Morgunblaðið - 30.07.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ1996 35
entist hjá hveijum fyrir sig. Dísa
varð sem einn af nánustu meðlimum
fjölskyldunnar. Enn nánara varð
sambandið eftir að Sveinn föður-
bróðir fluttist til Reykjavíkur með
ijölskyldu og Dísa tók á leigu her-
bergi í sama húsi og þau.
Dísa varð strax eðlilegur þátttak-
andi í öllu okkar lífi jafnt og hún
væri föður- eða móðursystir. Hún
átti sinn góða þátt í því að kenna
hlýðni og aðra góða siði og var
ófeimin við að láta í ljósi ánægju
sína eða óánægju eftir því sem við
átti hveiju sinni. Aldrei datt manni
í hug annað en að taka fullt mark
á öllu sem hún sagði og þegar henni
fundust ávítur nauðsynlegar
greyptust þær í hugann og geymd-
ust, þótt ekki tækist samt að hafa
hennar skýru lífsreglur alltaf í fyrir-
rúmi. Einhvern dag á fyrstu árun-
um í Reykjavík hafði ég verið óþæg-
ur eða ósanngjarn. Næsta dag færði
hún mér lítinn miða þar sem hún
hafði skrifað með sinni góðu rithönd
þetta þekkta vers:
Trúðu á tvennt í heimi
tign sem æðsta ber
Guð í alheims geimi
Guð í sjálfum þér.
(Steingr. Thorst.)
Þennan miða á ég enn tæpum
60 árum síðar.
Fyrir barn sem kom í fyrsta sinn
til höfuðborgarinnar árið 1937 var
margt að sjá og flest voru mikil
undur. Eitt af þeim undrum voru
strætisvagnarnir sem virtust gríð-
arstórir, en mundu í dag svara til
svipaðrar stærðar og algengir ferða-
bílar einstaklinga. Annað undur var
fótstigin saumavél Dísu þar sem
snilld hennar til handanna, smekkur
og útsjónareemi nutu sín vel.
Dísa var saumakona af guðs náð
og iíka að atvinnu. Fyrstu árin sneið
hún og saumaði öll mín föt og lengi
var leitað til hennar með val á yfir-
höfnum, sem hún oft saumaði sjálf.
í frístundum sínum stundaði Dísa
hannyrðir og liggja eftir hana mörg
fögur verk. Eitt stærsta verkið og
fallegasta er áklæði á sófa og 3
stóla sem voru síðan hennar bestu
stofuhúsgögn. Þau ánafnaði hún
dóttur minni, Margréti, sem heitir
eftir Margréti föðursystur minni og
uppáhaldsvinkonu Dísu. Tryggð
sína við vini og ekki síst okkur í
fjölskyldunni vildi hún enn einu
sinni sanna með þessu.
Dísa vann langt fram yfir venju-
legan eftirlaunaaldur þótt heilsa
hennar væri oft í raun ekki nægilega
góð. Hún gat ekki hugsað sér að
hætta störfum enda mátu vinnuveit-
endur vel færni hennar og samvisku-
semi. Ég gat oft verið henni hjálpleg-
ur þegar veikindi steðjuðu að og
þótti vænt um að geta á þann hátt
endurgoldið henni allt það sem hún
hafði lagt inn í líf okkar.
Seinni árin naut Dísa einstakrar
umhyggju og forsjónar Margrétar
Halldóru, dóttur Sveins föðurbróð-
ur, og eiginmanns hennar, Ásgeirs
Hallssonar. Reyndust þau henni
ekki síðri en þau væru hennar eigin
börn allt til enda.
Við Anna Magga og fjölskylda
þökkum Dísu langa og trygga sam-
fylgd og biðjum henni og ættingjum
Guðs blessunar.
Jónas Hallgrímsson.
ÞÓRÐUR GRÖNDAL
Þórður Gröndal
fæddist í
Reykjavík 20. sept-
ember 1931. Hann
lést í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur I Foss-
vogi 21. júlí síðast-
liðinn.
