Morgunblaðið - 30.07.1996, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ1996 41
RAÐAUGÍ YSINGAR
Rafeindavirki
Nemi í rafeindavirkjun óskast á verkstæði í
Keflavík. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar í símum 421 4566, 426 7800
eða 894 4557.
Kennarar - kennarar
Að Grunnskólanum í Grundarfirði vantar til
starfa áhugasama og hressa kennara. Um er
að ræða almenna bekkjarkennslu í yngri bekkj-
um og einnig sérgreinakennslu, s.s. hand- og
myndmennt, íþróttir og raungreinar.
Skólinn er einsetinn, með 170 nemendur og
ágætlega tækjum búinn. Unnið er að stækkun
hans og verður ný álma tekin í notkun í haust.
Grundarfjörður er á norðanverðu Snæfellsnesi í fögru umhverfi. Hann er
vaxandi byggðarlag með rúmlega 900 íbúum. Atvinna er næg og stöðug
uppbygging. Hér erum við vel í sveit sett hvað samgöngur varðar. Dagleg-
ar rútuferðir og fleiri ferðir um helgar. í einkabíl tekur það um tvær og
hálfa klukkustund að aka milli Reykjavíkur og Grundarfjarðar og er bundið
slitlag á um 90% leiðarinnar.
Við leitum að kennurum sem vilja taka þátt
í að gera góðan skóla þetri.
Aðstoðað verður við útvegun húsnæðis og
greiddur flutningsstyrkur.
Nánari upplýsingar gefa skólastjóri í símum
438 6637/438 6802 og aðstoðarskólastjóri
í síma 438 6772.
Skorpuvinna!
Fram í miðjan september
Tilvalin fyrir háskólastúdenta
Bókin íslensk fyrirtæki, sem komið hefur út
í 27 ár, er nú að fara af stað með sölu á
skráningum og vantar gott sölufólk.
Ennfremur vantar fólk sem getur unnið fram
yfir miðjan október við sömu störf.
Við leitum að:
• Duglegu fólki með afnot af bíl.
Við bjóðum:
• Góð afkastahvetjandi sölulaun.
• Mikla tekjumöguleika fyrir gott fólk.
Áður en sala hefst fara allir sölumenn á nám-
skeið til kynningar á íslenskum fyrirtækjum.
Vinsamlegast hafið samband við Hildi Kjart-
ansdóttur, ritstjóra, í síma 515 5631.
TSLENSK
IpYRIRTÆKI
ŒFRÓDI
| BBB| BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Lausar
kennarastöður
við Reykholtsskóla
Biskupstungnahreppur auglýsir lausar
kennarastöður við Reykholtsskóla í Biskups-
tungum.
Meðal kennslugreina eru: Almenn kennsla
(yngri börn), danska og raungreinar.
Umsóknarfrestur framlengist til 8. ágúst.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri, Kristinn
M. Bárðarson, í símum 486 8708 og
486 8830.
Reykholtsskóli er einsetinn grunnskóli með um 90 nemendur í 1 .-10.
bekk, góða vinnuaðstöðu og gott bókasafn. Kennaraíbúðir eru í boði.
í Biskupstungum eru tveir þéttbýliskjarnar, Laugarás og Reykholt
(fjarlægð u.þ.b. 100 km frá Reykjavík). i Reykholti er sundlaug, félags-
heimili, leikskóli og banki. í Laugarási er heilsugæslustöð.
Skólanefnd
Biskupstungnahrepps.
Starfsfólk óskast
Veitingastaður í miðborginni óskar eftir
starfsfólki í eftirtalin störf:
Matreiðslumenn, framleiðslumenn
og aðstoðarfólk í sal.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „G - 1166“, fyrir 9. ágúst.
GULA I GULI
BÓKIN I SÍMINW
Vegna stóraukinna verkefna þurfum við að
bæta við okkur 10 starfsmönnum í eftirfar-
andi stöður:
Gagnaúrvinnsla/innsláttur
Unnið er við gagnagrunn í Paradox um-
hverfi. Fullt starf. Mikill hraði og nákvæmni
ásamt góðri íslenskukunnáttu eru þeir kostir
sem við leitum að. Tímaþundin ráðning með
möguleika á framtíðarstarfi.
Símavarsla/alm. skrifstofu-
störf/innheimta
Við leitum að aðila með reynslu í mannlegum
samskiptum ásamt góðri þekkingu á almenn-
um skrifstofustörfum. Sjálfstæð vinnubrög
og mikil ábyrgð. Framtíðarstarf. Heilsdags-
vinna.
Sölufulltrúi
Almenn velgengni í að umgangast aðila
vinnumarkaðarins og reynsla í sölustörfum
eru gott veganesti í þetta starf. Boðið er
uppá námskeið í upphafi og framhalds-
menntun eftir föngum. Föst laun og bónu-
skerfi.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar um ofan-
greind störf eru veittar á skrifstofunni á Suð-
urlandsbraut 20, 2. hæð, í dag og næstu
daga milli kl. 10-17.
