Morgunblaðið - 16.09.1995, Síða 52

Morgunblaðið - 16.09.1995, Síða 52
MORGUNBLADID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 669 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK FLUGVÉLIN brotlenti um hundrað metrum neðan við brún Tröllafjalls. Við brotlendinguna hrundi grjót ofar úr fjallinu. Upphaflega var talið að vélin hefði brotlent þar og runnið nið- ur hlíðina, en við rannsókn kom í Ijós að svo var ekki. Lttbbert með verktaka í veið- um og vinnslu TALIÐ er að fískvinnslufyrirtæki á Austurlandi og nokkur íslensk út- gerðarfyrirtæki hafí í raun verið verktakar eða leiguliðar þýska fyrir- tækisins Lúbberts við veiðar og vinnslu um 1.000 tonna af karfa, samkvæmt aflaheimildum sem fyrirtækið er talið hafa keypt af fyrri stjórnendum Osvarar í Bolung- arvík. Fjölmörg skip áttu þátt í að veiða karfann og er talið að Lúbbert hafí greitt þeim fast verð fyrir hvert kíló. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins ber bókhald þeirra fyrir- tækja sem veiddu og unnu karfann fyrir Þjóðverjana ekki með sér að nein viðskipti hafi staðið á bak við tilfærslu aflaheimildanna til þeirra. Aflaheimildirnar, sem svara til 1.000 tonna af karfa og eru að markaðsvirði um 20 milljónir króna, voru í ýmsum tegundum. Bókhald Ósvarar ber, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, með sér að greiðsla frá Lúbbert hafí komið á móti tilfærslu kvóta til togarans Bessa í eigu Frosta í Súðavík en Frosti hafi ekkert greitt fyrir heim- ildirnar. Þrátt fyrir það hafi Fiskistofu verið tilkynnt um tilfærslu heimild- anna frá Ó.svör til Frosta. Leikur grunur á að nafnritun bæjarstjórans í Bolungarvík hafi við frágang þeirra skjala verið fölsuð á yfirlýs- ingu um samþykki bæjarstjómar við kvótasölúnni. ■ Verktakar/9 Flugvél brotlenti í Tröllafjalli upp af Glerárdal Þrír Patreksfirð- ingar biðu bana ÞRÍR ungir menn frá Patreksfirði létust þegar eins hreyfils flugvél, TF-ELS, brotlenti í Tröllafjalli, upp af Glerárdal, á fimmtudagskvöld. Umfangsmikil leit hófst að vélinni í birtingu í gær og fannst hún um kl. 8.35. Hún hafði brotlent í fjallinu eftir aðeins um tíu mínútna flug frá Akureyrarflugvelli. Mennirnir þrír vom jafnaldrar, 22 ára gamlir. Þeir hétu: Svanur Þór Jónasson, Urðargötu 18, Pat- reksfirði. Hann var fæddur 22. júní 1973. Finnur Björnsson, Bmnnum 18, Patreksfirði. Hann var fæddur 6. ágúst 1973. Kristján Rafn Er- lendsson, Hjöllum 26, Patreksfirði. Hann var fæddur 26. júní 1973. Þeir voru allir ókvæntir. Svanur Þór Finnur Kristján Rafn Jónasson Björnsson Erlendsson Umfangsmikil leit Talið er að á annað þúsund manns víða að af landinu hafi tekið þátt í leitinni á jörðu niðri, göngusveitir og sveitir á vélsleðum. Auk þess tóku nærri þijátíu flugvélar þátt í leitinni. Neyðarsendir vélarinnar fór ekki í gang og því vom engar vís- bendingar um hvar flugvélina væri að finna þegar leit hófst. Var leitar- svæðið því mjög stórt. Af verksum- merkjum á slysstað þykir ljóst að flugvélin hafi flogið á fjallið og að kviknað hafi í henni við brotlend- inguna. Vélin lenti um hundrað metrum neðan við brún Tröllafjalls. Fulltrúar flugslysanefndar komu á slysstað í gærmorgun. Ekkert liggur enn fyrir um orsök slyssins. