Morgunblaðið - 17.03.1996, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.03.1996, Blaðsíða 22
22 E SUNNUDAGUR 17. MARZ 1996 - MORGUNBLAÐIÐ síðir kjólar og jakkaföt „ÞAÐ eina sem ég er með á hreinu er að kjóllinn á að vera stuttur og í lit, ekki svörtu eða hvítu og ég ætla að hafa tölvuúr," sagði Birna Eik Benediktsdóttir þegar arkað var af stað í leit að ferm- ingarfatnaði á fjóra unglinga sem ætla að fermast nú um páskana. Ásamt henni eru það Arna Sigrún Haraldsdótt- ir, Freyr Ólafsson og Guðjón Einar Guð- mundsson sem voru að skoða fermingar- fötin. Strákarnir voru með það á hreinu að í jakkafötum ætl- uðu þeir að fermast, en þaðvarmikið mál hjá Frey að fötin væru með vesti sem væri með vasa fyrir vasaúrið og það var augljóst frá byrjun að slaufur og bindi áttu ekki upp á pallborðið hjá þeim. Arna Sigrún var óákveðin, sagði um því í hverri búð sem við fór- um í var eitthvað sem þau sögð- ust alveg geta notað, en vildu kannski ekki fermast í. Þau örkuðu inn í Hag- kaup, sögðu að oft væri hægt að finna þar föt sem væru flott. Það var þó át andi að þegar við um í Kringlunni Morgunblaðið/Ásdís ÖRNU Sigrúnu og Birnu Eik leist vel á þessar skyrtur sem fengust í 17 og kostuðu 4.400 krónur. margt koma til greina. Hún vildi ekki gefa neinar yfirlýsingar heldur skoða fyrst, en hún var þó alveg ákveðin í að tölvuúr skyldi hún líka hafa á fermingardaginn. Það var hráslagalegt þennan dag svo krakkarnir völdu að kíkja frekar í Kringluna en á Laugaveginn. Búðarápið tók nokkrar klukkustundir og í lokin voru þau orðin dauðþreytt og sögðu langan tíma líða þangað til þau færu næst í Kringluna. Það var ekki erfitt fyrir þau að finna föt. Næst- fermingarfötin ekki komin fram í öllum búðum þannig að úrvalið átti eftir að aukast heilmikið. Bolur íherrafataverslun sem skokkur Fyrst var Birna að hugsa um bláa blússu sem hún sá í Sautján, svo sá hún bol í herrafataverslun le’s sem hún sá í hendi sér að hún gæti notað sem skokk við skyrtuna. Henni snerist hugur og þegar hún eftir nokkra leit sá kjólinn með stóru K-i á slá í versluninni Markaðstorg Kringlunnar var málið afgreitt. Við hann valdi hún peysu úr Cosmo. Arna fór og skoðaði búð úr búð. Henni leist vel á bláan kjól í Sautján, grand- skoðaði pils í Monsoon sem var of stórt þegar að var gáð en hún endaði líka Morgunblaðið/Þorkell STRÁKARNIR vildu fermast í jakkafötum. Þeir sáu föt íýmsum verslunum sem þeir gátu hugsað sér að eignast en í einstaka til- fellum voru fötin alltof stór á þá eða ekki til í þeirra númeri. Eftir nokkurt rölt ákváðu þeir báðir að velja sér fötin f Sautján. Guð- jón Einar valdi sér brún jakkaföt með vesti og hvftri skyrtu. Jakka- fötin kostuðu 18.300 krónur og skyrtan 3.900 krónur. Freyr valdi sér hinsvegar bláteinótt föt með vesti og það var mikið mál að hafa vasa á vestinu fyrir vasaúr- ið. Hansföt kostuðu 16.300 og skyrtan 3.900 krónur. Skóna valdi Guðjón Einar sér í Skæði og þeir voru á 4.980 krónur. Freyr var þegar búinn að fjárfesta í ferming- arskóm í Sautján og fékk að prófa þá í þessari búðarferð. Þetta fannst fermingarkrökkunum flott Stuttir eda ( ( ( < i ORIENT herraúr. Sýnir vikudag, mánaðardag og mánuð, 24 tíma keríi og er 100 metra vatnsþétt. Verð kr. 9.950. Ef þií gerir kröfiir um gœði, veldu þá Orient jrott úr er góð iermiagargjöí S'Áa/'fc//vþ/f I • Sími 552 4930 fS I \ i \ ff. fí $ 14 v i| ÞAÐ er allur gangur á f hverju unglingar ætla að fermast f ár. Margir eru um þessar mundir að kaupa fermingarfötin en sum- ir fá þau lánuð, ein stúlkan sem rætt er við hér f blaðinu er f kjól af mömmu sinni og önnur hann- aði sjálf sinn fermingarkjól. Síðir og stuttir skokkar „Við erum aðallega að selja skósíða skokka úr prjónasilki- efnum og hinsvegar stutta skokka og þá úr allskonar efn- um, jafnvel úr blúnduefni. Undir skokkana eru hafðir ffnlegir bolir og oftast þá