Morgunblaðið - 26.11.1995, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ
10 B SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995
HAUSTMYNDIRNAR frá
Hollywood þóttu ekki
merkilegar. Kvik-
myndaborgin leggur
áherslu á að næstu myndir, þær
sem sýndar verða um jólin og ára-
mót vestra og koma flestar til Evr-
ópu á næstu þremur mánuðum,
hafi allt til að bera sem prýða má
Hollywoodmyndir: Glamúr og
glæsileika, stórstjörnur og stór-
framleiðslur. Draumaborgin sér
ekki eftir dollurum í myndirnar,
ekkert er til sparað svo þær megi
höfða til áhorfenda.
Fjölbreytnin er mikil því mynd-
irnar flokkast undir allt frá hasar-
og ævintýramyndum til róman-
tískra gamanmynda og þeir sem
þekkja best til í kvikmyndaiðnaðin-
um sjá í þeim ekki minna en þtjár
eða fjórar metsölumyndir. Ekki
veitir af því verð á bíómyndum er
sífellt að hækka og útlit er fyrir
að árið 1995 verði það dýrasta í
Hollywood frá upphafi hvað varðar
framleiðslu- og kynningarkostnað.
Sumar myndanna hafa verið
frumsýndar vestra nú þegar, öðrum
er ekki að fullu lokið og enn aðrar
eru á lokastigi. En þeir í Hollywood
eru þegar teknir að spá í spilin og
spá í metsölumyndirnar eins og
sést á eftirfarandi lista. Hafa verð-
ur þó í huga það sem handritshöf-
undurinn William Goldman sagði
um það þegar menn spá í gróða-
myndir frá Hollywood og frægt er
orðið: Enginn veit neitt.
H0LLYW00D
í NJESTU
FRAMTÍÐ
Hollywood ætlar sér stóra hluti með úrvali
jólamynda eftir frekar slakt haust eins og
Arnaldur Indriðason komst að þegar hann
spáði í nýjustu myndimar að vestan,
sem flestar munu berast hingað til Evrópu
á næstu þremur mánuðum.
Ace Ventura 2: Háttúran
kallar („Ace Ventura 2:
When Nature Calls'j
WARNER BROS.
SAGAN: Gæludýraspæjarinn
með skrýtnu hárgreiðsluna er kall-
aður til ábyrgðarstarfa í svörtustu
Afríku að hafa upp á ákaflega heil-
ögu dýri í útrýmingarhættu.
ORÐSPORIÐ: Jim Carrey er
betri en fasteign á hjólum eftir
Heimskan heimskari og Batman
að eilífu og svo virðist sem ekkert
geti farið úrskeiðis hjá honum enda
dýrka yngri kvikmyndahúsagestir
manninn. Myndin byrjaði feikivel
vestra, græddi um 40 milljónir doll-
ara fyrstu sýningarhelgina, og
gæti vel orðið metsölumyndin þessi
jól.
Faðir brúðarinnar 2 („The
Father of the Bride 2‘j
DISNEY
SAGAN: í framhaldsmyndinni
fær Steve Martin, sem gifti dóttur
sína með látum í fyrri myndinni,
að vita að dóttir hans er ólétt og
eiginkona hans (Diane Keaton) er
það líka.
ORÐSPORIÐ: Disney vonast til
að fá alla fjölskylduna á þessa og
höfðar sérstaklega til kvenna. Létt
og alvörulaus gamanmynd sem fyr-
irtækið hefur mikla trú á að geti
orðið vinsælli en fyrri myndin.
Forseti Bandaríklanna
(„The American Presid-
ent'j
TÆKNIBRELLUR; úr „Jumanji
Gullauga („Goldeneve'j
UNITED ARTISTS
SAGAN: Njósnari hennar há-
tignar hefur enn fengið andlitslyft-
ingu með Pierce Brosnan. Fæst við
óþokka í Rússlandi sem fyrr þótt
þeir séu ekki alveg sami óvinurinn
og í Kalda striðinu forðum.
ORÐSPORIÐ: Engin Bond-
mynd hefur byijað betur í Banda-
ríkjunum en hún græddi 28 milljón-
ir dollara fyrstu sýningarhelgina.
Mikil eftirvænting í loftinu eftir sex
ára starfsleyfi njósnarans og
Brosnan virðist akkúrat rétti mað-
urinn til að hafa fágaðan martínís-
mekk.
