Morgunblaðið - 30.07.1996, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996 31
„Er þetta sæmilegur penni?“ spurði
fársjúkur vinur minn er ég þakkaði
honum fyrir fermingargjöf til sonar
míns. Hann hafði lagt svo mikla
áherslu á að gjöfin bærist á réttum
tíma — og vandaður skyldi penninn
vera. Reyndar voru þeir tveir —
pennasett — og það glampaði ein-
hvern veginn á þá! Tveimur sólar-
hringum síðar var hann allur. Þetta
lýsir vel því umhyggjusama og gjaf-
milda góðmenni sem við kveðjum í
dag. Hann hefur farið að orðum Jesú:
„Sælla er að gefa en þiggja." Því frá
upphafi þtjátíu ára kynna okkar hefur
hann ætíð sett hagsmuni þeirra sem
hann unni og virti ofar sínum.
Hann hét Sigurhans Halldórsson,
borinn og bamfæddur Reykvíkingur
— á þeim árum er flestir urðu að vinna
hörðum höndum strax er bamsskón-
um sleit. Hann hitti hana Ellu sína.
Elínu Einarsdóttur, fædda og uppalda
í Bergstaðastrætinu, elsta í stórum
systkinahópi. Þau felldu hugi saman,
giftust og eignuðust soninn Einar, en
Ella átti áður dótturina Ragnhildi
Ásmundsdóttur, sem Siggi ól upp sem
sína og hefur hún ætíð reynst honum
ástrík og góð dóttir.
Hann stundaði sjóinn og verka-
manna- og byggingavinnu — af holl-
ustu og samviskusemi — aldrei féll
úr dagur. Hann annaðist íjölskyldu
sína vel og sömuleiðis böm og ung-
menni úr öðram fjölskyldum, systk-
inaböm Ellu. Þar var alltaf opið hús
og nægt hjartarými, sem er ómetan-
legt og verður aldrei fullþakkað. Hann
hændi að sér börn — meða hægðinni
— og það reyndum við með okkar
böm. Siggi afí og Ella frænka vora
alltaf til reiðu — í sorg og gleði. Þau
vora ómissandi — sterk og hlý.
„Njóttu hóflega svo að þú eigir
inni hjá lífinu" (Óðurinn til lífsins.
G.G.) Þetta spakmæli gæti átt við
Sigga og Ellu, þessa öðlinga — því
þau gættu ætíð hófs í eigin þörfum
og þau eiga öragglega inni hjá lífínu
— það kemur fram á kveðjustund er
við lítum um öxl og við sjáum það í
bömum þeirra og bamabörnum.
Ella lést árið 1982 og var okkur
öllum harmdauði — þó honum mest.
Það er eins og hann hafí aldrei alveg
getað sleppt henni og nú era þau
sameinuð á ný.
Frá hverri þraut, úr Qarlægum geim,
flý ég til þín, flý ég til þín.
Glaður til fóðurhúsanna heim,
hærra, minn Guð, til þín.
Héðan frá allri ánauð og sorg,
inn til þíns friðar ljóssins í borg,
feginn og sæll að fópuði þeim,
flý ég, ó Guð, til þín.
(Þýð. Pétur Sigurðsson)
Megi algóður Guð styrkja og
blessa Ragnhildi, Einar og fjölskyid-
ur þeirra.
Við Einar og bömin okkar kveðjum
ástkæran vin með söknuði og þökk
og biðjum honum Guðs blessunar.
Kristín Ámadóttir.
EYJÓLFUR
INGJALDSSON
+ Eyjólfur Ing-
jaldsson fædd-
ist í Reykjavík 3.
maí 1924. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 20.
júlí síðastliðinn.
Foreldrar Eyjólfs
voru Ingjaldur Jón
Ingjaldsson, f. 7.9.
1863, og Sigríður
Eyjólfsdóttir, f.
15.11. 1887.
Eyjólfur var
einn af fjórtán
börnum þeirra
hjóna, hin eru 1)
Magnús Guðbergur, f. 13.10.
1915, Fanney Ágústa, f. 20.8.
1917, 3) Ólöf f. 5.11. 1918, Sig-
ríður, f. 11.2. 1920, Guðmund-
ur, f. 14.2. 1921,
Ingiríður, f. 11.12.
1922, Friðþjófur, f.
16.6. 1925, látinn,
Bergþór, f. 6.8.
