Morgunblaðið - 30.07.1996, Side 1
96 SIÐUR B/C
171. TBL. 84.ARG.
ÞRIÐJUDAGUR 30. JULI1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Erbakan
milli steins
og sleggju
Ankara. The Daily Telegraph. Reuter.
FASTLEGA er búist við því að tyrk-
neska þingið samþykki í dag að fram-
lengja stuðning sinn við fjölþjóðlegar
aðgerðir í suðurhluta landsins, 'sem
miða að því að veita Kúrdum vernd
gegn íraska hernum. Hefur Necmett-
in Erbakan, forsætisráðherra Tyrk-
lands, heitið að styðja aðgerðirnar,
gegn því að Tyrkir fái að flytja inn
olíu frá írak. Erbakan er á milli steins
og sieggju í málinu; flokkur hans er
andvígur of miklum samskiptum við
Vesturlönd en Atlantshafsbandalag-
ið og tyrkneski herinn þrýsta á um
áframhald aðgerða.
Talsmaður flokks forsætisráðherr-
ans staðfesti að stjórnin hefði gert
samning við Bandaríkin, Bretland og
Frakkland um að Tyrkir fái bætta
þá 1.330 milljarða ísl. kr., sem þeir
segjast hafa tapað vegna viðskipta-
banns Sameinuðu þjóðanna á írak.
Ætlunin með samningnum er
margþætt. í honum er lögð áhersla
á að írak sé eitt land, en með því
vilja Bandaríkjamenn slá á ótta
Tyrkja við kröfur Kúrda í N-írak um
sjálfstæði. Þá gerir hann Tyrkjum
kleift að halda áfram baráttu gegn
Verkamannaflokki Kúrda (PKK).
Kúrdar segja að innrásir Tyrkja
inn í írak til að leita uppi félaga í
PKK hafi ýtt undir svipaðar árásir
af hálfu Irana á hendur íröskum
Kúrdum. Á sunnudag héldu um
2.000 íranskir hermenn inn í Norður-
írak og fullyrða Kúrdar að íjöldi
manns hafi látið lífið í árásinni.
Landnemar vonsviknir
Reuter
P ALESTIN SKUR verkamaður
leggur járn í nýtt íbúðarhús ísra-
elskra landnema á Vesturbakk-
anum í gær. Leiðtogar ísraelsku
landnemanna áttu í gær fund
með Benjamin Netanyahu for-
sætisráðherra og væntu þeir þess
að hann tilkynnti um frekara
landnám allt að 50.000 gyðinga
á Vesturbakkanum og Gaza-
ströndinni. Fyrri ríkissljórn
stöðvaði frekara landnám og tak-
markaði framkvæmdir í byggð-
um landnema er hún féllst á sjálf-
stjórn Palestinumanna á svæðun-
um. Þar búa um tvær milijónir
araba og um 130.000 gyðingar.
Að fundinum loknum lýstu
leiðtogar iandnema yfir von-
brigðum sínum vegna þess að
forsætisráðherrann hafði ekki
gefið nein fyrirheit. Einn þeirra
kvaðst þó sannfærður um, að
ákvörðun um stækkun svæðanna,
samkvæmt loforði sem Netan-
yahu gaf fyrir kosningarnar i
Israel í maí, yrði tekin á næst-
unni. Eftir fundinn sagði Net-
anyahu að stjórn hans myndi
koma saman fljótlega og ákvörð-
unar um landnám væri að vænta
innan tíðar.
Skallagen-
ið fundið?
Washing^on. Reuter.
ALÞJÓÐLEGUM hópi vís-
indamanna hefur tekist að
einangra gen sem hefur
áhrif á hárvöxt. Þessi upp-
götvun kann að leiða til þess
að langþráð „lækning" við
skalla finnist, að því er segir
í nýjasta hefti Nature Gen-
etics.
Sé genið gallað, veldur það
því að karlar missa hárið,
tennur og hafa lítt þroskaða
svitakirtla. Undir venjuleg-
um kringumstæðum hefur
genið hins vegar áhrif á hár-
vöxt karla. Segjast vísinda-
mennirnir ekki enn vita ná-
kvæmlega hvert hlutverk
gensins er, en telja mögulegt
að það sé nauðsynlegt til að
viðhalda hárvexti.