Foreldrar hans
voru Benedikt
Þórðarson Gröndal,
verkfræðingur og
forstjóri hf. Ham-
ars, fæddur 27. ág-
úst 1899, d. 11. sept.
1984, og kona hans
Halldóra Ágústs-
dóttir Flygenring, f. 17. júlí
1899.
Þórður átti fjórar systur og
eru þær allar á lífi.
Inga, f. 28. ágúst 1925, Unn-
ur Elísabet, f. 12. febrúar 1927,
Helga, f. 20. febrúar 1930, og
Þórunn, f. 19. desember 1933.
Þórður kvæntist 15. október
1954 Maríu Kristínu Tómas-
dóttur, f. 7. desember 1931, og
eignuðust þau þrjú börn: 1) Sig-
ríður, tölvunarfræðingur, f. 31.
mars 1955, gift Göran Seldin,
búsett í Svíþjóð. 2) Halldóra,
hjúkrunarfræðingur, f. 17. ág-
úst 1959, gift Jóni Ingva Jónas-
syni. 3) Benedikt, tæknifræð-
ingur, f. 2. október 1963,
kvæntur Ragnhildi Teitsdóttur.
Barnabörn þeirra eru sjö. Þórð-
ur og María Kristín skildu.
Þórður kvæntist Ernu Guð-
laugu Jónsdóttur 11. apríl 1981.
Hún fæddist 6. febr-
úar 1938. Hennar
börn frá fyrra
hjónabandi eru Jón
Magnússon, f. 27.
nóvember 1957,
kvæntur Hjördísi
Bergsdóttur, Mar-
teinn Magnússon, f.
26. júlí 1961, kvænt-
ur Helgu Björns-
dóttur, Ása Magn-
úsdóttir, f. 23. sept.
1963, gift Grími
Grímssyni. Barna-
börnin eru sex.
Þórður útskrifað-
ist stúdent frá Menntaskólanum
í Reykjavík 1951. Stundaði nám
í vélaverkfræði í Bandaríkjun-
um og útskrifaðist frá Worc-
hester Polytechnic Institute,
Mass. 1957. Hann vann eitt ár
í Bandaríkjunum en kom síðan
heim og starfaði tvö ár hjá
Vegagerð ríkisins. Eftir það
hóf hann störf hjá hf. Hamri
og var forsljóri í því fyrirtæki
frá 1972-87. Hann gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum, var ma.
stjórnarformaður Rannsóknar-
stofnunar iðnaðarins frá
1970-74 og Sambands Málm-
og skipasmiðja 1973-78. Enn-
fremur var hann varaforseti
Landssambands iðnaðarmanna
1975-78.
Þórður verður jarðsunginn
frá Seltjarnarneskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Frændi, vinur og bekkjarbróðir
er látinn eftir erfið veikindi. Það
er segin saga, að dauðinn kemur
manni í opna skjöldu og það sér-
staklega þegar um er að ræða jafn-
aldra, sem yfirleitt var hinn hraust-
asti, og góður íþróttamaður á yngri
árum.
Kynni okkar hófust fyrir alvöru
er við vorum 11 ára. Má segja að
næstu 10 árin hafi varla sá dagur
liðið að við værum ekki saman, ef
við vorum báðir í bænum. Á stríðs-
árunum hjóluðum við um allt, fylgd-
umst með því, sem var að gerast
við höfnina eða flugvöllinn og öðru
sem okkur þótti varða. Við vorum
fermdir sama daginn, í sitt hvorri
kirkjunni, en fermingarveislan var
sameiginleg. Við vorum saman í
árgangi í Menntaskólanum í 4 vetur
og stúdentar árið 1951. Þórður var
í stærðfræðideildinni og fór svo til
náms í verkfræði við háskólann í
Manchester á Englandi. Varð ég
honum samferða þangað með Gull-
fossi haustið 1952 til að kynntast
skólalífinu og borginni. Þórður hélt
síðar til Bandaríkjanna og lauk þar
prófi í vélaverkfræði.
