Morgunblaðið - 30.07.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996 19
ERLENT
1»STUTT
Lúkashenko
Mask-
hadov
sýnt bana-
tilræði
ÓÞEKKTIR menn hófu í gær
skothríð á bifreið Aslans
Maskhadovs, yfirmanns hers
tsjetsjenskra aðskilnaðar-
sinna, nálægt þorpi í suðaust-
urhluta Tsjetsjníju. Mask-
hadov sakaði ekki en einn líf-
varða hans særðist. Ekki var
vitað hvort rússneskir her-
menn, tsjetsjenskir banda-
menn Rússa eða andstæðingar
Maskhadovs meðal aðskilnað-
arsinna hefðu gert árásina.
Lúkashenko
bannar
mótmæli
ALEXANDER Lúkashenko,
forseti Hvíta-Rússlands,
kvaðst í gær
ætla að
banna alla
mótmæla-
fundi á upp-
skerutím-
anum. Hann
sagði að til-
raunir til að
koma hon-
um frá yrðu
ekki liðnar
og kvaðst ætla að gegna for-
setaembættinu í tvö kjörtíma-
bil til viðbótar. Hann hefur
sætt harðri gagnrýni fyrir
samninginn um nánari sam-
vinnu við Rússa.
Bakteríuleit
hætt í Japan
HEILBRIGÐISYFIRV ÖLD í
Japan sögðust í gær hafa
ákveðið að hætta tilraunum til
að finna 0-157 bakteríuna í
skólamáltíðum eftir að rann-
sókn á 1.500 matarsýnum bar
ekki árangur. Alls hafa sjö
manns látið iífið og 9.000
veikst af völdum bakteríunnar,
þar af 6.500 skóiabörn í hafn-
arborginni Sakai. Ákveðið var
að gefa fólki, sem fékk bakter-
íuna en hefur ekki veikst,
sýklalyf en sú ákvörðun hefur
sætt gagnrýni nokkurra sér-
fræðinga, sem segja að þótt
lyfin drepi bakteríuna geti
meðferðin leyst úr læðingi eit-
urefni, sem bakterían mynd-
aði, og orðið fólkinu að bana.
Oeirðir
í Jakarta
SKRIFSTOFUM, bönkum og
verslunum var lokað í Jakarta
vegna sprengjuhótana í gær
eftir mestu óéirðir í borginni
í 20 ár. Óeirðirnar hófust á
laugardag eftir að lögreglan
réðst inn í höfuðstöðvar Lýð-
ræðisflokks Indónesíu. Þrír
menn biðu bana, 54 særðust
og 249 voru handteknir.
Kiszczak
sýknaður
DÓMSTÓLL í Varsjá sýknaði
í gær Czeslaw Kiszczak, inn-
anríkisráðherra Póllands á
valdatíma kommúnista, af
ákærum um að hafa heimilað
lögreglunni að skjóta á kola-
námamenn sem efndu til mót-
mæla nálægt Katowice árið
1981. Níu námamenn biðu
bana í árásinni og 25 særðust.
Misheppnað tilræði við Saddam
Irakar skella
skuldinni á CIA
Kúveit. Reuter.
EINN af leiðtogum stjórnarand-
stöðunnar í írak sagði í gær, að
yfirvöld í írak hefðu komið í veg
fyrir tilraun til að steypa Saddam
Hussein íraksforseta af stóli
vegna mistaka CIA, bandarísku
leyniþjónustunnar.
Mohammad Bager al-Hakim,
sem er í útlegð í Iran og forseti
æðstaráðs íslömsku byltingarinn-
ar, sagði í viðtali við kúveiska
dagbiaðið al-Rai al-Aam, að allt
að 30 foringjar í íraska Lýðveldis-
verðinum hefðu verið líflátnir eftir
að upp komst um samsærið.
Tala um samsæri
„Bandaríkjastjórn í samvinnu
við stjórnvöld í Jórdaníu og annað
arabaríki lögðu á ráðin um breytta
skipan mála í írak en yfirvöld þar
komust að því og kæfðu tilraunina
í fæðingu," sagði Hakim í viðtal-
inu, sem var tekið í Teheran.
ísraelska ríkissjónvarpið sagði
sl. fimmtudag, að Saddam hefði
komist naumlega lífs af þegar
sprengja sprakk í einni af höllum
hans fyrr í þess-
um mánuði en
ekki hefur tekist
að fá þá frétt
staðfesta.
150 handteknir
Hakim sagði,
að bandaríska
leyniþjónustan
hefði ekki staðið
sig í stykkinu og
með þeim afleiðingum, að um 150
foringjar í Lýðveldisverðinum
hefðu verið handteknir og allt að
30 líflátnir. Sakaði Hakim CIA um
að gæta aðeins sinna hagsmuna
og skeyta engu um örlög þeirra,
sem með henni störfuðu.
