Morgunblaðið - 30.07.1996, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 30.07.1996, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996 37 í I | VERÐLAUNAHAFAR í unglingaflokki frá vinstri talið. Guðbjörg og Sveipur, Helga og Blakkur, Sigurjón og Gassi, Benný og Smári og Jakob og Hörður. EIGANDI ísafoldar sigurvegarans í A-flokki gæðinga Steinunn Stefánsdóttir hampar hér kampakát verðlaunum sem hryssan henn- ar hlaut. Vignir situr hryssuna með verðlaunaskeifuna, næst kem- ur Alexander á Or, Þórður á Feng og Lárus á Nasa. HESTAR Kaldármclar HESTAMÓT SNÆFELLINGS Hestamarmafélagið Snæfellingur hélt sitt árlega hestamót á Kaldár- melum í Kolbeinsstaðahrepppi. Vörn í sókn HESTAMÓT Snæfellings hefur allnokkra sérstöðu miðað við önnur mót. Félagssvæðið er stórt og félag- arnir því nokkuð dreifðir. Menn komu nðandi í flokkum frá Grundar- firði, Ólafsvík, Stykkishólmi og víðar að á mótið. Ætla má að fleiri hross hafi verið á mótssvæðinu en menn þótt mótið hafí verið vel sótt á fé- lagsmótsmótsmælikvarða. Veður- guðirnir lögðu blessun sína yfir sam- komuna og Snæfellingar og aðrir sem mótið sóttu þessa tvo_ daga skemmtu sér konunglega. í stað þess að leggja megináherslu á opið stórmót um verslunarmannahelgina var áherslan lögð á að efla félags- mótið og félagsandann. Næla og Hafliði enn ósigruð Þótt hér hafi fyrst og fremst ver- ið um félagsmót að ræða var einnig boðið upp á opna töltkeppni þar sem mættu til leiks fjölmargir utanfé- lagsmenn. Þar á meðal voru fyrrum Islandsmeistarar Hafliði Halldórsson og Næla frá Bakkakoti og sigruðu þau þótt ekki væri það alveg baráttu- laust. Hafliði og Næla fóru yfir 100 stiga múrinn í bæði forkeppni og úrslitum en Ragnar Agústsson og Hrafn frá Hrafnagili sigurvegarar í ungmennaflokki á fjórðungsmótinu fyrr í sumar veittu þeim góða keppni í úrslitunum og fóru einnig yfir hundrað stigin. Vignir í miklum ham Landsliðmaðurinn kunni Vignir Jónasson var atkvæðamikill í gæð- ingakeppni félagsins. Var með fjögur hross af tíu í úrslitum, tvö í hvorum flokki. Einn hesturinn sá kunni gæð- ingur Gjafar frá Stóra-Hofi var efst- ur að lokinni forkeppni í A-flokki féll út fyrir úrslit, orðinn eitthvað fótafúinn, en tveimur hrossum reið Vignir til sigurs. í B-flokki var hann á Höfðingja frá Stóra-Langadal fasmiklum klár og föngulegum en í A-flokki var það hryssan ísafold frá Ólafsvík sem efst stóð. Þokkaleg þátttaka var í B-flokki eða 25 hestar en aðeins 13 skráðir í A-flokk. Höfð- Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson HÖFÐINGI frá Stóra-Langadal stóð efstur í B-flokki en var auk þess valinn glæsilegasti hestur mótsins, knapi er Vignir Jónasson. ingi var valinn glæsilegasti hestur mótsins. í barna og unglingaflokkum var svipuð þátttaka en aðeins fjórir í ungmennaflokki. Gunnlaugur Krist- jánsson sem keppti á Tvisti sigraði í ungmennaflokki en Guðbjörg Þ. Ag- ústsdóttir sigraði í unglingaflokki á Sveipi frá Ólafsvík en hún hlaut