Fjölskylduboðin voru mörg, sem
við sátum, enda frændgarður Flyg-
enring-íjölskyldunnar afar stór. Þar
við bættust svo spilakvöld foreldra
okkar, en þau spiluðu brids, fjögur
saman, nánast vikulega í áratugi.
Hittumst við því oft, rifjuðum upp
gömul kynni og ræddum landsins
gagn og nauðsynjar sem Þórður
kunni afar góð skil á, enda í stjórn
Vinnuveitendasambandsins.
Svo fór þó að fundum okkar
fækkaði því báðir voru uppteknir
við vinnu og heimili. Var meira um
að við hittumst, þegar stúdentar
1951 komu saman. Það var einmitt
eftir einn slíkan fund, að við sáumst
síðast, er við hjónin kynntumst
heimili Þórðar og Ernu á Seltjarnar-
nesi. Sáum við þar hve garðurinn
var vel skipulagður og fallegur,
verðlaunagarður myndi ég segja.
Ekki var síðra að sjá handbragð
Þórðar er hann hafði breytt innrétt-
ingum í húsinu. Öll smíði lék í hönd-
unum á honum enda hönnun og
frágangur þannig að til var tekið.
Elsku amma Dísa er látin. Þórdís
Ingveldur, hét hún réttu nafni, og
var reyndar ekki amma mín heldur
besta vinkona langömmu Guðnýjar.
Dísa var ætíð hjá ömmu Guðnýju
í Hvassaleiti, þegar við komum í
heimsókn á sunnudögum. Þær spil-
uðu mikið saman og stundum við
mig einnig. Hún var ekkert frá-
brugðin ömmu Guðnýju eða hinum
ömmum mínum, svo mér fannst
réttast að kalla hana ömmu Dísu.
Mér þótti vænt um, að hún gladdist
yfir því og brosti hlýlega. Síðan
hafa bræður mínir einnig kallað
hana ömmu Dísu.
Ég kveð nú ömmu Dísu með
þakklæti fyrir allar góðu mining-
arnar sem ég á um hana og geymi
í hjarta mínu. Ég bið Guð að blessa
hana og varðveita.
Sunna Dögg.
GARÐS
APÓTEK
Sogavegi 108
REYKJAVÍKUR
APÓTEK
Austurstræti 16
eru opin til kl. 22
-fe-
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Garðs Apótek
Erfidiykkjur
Glæsileg kaffi-
lilaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUCLEIÐIR
IIDTEL MIFTLLIBIH
Auk fjölskyldu minnar hefi ég
verið beðinn um að flytja samúðar-
kveðjur frá samstúdentum MR
1951 til eftirlifandi eiginkonu, barn-
anna, Sigríðar, Bendedikts og Hall-
dóru, maka þeirra og barna og
móður hans, Halldóru Gröndal.
Far vel, frændi, á þeim leiðum,
sem þú hefir nú lagt á.
Ragnar Borg.
Þórður Gröndal er látinn. Fyrir
um tveimur árum greindist hann
með krabbamein sem að lokum
hafði búið svo um sig í líkama hans
að eigi varð við ráðið og lést hann
í Borgarspítalanum sunnudaginn
21. ágúst síðastliðinn.
Þórður var vel menntaður,
skemmtilegur og fróður maður sem
hafði gaman af að segja frá og það
var gaman að hlusta enda krafðist
Þórður þess, á sinn hátt, að fólk
hlustaði þegar hann talaði. Þórður
taiaði tæpitungulaust og honum
leiddist rósamál. Hann hafði
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum og lá ekki á þeim en
hann setti skoðanir sínar fram á
yfirvegaðan hátt og þeim fylgdu rök
sem hlustandi var á hvort sem
maður sannfærðist eða ekki. Þórður
var maður sem hægt var að leita
til, sérstaklega þegar um var að
ræða mikilvæg mál og skoðanir
hans og Ernu vógu þungt á vogar-
skálunum þegar ákvörðun var tek-
in.