FRÁ fátækt til frama; úr for-
setamyndinni„Nixon“.
markhópinn og myndin hefur alla
burði til að slá rækilega í gegn.
Jumanji
TRISTAR PICTURES
SAGAN: Robin Williams leikur
mann sem lokaður hefur verið inni
í fornu, afrísku teningaspili en
sleppur út eftir 25 ára vist ásamt
flokki villtra og hættulegra dýra.
ORÐSPORIÐ: Gæti orðið met-
■Sölumynd. Williams gerði Frú Do-
ubtfire að metsölumynd ein jólin
og nú hefur hann allar þessar fínu
tæknibrellur með sér, sérstaklega
tölvutæknina sem notuð var við
gerð Júragarðsins. Fjölskyldumynd
fyrst og fremst og ef hún nær að
skemmta áhorfendum með gamni
sínu og brellum er aldrei að vita
hvar hún endar.
Leihfangasaga („Toy
Storyl
Disney
SAGAN: Tom Hanks og Tim Allen
(Handlaginn heimilisfaðir) mæla
fyrir munn tveggja aðalpersóna
þessarar tölvuteiknuðu teiknimynd-
ar, sem búa í heimi ósýnilegum
mannfólki.
ORÐSPORIÐ: Disneyteikni-
myndir hafa slegið í gegn svo um
munar undanfarin ár og Leikfanga-
saga ætti ekki að verða nein undan-
tekning frá því. Sögð höfða mest
til barna en fullorðnir hafi líka gam-
an af fígúrunum. Spurningin er
hvernig áhorfendur taki tölvuteikn-
uðum kvikmyndaheimi því það
besta í teiknimyndagerð hingað til
hefur verið teiknað í höndunum.
CASTLE ROCK/SONY
SAGAN: Forseti Bandaríkjanna,
sem Michael Douglas leikur, er
ekkjumaður en hrífst mjög af um-
hverfisverndarsinna, sem Annette
Bening leikur, og brátt verður
Hvíta húsið baðað rómantík.
ORÐSPORIÐ: Lítur út fyrir að
geta náð langt. Efnasambandið
milli Douglas og Bening sagt gott
undir stjórn Rob Reiners, sem
reyndar gerði fýlubombuna Norður
á undan þessari. Douglas hefur átt
í frekar óheilbrigðum ástarsam-
böndum á hvíta tjaldinu í nokkrum
undanförnum myndum en er í
minnstri lífshættu sem forsetinn.
Búist er við hún nái hinu eftirsótta
100 milljóna dollara marki í hagn-
aði.
SPILAVÍTI; De Niro í „Casino“.
ENDURSÖGÐ ástarsaga; Ford og Ormond í „Sabrina".
Hiti („Heat j
WARNER BROS.
SAGAN: A1 Pacino og Robert
De Niro leika hvor á móti öðrum í
fyrsta skipti: Pacino er einarður
laganna vörður á höttunum eftir
glæpamanninum De Niro og leikur-
inn berst vítt og breitt um Los
Angeles.
ORÐSPORIÐ: Þar sem þessir
tveir hittast vildi ég vera. Leikstjór-
anum, Michael Mann (Síðasti mó-
híkaninn), tókst það sem éngum
hefur tekist áður, að leiða saman
tvo af fremstu og bestu leikurum
samtíðarinnar. Höfðar mest til has-
armyndafíkla en með þessum
mannskap og Val Kilmer og fleiri
góðum að auki nær Mann út fyrir
DISNEY
SAGAN: Oliver Stone rekur ævi
37. forseta Bandaríkjanna frá því
hann er fátækur stúdent og til þess
að hann segir af sér embætti í kjpl-
far Watergatehneykslisins. Óvíst
hvort íslandsferð Nixons sé tekin
með.
ORÐSPORIÐ: Myndin er ekki
tilbúin svo enginn hefur séð endan-
legu útkomuna. Disney setur hana
í takmarkaða dreifingu fyrir jólin
svo hún fái að keppa um Óskarinn
í vor. Sagt að velski leikarinn Anth-
ony Hopkins komi ágætlega út í
vandasömu hlutverki forsetans og
aðrir leikarar eins og James Woods
séu fínir. Heilir þrír klukkutímar
að lengd reyndar og óvíst hvort
unga kynslóðin hefur nokkum