Morgunblaðið - 30.07.1996, Side 20

Morgunblaðið - 30.07.1996, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Sprengjutilræðið í Atlanta fordæmt um allan heim Grunur beinist ✓ . að bandarískum öfgahópum ENGINN hefur enn lýst yfir ábyrgð á sprengjutilræðinu í Ólympíugarð- inum í Atlanta, aðfaranótt laugar- dagsins, en talsmenn bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, sögðust vongóðir um að þeir myndu komast að því hver hefði komið sprengjunni fyrir. Ein kona lést er sprengjan sprakk og 111 slösuðust. Þá fékk tyrkneskur myndatökumaður hjartaáfall og lést er hann hljóp á vettvang til að taka myndir strax eftir sprenginguna. FBI hefur látið vinna teikningar eftir lýsingum sjónarvotta af grun- samlegum einstaklingum er voru á kreiki í garðinum kvöldið sem sprengjan sprakk. David Tubbs, fulltrúi hjá FBI, sagði að margar haldgóðar vísbendingar hefðu borist og góðar líkur væru á að tilræðis- maðurinn myndi nást. Meðal annars er talið að upptökur fjögurra örygg- ismyndavéla í garðinum kunni að koma að góðu gagni við rannsókn- ina. Að sögn FBI er enn ekki vitað hvort að hópur eða einstaklingur hafi staðið að sprengingunni. Ólympíugarður opnaður í dag Ólympíugarðurinn hefur verið lokaður almenningi frá því á laugar- dag og hafa sérfræðingar fínkembt garðinn í leit að fleiri sprengjum og sönnunargögnum. Til stendur að opna hann á ný í dag en öryggis- gæsla í honum verður tvöfölduð. Gestir geta átt von á því að leitað verði í handtöskum þeirra, lögreglu- mönnum í garðinum verður fjölgað og málmleitartækjum komið upp á þeim stöðum þar sem gengið er inn í hann. Lögreglan segist sannfærð um að hvítur Bandaríkjamaður beri ábyrgð á tilræðinu og að hann sé sami maðurinn og hringdi inn til- kynningu um sprengjuna átján mín- útum áður en að hún sprakk. Sím- talið kom frá sjálfsala fýrir utan Days Inn-hótel í miðborg Atlanta, skammt frá Ólympíugarðinum. Síminn hefur verið sendur til höfuð- stöðva FBI í Virginíu til rannsókna. Rétt viðbrögð Beverly Harvard, yfirmaður lög- reglunnar í Atlanta, hefur vísað á bug fullyrðingum þess efnis að ekki hafí verið brugðist nógu hratt við sprengjuhótuninni. Hún segir að SPRENGJULEIT. farið hafi verið í einu og öllu eftir þeim reglum er giltu í tilvikum sem þessum, lögreglumaður hefði verið sendur að símanum og haft var samband við Iöggæslumenn í garð- inum og sprengjusérfræðinga. „Sá er hringdi greindi einungis frá því að sprengja væri í garðinum án þess að greina nánar frá því hvar,“ sagði Harvard. Konan, er lét lífið er sprengjan sprakk, hét Alice Hawthome. Hún var 44 ára gömul og kom frá borg- inni Albany í Georgíu. Hún hafði heimsótt Atlanta sem ferðamaður ásamt fjórtán ára dóttur sinni sem særðist í sprengingunni. Tyrkneski kvikmyndatökumaðurinn er lét lífið hét Melih Uzunyol. Hann fékk hjartaáfall er hann hljóp á vettvang eftir að sprengjan sprakk. Tíu hinna særðu voru lögreglu- menn er höfðu byrjað að rýma svæðið tveimur til þremur mínútum áður en sprengingin varð. Sprengjan sjálf var að sögn sér- fræðinga einföld rörasprengja, framleidd úr hlutum, sem hægt er að kaupa í öllum bandarískum byggingavöruverslunum. Þremur slíkum sprengjum, fylltum af byssu- púðri, nöglum og skrúfum hafði verið komið fyrir í bakpoka í garðin- um. Er talið að eitt til þijú kíló af sprengiefni hafi verið í rörunum. Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN greindi frá því um helgina að tíma- búnaður hefði verið á sprengjunni. Þótt rörasprengjur byggi á ein- faldri tækni geta þær valdið miklum skaða og tjóni, ekki síst ef þær eru fylltar af málmhlutum, líkt og sprengjan í Atlanta. Þykir sprengjan benda til að ekki hafí verið um alþjóðlega hryðju- verkamenn að ræða þó að það hafi enn ekki verið útilokað. Ofgahópar hafa notað rörasprengjur Mörg dæmi eru um það að banda- rískir öfgahópar, m.a. í Georgíu, noti sprengjur af þessu tagi. Hefur þar ekki slst verið um að ræða hópa kynþáttahatara og pólitískra öfgamanna, áþekkum þeim er stóðu að sprengjutilræðinu í Oklahoma- borg á síðasta ári. Sérfræðingar segja að fjöldi slíkra hópa, ekki síst I Georgíu, hafi margfaldast í kjölfar Oklahoma-tilræðisins. í apríl handtók lögreglan þijá menn, skammt frá Atlanta, er lágu undir grun um að undirbúa tilræði á Ólympíuleikunum. Meðal þess sem fannst á vettvangi voru röra- sprengjur. I skýrslu var þeirri kenn- ingu slegið fram að verið væri að hlaða upp birgðir af rörasprengjum til að nota á Ólympíuleikunum Sprengingin hefur ekki orðið til að raska framkvæmd leikanna að öðru leyti nema hvað að einstaka tafir hafa orðið í samgöngumálum vegna herts öryggiseftirlits og sprengjuleitar. Tugir sprengjuhót- ana hafa borist eftir sprenginguna á laugardag en þær hafa ekki reynst á rökum reistar. Öryggisgæsla hefur verið mjög umfangsmikil í Atlanta frá því að leikarnir hófust og er um umfangs- mesta öryggisviðbúnað í sögu Bandaríkjanna að ræða. 30 þúsund lögreglumenn, hermenn og vakt- menn frá einkafyrirtækjum eiga að tryggja öryggi gesta og þátttak- enda og hafa yfirvöld margsinnis lýst því yfir að Atlanta eigi að vera öruggasti staður í heimi þá daga er leikarnir standa. Gæslan var hins vegar ekki nærri jafn umfangsmik- il í Ólympíugarðinum og í sjálfu Ólympíuþorpinu og á keppnisstöð- um og í raun eini vettvangur leik- anna sem almenningur hafði óheft- an aðgang að. Þá hefur það torveld- að gæslu að ieikarnir eru þeir um- fangsmestu til þessa. Þrátt fyrir hinn mikla viðbúnað hafa ýmsar gloppur komið í ljós. Meðal annars tókst vopnuðum manni að komast inn á ólympíuleik- vanginn við opnun leikanna. Morgunblaðið/Kristinn LEITAÐ á manni morgnninn eftir sprenginguna. Morgunblaðið/Kristinn LÖGREGLUMENN leita sönnunargagna þar sem sprengjan sprakk í Ólympíugarðinum. Vekur upp minningar um Miinchen Öryggismál hafa ávallt verið of- arlega á baugi á Ólympíuleikum allt frá sumarleikunum í Munchen árið 1972. Er leikarnir voru hálfn- aðir tókst palestínskum hryðju- verkamönnum úr samtökunum Svarta september að komast inn í Ólympíuþorpið og réðust inn í búðir ísraela. Myrtu þeir tvo íþróttamenn og tóku níu í gíslingu. Kröfðust þeir þess að 200 palest- ínskum föngum í ísraelskum fang- elsum yrði sleppt úr haldi en stjórn- völd I ísrael neituðu að verða við kröfum þeirra. Þýsku lögreglunni tókst að fá hiyðjuverkamennina til að yfirgefa Olympíuþorpið en til skotbardaga kom er sérsveitir reyndu að frelsa gíslana. Féllu allir gíslarnir, einn lögreglumaður og fimm af átta hryðjuverkamönnum. Þá líkt og nú var ákveðið að halda leikunum áfram. Atburðirnir í Munchen höfðu hins vegar mikil áhrif á síðari Ólympíu- leika og nú hafa yfirvöld í Sydney í Ástralíu, þar sem næstu leikar fara fram, lýst því yfir að öryggis- gæsla verður stórhert