Morgunblaðið - 30.07.1996, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ1996 39
Dagbók lögreglunnar í Reykjavík
Mörg mál óupplýst
eftir helgiua
26. - 29.júlí
ALLS voru 353 mál færð til
bókar hjá lögreglunni í Reykja-
vík þessa helgi. 43 ökumenn
voru kærðir fyrir að hafa ekið
hraðar en lög gera ráð fyrir. Þá
voru 8 ökumenn grunaðir um
að aka undir áhrifum áfengis.
Alls voru 28 tilkynningar um
umferðaróhöpp, þar af 6 þar
sem slys urðu á fólki.
Á föstudag kl. 13.25 var til-
kynnt um umferðarslys á Miklu-
braut við Skeiðarvog og var far-
þegi úr annarri bifreiðinni flutt-
ur með bak- og hálsmeiðsli á
slysadeild auk þess sem annar
ökumaðurinn fór sjálfur til að-
hlynningar.
Ekið var á gangandi stúlku á
Kringlumýrarbraut við Hamra-
hlíð um klukkan ellefu á föstu-
dagskvöld. Hún var flutt á slysa-
deild með skurð á höfði.
Ekið á körfubifreið
Lögreglunni barst tilkynning
um umferðarslys á Bústaðavegi
við Kringiumýrarbraut ki. 15.27
á sunnudag. Þar hafði bifreið
verið ekið aftan á körfubifreið
sem var að kanna skemmdir á
ljósastaur. Ökumenn beggja bif-
reiða voru fluttir á slysadeild
með háls- og bakmeiðsli auk
þess sem farþegi hlaut áverka
í andliti eftir að hafa lent á
framrúðu.
Ekið var á dreng á reiðhjóli
á Geirsgötu við Kolaportið á
sunnudagskvöldið. Drengurinn,
sem er 13 ára, var hjálmlaus
og er talinn höfuðkúpubrotinn.
Með stolið bifhjól og þýfi
Lögreglan varð að hafa af-
skipti af hópi drengja sem voru
á bifhjóli í Silungakvísl að
morgni sunnudags. Við rann-
sókn lögreglu kom í ljós að bif-
hjólið var illa fengið og hafði
einn piltanna slasast er hann
féll af því. Hann er grunaður
um að hafa ekið bifhjólinu undir
áhrifum áfengis. Þá fannst
nokkurt þýfi í bíl sem piltarnir
voru á og sætir það mál nú frek-
ari rannsókn hjá iögreglu.
Alls var tilkynnt um 14 inn-
brot þessa helgi, þar af sex í
bíla þar sem stolið var hljóm-
flutningstækjum, fimm í fyrir-
tæki og eitt á heimili.
Stolið frá Háskólanum
Brotist var inn í húsnæði Há-
skólans og stolið umtalsverðum
verðmætum. Þjófamir komust
inn í húsið með því að sprengja
upp glugga og hurfu síðan af
vettvangi með tölvu, myndrita,
síma og prentara. Ekki er vitað
hveijir þarna voru að verki en
RLR rannsakar málið.
Brotist var inn í þijú fyrir-
tæki við Suðurlandsbraut og
stolið ýmsum tæknibúnaði sem
talið er að verðmæti um hálf
milljón. Ekki er vitað hveijir þar
voru að verki en málið er í rann-
sókn hjá RLR.
Brotist var inn á heimili fólks
í Árbæ og þaðan stolið umtals-
verðum verðmætum. Meðal ann-
ars var stolið hljómflutnings-
tækjum, myndbandstæki, sím-
um, ferðageislaspilara og 40
geisladiskum. Ekki er vitað
hveijir voru að verki en RLR
annast frekari rannsókn málsins.
Féll úr stiga
Um miðjan dag á föstudag
féll maður fimm metra úr stiga
sem hann var í og hlaut slæmt
ökklabrot. Þá rann stigi undan
manni í málningarvinnu á laug-
ardag. Stiginn lenti á rúðu sem
brotnaði og hlaut maðurinn
nokkra áverka á báðum fótum.
Hann var fluttur á slysadeild til
aðhlynningar.
Lögreglu var á laugardag kl.
1.54 tilkynnt um að bifreið hefði
verið stolið úr miðbænum. Bif-
reiðin fannst síðan að kvöldi
laugardags á Hellisheiði. Henni
hafði verið ekið í gamlar malar-
gryfjur í Orrustuhrauni og verið
stórskemmd. Ekki er vitað
hveijir voru þar að verki en
málið er í rannsókn.
FRÉTTIR
Slys á ein-
breiðri brú
„ Morgunblaðið/Ljósmyndavörur
BIL ARNIR þrír skemmdust allir mikið og voru fluttir með krana-
bíl til Reykjavíkur. Auk þess skemmdist fellihýsi, sem einn
bílanna hafði í eftirdragi.
ÞRÍR fólksbílar lentu í árekstri á
einbreiðri brú yfir Kaldaklifsá í
Austur-Eyjaíjallahreppi síðdegis á
sunnudag. Þrír voru fiuttir með
sjúkrabílum frá Hvolsvelli og Vík
á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkr
ur.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Hvolsvelli varð
áreksturinn inni á brúnni á vestari
enda hennar. Einn hinna þriggja
bíla var með fellihýsi í drætti. All-
ir bílarnir og fellihýsið skemmdust
mikið og voru dregin með krana-
bíl til Reykjavíkur.