Clinton vill hertar aðgerðir gegn hryðjuverkamönnum
Þingmenn taka vel
í tillögur forsetans
Teikningar birtar af grunuðum tilræðismönnum í Atlanta
Mikill mannskaði
í flóðum í N-Kóreu
Tókýó. Reuter.
FLOÐ sökum meiri rigninga „en dæmi
eru um“ í N-Kóreu, hafa kostað f|öl-
mörg mannslíf undanfamar vikur, að
því er segir í tilkynningu hinnar opin-
beru fréttastofu landsins (KCNA).
Óvenjulegrar hreinskilni þykir gæta
í henni en þar segir að rigningar í
ár hafi valdið meira tjóni en á síðasta
ári.
Flóðin í fyrra ollu uppskerubresti
sem leiddi til hungursneyðar í Norður-
Kóreu. Ástandið nú er sagt enn verra.
Verst er ástandið sagt í héruðum sem
liggja að Suður-Kóreu, en þar í landi
hafa flóðin einnig valdið miklu tjóni.
í frétt KCNA segir að „mikill
mannskaði" hafi orðið en engar tölur
eru gefnar um fjölda látinna.
■ Mikil flóð/18
Atlanta, París. Reuter. The Daily Telegraph.
UMFANGSMIKIL leit stendur nú
yfir í Bandaríkjunum að manni sem
talinn er hafa staðið að sprengjutil-
ræðinu á Ólympíuleikvanginum í
Atlanta aðfaranótt laugardags. I
gærkvöldi birtu franskar sjónvarps-
stöðvar teikningar sem þær sögðu
vera frá lögreglu og sýna tvo grun-
aða. Bandaríska alríkislögreglan,
FBI, hafði áður neitað að birta
myndirnar. Bill Clinton Bandaríkja-
forseti átti í gær fundi með fulltrú-
um flokkanna á Bandarikjaþingi og
yfirmanni FBI til að kanna stuðning
þeirra við lög um hertar aðgerðir
gegn grunuðum hryðjuverkamönn-
um. Höfðu þeir uppi góð orð um
stuðning við aðgerðir gegn hryðju-
verkum.
Tilræði beint gegn lögreglu?
Getgátur eru uppi um að ætlun
mannsins sem kom rörasprengju
fyrir í Ólympíugarðinum hafi fyrst
og fremst verið að vinna löggæslu-
mönnum mein. Maðurinn hringdi
og varaði við því að sprengja væri
í garðinum, sagði að hún spryngi
eftir hálftíma en gaf ekki upp hvar
hún væri. Mikill fjöldi lög-
reglumanna og öryggi-
svarða hóf þegar leit að
sprengjunni, sem sprakk
13 mínútum síðar. Sagði
Jackie Barret, lögreglu-
stjóri í Fulton, að með þessu
kynni maðurinn að hafa
viljað ná eins mörgum lög-
reglumönnum inn í garðinn
og unnt var. Tveir létust í
tilræðinu og 111 slösuðust,
þeirra á meðal sex lögreglu-
menn. NBC-sjónvarpsstöð-
in fullyrti í gærkvöldi að
sprengjuhótunin hefði bor-
ist 10 mínútum fyrr en sagt
er en vegna tæknibilana
hafi verið brugðist of seint
við henni.
FBI segist hafa fengið
fjölda visbendinga sem nú er unnið
út frá. Hún hefur ekki viljað stað-
festa frétt í Washington Post þess
efnis að þijú vitni hafí lýst manni í
herklæðum, skammt frá þeim stað
sem sprengingin varð.
Lögin sem Clinton Bandaríkja-
forseti reynii' nú að fá þingið til að
Kjamorkutilraun sögð fyrirlitleg
Tókýó, Peking, Washington, London. Rcuter.