einn- ig knapaverðlaun mótsins. í barna- flokki sigraði Jóhann K. Ragnarsson á Mána frá Kvemá. Formaðurinn með sirkuskúnstir Meðal þess sem boðið var upp á á mótinu var keppni unghrossa fjög- urra og fimm vetra. Var hrossunum riðið frjálst á hringvelli og sýndir helstu kostir þeirra, tölt og brokk og eitthvað var verið að skælast á skeiði. Einnig riðu knapar einn í senn inn á miðju hringvallar þar sem þeir máttu sýna ýmsar aukakúnstir sem trippin höfðu lært ef um slíkt var að ræða. Ein stúlka reið þar trippi sínu án hnakks og beislis gangskiptingarbrokk og tölt, hafði einungis stallmúl og taum til að stjórna trippinu. En það var Lárus Hannesson formaður Snæfellings sem sló eftirminnilega í gegn. Lét hann hryssuna Gjöf frá Lágafelli leggjast inni í hringnum, tók út úr henni beislið og fór hún að bíta í mestu rólegheitum. Settist þá for- maðurinn á bak og Gjöf stóð á fæt- ur. Þessar listir tryggðu Lárusi og Gjöf sigur því fyrir utan þetta fór hryssan vel í hinum hefðbundnari sýningaratriðum. Agæt þátttaka var í kappreiðum sem voru opnar eins og töltkeppnin. Mikill áhugi virðist fyrir brokkinu meðal Snæfelligna öfugt við það sem almennt er að gerast því ekki verður betur séð en svipuð þróun eigi sér stað og í stökkinu sem lengi hefur verið í andarslitrunum. Hjá Snæfell- ingi voru sautján skráðir í brokkið en aðeins sjö í 250 metra skeið og sextán í 150 metranatil samanburð- ar. Níu voru hinsvegar skráðir í 300 metra stökk sem telst afbragðsgóð þátttaka nú til dags. Ótrúlega góðir tímar náðust í kappreiðum en á Kaldármelum er grasvöllur sem virð- ist fara versnandi með árunum. Er hann orðinn nokkuð bylgjóttur með snarrótartoppum á víð og dreif. Gra- svellir þurfa mikið viðhald eigi þeir að skila góðum árangri í tímans rás. Tilgangur og takmark með þessu félagsmóti var að efla félagsandann og halda líflegra félagsmót og var ekki annað á þeim Snæafellingum að heyra en þessi markmið hafi náðst fulkomlega. Menn höfðu skemmt sér konunglega í góðu veðri, við ágætar aðstæður með prýðisgóð hross í sjón- máli þessa tvo daga. Má því með sanni segja- að Snæfellingum hafí með móti þessu tekist að snúa vörn í sókn. Valdimar Kristinsson Þýskur dómari á A Islands- mótinu ÓÐUM styttist í íslandsmótið í hestaíþróttum sem haldið verð- ur að Varmárbökkum í Mos- fellsbæ 9. til 11. ágúst n.k. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á mótssvæðinu síðustu vik- ur og mánuði og telja aðstand- endur mótsins svæðið eitt hið besta sem völ er á í þessum stærðarflokki. Það er Hesta- íþróttafélagið Hörður í Kjósar- sýslu sem Sér um undirbúning og framkvæmd mótsins. Sá kunni þýski hestamaður Andre- as Trappe sem er margfaldur Þýskalands- og heimsmeistari verður heiðursgestur mótsins en hann er einnig félagi í Herði. Þá verður nú í fyrsta sinn fenginn dómari erlendis frá til að dæma með íslenskum dóm- urum og kemur það í hlut Marl- ise Grimm frá Þýskalandi að dæma á mótinu. Er hún að góðu kunn