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti lík hinna látnu til Reykjavíkur síðdegis. ■ Þrír menn/4 Eldur í vélarrúmi Beitis ELDUR kom upp í vélarrúmi togarans Beitis frá Neskaup- stað í gærmorgun, en skipið er statt í-Smugunni. Skipveijar náðu að kæfa eldinn með hal- ogen slökkvitæki. Reykkafari frá varðskipinu Óðni aðstoðaði síðan við að reykræsta skipið. Talsverðar skemmdir urðu í skipinu. Það getur þó siglt fyr- ir eigin vélarafli, en talið er að það neyðist til að hætta veiðum. Eldurinn kviknaði út frá spmngnu glussaröri. Kerra valt og úr henni allt HJÓL fór undan bílkerru á Reykjanesbraut um hádegi í gær. Kerran valt og úr henni allt. Óhappið varð á Reykjanes- braut við Elliðaárbrú kl. 11.44. Lögreglan aðstoðaði öku- manninn við að koma bilaðri kerrunni og farminum út af veginum, en engin slys urðu á fólki. Islenskur sjómaður drukknaði við strendur Namibíu Talinn af eftir mikla leit ÍSLENSKUR sjómaður í Namibíu, sem saknað hefur verið af frystitog- aranum President Ag- ustinho Neto frá því síðastliðinn miðviku- dag, hefur verið talinn af og hefur formlegri leit verið hætt. Talið er að maðurinn hafi fallið fyrir borð á skip- inu en engin vitni voru að atburðinuin. Hinn látni hét Sverr- ir Guðjón Guðjónsson. Var hann annar stýri- maður á togaranum, sem er í eigu sjávarút- vegsfyrirtækisins Sea- flower Whitefish í Lúderitz. Alls voru fjórir íslenskir yfirmenn á skip- inu. Að sögn Magnúsar Guðjónsson- ar, framkvæmdastjóra Seaflowers, var skipið að veiðum á veiðislóðinni við sunnanverða Namibíu í þokkalegu veðri. Um kvöldmatar- leytið á miðvikudag uppgötvaði áhöfnin að Sverrir var ekki um borð og hófst þegar í stað mikil leit en án árangurs. Tóku þrjú nálæg fiskiskip þátt í leitinni ásamt varðskipi sem tók yfir leitar- stjórn. Einnig var þyrla fengin til aðstoðar. Á fimmtudagskvöldið var formlegri leit svo hætt eftir að komið var fram í myrkur. Sverrir bjó ásamt eiginkonu sinni í Lúderitz. Hann hafði starfað hjá Seaflower White- fish í nokkra mánuði en fyrirtækið er að hluta til í eigu íslenskra sjávar- afurða hf. Sverrir Guðjón Guðjónsson Fyrsta sending af sænsku kjúklingunum kom í verslanir í gær Helmingur þegar seldur TÆPLEGA helmingurinn af sænsku kjúklingunum sem Bónus flutti til landsins og fengust tollaf- greiddir í gærmorgun hafði selst í gærkvöldi og Jóhannes Jónsson í Bónus segist gera ráð fyrir að af- gangurinn seljist upp um helgina þótt kílóverðið sé um 200 krónum hærra en á íslenskum kjúklingum. „Maður reiknaði nú ekki með að selja mikið en þetta hefur bara reynst alveg prýðilega," sagði Jó- hannes. „Fólk er mjög forvitið um þessa vöru. Ég held að fólk vilji kaupa þetta og þakka okkur fyrir að hafa reynt þetta,“ sagði hann ennfremur. Hann sagðist ekki hafa reiknað með þessum viðtökum, þar sem þessir kjúklingar væru það miklu dýrari en þeir innlendu. „Þetta er náttúrlega skelfilegt að ríkið skuli taka af þessu 606 krónur,“ sagði Jóhannes ennfremur. Hann sagði að þeir myndu panta meira af kjúklingum frá þessum framleið- anda og einnig ýmsa kjúklinga- hluta sem búið væri að sérpakka. ■ Söguleg stund/18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.