Morgunblaðið - 30.07.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson
NÝJA kirkjan í Reykholti sem var vígð á sunnudag.
Ný kirkja vígð í Reykholti á sunnudag
Um sexhundruð manns
sóttu athöfnina
Sólbyrgi, Reykholtsdal - Ný
kirkja var vígð í Reykholti í Borg-
arfirði á sunnudag en þar á staðn-
um hefur verið kirkja frá því
skömmu eftir árið 1000. Á milli
fimm- og sexhundruð manns voru
viðstaddir vígsluna.
Athöfnin hófst í Gömlukirkju
með því að sunginn var sálmurinn
„Guðs kirkja er byggð á bjargi".
Lesinn var 84. Davíðssálmur, flutt
bæn og stutt ræða, þar sem vígslu-
biskup afhenti sóknarnefnd húsið
til umráða. Síðan var prósessía til
nýrrar kirkju.
Vígslubiskup, herra Sigurður
Sigurðarson í Skálholti, vígði hina
nýju kirkju. Kórar Reykholts- og
Hvanneyrarsóknar sungu. Organ-
istar voru Bjarni Guðráðsson og
Haukur Guðlaugsson. Söngstjóri
var Bjarni Guðráðsson.
Að lokinni vígslu var gestum
boðið að þiggja veitingar í kjallara
kirkjunnar, í boði sóknarnefndar.
Eftir kaffi var samkoma í nýju
kirkjunni; þar voru ávörp flutt.
Guðlaugur Óskarsson, formaður
sóknarnefndar, þakkaði einstakl-
ingum innan sóknar og utan fjár-
framlög og sjálfboðavinnu. Hönn-
uðum og öllum iðnaðarmönnum
þakkaði hann einnig þeirra alúð
sem þeir hefðu lagt í verk sín,
byggingarnefnd óbilandi elju og
áhuga formanns hennar, Bjarna
Guðráðssonar í Nesi og konu hans
Sigrúnar Einarsdóttur sem hefði
verið honum ómetanleg stoð. Einn-
ig þakkaði hann sóknarpresti, séra
Geir Waage og konu hans Dagnýju
Emilsdóttur margþættan stuðning
þéirra allan tíma verksins, öllu tón-
iistarfólki og vígslubiskupi fyrir
vígslu hinnar nýju kirkju.
Gleðidagur
Diðrik Jóhannsson á Hvanneyri
færði kirkjunni Vejsenhus-biblíu
frá 1747 að gjöf. Stefán Ólafsson
byggingameistari og menn hans
færðu kirkjunni bakstursdósir úr
silfri. Ingibjörg Pálmadóttir flutti
heillaóskir frá þingmönnum Vest-
urlands og sagði þennan dag mik-
inn gleðidag og að góður andi
væri í hinni nýju kirkju. Sérstak-
lega þakkaði hún Bjarna Guðráðs-
syni hans framlag, hvort væri til
byggingar eða til tónlistarflutnings
sem svo fagurlega hljómaði í kirkj-
unni.
Séra Björn Jónsson prófastur á
Akranesi sagði í sinni ræðu að
þaðværi hér sem hendur hefðu lyft
bjargi og hér stæði fögur og stíl-
hrein bygging og að turninn sem
benti upp til drottins gæti einnig
EFTIR að gamla kirkjan hafði verið afhelguð var prósessía
til nýrrar kirkju.
BJARNI Guðráðsson, formaður byggingarnefndar Reykholts-
kirkju, Andrés Narfi Andrésson, arkitekt, sr. Geir Waage,
sóknarprestur og herra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup,
sungu Te Deum við vígsluna.
verið ritblý Snorra Sturlusonar.
Að lokum tilkynnti hann að Hér-
aðsnefnd Borgarfjarðar og Mýra-
sýslu hefði ákveðið að gefa kirkj-
unni hátíðarhökul.
Séra Brynjólfur Gíslason sókn-
arprestur í Stafholti færði kirkj-
unni, fyrir hönd Hallgrímsdeildar
prestafélags íslands, biblíu að gjöf.
Ýmsar góðar gjafir, fjárframlög
og gripir hafa kirkjunni verið gefn-
ar á undanförnum árum.
Að lokum þakkaði Guðlaugur
Óskarsson öllum þeiin sem fluttu
ávörp og gáfu góðar gjafir og sagði
„þær eru okkur dýrmætar, dýr-
mætar vegna þess hveijar þær eru
og þó ekki síður fyrir það að sú
vinátta sem bundin er góðri gjöf
er eitt það dýrmætasta sem hver
og einn getur átt í sjóði“.
Kirkja í þúsund ár
Kirkja hefur verið á Reykholti
frá því skömmu eftir árið 1000 en
Gamlakirkja í Reykholti var reist
1887. Það var á hvítasunnudag
1988 að biskupinn yfir íslandi,
herra Pétur Sigurgeirsson, tók
fyrstu pálsstunguna að Reykholts-
kirkju og Snorrastofu. Arkitekt er
Garðar Halldórsson, húsameistari
ríkisins _og byggingameistari er
Stefán Ólafsson á Litlu-Brekku.
