Morgunblaðið - 30.07.1996, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, undirbýr flutning frá Bessastöðum
„Staður skáldanna“
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti
Islands, hefur síðustu daga unnið
af kappi við að pakka saman eig-
um sínuni á Bessastöðum áður
en hún lætur af embætti á
fimmtudaginn kemur.
Ætlar að gefa bækur
Þegar Morgunblaðið heimsótti
Vigdísi í gærmorgun var hún að
flokka bækur úr veglegu einka-
safni sínu með góðri aðstoð sr.
Axels Arnasonar prests á Stóra-
Núpi. Vigdís kveðst alla tíð hafa
þráð bækur. „Tólf ára átti ég
tuttugu bækur og kunni utan að
bókaskáp föður míns,“ rifjar hún
upp.
Bækurnar eru aftur á móti
orðnar það margar nú að Vigdís
hefur ákveðið að deila þeim með
öðrum. Ymsar erlendar bækur
sem fræðimenn og rithöfundar
hafa sent henni hyggst hún gefa
Landsbókasafninu. „Hér er til að
mynda ævisaga norska rithöf-
undarins Knuts Hamsun,“ segir
Vigdís og biður Axel um að koma
henni fyrir í kassa merktum
Þjóðarbókhlöðunni. íslenskar
bækur, einkum skemmtibók-
menntir, hefur hún tekið frá til
að fylla bókaskápa í íbúðum sem
ætlaðar eru fólki sem kemur ut-
an af landi til að heimsækja ætt-
ingja sína á sjúkrahúsum í
Reykjavik. Hún segir að alla tíð
hafi henni verið sérstaklega annt
um að halda upp á bækur sem
börn eða unglingar hafi gagn eða
gaman af.
Skilur ljóðin eftir
Vigdís segir að auðvitað verði
mikið af bókum eftir á Bessastöð-
um. Eiginlegt bókasafn embætt-
isins er bókasafn Boga Ólafsson-
ar, fyrrum enskukennara í
Menntaskólanum. Þá er til mikið
safn bóka um sögu héraða eða
byggðarlaga.
Eitt hefur þó sérstöðu hjá Vig-
dísi. Hún ætlar að skilja eftir
mikið safn ljóðabóka sem hún
hefur safnað í gegnum árin. Stór-
ar sem smáar ljóðabækur, ýmist
eftir ung eða aldin skáld, eru
geymdar I veglegum bókaskáp,
sem nefndur er Ljóðaskápurinn,
í Thomsens-herbergi, skrifstofu
forseta Islands á Bessastöðum.
„Ljóð eiga að vera á Bessastöðum
því að þetta er staður skáld-
anna,“ segir Vigdís.
Vigdís segir að allar opinberar
gjafir verði áfram á Bessastöðum
Morgunblaðið/Sverrir
en flestar einkagjafir taki hún
með sér. „Hér á Bessastöðum
eiga Islendingar að geta gengið
að gjöfum sínum til forsetans.
Eg hef átt mér þann draum að
opinberar gjafir verði til sýnis í
sýningarskápum á Bessastöð-
um,“ segir Vigdís.
Æsa skoð-
uð með neð-
ansjávar-
myndavél
UNNIÐ hefur verið að rann-
sókn á orsökum þess að kú-
fiskveiðiskipið Æsa ÍS-87 frá
Flateyri sökk í Arnarfirði sl.
fimmtudag og fjörur hafa
verið gengnar til að leita
mannanna tveggja sem fórust
með skipinu.
Jónas Þór, lögreglumaður
á Patreksfirði, segir að mynd-
ir hafi verið teknar af skipinu
úr Óríon II með neðansjávar-
myndavél aðfaranótt laugar-
dags og laugardag og séu
þær í höndum rannsóknar-
nefndar sjóslysa.
Félagar úr björgunarsveit-
um Slysavarnafélags íslands
á Bíldudal og Þingeyri gengu
fjörur utan til í Arnarfirði á
sunnudag. Engin ákvörðun
hefur verið tekin um það
hvenær leit verður haldið
áfram.
