Morgunblaðið - 07.07.1996, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1996 B 7
ur daglegu lífi fólks og dansað er
við ýmis tækifæri. Barnsburður,
giftingar, kvöldverðarboð, afmæli
og dauðsföll eru allt tilefni til að
dansa. Á þessum heimaslóðum
flamenco-dansins eru dansarar á
öllum aldri sem læra listina frá
blautu barnsbeini. Margir hætta
ekki fyrr en í gröfina er komið enda
fylgir dans og söngur hverju stigi
lífsins hjá fólkinu.
Madrid er aftur á móti alþjóðleg-
ur miðpunktur flamenco þar sem
dansinn tilheyrir leikhúsum fremur
en lífsmynstri. Þar eru starfrækt
dansfélög og einstaka dansarar og
söngvarar eru stórstjörnur í augum
landa sinna. Það er þó athyglisvert
að hlutfall erlendra flamenco-dans-
ara í Madrid er mjög hátt sem gef-
ur til kynna að þessi aldagamli tján-
ingarmáti hrífur fólk af ólíkum
uppruna. Hin síðustu ár hefur flam-
enco einnig orðið fyrir miklum utan-
aðkomandi áhrifum. Nútímaballett
og klassískur ballett hafa sett svip
sinn á listformið og hafa sumir
dansarar verið óhræddir við að
sækja þaðan hugmyndir. Kvik-
myndaiðnaðurinn hefur hjálpað til
við útbreiðslu og vinsældir flam-
enco-dansins um allan heim. Kvik-
myndagerðarmaðurinn Carlos
Saura hefur átt mikinn þátt í því
en hann hefur gert fjöld.a mynda
um dansinn og lífið í kringum hann.
Árið 1984 var til dæmis kvikmynd
hans Carmen tilnefnd til Óskars-
verðlauna fyrir bestu erlendu mynd-
ina. Myndin sýnir hvernig biturleiki
og reiði eru túlkuð með flamenco-
dansinum.
í ljósi þess hve mikilvægt tjáning-
arform flamenco-dansinn er þeim
sem dansa hann væri fróðlegt að
vita hvort hinn almenni ferðamaður
hafi leitt hugann að því hvað flam-
enco táknar fyrir senjórítuna sem
dansar í grísaveislunni? Er það
gleði, sorg, einmanaleiki eða 3.000
pesetar?
finnst ekki samband. Ekki er. þó
hægt. að útiloka að verið sé að
mæla röng mengandi efni og að
áhrif loftmengunar á astma stafi
af óþekktum efnum eða efnum
sem talin hafa verið óskaðleg.
Afar ólíklegt verður þó að telja
að loftmengun. skýri aukninguna
á astmatíðni.
Ein af stærstu breytingum á
lifnaðarháttum fólks á síðari hluta
þessarar aldar er að fólk er meira
inni. Flest hús eru vel einangruð
og kynt þannig að hitastig er stöð-
ugt og hefur víða farið hækkandi,
og mikið er um bólstruð húsgögn
og gólfteppi. Farið hefur í vöxt
að fólk sé með gæludýr eins og
hunda og ketti á heimilum sínum.
Allt þetta skapar hin ákjósanleg-
ustu vaxtarskilyrði fyrir ryk-
maura, sem dafna vel í bólum
manna og dýra, teppum og bóls-
truðum húsgögnum. Rykmaurar
eru áttfætlingar sem eru um 0,3
mm að lengd og glærir þannig að
þeir sjást tæplega með berum aug-
um. Tvær tegundir rykmaura eru
algengar í húsum hér á landi.
Komið hefur í ljós að margir hafa
ofnæmi fyrir húsryki og ofnæmis-
valdinn er oftast að finna í ryk-
mauraskít. í nokkrum rannsókn-
um, m.a. í Ástralíu, fannst gott
samband milli rykmaura og astma.
Það sem er enn áhugaverðara er
að svo virðist sem mikið af ryk-
maurum í umhverfi barns í frum-
bernsku geti aukið hséttu á alls
kyns ofnæmi (m.a. kattaofnæmi)
og astma síðar á ævinni. Einnig
hefur komið í ljós að astmasjúkl-
ingum, a.m.k. sumum, getur batn-
að mikið ef þeir forðast rykmaura.