Að sögn lögreglu fékk einn
hinna þriggja manna, sem fluttir
voru á slysadeild, að fara heim að
skoðun lokinni en hinir tveir voru
lagðir inn. Meiðsl þeirra munu
ekki vera lífshættuleg. Allir sem í
bílunum voru voru í bílbeltum og
telur lögregla að þau hafi bjargað
miklu.
Lögregla segir að gífurleg um-
ferð hafi verið á Suðurlandsvegin-
um um það leyti sem slysið varð
og akstursskilyrði ekki með besta
móti vegna úrhellis.
Upp úr hádegi á sunnudag velti
ungur ökumaður bíl á Landvegi,
rétt neðan við Leirubakka. Hann
mun hafa misst bílinn í lausamöl
sem valt síðan. Þijú ungmenni
voru í bílnum, öll í bílbeltum, og
sluppu þau nær ómeidd. Bíllinn er
mikið skemmdur.
Nýsköpunar-
dagar ungra
uppfinninga-
manna
FÉLAG ungra uppfmningamanna
stendur fyrir svokölluðum nýsköp-
unardögum í íslandsbanka við
Gullinbrú.
Þarna eru til sýnis ýmsir hlutir
sem ungir uppfinningamenn hafa
skapað, t.d. hlutir úr nýsköpunar-
keppni grunnskóla. Sýningin
stendur til 16. ágúst.
Ný landa-
kort
LANDMÆLINGAR íslands hafa
gefið út tvö ný aðalkort í mæli-
kvarðanum 1:250.000. Um er að
ræða kortblað nr. 3 af Suðvestur-
landi og blað nr. 7 af Norðaustur-
landi. Samhliða þessum kortum
hafa komið út ferðakort af Suður-
landi og Norðurlandi í sama mæli-
kvarða. Einnig hafa verið endur-
skoðuð aðalkortablöð nr. 1, 4, 5
og 6 sem ná yfir Vestfírði, Norður-
land, Mið-ísland og Mið-Suðurland.
Aðalkortin innihalda alla vegi,
vegaslóða og veganúmer auk fjölda
ömefna.
Nýtt upphleypt íslandskort hef-
ur litið dagsins ljós og er það sem
fyrr í mælikvarðanum 1:100.000.
Þetta kort hefur lengi prýtt heim-
ili landsmanna, enda talið eitt af
fegurri kortum Landmælinganna.
Finnskur arki-
tekt heldur fyr-
irlestur
FINNSKI arkitektinn Kristian
Gullichsen heldur fyrirlestur í Nor-
ræna húsinu þriðjudaginn 30. júlí
kl. 20. Fyrirlesturinn kallast Fiðr-
ildið og fíllinn.
Kristian er fæddur árið 1932.
Hann vann á árum áður með Al-
var Aalto. Frá 1961 hefur hann
starfað sjálfstætt í samvinnu við
þekkta finnska arkitekta og mar-
goft hlotið verðlaun fyrir bygging-
ar sínar. Hann er varaformaður
Finnska arkitektasambandsins.
Lj óðaupplestur
á Kaffi Oliver
HJALTI Rögnvaldsson verður með
ljóðaupplestur á Kaffi Oliver í
kvöld.
Lesnar verða tvær fyrstu
ljóðabækur Sigfúsar Daðasonar
undir yfirskriftinni „Mannshöfuð
er nokkuð þungt“. Lesturinn hefst
kl. 22.
PHILIPS SA1ÍYO
VíiK'i
mmk\
mmm
lagerínn eða
atuiimultúsnæðid
Heimilistæki hf
TÆKNI-OG TÖLVUDEILD
4S>
SÆTÚNI 8 SlMI 5691500
ATVIN N U A UGL YSINGAR
Blaðberi óskast
til að sjá um dreifingu á blaðinu á Nesjum,
Hornafirði.
Upplýsingar í síma 569 1113.
&
Varmárskóli
í Mosfellsbæ
Tónmenntakennara vantar í hlutastarf
- kennsla eftir hádegi.
Upplýsingar gefur Sigríður Johnsen
í síma 566 6407.
Skólastjóri.
Handmennta-
kennarar
Er enginn á lausu?
Okkur bráðvantar einn slíkan að Kirkjubæjar-
skóla á Síðu næsta skólaár.
Upplýsingar veitir skólastjóri, Hanna Hjartar-
dóttir, í símum 487 4635 og 487 4620.
Leikskólakénnari
Leikskólakennara vantar að Leikskólanum á
Eiðum frá 1. sept. nk. Leikskólinn á Eiðum
er lítill leikskóli. Þar eru ca 16 börn og innan
við tvö stöðugildi starfsfólks.
Eiðar eru í um 13 km fjarlægð frá Egilsstöð-
um. Á Eiðum er einnig grunnskóli, tónlistar-
skóli og menntaskóli. Ódýrt húsnæði í boði.
Æskilegt að umsækjendur hafj uppeldis-
menntun og starfsreynslu.
Upplýsingar gefa Ágústína, sími 471 3831,
og Þórarinn, sími 471 3840.
Yfirvélstjóri
Yfirvélstjóra vantar strax á togarann
Rauðanúp ÞH-160 frá Raufarhöfn.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu Jökuls hf.,
Raufarhöfn, sími 465 1200.
Hornafjörður
Bæjarverkfræðingur
Hornafjörður auglýsir starf bæjarverkfræð-
ings laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
Nánari upplýsingar gefa bæjarstjóri og
bæjarverkfræðingur í síma 478 1500.
Bæjarstjóri Hornafjarðar