Morgunblaðið - 14.04.1996, Síða 10
10 B SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓIMLIST
Lhooqtil
útlanda
Morgunblaðið/Ásdís
Danssveit Pétur, Sara
og Jóhann í Lhooq.
annað en semja tónlist og
taka upp næstu misserin,
aukinheldur sem kostnað-
aráætlun vegna upptöku
sé þægilega rúm.
Brotnir rytmar
Morgunblaðið/Þorkell
Draumur Vignir Daðason.
Draumurinn
rætist loksins
ÞAÐ GETUR tekið tíma að
koma sér á plast og ekki
nenna allir að bíða eftir
frumkvæði annarra. Vignir
Daðason lék loks verða af
því að beija saman plötu
eftir að hafa stússast í tón-
list í á þriðja áratug, frá
keflvískri nýbylgju í nútím-
arlegan rytmablús.
Vignir segist vera búinn
að fást við tónlist frá
því hann var í nýbylgjusveit-
um í Keflavík fyrir tuttugu
árum. „Síðan ég flutti til
Reykjavíkur hef ég sungið
jass og blús,“ segir hann, en
hann hefur ekki_ sungið inn
á plötu áður. „Ég hef ekki
verið á réttum stað á réttum
tíma,“ segir hann, en hann
sendi frá sér lag fyrir tveim-
ur árum sem nokkuð var
leikið í útvarpi. „Ég ákvað
að það væri best að gera
þetta sjálfur," segir hann og
bætir við að platan hafi eig-
inlega orðið til fyrir hvatn-
ingu frá.Þór í Deep Jimi og
Friðriki Sturlusyni. „Þessi
plata hefði aldrei orðið til
nema fyrir aðstoð einstakra
manna, Friðriks, Þórs og
Tómasar, sem létu draum
minn rætast," segir Vignir.
Vignir segist hafa lagt upp
með að skrifa um heimsins
böl, en þegar á reyndi hafi
hann ekki nennt því enda
nenni enginn að hlusta á
slíkt nú orðið. „Ég yrki því
um daglegt líf, með ástar-
vellu inn á rnilli," segir hann
og hlær, „en ég sæki mikið
í blúsinn, það eru bláir tónar
í þessu.“
Vignir segist vera að velta
því fyrir sér að halda nokkra
tónleika um það leyti sem
platan kemur út, um miðjan
mánuðinn, og fá þá hljóð-
versfélaga til að leika undir.
„Platan heitir Loksins, enda
er tíu ára draumur að ræt-
ast, og hún er skrifuð á
Vigga Daða og Blazt, því
þeir eiga líka mikið í henni.“
ÞÓ ÍSLANDSMARKAÐUR hafi reynst mörgum gjöfull
er hann langt í frá nógu stór til að framfleyta þeim sem
leggja fyrir sig framsækna tónlist eða sértæka. Því freist-
ar margra að komast á samning í útlöndum; ekki til
þess að verða heimsfrægar stjörnur, heldur að ná að lifa
af tónsmíðum og útgáfu. Þannig er því farið með dans-
sveitina Lhooq sem náði því langþráða marki fyrir
skemmstu að komast á mála hjá erlendri útgáfu og get-
ur fyrir vikið einbeitt sér að lagasmíðum og upptökum
næstu misseri.
eftir Árna
Matthíasson
Fyrir skemmstu kom út
ytra nýjasti diskurinn
í Volume útgáfuröðinni
sem meðal annars er ætlað
að kynna þa sem helst ber
á góma í
tónlist um
þessar
mundir.
Það þykja
nokkur
tíðindi að
á þeim
disk er eitt
íslenskt
lag, Vanishing með tríóinu
Lhooq, en af Lhooq er það
meðal annars að frétta að
í nýliðinni viku skrifuðu
liðsmenn undir samning við
breska útgáfu.
Þeir Jóhann Jóhansson
og Pétur Hallgrímsson
stbfnendur Lhooq og laga-
smiðir, segja að forsvars-
menn Volume útgáfunnar
hafí heyrt til sveitarinnar
á Uxa tónleikunum í sumar
og hrifist af. „Hann hafði
samband við okkur og bað
um að fá lag á næsta Vol-
ume-disk, sem var auð-
sótt,“ segja þeir, en frá því
Lhooq tróð upp á Uxa hef-
ur þeim Jóhanni og Pétri
bæst liðsauki, því þriðji
liðsmaður tríósins er Sara
Guðmundsdóttir söngkona
úr Hafnarfirði.
Um svipað leyti og
diskurinn kom út stóð Lho-
oq í samningastappi við
ýmsar útgáfur breskar en
ákvað á endanum að semja
við Echo-útgáfuna, sem er
nýlegt merki, vegna þess
að þeim Jóhanni og Pétri
leist svo vel á forsvars-
menn fyrirtækisins.
