem báru yfirskriftina „Kirkja og börn í bæ“. Vetrarstarfið ber þó með sér meira líf og fjör í kirkjuna. 10-12 ára starfið eða TTT eins og við köllum það fer nú aftur af stað og verður á fimmtudögum kl. 17.30 og barnastarfið hefst sunnudaginn 17. september eins og í öðrum kirkjum prófastsdæm- isins. Fermingarbörnin koma til skráningar þriðjudaginn 19. sept- ember kl. 14.30 og kynningar- guðsþjónusta verður fyrir þau og foreldra þeirra sunnudaginn 24. september. Starf kirkjukórsins er komið í fullan gang og hefst vetrarstarfið með kórskóla þar sem bæði eldri félögum og nýjum gefst kostur á söng- og tónfræðikennslu, auk þess sem miðlað verður helstu meginþáttum helgisiða kirkjunn- ar. Kyrrðarstundir eru í kirkjunni alla miðvikudaga kl. 12.00. Þar fer fram altarisganga og boðið er upp á fýrirbænir. Hægt er að koma með fyrirbænaefni á stundinni sjálfri eða hafa samband við sókn- arprest í viðtalstíma fyrir stundina. Helgistundir hefjast í íbúðum aldr- aðra 21. september og verða á hveijum fimmtudegi í vetur kl. 13.30. Eftir áramót hefst svo starf fyrir syrgjendur, sem nú hefur skipað sér fastan sess í kirkjunni, en þá fer af stað 6. hópurinn síðan starfið hófst árið 1991. Auk fastra þátta í safnaðar- starfinu verður ýmislegt fræðslu- starf á vegum safnaðarins, sem kynnt verður nánar þegar að því kemur. SR. SOLVEIG LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR, sóknarprestur á Seltjamarnesi. Nýtt MEGRUNARPLASTURINN ELUPATCH Nu með E vítamínifyrir huðina Fæst í apótekum ELUPATCH megrar ogfegrar íi s* Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrnpflugvelli og Rábhústorginu HELGARTILBOÐ! Stórafsláttur! McOstborgari og alvöru McSjeik (475mT) á aðeins kr. 299,- í stað kr. 397,-! (en aðeins dagana 16. og 17. septemberl) Veitingastofa og næturlúga, Veitingastofa og Beint-í-Bílinn, Austurstræti 20 Suðurlandsbraut 56 í þessari auglýsingu hafa verið notuð stór orð til að lýsa þessum nýju byltingarkenndu Ijósa- bekkjum frá Ergoline, enda annað illmögulegt. Komdu ■ Ijós, þá kemur sannleikurinn í ljós - með þér í Bæktinni eru einnig þrælgóðir 20 mínúta bekkir frá Ergoline sem henta vel þeim sem vilja lúra aðeins lengur. RÆ KTÍ N FROSTASKjÓLI SÍMI 551-2815 • Breiðustu og lengstu bekkirnir á markaðinum ® Bekkurinn dreginn niður með handafli • Einfalt takkaborð • Öflug stiglaus kæling Bekkimir eru búnir 160 w perum og gefa 10 mínútur sama árangur og 20 mínútur í öðrum bekkjum. Öflug andlítsljós Ný tegund af andlitsljósum með hliðarpemm "Ultra Turbo" gefur mun betri lit en þekkst hefur. Jafn litur Með hliðarperum í öllum bekknum næst mun jafnari lituryfir andlitið og allan likamann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.