Að óbreyttu hætta
127 heilsugæslu-
læknar 1. ágúst
Reynsla sjúklinga á Vogi, yngri en 25 ára, af amfetamíni
Ár Fjöldi sjúklinga Hafa prófað amfetamín Fjöldi Hlutfall Stórneytendur amfetamíns Fjöldi Hlutfall ,-c. :"^~*** Hafa sprautað sig
1993 210 97 46% 45 21% Hafa reynt E-pilluna Stórneytendur E-pillunnar 30
1994 222 103 46% 37 17% 37
1995 222 125 56% 54 24% 43 10 44
1996 270 186 69% 112 41% 102 32 52
Ný samantekt SAA um neyslu amfetamíns
Ungir neytendur helm-
ingi fleiri en í fyrra
ÁRANGURSLAUS sáttafundur
var haldinn í deilu heilsugæslu-
lækna og ríkisins hjá ríkissátta-
semjara í gær. Horfir þunglega í
deilunni og ber enn mikið í milli,
að sögn Þóris Einarssonar ríkis-
sáttasemjara, sem hefur boðað
deiluaðila til annars fundar kl. 10
í dag. Að öllu óbreyttu láta 127
heilsugæslulæknar við 54 heilsu-
gæslustöðvar um allt land af störf-
um 1. ágúst.
Að sögn Gunnars Inga Gunnars-
sonar, formanns samninganefndar
heilsugæslulækna, er staðan í deil-
unni erfið. „Ég hef ennþá þá trú
og von að menn leysi þetta,“ sagði
hann í gærkvöldi. Jón Sæmundur
Siguijónsson, sem sæti á í samn-
inganefnd ríkisins, sagði að engin
hreyfíng hefði orðið á fundinum í
gær en hann gerði ráð fyrir að
haldinn yrði stífur samningafundur
í dag og þá yrði ailt sett á fulla ferð.
36 heilsugæslustöðvar
yrðu læknislausar
Alls hafa 127 læknar við 54
heilsugæslustöðvar á landinu sagt
upp og að sögn Gunnars Inga
yrði afleiðingin sú ef læknarnir
láta af störfum að 36 stöðvar yrðu
læknislausar en aðrar stöðvar
yrðu undirmannaðar. Á höfuð-
borgarsvæðinu, allt frá Hafnar-
firði og upp í Mosfellsbæ, starfar
í dag 61 læknir á 13 heilsugæslu-
stöðvum en eingöngu myndu átta
læknar starfa áfram eftir mánaða-
mótin á fjórum stöðvum á þessu
svæði, að sögn hans. Auk þess
yrði enginn læknir við störf á
Læknavaktinni.
Sérstakur hópur sem hefur það
hlutverk að skipuleggja starfsemi
heilsugæslunnar víðs vegar um
landið, tók til starfa sl. laugardag.
Ef til þess kemur að læknarnir
láti af störfum um mánaðamótin
mun heilbrigðisráðuneytið birta
auglýsingar með leiðbeiningum
fyrir íbúa um hvar þeir geti aflað
sér upplýsinga um heilsugæslu og
læknisþjónustu í einstökum héruð-
um, að sögn Davíðs Á. Gunnars-
sonar, ráðuneytisstjóra í heilbrigð-
isráðuneytinu. „Landlæknir hefur
verið að athuga fyrir okkur hvern-
ig ástandið er í hinum ýmsu héruð-
um og allavega fyrst um sinn verð-
ur ekki neyðarástand neins stað-
ar,“ sagði hann.
Aðspurður um það ástand sem
skapast ef læknarnir láta af störf-
um, sagði Gunnar Ingi að ef menn
gengju út frá því að heilsugæslan
í landinu sinnti einhveijum verk-
efnum að ráði, væri það engin
spurning að neyðarástand myndi
skapast.
FYRSTU sex mánuði þessa árs
hefur misnotkun amfetamíns meðal
fólks sem er 24 ára og yngra næst-
um tvöfaldast miðað við sama tíma
í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri
samantekt frá SÁÁ yfir þá sem
leituðu meðferðar á Vogi fyrstu
mánuði þessa árs og var niðurstað-
an borin saman við niðurstöður
fyrstu sex mánuði áranna frá 1993.
Tölulegar upplýsingar um amfet-
amínneyslu gefa til kynna að ástand
sé mjög slæmt hjá þeim sem eru
yngri en 25 ára. Fjöldi ungs fólks
í meðferð eykst verulega frá því í
fyrra vegna amfetamínneyslu og
aldur hefur lækkað.
Tveir af hveijum þremur sjúk-
lingum á Vogi yngri en 25 ára
hafa prófað amfetamín og tæplega
helmingur karlmanna á þessum
aldri greinist stórneytendur efnis-
ins, þ.e. hafa notað það minnst einu
sinni í viku í hálft ár eða lengur
áður en þeir komu í meðferð.