Hakim sagði ekki hvetjir hefðu
staðið að tilrauninni til að steypa
Saddam en blaðið hafði eftir öðr-
um heimildum, að CIA hefði greitt
Iyad al-Alawi, leiðtoga „sam-
starfshóps" íraskra stjórnarand-
stæðinga, fimm milljónir dollara,
um 330 millj. ísl. kr., fyrir að
skipuleggja hana.
Búrúndí
Buyoya sver
hófsama stefnu
Hujumbura, Genf. Reuter.
PIERRE Buyoya, leiðtogi herfor-
ingjastjórnarinnar sem tók völdin í
Búrúndí sl. fimmtudag, lýsti því yfir
um helgina, að brottrekstri flótta-
manna af hútú-ættbálki yfir landa-
mærin til Rúanda yrði hætt. Vest-
rænum sendimönnum sagði Buyoya
í gær, að aðgerðirnar sem herinn
hefði gripið til væru aliar til þess
ætlaðar að stöðva drápin sem lát-
laust hefðu átt sér.
„Ríkisstjórnin mun virða alþjóða-
lög, þar með talið vernd flóttamanna
á okkar landssvæði," sagði Buyoya.
Hann sagði sig sjálfan aðeins vera
tímabundinn ieiðtoga landsins þar
til takast muni að setja upp þjóð-
stjórn allra „friðelskandi Búrúndí-
manna“. Talið er að með þessum
yfirlýsingum vilji Buyoya sefa gagn-
rýnisraddir alþjóðasamfélagsins
gegn stjórn sinni og minnka hættuna
á að erlendur herafli verði sendur
inn í landið.
Stjórnmálaskýrendur segja að
nokkur stuðningur frá hútú-mönnum
sé nauðsynlegur, vilji herforingja-
stjórn Buyoyas eiga frekari lífslíkur.
Um 85 af hundraði íbúa Búrúndí eru
af hútú-ættbálki, tútsar hafa hins
vegar frá fornu fari tögi og hagldir
í stjórnkerfi og her landsins.
Leonard Nyangoma, leiðtogi Þjóð-
arráðsins til verndar lýðræðinu
(CNDD), sem eru ein helztu stjórn-
málasamtök hútú-manna, endurtók
hins vegar hótanir um að skæruliðar
hútú-manna myndu gera allt sem í
þeirra vaidi stæði til að steypa her-
stjórninni. Hann hvatti þó lands-
menn sína til að sýna stillingu og
„úthella ekki blóði nágranna" sinna.
Fregnir bárust í gær af átökum
stríðandi fylkinga í Mið-Búrúndí.
Leiðtogar Afríkuríkja ætla að
taka ákvörðun um samræmd við-
brögð við valdaráninu á fundi i Arus-
ha í N- Tanzaníu á miðvikudag, en
Samtök Afríkuríkja höfðu áður boð-
izt til að leggja til hermenn til frið-
argæzlu í Búrúndí, að því gefnu að
hin velmegnandi ríki borgi brúsann.
Móttaka 500 þúsund
flóttamanna undirbúin
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna (UNHCR) tilkynnti í Genf
í gær, að hún héldi áfram starfsemi
sinni í Búrúndi. Jafnframt væri ver-
ið að ganga frá neyðaráætlunum,
sem skipulegðu viðtöku allt að
500.000 flóttamanna frá Búrúndí.
Nú þegar eru um tvær milljónir
flóttamanna frá Rúanda og Búrúndí
í flóttamannabúðum í nágrannaríkj-
unum Tanzaníu og Zaíre.
TJÖLO
v allt sem þú þarft...
TjÖLD verð frá 4.900.-
Cydlst
SVEFNPOKAR
verð frá 3.900.-
Swift 400
2 manna göngutjald
3,1 kg. Kr. 9.900,-
Adventuro
ISO
■ I5°C I
2,1 kg.
Áður 6.200,- nú 3.900.-
Swallow 350
kúlu fjölskyldutjaíc
með tvelmur inngöngum.
Kr. 19.900.-
Puffin
spplanc
loygahimni
5 nianna *
Áður kr. 31.900,- nú 26.000.-
■I0°C
1.8 kg.
Verð 4.900
Ultralito
ISOO
Vango
manna
kúlutjald, mjög stöðugt
3,4 kg. Kr. 9.900.-
Hiker Dome
útlvlstarbúnnður
Dallas hi
4 mafi
Eltt það vandaðasta
Kr. 65.000.-
Adventu
IOO
-IO°Cf
1,5 kg.
Léttur göngusvefnpoki
MP 350
2 mann _____
3,4 kg. Kr. 579ÖÍT
Ferðasett
-15°
2,0 kg. _
Vandaður og þægllegur
alhliða ivefnpokl
Verð 8.560.-
2 stólar, 2 kollar og borð
Áður 5.600 nú 3.990
3 manna '
kúlutjald 3,4 kg.
Áður kr. 8.900.- nú kr. 7.600.-
Opifl á finrimtudagskvöldum til kl.21
oo
...þar sem ferðalagið byrjar!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
Eyjaslóð 7 Reykjavík S. 51 I 2200