meðal íslendinga bæði sem dómari og keppandi. Hefur hún dæmt á mörgum heimsmeistaramótum og al- þjóðlegum mótum. Sömu helgi og mótið fer fram verða haldnir hinir árlegu fjöl- skyldudagar Mosfellsbæjar og mun sú hátíð tengjast íslands- mótinu. Settur verður upp hús- dýragarður á Varmárbökkum af þessu tilefni þar sem kynntar verða helstu húsdýrategundirn- ar og bæði börnum og fullorðn- um gefínn kostur á að fara á hestbak. Sem kunnugt er, verð- ur frír aðgangur að mótinu og leggja mótshaldarar ríka áherslu á að fá mikinn fjölda gesta á mótið þar sem mönnum gefst kostur á að kynnast hestamennskunni frá tveimur sjónarhornum. Klént í kynbótunum SAMHLIÐA félagsmóti Snæfell- ings var haldin héraðssýning kynbótahrossa fyrir Vesturland. Alls komu 50 hross fyrir dóm- nefndina en 36 hryssur hlutu fullnaðardóm og þrír geldingar sem afkvæmi. Heldur var út- koma sýningarinnar léleg og notaði Kristinn Hugason orðið klént þegar hann taiaði um heildarútkomuna. í flokki hryssna sex vetra og eldri náði ein hryssa Blíð frá Hesti yfir átta í aðaleinkunn en aðeins sex af 24 hryssum voru yfir ættbók- armörkunum gömlu 7,50. Heldur var hlutfallið betra í fimm vetra flokknum þar sem sex af tólf náðu mörkunum og kannski ljós í myrkrinu að það skuli vera yngri hryssurnar sem koma bet- ur út. Kristinn hafði nokkur orð um slæma stöðu hrossaræktar á Vesturlandi en vildi þó ekki gera lítið úr sýningunni um helgina. Hvatti hann vestlendinga til að huga vel að sköpulagi hrossanna og eins töltinu sem hann sagði vera þungamiðjuna í ræktun ís- lenskra hesta. Engir stóðhestar komu fram á þessari sýningu frekar en svo oft áður á síðsum- arsýningum. BLÍÐ frá Hesti lengst til hægri sem Baldur Björnsson situr hlaut ein einkunn yfir átta en auk þess viðurkenningu fyrir hæstu byggingareinkunn á sýningunni. Næst er Ósk frá Klængsseli sem Ólöf Guðmundsdóttir situr og þá Perla frá Bjarnarhöfn sem for- maður Snæfellings Lárus Hannesson situr. Urslit á Kaidármelum A-flokkur 1. ísafold frá Ólafsvík, eigendur Stef- án Kristófersson og Steinunn Stefáns- dóttir, knapi Vignir Jónasson, 8,35. 2. Ör frá Stakkhamri, eigandi Bjarni Alexandersson, knapi Alexander Hrafnkelsson, 8,34. 3. Fengur frá Uxahrygg, eigendur Gísli Guðmundsson og Guðmundur H. Gíslason, knapi Lárus Hannesson, knapi í úrsl. Þórður Þorgeirsson, 8,26. 4. Nasi frá Bjarnarhöfn, eigandi Jónas Gunnarsson, knapi Lárus Hannesson, 8,31. B-flokkur. I. Höfðingi frá Stóra-Langadal, eig- andi Siguijón Helgason, knapi Vignir Jónasson, 8,32. 2. Hrókur frá Kirkjubóli, eigandi og knapi Jón Bjarni Þorvarðarson, 8,34. 3. Pæja, eigandi Árni Þorgilsson, knapi Ragnar Alfreðsson, 8,33. 4. Sleipnir, eigandi Gunnar B. Gísla- son, knapi Lárus Hannesson, 8,28. 5. Hljómur frá Kirkjubæ, eigandi Óð- inn Benediktsson, knapi Vignir Jónas- son, 8,19. Ungmenni 1. Gunniaugur Kristjánsson á Tvisti, 8,01. 2. Hrafnhildur Árnadóttir á Pensli, 7,95. 