Samningurinn felur í sér
sex breiðskífur, en þeir
segja að ekki sé neinn
þrýstingur frá útgáfunni
um hvenær fyrsta skífan
eigi að verða tilbúin. „Eina
sem þeir vilja er að við
tökum okkur tíma til að
gera góða plötu,“ segja
þeir, en segjast reyndar
vera búnir að semja tónlist
á meira en eina breiðskífu.
Framundan sé síðan að
taka upp og fínpússa, en
meðal annars leggur Echo
þeim til upptökutól í hljóð-
ver sem þeir hafa komið
sér upp vestur í bæ. „Við
stefnum á að klára plötuna
í sumar sem gæti þá kom-
ið út fyrir jól eða snemma
á na?sta ári. Það er í raun
bara vinnuplan sem við
höfum sett okkur sjálfir,
en allar líkur eru á að
fyrsta smáskífan komi þó
út í sumar.“
Þeir félagar segjast ekki
vilja gera of mikið úr samn-
ingsupphæð, en féð dugi
þeim þó til að gera ekkert
BRESKI tónlistar-
maðurinn Howie B
hefur haft svo mikð
fyrir stafni að iðja fyrir
aðra að hann hefur lítinn
tíma haft til að sinna eig-
in ferli. Fyrir skemmstu
kom út fyrsta breiðskífa
hans, sem margir hafa
beðið.
Howie B, sem lét
fyrst á sér kræla
með Soul II Soul
flokknum, ætti að vera
íslenskum tónlistará-
hugamönnum að góðu
kunnur því ekki er
bara að hann hefur
starfað fyrir Björk og
fleiri fræga í útlönd-
um, nú síðast með
Brian Eno og U2-lið-
um sem Passengers,
heldur hefur hann
komið hingað sem
plötusnúður á veg-
um Hljómalindar.
Þess má og geta að
forsíðumynd plötunn-
ar nýju er eftir Húbert
Nóa.
Þó enginn frýi Howie B
hæfileika er því ekki að
neita að mörgum hefur
reynst erfitt að stíga fram
í sviðsljósið og ná frama
einir síns liðs. Howie fer
þá leið að gefa út tónlist
sem ekki er líkleg til vin-
sælda; hægfara ambient-
hljómar togast á við brotna
rytma og hvarvetna verður
að kafa í tónlistina til að
geta notið hennar. Þeim
sem fylgst hafa með Howie
í gegnum árum kemur vís-
ast fátt á óvart á plötunni,
en þeir sem áttu von á
Passengerspoppi verða að
leita annað.
Einn Mark Knopfler.
Einn
áferð
VARLA hefur það komið
nokkrum á óvart að
Mark Knopler skyldi
hefja útgáfu einn síns
liðs og í raun helsta undr-
unarefnið hve hann var
lengi að koma sér af
stað. Fyrir stuttu kom
út fyrsta sólóskífan, heit-
ir Golden Heart og þykir
um margt vel heppnuð.
Mark Knopfler var
allt í öllu frá fyrstu
skífu Dire Straits og
stýrði sveitinni eins og
herforingi í efstu hæðir
vinsælda og velgengni.
Síðustu fjögur ár hefur
þó verið hljótt um
Knopfler, hann þarf að
sinna rekstri fyrirtækja
sinna og kom sér upp
fjölskyldu, en hann lét
loks undan sköpunar-
þörfinniog sendi frá sér
sína fyrstu sólóskífu fyrir
skemmstu eins og rakið
er. Sú hefur fengið mis-
jafna dóma, allt frá því
að vera fundið allt til
foráttu í að vera metin
meistaraverk. Niðurstað-
an er vitanlega einhvers
staðar þar á milli, en ljóst
að Dire Straits aðdáend-
ur, veg- og ellimóðir,
taka gleði sína á ný, auk-
inheldur sem þeir er
unna fáguðu poppi eiga
góða daga fraundan.
MHLJÓMSVEITIN góð-
kunna Stingandi strá hefur
verið með annan fótinn í
Frakklandi undanfarin miss-
eri og meðal annars farið í
tónleikaferð um landið. Á
þriðjudag heldur sveitin ein-
mitt tónleika fyrir útsendara
franskrar útgáfu í veitinga-
húsinu 22. A þeim tónleikum
hyggjast Stráin leika lög af
plötunni Umhverfisóð sem
kom út fyrir jól, og ný lög í
bland.
MÁ HÓTEL íslandi rifj ar
68-kynslóðin upp daga víns
og rósa og af því tilefni kom
út á vegum Japís safndiskur-
inn Bítlaárin þar sem flytj-
endur skemmtidagskrárinn-
ar leika listir sínar. Lögin eru
ýmsir ellismellir fyrri tíma,
en flytjendur meðal annars
Bjami Arason, Pálmi Gunn-
arsson, Björgvin Halldórs-
son, Ari Jónsson og Söng-
systur undir styrkri stjóm
Gunnars Þórðarsonar.