Morgunblaðið - 30.07.1996, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Héraðsdómur Norð-
urlands eystra
Dæmdur
fyrir kyn-
ferðisbrot
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt rúmlega-þrítugan
karlmann í fjögurra mánaða fang-
elsi, skilorðsbundið til tveggja ára,
fyrir kynferðisbrot. Jafnframt er
ákærða gert að greiða allan sak-
arkostnað.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa sl. vetur komið óboðinn að nóttu
til í herbergi konu, sest við rúmstokk
hennar en hún lá þá á nærbuxum
einum fata undir sæng, talað á klám-
fenginn hátt til hennar, þrifíð í sæng-
ina, strokið innanverð læri hennar
og neitað að yfirgefa húsið umbeð-
inn. Ákærði viðurkenndi fyrir dómi
skýlaust þá háttsemi sem honum er
gefin að sök.
—...♦ ♦ ♦---
Dagur-Tíminn
Nýr ritstjóri
ráðinn í dag
GERT er ráð fyrir að á stjómarfundi
í Dagsprenti sem haldinn verður í
dag verði gengið frá ráðningu rit-
stjóra sameinaðs dagblaðs, Dags-
Tímans. Starfsfólk Dagsprents kom
saman á fundi í gærmorgun þar sem
einnig voni fulltrúar Fijálsrar fjölm-
iðlunar. Á fundinum var farið yfir
stöðu mála, en ekki var tilkynnt um
nýjan ritstjóra blaðsins. Fram kom á
fundinum að tveir einstaklingar væru
inni í myndinni, en ekki væri ljóst
hvor yrði fyrir valinu.
Samkomulag hefur orðið um að
fulltrúar Fijálsrar fjölmiðlunar ráði
nýjan ritstjóra að blaðinu, en núver-
andi stjórn Dagprents þurfí að sam-
þykkja hann. Núverandi ritstjórar
Dags eru bræðurnir Óskar Þór og
Jóhann Ólafur Halldórssynir. Hlut-
hafafundur hefur verið boðaður á
fimmtudag þar sem m.a. verður lögð
fram tillaga um að að auka hlutafé
um helming, í 47 milljónir króna.
Samkomulag hefur orðið um að
Fijáls fjölmiðlun kaupi það hlutafé
og eignist meirihluta í félaginu.
Starfsfólk Dagprents hefur verið
nokkuð uggandi, en það hefur lagt
á sig mikla vinnu undanfarin ár við
að rétta af hag félagsins. Hörður
Blöndal framkvæmdastjóri sagði að
ótti starfsfólk beindist fremur að því
hvað yrði um Dag við sameininguna,
en á fundinum í gær hefði áhersla
verði lögð á að stefna blaðsins yrði
áfram sú sama. Einn starfsmanna
orðaði það svo að fólk væri vissulega
dálítið hrætt um sameiningin yrði til
að veikja stöðu Dags á Akureyri.
(W/Hótel
Harpa
Akureyri
Gisting við allra
hæfi.
Pú velur:
Fjörið í miðbænum.
Friðsældina í
Kjarnaskógi
eða lága verðið á
gistiheimilinu
Gulu villunni
gegnt
sundlauginni.
Sími 461 1400.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
MIKILL fjöldi heimsótti nýja skrifstofu Morgunblaðsins við formlega opnun síðastliðinn laugardag.
Morgunblaðið/Kristján
SYSTURNAR íris Eva, sem er 8 ára, og Halla Laufey, fjög-
urra ára, drógu út nöfn 50 krakka sem skiluðu inn litaðri
mynd af myndasöguhetjunum Gretti, Jóni og Odda.
KRAKKARNIR fengu ís, blöðrur og límmiða.
Skrifstofa Morgunblaðsins flutt
í nýtt húsnæði
Yfir tvö þúsund
manns heimsóttu
skrifstofuna
YFIR TVÖ þúsund manns heim-
sóttu nýja skrifstofu Morgun-
blaðsins á Akureyri við formlega
opnun hennar síðastliðinn
laugardag. Skrifstofan er í ný-
byggingu við Kaupvangsstræti
1, í miðbæ Akureyrar.
Rúm tíu ár eru frá því
Morgunblaðið opnaði skrifstofu
á Akureyri og hefur starfsemin
farið ört vaxandi frá þeim tíma.
Nú starfa fimm manns á skrif-
stofunni sem sjá um Akur-
eyrarsíðu, sem birtist alla út-
gáfudaga nema sunnudaga,
dreifingu, auglýsingar og ýmis-
legt annað.
Fyrir nokkru var tekin upp
sú nýbreytni að aka Morg-
unblaðinu að næturlagi frá
prentsmiðjunni í Reykjavík
norður yfir heiðar, þannig að
blaðið á að vera komið til áskrif-
enda fyrir kl. 8 á morgnana og
hafa áskrifendur tekið því fagn-
andi.
í tilefni dagsins var börnum
boðið að skila inn litaðri mynd
af myndasöguhetjunum Gretti,
Jóni og Odda sem birtast í
Myndasögum Moggans á hveij-
um miðvikudegi og skiluðu 862
börn inn myndum. Systurnar íris
Eva og Halla Laufey Hauksdætur
voru fengnar til að draga út nöfn
50 heppinna krakka sem hlutu
vinning, bíómiða fyrir tvo í Borg-
arbíó auk þess sem hvert barn
fékk ýmist íþróttatösku, bol með
Gretti, húfu, vekjaraklukku eða
svifdisk.
Kynntu sér starfsemi
blaðsins
Flestir hafa þegar sótt vinn-
inga sína en starfsmenn blaðsins
munu hafa samband við þá sem
enn eiga ósótta vinninga.
Gestum var boðið að kynna
sér starfsemi blaðsins og þá
þjónustu sem þar er veitt.
Boðið var upp á ís, kaffi og
kransakökur og börnin fengu
blöðrur og límmiða.
O.PNUM F.I'TIR 3 DAGA...................
oUB
Fyrirlestur
um Jakob for-
lagatrúar
FRIÐRIK Rafnsson heldur fyrirlest-
ur í Deiglunni í kvöld, þriðjudags-
kvöldið 30. júlí kl. 20.30 um Jakob
forlagatrúar eftir Dcnis Diderot, en
bókin kemur út í þýðingu hans í
haust.
Jakob forlagatrúar er annað af
tveimur þekktustu skemmtiverkum
franskra upplýsingabókmennta, en
hitt er Birtingur eftir Voltaire.
Bæði verkin fjalla um tilgang og
eðli mannsins og hafa heimspekileg-
an undirtón.