á leikunum árið 2000. Franjois Carrard, framkvæmda- stjóri Ólympíunefndarinnar, hefur lýst því yfir að hann beri fyllsta traust til skipulags öryggismála I Atlanta. „Ólympíuhreyfingin hefur í hundrað ára sögu sinni vanist því að búa við heiminn eins og hann er. Þessa dagana er heimurinn langt frá því að vera fullkominn og ein- kennist af slysum og hryðjuverk- um,“ sagði Carrard. Ráðamenn um allan heim hafa um helgina fordæmt tilræðið í At- lanta og heitið því að sameinast í hertri baráttu gegn hryðjuverkum. Bandarískir fjölmiðlar greina frá kenningum um afdrif TWA þotunnar Sprengja í far- angnrsrými sögð orsök slyssins Fréttum um fall Aideeds vísað á bug Nairobi. Reuter. ÚTVARPSSTÖÐ Mohameds Farah Aideeds, stríðsherra í Sómalíu, vís- aði á bug orðrómi um að hann hefði fallið I átökum við andstæðinga sína og sagði hann hafa flutt ávarp til sómölsku þjóðarinnar á sunnudag. Útvarpsstöðin hafði eftir Aideed að fréttir um að hann hefði fallið eða særst væru einskær „ósk- hyggja" af hálfu óvina hans. Engin ríkisstjórn hefur verið við völd I Sómalíu frá því Mohamed Siad Barre einræðisherra var steypt af stóli árið 1991. Hann og Aideed gera báðir tilkall til forsetaembættis- ins. Smithtown. Reuter. SPRENGJA I fremra farangursrými Boeing 747-100 þotu bandaríska flugfélagsins Trans World Airways (TWA) olli því að vélin sprakk skömmu eftir flugtak frá Kennedy- flugvelli I New York fyrir rúmri viku, og hrapaði I Atlantshafíð. Með henni fórust 230 manns. Bandaríska sjónvarpsstöðin Cable News Network (CNN) hafði þetta eftir ónafngreindum heimildamönn- um á sunnudag. Er haft eftir téðum heimildamönnum, að þeir, sem rann- saka orsakir flugslyssins, telji, að sprengingin hafí brotið þotuna I tvennt rétt framan við aðalvængina og hafí hún flogið I tvennu lagi I um 10 sekúndur áður en hún hrap- aði. Það sé skýringin á því að tveir deplar hafi sést á ratsjárskjám, að því er sagði I frétt CNN. Enn er leitað að líkum þeirra er fórust með vélinni, og vísbendingum um, hvað olli slysinu. Þeir, sem sinna rannsókn málsins, hafa ekkert full- yrt um, hvort sprengja eða flug- skeyti hafi grandað vélinni, eða hvort bilun hafí valdið slysinu. Bandaríska dagblaðið The New York Times greindi frá því á sunnudag, að embættismenn telji, að yfirvöld muni innan skamms, ef til vill á næstu dögum, hafa nægar sannanir til þess að geta fullyrt opinberlega að skemmdarverk hafi verið orsök slyssins. Yrði þessu lýst yfir gæti alríkislögreglan (FBI) tekið við rannsókn málsins. Listi yfir kenningar Samkvæmt frétt The New York Times er fylgst með „þekktum stuðningsmönnum hiyðjuverka- manna“ I New York og þar I grennd. Hefur blaðið eftir ónafngreindum, háttsettum, mönnum sem sinna rannsókn málsins, að búinn hafi ver- ið til listi yfir kenningar um, hvers vegna einhver kynni að hafa ráðist á þotu TWA. Meðal þeirra, sem til greina þykja koma, eru Mið-Austurlandabúar og herskáar fylkingar bandarískra öfgamanna, og er talið mögulegt að ástæða árásar gæti hafa verið trygg- ingasvindl, persónulegar deilur, sem einhver farþeganna hefði átt I, eða sjálfsmorð. Kafarar hafa athugað þá tvo hreyfla þotunnar, sem fundist hafa, á 30 metra dýpi út af strönd New York-ríkis, en hafa ekki fundið „neitt óvenjulegt“, að sögn varaformanns öryggis- og samgöngunefndar Bandaríkjanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.