stutterma," segir Hulda Hauksdóttir, eigandi verslunarinnar Flash. Hún segir að bolir með V-hálsmáli og kraga útfrá þvf séu vinsælir. „Mér finnst áberandi núna að stelpurnar vilja vera fínar,“ segir Hulda. „Það er líka áberandi að mæðgurnar eru meira sammála um fatnaðinn núna og í fyrra en árin þar á undan,“ segir hún. „Þeir litir sem fara mest eru aðal- lega svart, hvftt og beinhvftt, en dökkbláir síðir kjólar eru líka vin- sælir. „Krullujakkarnir11 eru mikið teknir utan yfir fermingarfötin og þeir eru frekar stuttir." f stíl sjöunda áratugarins „Aðallega hafa stelpurnar val- ið sér kjóla í stíl sjöunda ára- tugarins, miilisíða með skyrtukraga og með belti undir brjóstasaumunum. Litirnir eru hvítt, gult, grænt og appelsfnu- gult og fjólublátt hefur verið töluvert spurt um þetta árið,“ segir Dýrleif Örlygsdóttir, annar eiganda Frikka og dýrsins. Hún segir að skyrtur séu tekn- ar yfir kjóla eða við millisíð og síð pils. Skyrturnar eru þá þröngar og gjarnan hvítar. Káp- urnar eru millisfðar eða sfðar og þær eru þá úr ullarefnum eða lita út eins og gervipelsar. Tíska sem for- eldrarnir sætta sig við líka „Litlir skyrtukjólar, stutt pils og aliskonar skyrtur einlitar og skærlitar og skokkar í stíl sjö- unda áratugarins," segir Bára Hólmgeirsdóttir, einn eigenda Flauels, þegar hún er spurð hvað fermingarstelpurnar vilji. Það eru sfðan litir eins og svart, hvítt og Ijósblátt sem mikið er spurt um og skærir, hreinir litir eru Ifka f tfsku. Svava Johansen, eigandi tfskuverslunarinnar Sautján, segir að mikil breyting sé á fatn- aði fermingarstelpnanna í ár en minni breyting hjá strákunum. Svart, hvítt, dökkblátt og beinhvítt „í fyrra voru stelpurnar ýmist í stuttum eða síðum kjólum úr glansandi teygjuefnum og þá f skærum litum, bleiku, gulu, appelsínugulu eða pastellitum. Núna er miklu meira um liti eins og svart, hvítt, dökkblátt, bein- hvítt, rautt og brúnt og það má segja að þetta séu heilsárs litir." Svava segir að stuttir kjólar með skyrtukraga og rennilás séu vinsælastir, svokallaðir pólókjól- ar. Matt teygjuefni er í þeim og þeir eru með íþróttaröndum, ýmist úr flaueli eða teygjuefni. „Það er hægt að vera í þessum kjólum hvenær ársins sem er og þá f mismunandi grófum sokka- buxum við. Þá eru stelpurnar bæði fínar og töff. Þá nota þær fötin eftir ferminguna líka. Það er of dýrt dæmi að kaupa föt sem lenda svo uppi f skáp eftir ferm- ingardaginn." Svava segir að þetta sé sá fermingarklæðnaður sem hún muni best eftir að höfði bæði til mæðra og fermingar- stelpna. Við kjólana velja stelp- urnar sér gjarnan há stfgvél eða grófa ökklaskó. Strákarnir vilja ekki bindi Hvað fermingarstráka snertir urðu breytingarnar mestar í fyrra. Svava segir að 5-6 ár þar á undan hafi blazerjakkar úr ull vérið allsráðandi og stakar svartar buxur við. „Það var mjög skemmtilegt að sjá breytingu á klæðnaði strákanna ífyrra og núna eru jakkafötin einhneppt, gráteinótt, brúnröndótt eða ein- lit svört og hátt hneppt vesti við. Skyrtan er hvít, bindi eru ekki vinsæl heldur er skyrtan frá- hneppt eða með kínakraga. Pilt- arnir velja sér yfirleitt grófa skó við sem þeir nota þá áfram eftir fermingu." Stakir jakkar með vesti, buxur og skyrtur „Fermingarstrákarnir hafa helst viljað stakar buxur, skyrtu, vesti og jakka,“ segir Páll Ár- sælsson, verslunarstjóri í Kókó í Kringlunni. „Við höfum viljað hafa fatnaðinn þannig að strák- arnir geti notað hann eftirferm- inguna. Buxurnar hafa þá verið aðeins útvíðar, skyrturnar eru hvftar og með stórum krögum og vesti og jakkar úr nælon- kenndu glansefni. Skórnir eru frekar klossaðir með stáltá og strákarnir vilja ekki hálstau núna. Þeir eru með skyrturnar fráhnepptar og þá kannski í bol undir. Litirnir eru svart og hvftt en með slæðast teinóttar buxur og eplagrænar og bláar skyrtur.11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.