3. íris B. Aðalsteinsdóttir á Sjöstjörnu frá Hellissandi, 7,41. Unglingar 1. Guðbjörg Þ. Ágústsdóttir á Sveip frá Ólafsvík, 8,52. 2. Helga H. Bjarnadóttir á Blakk frá Árgerði, 8,29. 3. Siguijón Ö. Björnsson á Gassa frá Stóra-Hofi, 8,27. 4. Benný E. Benediktsdóttir á Smára frá Árbakka, 8,24. 5. Jakob B. Jakobsson á Herði, 8,05. Börn 1. Jóhann K. Ragnarsson á Mána frá Kverná, 8,09. 2. Guðmundur M. Skúlason á Hring frá Hallkelsstaðahlíð, 8,03. 3. Emil F. Emilsson á Stjörnu, 7,90. 4. Alda Andrésdóttir á Dúkku frá Hellissandi, 7,90. 5. Vilborg H. Sæmundardóttir á Freyju frá Þorkelshóli, 7,87. Unghrossakeppni 1. Gjöf frá Lágafelli, eigandi Hjörtur Egilsson, knapi Lárus Hannesson. Stigakeppni: 1. Grundarfj. 2. Ólafsvík 3. Stykkishólmur 4. Dreifbýlið 5. Hellissandur Tölt 1. Hafliði Halldórsson á Nælu frá Bakkakoti, 1,06/105,6. 2. Ragnar Ágústsson á Hrafni frá Hrafnagili, 93,2/100,5. 3. Þórður Þorgeirsson á Laufa, 95,2/96,40. 4. Erling Sigurðsson á Feldi frá Laug- arnesi, 88,8/94,20. 5. Ólöf Guðmundsdóttir á Kveik frá Ártúni, 86,4/85,20. 6. Alexander Hrafnkelsson á Erpi frá Fornustekkum, 82. Skeið 150 metrar 1. Lúta frá Ytra-Dalsgerði eigandi Hugi Kristinsson, Þórður Þorgeirsson, 14,8. 2. Þeyr frá Akranesi eigandi og knapi Ragnar E. Ágústsson, 15,4. 3. Draupnir eigandi Jón Styrmisson, knapi Erling Sigurðsson, 15,7. Skeið 250 metrar 1. Elvar eigandi og knapi Erling Sig- urðsson, 23,9. 2. Saxi, eigandi Ámundi Sigurðsson, knapi Alexander Hrafnkelsson, 25,0. 3. Svartnir frá Ásunt, eigandi og knapi Sigursteinn Sigursteinsson, 27,5. Brokk 300 metrar 1. Hreggur frá Skógarnesi, eigandi Þórður Þorgeirsson, knapi Ragnar Ágústsson, 37.0 2. Kjarni, eigandi og knapi Skarphéð- inn Ólafsson, 38,7. 3. Mókollur frá Akureyri, eigandi Sveinn Ragnarsson og Alexander Hrafnkelsson, 44,0. Stökk 300 metrar. 1. Laser frá Skálholti, eigandi Ágúst Sumarliðason, knapi Axel Geirsson, 22,9. 2. Hermes, eigandi Sigursteinn Sigur- steinsson, knapi Björgvin Sigursteins- son, 23,1. 3. Hegri frá Hlíð, eigandi Ragnar Hallsson, knapi Skúli Skúlason, 23,9. Hryssur 6 vetra og eldri. 1. Blíð frá Hesti, f.: Otur, Skr., m.: Fruma, Syðstu-Fossum, eigandi Sig- valdi Jónsson, b. 7,98, h. 8,14, a. 8,06. 2. Ósk frá Klængseli, f.: Hrafn, Holtsmúla, m.: Drottning, Steinum, eigendur Viðar Halldórsson og Alex- ander Hrafnkelsson, b. 7,90, h. 7,96, a. 7,93. 3. Perla frá Bjarnarhöfn, f.: Fáfnir, Laugarvatni, m.: Blesa, Stykkishólmi, eigandi Hildibrandur Bjarnason, b. 7,80, h. 7,73, a. 7,76. Hryssur 5 vetra 1. Orða frá Vestri-Leirárgörðum, f.: Stígandi, Skr., m.: Helga-Jóna, Hvammi, eigandi Marteinn Njálsson, b. 7,94, h. 7,59, a. 7,76. 2. Skvísa frá Auðkúlu, f.: Stefnir, Grænuhlíð, m.: Ljóska, Auðkúlu, eig- endur Jónmundur Ásbjörnsson og Þor- björg Ásbjörnsdóttir, b. 7,86, h. 7,55, a. 7,71. 3. Kolla frá Brekku, f.: Kolbeinn, Vallanesi, m.: Perla, Vallanesi, eigandi Baldur Björnsson, b. 7,82, h. 7,56, a. 7,69. Valdimar Kristinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.