Rekja má faraldurinn til
síðustu verslunarmannahelgar
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi, segir að rétt sé að tala um
amfetamínfaraldur. Aukningin sé
mjög mikil og skyndileg frá miðju
ári 1995 eftir tiltölulega jafnt
ástand undanfarin ár. Rekja megi
upphaf þessa faraldurs eitt ár aft-
ur. „Um þetta leyti í fyrra keyptu
hundruð ungmenna sér í fyrsta sinn
E-pillu eða amfetamín. Hámarki
var náð um verslunarmannahelgina
og fræg var Uxahátíðin svokallaða.
Amfetamín- og E-pilluballið hélt
svo áfram á skemmtistöðum í
Reykjavík um haustið. Við þetta
breyttust ungmenni sem áður voru
röskir skemmtanadrykkjumenn í
fíkna amfetamínneytendur. Um
haustið flosnaði margt af þessu
fólki upp úr vinnu og skóla og leit-
aði sér meðferðar í fyrsta sinn hjá
SÁÁ. Ekki er enn séð fyrir endann
á þessum vanda og þrátt fyrir góð-
an ásetning og vilja, sitja ungmenni
hundruðum saman í klóm amfetam-
ínsins."
Þórarinn segir að ekki sé hægt
að sjá neinn sameiginlegan félags-
legan bakgrunn hjá amfetamín-
neytendunum. Margir séu í fjöl-
brautaskólum og einnig séu þess
dæmi að háskólamenntað fólk komi
í meðferð. Samfélagsleg staða fólks
segi ekkert um það hvort það ánetj-
ist vímuefnum, eins og áður var
talið, heldur vímutegundin. „Skýr-
ingin á þessari fjölgun amfetamín-
neytenda virðist liggja í þvi hvað
efnið er aðgengilegt. Einnig virðist
unga fólkið hvorki telja það svo
hættulegt né óeðlilegt að prófa
amfetamín þegar það skemmtir
sér,“ segir Þórarinn.
Þórarinn segir að amfetamín sé
jafnhættulegt vímuefni og kókaín
og helmingur amfetamínfíkla
sprauti efninu í æð. „Sprautufíklar
sáust ekki á íslandi fyrir 1983, en
með amfetamíninu fór að bera á
þeim. Vandi þeirra verður meiri og
sýnilegri með hveijum mánuðinum
sem líður. Á síðustu fimm árum
hafa komið 532 einstaklingar á Vog
sem hafa sprautað sig með vímu-
efnum í æð og 223 þeirra hafa feng-
ið C-lifrarbólgu. Á síðasta ári höfðu
16% allra sjúklinga sem komu á
Vog sprautað sig í æð einhvern tíma
á ævinni og 125 þeirra sprautuðu
sig reglulega. Fjölcli sprautufíkla
hefur því aldrei verið meiri."
Þórarinn segir að ætla megi að
fjöldi ungs fólks prófi amfetamín
eða E-pillu í fyrsta sinn í kringum
verslunarmannahelgina eins og í
fyrra. Bendir hann á að flest þeirra
ungmenna sem hafa komið í með-
ferð á þessu ári hafa sagst hafa
fyrst prófað amfetamín eða E-pillu
í kringum verslunarmannahelgina.
Ertu með debetkort?
Þau sem eai með debetkort:
Notarðu debetkortið við eftirtalið?
Dagleg innkaup \~
Úttekt úr hraðbanka
Sem tékkaábyrgðarkort | 28,7%
Sem persónuskilriki I 26,5%
7,0%
Hvaða debetkortið ert þú með?
■HS 28,5%
Bæði |
Maestro |
Electron |
NEYSLUKÖNNUN FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR 1996. Úrtak 1.200 manns, 882 svöruðu.
ÞÝÐI neyzlukönnunarinnar, þ.e. sá hópur þjóðarinnar sem úrtakið var tekið úr, eru allir
Islendingar á aldrinum 14-80 ára. Þetta eru 185.173 einstaklingar, samkvæmt upplýsingum
frá Hagstofu Islands. Hvert prósentustig í könnuninni samsvarar þvi um 1.850 manns.
Taka verður tillit til skekkjumarka, sem eru á niðurstöðum i könnun sem þessari, þegar
prósentustig eru umreiknuð i mannfjölda.