Færa má rök fyrir því að rykmaur-
um hafi fjölgað mjög í hýbýlum
fólks á undanförnum áratugum
og að þessi fjölgun eigi stóran
þátt í að skýra fjölgun astma- og
ofnæmistilfella.
í næsta pistli verður sagt meira
frá rykmaurum, lifnaðarháttum
þeirra og hvað hægt er að gera
til að forðast þá.
MANIMLÍFSSTRAUMAR
Matarlist/Hvað er loftgrautur?
Námsmannakostur
ÍSLENSKIR Kaupmannahafnarnámsmenn bjuggu oft við rýran kost í
heimsborginni, en drukku þeim mun meira í sig af bókalærdómi og einn-
ig öli, af heimildum að dæma. Ég heyrði hins vegar nýlega af fæðu, sem
íslenskur námsmaður í kóngsins borg kvað sig lifa á og nefndi hana því
fátæklega nafni loftgrautur. Þó að námslánin séu mun óhagstæðari en
áður var, og margir veigri sér því við að taka þau, þá eru þau nú held
ég fýsilegri kostur heldur en sá að þurfa að lifa á loftgraut.
eftir Álfheiði Hönnu
Friðriksdóttur
En hvað er loftgrautur og er
hægt að lifa á honum? Fyrir-
bærið finnst ekki í orðabók, en ég
kemst næst því að þetta sé loft-
kenndur grautur. Loftkennt er sam-
kvæmt orðabók
Máls og menning-
ar eitthvað sem er
„létt í sér, frauð-
kennt, efnislítið,
gisið; í sama óá-
þreifanlega efnis-
ástandi og and-
rúmsloftið, hvorki
fast né fljótandi."
í það minnsta er harla ólíklegt að
grautur þessi sé mjög staðgóð og
holl fæða fyrir nokkurn mann. Mig
hryllir við tilhugsuninni um að fleiri
fátækir námsmenn lifi á þessu
kreppufyrirbæri. Ég ætla því að
koma með nokkrar hugmyndir að
mjög ódýrum og hollum réttum sem
nær allir ættu að hafa ráð á. Það
þarf nú ekki að fjölyrða um hafra-
grautinn, og þó hann sé e.t.v. ekki
fyrir allra smekk er allt betra en
loftgrautur. Samlokur eru tilvalin
fæða fyrir fólk sem er á ferð og
flugi og kemur oft ekki heim fyrr
en seint á kvöldin, t.a.m. náms-
menn. En það er ekki sama hvað
er á milli brauðsneiðanna tveggja.
Samkvæmt Orðabók Menningar-
sjóðs er samloka skilgreind þannig:
„Tvær brauðsneiðar sem hvolft er
saman.“ Samkvæmt þessari skil-
greiningu er samlokan hálfgerð
loftsamloka því hvorki er minnst á
viðbit né álegg. Ég verð samt að
viðurkenna að sumar af þeim sam-
lokum sem hér eru á boðstólum í
kjörbúðum og skyndibitastöðum eru
hálfgerðar orðabókarloftsamlokur.
Samloka er semsé ekki það sama
og samloka. Hér koma nokkrar
hugmyndir að samlokum af hollara
taginu. Nota skal vitanlega nýtt og
gott gróft (fínt í hófi) brauð, ekk-
ert jafnast á við það heimabakaða
náttúrlega. Einfaldasata viðbitið er
smjör. Hér fylgja uppskriftir að
tveimur smjörtilbrigðum:
Tómatsmjör
50 gr smjör
2 tsk tómatkraftur
1 tsk strásykur
1 tsk Worcestersósa
Hrærið smjörið með lítilli trésleif
þar til það er orðið mjúkt, blandið
þá hinum efnunum saman við einu
í senn. Kælið smjörið fyrir notkun.
Það er ágætis viðbit í samlokum
fylltum með lambakjöti, beikoni,
skinku eða skelfiski og eins eitt og
sér.
