Morgunblaðið - 30.07.1996, Síða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Ferdinand
Smáfólk
Mig hefur alltaf langað til að vita hvaða íþróttamenn séu fjölhæf- Smalahundar!
astir... körfuboltamenn, hokkíspilarar eða knattspyrnumenn ...
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
FJÖLDI ferðamanna hefur heimsótt Stykkishólm í sumar og verið
heppinn með veður. Ferðir með Eyjaferðum um Breiðafjarðareyjar
hafa verið mjög vinsælar og sýnir mynd bát Eyjaferða koma með
hóp ferðamanna úr skemmtisiglingu.
V er slunar mannahelgin
í Stykkishólmi
Frá Arna Helgasyni:
UM verslunarmannahelgina verður
lífið í föstum skorðum í Stykkis-
hólmi, en ýmislegt verður gert fyrir
ferðamenn sem vilja koma hingað
þá þelgi. Þjónusta við ferðamenn
er alltaf að aukast enda hefur ferða-
mönnum sem leggja leið sína hing-
að verið að fjölga á hveiju ári. Það
er margt sem ferðamenn geta gert
meðan þeir staldra við í Stykkis-
hólmi.
Eyjaferðir bjóða upp á óviðjafn-
anlegar skemmtisiglingar um
Breiðafjörð. i þeim ferðum er lífríki
Breiðafjarðar, kannað bæði fuglalíf
og eins lífið neðansjávar. í ferðun-
um er plógur dreginn eftir sjávar-
botni og þegar aflinn er skoðaður
kemur margt í ljós. Þá sést hve
dýralíf á botni Breiðafjarðar er fjöl-
skrúðugt. Krabbar, skeljar, kuð-
ungar, ígulker, hörpudiskur og
margt annað lætur sjá sig. Farþeg-
ar fá að borða ígulkeijahrogn og
hörpudisk.
Þá er hægt að skreppa með Feij-
unni Baldri til Flateyjar og fer Bald-
ur tvisvar á dag yfir sumarið. Er
uppiagt að fara með fyrri ferð að
morgni og koma til baka með seinni
ferðinni,- I Flatey er margt að sjá
frá fyrri tíð og hefur gömlum húsum
verið vel við haldið. Frá Flatey er
hægt að komast í útsýnisferðir um
nálægar eyjar og skoða íjölbreytt
fuglalíf. í Stykkishólmi eru 9 holu
golfvöllur sem verður opinn um
verslunarmannahelgina. Þá mun
Hildibrandur í Bjarnarhöfn taka á
móti gestum og sýna þeim hákarla-
verkun sína og bjóða mönnum að
smakka á framleiðslunni, eins er
gaman að skoða bændakirkjuna í
Bjarnarhöfn sem á sér merka sögu.
Þeir sem vilja skella sér út á lífið
geta heimsótt Hótel Stykkishólm
sem býður upp á hlaðborð og
skemmtun með Ragga Bjarna og
eins er fjölbreyttur matseðili á veit-
ingastaðnum Knudsen. Afsláttur
verður veittur á ýmissi þjónustu
fyrir ferðamenn þessa helgi. Eyja-
ferðir mun t.d. bjóða 13 ára bömum
og yngri frítt í ferðir í fylgd með
fullorðnum.
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
Upplýsingar um Alnets-
tengingu við Morgunblaðið
Tenging við heimasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast heimasíðu
Morgunblaðsins, sláið inn slóðina
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar upplýs-
ingar um blaðið, s.s netföng starfs-
manna, upplýsingar um hvernig
skila á greinum til blaðsins og
helstu símanúmer.
Morgunblaðið á Alnetinu
Hægt er að nálgast Morgun-
blaðið á Alnetinu á tvo vegu. Ann-
ars vegar með því að tengjast
heimasíðu Strengs hf. beint með
því að slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða með
því að tengjast heimasíðu blaðsins
og velja Morgunblaðið þaðan.
Strengur hf. annast áskriftar-
sölu Morgunblaðsins á Alnetinu
og kostar hún 1.000 krónur.
Sending efnis
Þeir sem óska eftir að senda
efni til blaðsins um Alnetið noti
netfangið: mbl@centrum.is.
Mikilvægt er að lesa vandlega
upplýsingar um frágang sem má
finna á heimasíðu blaðsins. Það
tryggir öruggar sendingar og
einnig að efnið rati rétta leið í
blaðið. Senda má greinar, fréttir
og myndir eins og fram kemur á
heimasíðu blaðsins.
Mismunandi tengingar
við Alnetið
Þeir sem hafa Netscape/Mos-
aic-tengingu eiga hægt um vik
að tengjast blaðinu. Einungis þarf
að slá inn þá slóð sem gefin er
upp hér að framan.
Þeir sem ekki hafa Netscape/
Mosaic-tengingu geta nálgast
þessar upplýsingar með Gopher-
forritinu. Slóðin er einfaldlega
slegin inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota a.m.k.
14.400 baud-mótald fyrir
Netscape/Mosaic tengingar.
Hægt er að nota afkastaminni
mótöld með Gopher-forritinu.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.