JAPANIR hafa lagt fram formleg mótmæli við
síðustu kjamorkutilraun Kínveija, sem sprengdu
kjarnorkusprengju neðanjarðar í gær, og lýstu því
yfir að þeir myndu banna frekari kjarnorkutilraun-
ir frá og með deginum í dag. Var tilrauninni
mótmælt víða um heim.
Ástralskir jarðvísindamenn sögðu að sprenging-
in hefði mælst 4,3 stig á Richter. í yfirlýsingu
sem gefin var út í Peking að tilrauninni lokinni
segja stjórnvöld að þau muni virða bann við til-
raunum með kjarnavopn og skrifa undir alþjóðlegt
bann við þeim.
Afvopnunarráðstefna Sameinuðu þjóðanna
hófst í Genf í gær, eftir mánaðarlangt hlé, skömmu
eftir að tilraunasprengingin var gerð í Kína. Á
ráðstefnunni verður reynt að ná endanlegu sam-
komulagi um alþjóðlegt bann við tilraunum með
kjarnavopn, en bæði Indveijar og Kínveijar hafa
áður sagt að þeir muni ekki skrifa undir þann
samning sem lagðut' hefur verið til. Bandarískir
FÉLAGAR í Greenpeace í Japan
mæla kjarnorkutilraun Kínverja við
ráð Kína í Tókýó í gær.
Reuter
mót-
sendi-
og rússneskir embættismenn hafa þó sagst sann-
færðir um að hægt yrði að fá Kínverja til þess
að skrifa undir, þannig að hægt yrði að hafa sam-
komulagið tilbúið til undirritunar í september.
Fulltrúi Bandaríkjastjórnar sagði í gær, að
stjórninni þætti miður að Kínvetjar skyldu gera
tilraunina, en fagnaði því, að þeir hyggðust ekki
gera frekari tilraunir. I sama streng tók utanrík-
isráðherra Ástralíu, Alexander Downer, en í Ástr-
alíu og Japan voru sendiherrar Kína boðaðir á
fund utanríkisráðherra landanna og þeim afhent
formleg mótmæli við kjarnorkutilrauninni.
Bresk samtök, sem beijast fyrir eyðingu kjarna-
vopna, sögðu í gær að tilraun Kínvetja væri „alger-
lega fyrirlitleg", en vonandi væri, að kínversk
stjórnvöld stæðu við þau orð sín, að gera ekki
frekari tilraunir. Sú ákvörðun að gera tilraun með
kjarnavopn sama dag og Afvopnunarráðstefnan
hófst á ný hafi verið eins og að „sprengja sprengju
beint undir samningaborðinu".
Reuter
TEIKNINGARNAR sem frönsku sjón-
varpsstöðvarnar birtu í gær, voru af
25-30 ára gömlum hvítum, dökkhærðum
manni með burstaklippingu, og hvítum
manni eða konu með skollitt hár.
samþykkja, voru lögð fyrir í apríl
sl. en náðu ekki fram að ganga.
Um er að ræða lög um hertar að-
gerðir gegn grunuðum hryðju-
verkamönnum, sem rýmka m.a.
heimildir FBI og annarra löggæslu-
stofnana til hlerana. Þá er einnig
lagt til að framleiðendur sprengi-
efnis verði skyldaðir til að merkja
framleiðsluna með efnum sem auð-
velda lögreglu að rekja sprengjur.
Rýmka leyfi til hlerana
Við upphaf fundarins með þing-
mönnunum sagði Clinton að um
„langt, agað og samstillt átak“ yrði
að ræða. Newt Gingrich og Trent
Lott, leiðtogar repúblikana í full-
trúa- og öldungadeiid þingsins, hétu
stuðningi sínum og sögðust fyllilega
reiðubúnir til viðræðna við forset-
ann um hvernig mætti styrkja að-
gerðir gegn hryðjuverkamönnum.
Enn er þó of snemmt að segja til
um hvort þingið muni styðja áður-
nefnda lagasetningu, vegna and-
stöðu ýmissa hópa við aukið vald
ríkisins sem felist í rýntkuðu leyfi
til hlerana. Þá er félag skotvopna-
eigenda (NRÁ) andvígt merking-
um á sprengiefni.
Grunur beinist/20