Byggðasamlag Heiðarskóla
í Leirár- og Melahreppi
Fulltrúi skólastjóra
Byggðasamlag Heiðarskóla auglýsir til
umsóknar stöðu fulltrúa skólastjóra.
Starfssvið:
★ Annast bókhald og fjárreiður Heiðarskóla
í umboði skólastjóra. í því felst m.a. út-
reikningur launa og greiðslur launa.
★ Að annast almenn skrifstofustörf við skól-
ann. Um krefjandi og áhugavert starf er
að ræða.
Við leitum að hæfum einstaklingi með
reynslu. Gerð er krafa um góða bókhalds-
þekkingu. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma
433 8920 eða 433 8884.
Umsókn skal send til Byggðasamlags Heið-
arskóla, Leirár- og Melahreppi, 301 Akra-
nesi, fyrir 10. ágúst nk.
Kennarar
Okkur bráðvantar tungumálakennara og
metnaðarfulla kennara til kennslu í 1., 3.
og 4. bekk.
Áhugasamir kennarar eru beðnir að hafa
samband við Birgi í símum 433 8884 og
433 8920 sem allra fyrst.
Heiðarskóli er einsetinn grunnskóli og að-
staða til kennslu er góð. Við skólann starfar
metnaðarfullt starfsfólk sem vill gott skóla-
starf.
Laxveiðileyfi
Til sölu veiðileyfi í Brennu, Borgarfirði (ármót
Þverár og Hvítár). Einnig í Álftá á Mýrum.
Upplýsingar í síma 557 7840 milli kl. 8.00
og 18.00 alla virka daga. -
TILKYNNINGAR
Auglýsing
um að álagningu opinberra gjalda
á árinu 1996 sé lokið
í samræmi við ákvæði t. mgr. 98. gr. laga
nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt,
og 12. gr. laga nr. 113/1990, um trygginga-
gjald, er hér með auglýst að álagningu opin-
berra gjalda á árinu 1996 er lokið á alla að-
ila sem skattskyldir eru samkvæmt framan-
greindum lögum, sbr. 1. kafla laga nr.
75/1981 og 2. kafla laga nr. 113/1990.
Álagningarskrár verða lagðar fram í öllum
skattumdæmum í dag, þriðjudag 30. júlí
1996, og liggja frammi á skattstofu hvers
skattumdæmis og hjá umboðsmönnum
skattstjóra í hverju sveitarfélagi dagana
30. júlí til 13. ágúst að báðum dögum með-
töldum.
Álagningarseðlar, er sýna álögð opinber
gjöld 1996, vaxtabætur og barnabótaauka,
hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda,
vaxtabóta og barnabótaauka, sem skattaðil-
um hefur verið tilkynnt um með álagningar-
seðli 1996, þurfa að hafa borist skattstjóra
eða umboðsmanni hans eigi síðar en fimmtu-
daginn 29. ágúst 1996.
30. júlí 1996.
Skattstjórinn í Reykjavík,
Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi,
Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi,
Pétur Ólafsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra,
Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra,
Gunnar Karlsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi,
Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi,
Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum,
Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi,
Sigmundur Stefánsson.
A
Hólaskóli Hólum í Hjaltadal,
551 Sauðárkróki, sími 453 6300, fax 453 6301.
Nám við Hólaskóla
Fiskeldi og vatnanýting
Áhersluþættir:
Eldi ferskvatns og sjávardýra. Hönnun og
staðarval eldisstöðva. Vatnavistfræði og
vatnanýting. Áhersla á verklega þætti náms-
ins. Verknám í fiskeldisstöðvum.
Ferðaþjónusta til sveita
Áhersluþættir:
Ferðamál, markaðssetning og rekstur ferða-
þjónustu í dreifbýli. Móttaka ferðamanna,
gisting og íslensk matarmenning. Hestaferð-
ir, veiði og náttúruskoðun. Húsdýrahald,
náttúrufar, saga og minjar á heimaslóð. Bók-
hald, lög og reglur um ferðaþjónustu. Verk-
nám hjá ferðaþjónustuaðilum.
Námstími: 1 ár;
September 1996 til maí 1997 bóklegt og
verklegt nám á Hólum. Sumar 1997 verknám
í atvinnulífinu.
Inntökuskilyrði:
A.m.k. 18 ára og a.m.k. 65 einingar úr fram-
haldsskóla. Eða a.m.k. 25 ára með mikla
reynslu úr atvinnulífinu.
Námið getur verið metið sem áfangi í há-
skólanámi. Möguleiki á að Ijúka stúdents-
prófi við skólann.
Umsóknarfrestur er til 9. ágúst 1996