1926, látinn, Hrafn-
hildur.f. 13.6.1928,
látin, Garðar, f.
31.8. 1929, Hilmar
Hafsteinn, f. 30.9.
1930, Þorbjörg
Laufey, f. 1.6.1934,
látin, Svandís, f.
26.5. 1935.
Eyjólfur lauk
vélsljóraprófi frá
Vélsljóraskóla fs-
lands árið 1948.
Útför Eyjólfs verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Þegar líða tekur að krýningar-
degi með hinni fölsku sviðsetningu
yfirborðskenndarinnar þá hefur
einn af kunningjum mínum frá liðn-
um dögum kvatt sinn jarðneska
ævidag. Eyjólfur Ingjaldsson var
einn af þeim sem var laus við hina
hvimleiðu ókosti yfirborðskenndar-
innar og það sama má segja um
hans nánustu. Síðustu áratugina
hitti ég Eyjólf heitinn mjög sjaldan
en í þau skipti bar hann ætíð með
sér það jákvæða sem neikvæðu öfl-
in eiga ekki til. Hann varð fyrir
sjúkdómsáfalli, þá ungur maður,
sem varð til þess að breyta hans
framtíðaráformum. Hann bar það
vel, þannig að hægt var að segja
um hann að þar fór hughreinn og
falslaus maður sína vegslóð. Vissu-
lega er af mörgu að taka sem við-
kemur minningunni, en minningar-
innar mynd er ætíð til staðar og
þar verður engu breytt.
Eyjólfur Ingjaldsson kvaddi sinn
Kork»o*Plast
Sænsk gæðavara
KORK-gólfflísar
með vinyl-plast-áferð
Kork*o*Plast:
í 10 gerðum
Veggkork
í 8 gerðum.
Ávallt til
á lager
Aðrar korkvörutegundir á lager:
Undirlagskork i þremur þykktum
Korkvélapakkningar í tveimur þykktum
Gufubaðstoíukork
Veggtöflu-korkplötur f þremur þykktum
Kork-parkett venjutegt, i tveimur þykktum
&
Einkaumboö á íslandi:
Þ. Þ0RGRÍMSS0N & CO
Ármúla 29, Reykjavlk. simi 553 8640
jarðneska ævidag með hreinan lífs-
feril og í sátt við aðra. Þannig er
gott að geta kvatt hið óhreina jarð-
lífssvið.
Ég vil að endingu votta öllum
hans nánustu, einnig vinum og
kunningjum, hluttekningu.
Þorgeir Kr. Magnússon.
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík • Sími 5531099
kraftmikil og kattþiifin
J Electrolux
• Er með sjálfvirkan magnskynjara.
• Sparar vatn, þvottaefni og rafmagn.
• Er með kraftúðun.
ivottavél
• Hreinni þvottur.
• Hreinna ísland.
• Þriggja ára ábyrgð.
Wfi
nÚSASMI
Skútuvogi
Sjálfsafgreiðslu
afsláttur
Nýttu þér 2 kr. sjálfsafgreiðsluafslátt af hverjum
bensínlítra á eftirtöldum þjónustustöðvum Olís.
• Sæbraut við Kleppsveg + 2 kr.*
• Mjódd í Breiðholti + 2 kr*
• Gullinbrú í Grafarvogi
• Klöpp við Skúlagötu
• Ánanaustum
• Hamraborg, Kópavogi
• Reykjanesbraut, Garðabæ
• Vesturgötu, Hafnarfirði
• Suðurgötu, Akranesi
• Gierárstöð, Akureyri
•Viðbótarafsláttur vegna framkvæmda.
olís
léttir þér lífid ^
HUS AF SERTA DYNUM
FRÁBÆRU VERÐL
^ "kT
☆
amerískar lúxusdýnur
amerískar dekurdýnur
Margar gerðir og stærðir og allir
geta fundið dýnu við sitt hæfi.
Serta -14 daga skiptiréttur
og alit að 20 ára ábyrqð.
Sérþjálfað starfsfólk okkar tekur
vel á móti þér og leiðbeinir um
val á réttu dýnunni.
HÚSGAGNAHÖLLIN
Bildshöfði 20-112 Rvík - S:587 1199
KONUR
Útsolan
l
fullum gangi
TÍSKUVERSLUN
Kringlunni 8-12 sími 33300