Morgunblaðið - 05.11.1995, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FÓIK
MFYRIRHUGUÐ er mikil
pönkhátíð í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð 24. nóv-
ember. Þar munu koma
fram m.a. Saktmóðigur,
Örkuml, Maunir, Kúkur,
Forgarður helvítis, Fal-
lega gulrótin og Hundrað-
kallarnir.
MFIRE stendur fyrir tón-
leikum í Undirheimum Pjöl-
brautaskólans í Breiðholti á
föstudag. Þar stíga á stokk
Curver, Stilluppsteypa,
Ó. Jónsson og Grjóni og
Sigurrós. Sama kvöld
verða tónleikar á Tveimur
vinum og upplestur, en fram
koma skáldin ^ Mike
Pollock, Bragi Ólafsson,
Magnús Gezzon og Berg-
lind Agústsdóttir. Hljóm-
sveitirnar Ó. Jónsson og
Gijóni, Popdogs, Botn-
leðja og Saktmóðigur
leika, en ókeypis er inn.
Pönkið lifir
ÚTGÁFA er besta leiðin til að vekja almennilega at-
hygli og snælda er ódýrasti kosturinn. Fyrir skemmstu
sendi pönksveitin Örkuml frá sér snælduna Litla ræfil-
inn frá Vík.
Hljómsveitina Örkuml
skipa Magnús, Birgir,
Ólafur og Gunnar. Þeir segja
að snældan sé afrakstur
vinnulotu snemma á þessu
ári; til hafi orðið lög sem
þeir svo ákváðu að gefa út.
„Við erum að leika okkur
með pönkið,“ segja þeir og
bæta við að pönkið lifi góðu
lífi, þannig sé fyrirhugað að
halda mikla 'pönkhátíð í
Menntaskólanum við
Hamrahlíð í lok nóvember.
Þeir félagar segjast hafa
gefið spóluna út fyrir sjálfa
sig fyrst og fremst. Öðrum
þræði vilji þeir líka kynna
sveitina, enda stefna þeir á
fjörugt tónleikahald næstu
vikur. „Við höfum haldið
tvenna tónleika, en vorum
þá lítið búnir að æfa. Nú er
komin meiri alvara í þetta,
enda orðin fullskipuð hljóm-
sveit.“
Viðurkenning Lhooq
Morgunblaðið/
SAFNPLOTUROÐIN Vol-
ume, sem komin er upp í
sextánda bindi, hefur vakið
athygli á mörgum nýstjörn-
um, enda beinlínis ætluð fyr-
ir slíkt. Volume útgáfan nýt-
ur mikillar virðingar ytra
fyrir vönduð vinnubrögð og
vandað lagaval og því frétt-
næmt að á næstu
Volume plötu,
þeirri sautjándu í
röðinni, verður lag
íslenskrar sveitar,
Lhooq, sem þeir
Jóhann Jóhanns-
son og Pétur Hall-
grímsson skipa.
Jóhann Jó-
hannsson segir
stjóra Volume
hafa haft sam-
band við þá félag-
ar að fyrra bragði
og beðið þá um að
láta lag á plötuna,
eftir að hafa heyrt
þáspilaáUxatón-
leikunum. Hann
segir að þetta sé
vissulega viður-
kenning, „enda eru Volume-
menn ákaflega traustir á
sínu sviði. Þeir eru ekki að
selja plöturnar í milljónum
eintaka, en þeir eru áhrifa-
miklir og gera þetta vel, það
fylgja plötunum vandaðir
bæklingar þar sem hljóm-
sveitirnar eru vel kynntar".
JóhannJóhannsson og
Pétur Hallgrímsson
Lhooq skipa þeir Jóhann og
Pétur, eins og áður er rakið,
og Jóhann segist kunna því
ráðslagi afskaplega vel að
þeir séu bara tveir að semja
á tölvur og tól og leiti sér
svo að viðeigandi rödd eftir
því sem þarf, en einnig segir
hann að fyrir komi að þeir
félagar semji lög
með ákveðna rödd
í huga. „Söngvar-
inn er aldrei aðal-
atriðið í lögunum,
röddin er frekar
hugsuð sem hluti
af samfelldri
heild,“ segir hann.
Tónleikahald
Lhooq hefur verið
með minna móti,
en útgáfutónleikar
sveitarinnar verða
í tengslum við út-
gáfu Volume 24.
og 25. nóvember,
en þá kemur hing-
að Trancedental
Love Machine og
Volumestjórar
meðal annars.
,
í lok síðustu
í fjögur ár.
ég mun aidr-
Burt Bac-
á þtjú lÖg á
i meðal Look
llljónarnærin-
leitir i mim
■H
GAMAN
MEÐAL fárra
sveita sem senda
frá sér frums-
amda tónlist fyrir
jól er Fjallkonan.
Leiðtogi sveitar-
innar er sá knái
hljómborðsleikari
Jón Ólafsson.
Fjallkonan er
komin á
annað árið, en
ekki hefur gefist
tími fyrirupptök-
urfyrr. Þrátt fyr-
ir annir tók sveitin upp 25 upp með það eitt að leiðar-
Skemmtun Fjallnienn.
laga safn, sem síðan var val-
ið úr, en Jón á flest laganna
þurfti að fá útrás að eigin
sögn. „Fjallkonan er vitan-
lega mín hugmynd, en það
er samt langt í frá að ég sé
einhver einræðisherra; það
leggja allir sitt af mörkum,“
segir hann.
Jón segir að lagt hafi verið
Ijósi að hafa gaman af hljóm-
sveitarstarfinu og platan sé
gefin út í þeim anda. „Ef
þetta gengur ekki að óskum,
tökum við því létt,“ segir
hann en Fjailkonan gefur
plötuna sjálf út. „Aðalatriðið
er að við séum að skemmta
okkur; að sleppa fram af okk-
ur beislinu."
Hugarflugur
Sónötu
ÞAÐ HLYTUR að teljast árangursríkt að heíja tónlistarferilinn
með því að gefa út disk. Að minnsta kosti grípur hljómsveitin
Sónata til þess ama, sendir frá sér diskinn Hugarflugur um
þessar mundir þó sveitin hafi enn ekki haldið tónleika, en leið-
togi hennar er nítján ára Blönduósingur, Einar Örn Jónsson.
Einar Örn hefur verið í
Menntaskólanum á
Akureyri undanfarin ár og
þar segir hann að hugmynd-
in hafi kviknað að gefa út
plötu. Hann leikur á píanó
og syngur tvö laganna en
fékk til liðs við sig ýmsa
hljóðfæraleikara.
Sónata er skipuð fimm
tónlistarmönnum, tveim
söngkonum, trymbli, óbóleik-
ara og píanóleikara, og Einar
Örn segir plötuna vera hljóm-
sveitarverk, þó hann eigi
mest í henni. „Ég hrinti þessu
af stað og átti fyrir því að
mestu,“ segir hann ákveðinn,
„enda trúi ég á þessi lög.“
Sónata hyggst halda hóp-
inn við kynningu á plötunni
hið minnsta, en til þess þarf
að kalla til aðstoðarmenn;
bassaleikara og strengja-
sveit. „Við stefnum að því
að halda útgáfutónleika í
nóvember og spila síðan eins
og tækifæri gefst.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frumraun Hljómsveitin Sónata.