Kjólar, stuttír og síðír.
Blússur - buxnadress.
Við sendum
skattfrjálst
til Islands
Hringið eða skrifið
og fáið nýja pöntunar-
listann fyrir 1996
sem er með allt
fyrir barnið þitt.
3Rtar0ttndb(ii^lb
- kjarni málsins!
Graslaukssmjör
50 gr smjör
2 tsk mjög smótt saxaður
graslaukur
_________1 tsk sítrónusafi
Útbúist eins og tómatsmjörið.
Gott með hvers kyns kjötfyllingu
eða eitt og sér.
Gæta verður fjölbreytni við sam-
lokugerðina því annars er hætt við
að endurtekning geri samlokuna að
leiðgjarnri og margjaplaðri tuggu.
Hér koma nokkrar hugmyndir að
fyllingu: Banani: sneiðar settar
beint á smjörið eða: stappið banana
og hrærið saman við ögn af sítrónu-
safa og ijóma. Gott er að hafa salat-
blað á milli brauðsneiðar og fylling-
ar eða hvítkálsbita. Gráðostur og
epli. Ostur með hráu grænmeti, s.s.
lauksneiðum, tómötum, blaðsalati
eða gúrku. Egg: Harðsoðin egg
standa fyrir sínu á samlokuna
gjarnan með gúrku- eða tómat-
sneiðum, salatblaði eða steinselju.
Reykt síld: góð t.d. með harð-
soðnu niðursneiddu eggi eða kota-
sælu. Svo er bara að nota hug-
myndaflugið! í lokin kemur hér ein
dúndurgóð og ódýr uppskrift fyrir
fjóra að hvítlaukskartöflum.
Hvitlaukskartöfflur
2 hvítlauksrif
60 gr smjör
_______500 gr kartöflumús______
rjómasletta og önnur smjörsletta
salt og pipar
_______2 msk söxuð steinselja__
Sjóðið hvítlauksgeirana í 2 mín-
útur, þerrið þá, kælið og afhýðið
síðan. Bræðið smjörið og steikið
hvítlauksgeirana við vægan hita þar
til þeir eru mjúkir, en gætið þess
að brúna þá ekki. Sigtið hvítlaukinn
frá. Hrærið hvítlaukssmjörinu út í
kartöflumúsina, hrærið vel og bætið
út í rjóma- og smjörslettunni og
steinseljunni. Hitið vel og berið svo
fram.
IHI Lederudvikling leitar eftir sambandi við
Ráðgjafa/fyrirtæki
einstaklinga sem hyggjast stofna eigin fyrirtæki
til að kynna, selja og fylgja eftir stjórnunarþjálfúnar-
og þróunaráætlun Personligt Lederskab.
IHI Lederudvikling er umboðsaöili fyrir Leadership Management International,
sem starfar í 70 löndum og er leiðandi í heiminum á sínu sviði.
LMI er stærsti aðilinn sem býður upp á áætlun og kerfi á öllum sviðum
persönulegrar þjálfunar á öllum stigum.
Við bjóðum upp á einstakt þróunar- og þjálfunaráætlun, endurþjálfun og
síþjálfun og ýtum undir opið og samskiptaskapandi atferli, stjórnunarreynslu,
áhuga á mennlegri þróun og hæfileika til að.vinna að þrónuarferli og ná árangri.
Sendu okkur linu um sjálfa(n) þig eða hringdu eftir nánari upþlýsingum.
Lederudvikning
IHI Ledcrudvikling A/S
Lars Stig Duehart
Strandmöllevej 2
DK-6000 Kolding
Danmörku
Simi +45 75 5o 56 33.
„Personligt Lederskab" er þróunaraðferð til þjálfunar i að valda stjórnunarstaríi
betur. Pjálfunaráætlunin er framkvæmd í staríi í fyrirtækinu á u.þ.b. 10 mánaða
timabili, og þjálfuninni er stýrt á skilvirkan hátt með hjáip i 1 funda með
\^persónulegum ráðgjafa. Við ábyrgjumst að þjálfunin komiað góðu gagni.