Reykholtsmáldagi er elsta skjal
sem varðveitt er í frumriti á nor-
rænu máli á íslandi. Elsti hluti
hans mun vera frá því um 1150
en yngri hlutarnir frá 13. öld.
Greinir hann eignir og réttindi
kirkju á staðnum. Þar á kann að
vera rithönd Snorra Sturlusonar.
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996 11
MorgunblaðiðTheodór
BÖRN Friðriks Þorvaldssonar og Helgu G. Ólafsdóttur við
minnismerkið, frá vinstri: Jónas Gunnar, Þorvaldur Thor, Eð-
varð, Guðmundur, Ólafur Helgi og Elsa.
Aldarminning Friðriks Þorvaldssonar
Minnismerki af-
hjúpað 1 Borgamesi
Borgarnesi - Minnismerki um Frið-
rik Þorvaldsson var nýverið afhjúpað
í Skallagrímsgarði í Borgarnesi að
viðstöddum ættingjum hans og íjölda
Borgnesinga.
í ávarpi sínu við athöfnina sagði
Guðmundur Guðmarsson forseti bæj-
arstjórnar Borgarness meðal annars;
„Ég vil fyrir hönd bæjarstjómar
Borgarbyggðar þakka aðstandend-
um Friðriks Þorvaldssonar fyrir að
standa að því að koma hér upp minn-
ismerki um hann, nú þegar eru rétt
um 100 ár frá fæðingu hans. Friðrik
Þorvaldsson flutti hingað um 1920
og bjó hér fram á sjötta áratuginn.
Lengst af var hann starfsmaður
Skallagríms hf. og sá um afgreiðslu
skipa við Borgarneshöfn. Hann tók
virkan þátt í félagslífi, sat í.hrepps-
nefnd, var formaður ungmennafé-
lagsins, organisti við kirkjuna á
Borg, stundaði garðrækt og tijárækt
og ýmislegt fleira sem má minnast
hans fyrir. Friðrik Þorvaldsson var
eldhugi sem gekk ótrauður fram við
hvaðeina sem hann tók sér fyrir
hendur. Hann átti sér lengi þann
draum að brúa Hvalfjörð og skrifaði
margar greinar um það efni og afl-
aði sér margvíslegrar upplýsinga.
Þessi draumur hans lifði með honum
alla tíð. Hann lifði það að sjá Borgar-
Qorð bniaðan áður en hann lést árið
1983. Á meðan hann bjó hér og var
félagi og stjómarmaður í ungmenna-
félaginu Skallagrími í Borgarnesi
beitti hann sér fyrir því að tijágróðri
var plantað hér sem við stöndum nú
og lagði þannig grundvöllinn að þeim
Skallagrímsgarði sem við þekkjum í
dag. Það er nauðsynlegt fyrir okkur
sem hér búum, það er hollt fyrir okk-
ur líka, að minnast þess manns sem
gerði þetta, minnast hans með þakk-
læti. Það er enginn staður betur við
hæfi fyrir þetta minnismerki en ein-
mitt hér í Skallagrímsgarðinum sem
varð til fyrir hans tilstuðlan og í næsta
nágrenni við hús það sem hann bjó
lengst af í meðan hann var hér. Ég
flyt ykkur kærar kveðjur og þakkir,
aðstandendur Friðriks Þorvaldssonar."
Eftir ávarp forseta bæjarstjórnar
og afhjúpun minnismerkisins stigu
fram nokkrar síungar ungmennafé-
lagskonur, sumar reyndar rétt rúm-
lega áttræðar, og sungu nokkur ætt-
jarðarlög. Nokkrar af þessum síungu
konum plöntuðu reyndar fyrstu
trjánum í Skallagrímsgarðinum með
Friðriki Þorvaldssyni á sínum tíma.
ÞÆR tóku sig til og sungu ættjarðarlijg að sönnum ungmennafé-
lagssið. Frá vinstri, Olína Gísladóttir, Oddný Þorkelsdóttir,
Ragney Eggertsdóttir, Ragnheiður Ásmundsdóttir, Freyja
Bjarnadóttir, Anna Þórarinsdóttir og Guðrún Daníelsdóttir.
Arleg
íþróttahátíð
haldin á
Flateyri
Flateyri - Að þessu sinni kom það
í hlut Flateyrar að halda íþrótta-
hátíð sem haldin hefur verið ýmist
á Suðureyri eða Þingeyri. Hér er
um að ræða íþróttahátíð yngri
aldursflokka grunnskólabarna,
Keppt. var í ýmsum greinum frjáls-
íþrótta, 100 m og 400 m hlaupi,
spjótkasti, hástökki, langstökki,
kúluvarpi o.fl. Hátíðina sóttu börn
úr nálægum sveitarfélögum og síð-
an var att kappi. Það var ekki laust
við að áhrifa Ólympíuleikanna
gætti í keppnisskapi þátttakenda.
Hinir sem ekki tóku þátt, þ.e. for-
eldrar og allra smæsta kynslóðin,
hvöttu óspart sína aðila.
Morgunblaðið/Egill Egilsson