Þórður var tvíkvæntur og eru
kynni okkar bundin við hans seinna
hjónaband. Erna Jónsdóttir var
seinni kona Þórðar og þau bjuggu
sér heimili að Látraströnd 13 á
Seltjarnarnesi. Það var gott að búa
hjá þeim á Látraströnd sem ungl-
ingur og einnig var gott fyrir ungt
par með lítið barn að búa hjá þeim
hjónum um nokkurra mánaða skeið
haustið 1985 en það var erfitt tíma-
bil í lífi þeirra. Það var einnig gott
að koma í heimsókn hvort heldur
var innlit um -helgi eða nokkurra
daga dvöl heiilar fjölskyldu frá
ísafirði. Alltaf var manni fagnað
og góðgjörðum hlaðið á borð og það
voru sagðar margar sögur og mikið
hlegið á Látaraströnd 13. Minni-
stæðar eru veislur á Látraströnd-
inni og ekki síst spagetti-veislur en
þá sá Þórður um matseld en í þeim
veislum óskuðu margir eftir upplýs-
ingum um hvernig kássan væri
krydduð en þær fengust ekki. í
þessum veislum var mikið borðað
og þurfti til einnar veislu mörg kg
af nautahakki og ís. Látraströndin
tengist stærstu gleðistundum okkar
en þar hafa þau hjón haldið okkur
útskriftarveislur og brúðkaups-
veislu auk þess sem börn okkar
þrjú hafa verið skírð þar í stofunni.
Við hús nr. 13 við Látraströnd
er afar fallegur skrúðgarður og í
þessum garði hafi þau hjón unað
löngum stundum og hann er þeirra
stolt en fyrir hann fengu þau viður-
kenningu frá Seltjanarnesbæ fyrir
nokkrum árum og var það staðfest-
ing á því að þessum stundum hafði
verið vel varið.
Þórður Gröndal hefur fengið frið,
erfiðum veikindum er lokið og við
tekur næði á nýjum slóðum og við
sem eftir lifum eigum minningar
um mann sem var búinn slíkum
mannkostum að hans verður minnst
þeirra vegna.
Grímur og Ása.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÍSAFOLD KRISTJÁIMSDÓTTIR,
lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkor að kvöldi
laugardagsins 27. júlí.
María Jóhannsdóttir, Sigurður Lfndal,
Sigríður Jóhannsdóttir, Leifur Breiðfjörð
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, dóttir, systir og amma,
HEBA HILMARSDÓTTIR,
Hvolsvegi 13,
Hvolsvelli,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði fimmtudaginn 1. ágúst
kl. 13.30.
Jarðsett verður í Hafnarfirði.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu,
er bent á Krabbameinsfélagið.
Guðmundur Björnsson,
Guðmundur S. Guðmundsson, Gunnhildur H. Axelsdóttir,
Halla Birna Guðmundsdóttir, Lárus Ingi Magnússon,
Rakel Sif Guðmundsdóttir, Atli Þorgeirsson,
Marheiður Viggósdóttir, Guðmundur S. Bjarnason,
Hilmar Rósmundsson,
systur og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og jarðarför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa
RAGNARS VALDIMARSSONAR,
Brunngötu 3,
Hólmavík.
Guð blessi ykkur öll.
Þuríður Guðmundsdóttir,
Valdís Ragnarsdóttir, Karl Loftsson,
Aðalheiður Ragnarsdóttir, Sigurður Vilhjálmsson,
Unnar Ragnarsson, Þorbjörg Stefánsdóttir,
Vigdís Ragnarsdóttir,
Jónas Ragnarsson, Alma Brynjólfsdóttir,
Baldur Ragnarsson, Þorgerður Fossdal,
Guðmunda Ragnarsdóttir,
Ragnar Ölver Ragnarsson, Sunna Vermundsdóttir,
Sigurbjörn Ragnarsson, Friðgerð Jensen,
barnabörn og barnabarnabörn.