Morgunblaðið - 30.07.1996, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ1996 23
STRENGJASVEIT Tónlistarskólans í Garðabæ á opnunarhátíð
Vinabæjamótsins í Jakobstad.
Djúpt snortnir
áheyrendur tjáðu
hrifningu sína
GARÐABÆR hefur undanfarin
ár verið í vinabæjatengslum við
sveitarfélög á Norðurlöndum. I
júnílok lauk vinabæjamóti sem að
þessu sinni var haldið í Jakobstad
í Finniandi. Með íslensku þátttak-
endunum fimmtíu var strengja-
sveit efri deilda Tónlistarskólans
í Garðabæ sem skipuð er 13 nem-
endum 11-21 árs.
Unnur María Ingólfsdóttir fiðlu-
leikari stjórnaði strengjasveitinni
og varð. frammistaða tónlistar-
fólksins tilefni blaðaskrifa og eftir-
tektarverður þótti áhrifamikill
flutningur íslenskra þjóðlaga.
Stóðust álagið vel
„Þetta framlag vakti verðskuld-
aða athygli og að mínu mati var
þetta besta framlag íslendinga til
þessa, á vinabæjamóti," sagði
Smári Ólason yfirkennari í tónlist-
arskóla Garðabæjar. „Ég hef aldr-
ei upplifað sterkari þjóðernisvit-
und en þegar strengjasveitin lék
á tónleikum fyrir norðurlandaþjóð-
irnar.“
Alls hélt strengjasveitin fimm
tónleika á þremur dögum og lék
sveitin fyrst á opnunarhátíð móts-
ins þann 28. júní þar sem ein-
göngu voru leikin íslensk lög.
Daginn eftir birtist forsíðumynd
af sveitinni í Jakobstíðindum
ásamt umfjöllun. Annan dag móts-
ins lék sveitin þrisvar sinnum og
byijaði á því að leika á eftirmið-
dagstónleikum undir berum himni.
Um kvöldið lék strengjasveitin síð-
an blandaða efnisskrá á tónleikum
í boði bæjarstjórans að viðstöddum
500 manns. „Það var hápunktur
mótsins og að loknum tónleikunum
komu djúpt snortnir áheyrendur
og tjáðu okkur hrifningu sína, sér-
staklega á íslensku Iögunum,“
segir Unnur María. Meðal íslensku
laganna voru á efnisskránni Hani,
krummi.., í útsetningu Jóns Leifs,
ísland, farsælda frón, Sofðu unga
ástin mín, Land míns föður og
verk úr Gullna hliðinu eftir Pál
ísólfsson. Að endingu þann daginn
lék strengjasveitin Gefðu að móð-
urmálið mitt, á miðnæturtónleik-
um í Jakobstadkirkjunni ásamt
kirkjutónlist eftir Bach, Purcell og
Handel. „Ég var afar ánægð með
frammistöðu nemendanna og það
var stórkostleg upplifun að sjá og
heyra þetta unga fólk spila. Þau
stóðu sig með prýði á öllum tón-
leikunum og stóðu fyllilega undir
því mikla álagi sem fylgir svona
þéttskipaðri dagskrá," segir Unn-
ur María. „Það er kraftaverki lík-
ast hversu góður árangur náðist
miðað við þann stutta undirbún-
ingstíma sem við höfðum fyrir
tónleikana."
Síðasta daginn lék strengja-
sveitin svo tvö verk eftir Bach á
lokahátíð mótsins við guðþjónustu
í Pedersörekirkjunni.
Með í för var íjölskylda Unnar
og hafði eiginmaður hennar, Thom-
as Stankiewicz á orði að sér hefði
fundist mikið til um hversu nem-
endurnir hefðu tekið hlutverk sitt
alvarlega. „Þetta voru sannarlega
boðberar framtíðar og vonar og
íslenska tónlistin tjáði bæði lífs-
kraft og stolt. Ég sá greinilega að
það snart fólk að verða vitni að
slíkum flutningi," segir Thomas.
Vinabæjamótin eru haldin á
vegum Norræna félagsins og hafa
það að markmiði að skapa tengsl
við önnur sveitarfélög. Mótin eru
haldin annað hvort ár og eru ætl-
uð bæjarbúum viðkomandi sveitar-
félaga. Þess á milli eru haldin
milliþingamót þar sem forsvars-
mönnum sveitarfélaganna gefst
kostur á að ræða málefni sín.
„Vinabæjamótin eru skenimtileg-
ur vettvangur samskipta og sem
dæmi um gagnsemi tengslanna
má nefna að kynningar á hagnýt-
um nýjungum eiga auðveldar upp-
dráttar ef forsvarsmenn sveitarfé-
laga hafa séð hvernig tiltekin nýj-
ung hefur gagnast í nágranna-
löndunum," segir Smári Olason
að lokum.
HÁPUNKTUR mótsins voru tónleikar í boði bæj'arstjóra Jakob-
stad að viðstöddum 500 áheyrendum.
. ■ ■ ■
wisiits
Jón Sigurðsson, sumarbústaðareigandi
Þúsundir notenda NMT farsímans geta vitnaö um notagildi
hans sem öryggistækis. Ad auki fylgja NMT simanum ómæld
þægindi og hann sparar þér mörg sporin.
Hefur þú kynnt þér kosti fristundafarsimans?
Ef þin not af simanum eru fyrst og fremst á kvöldin og um
helgar er frístundafarsiminn kostur fyrir þig. Stofngjald og
afnotagjald NMT símans er umtalsvert lægra ef þú skráir
hann sem fristundafarsima og þú hringir að vild á kvöldin og
um helgar fyrir 16,60 minútuna.
NMT farsíminn er alltaf með •
för þegar ég fer í Skorra-
dalinn og ég Hef tilkynnt
nokkra árekstra og jafnvel
alvarlegri slys. Ég hef kallað
eftir aðstoð vegna eldsvoða
og farsíminn kom í góðar
þarfir þegar skriða skall á
bústaðinn minn. Svo hef ég
nú líka tekið símann með
mér í fjallgöngur og á rjúpu
án þess að hann íþyngi mér.
Já, NMT er mjög áreiðanlegt
öryggistœki, a.m.k. vildi ég
ekki vera án hans i sumar-
bústaðnum."
PÓSTUR OG SÍMI
Orucfft o g
ánœgjulegt
ferðalag
með NMT
farsíma
Skorradalur