Morgunblaðið - 30.07.1996, Side 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Arnór
SVIPMYND frá Sumarbrids.
BRIDS
Umsjön Arnór G.
Ragnarsson
íslendingar enduðu í 7. sæti
á EM unglinga
Unglingalandsliðið, sem spilaði á Evr-
ópumótinu í Cardiff endaði í 7. sæti,
sem verður að teljast mjög viðunandi
árangur. Liðið átti glæsilegan loka-
sprett sl. sunnudag og vann bæði
Belga og Grikki með 25 stigum.
Lokastaðan:
Noregur 507, Rússland 482,5, Dan- '
mörk 480, ísrael 461, Holland 441,
Svíþjóð 435, ÍSLAND 433, Ungverja-
land 432.
Þijár efstu sveitirnar tryggðu sér
þátttökurétt í heimsmeistaramóti
yngri spilara.
Islenzka sveitin var skipuð þeim
Magnúsi Magnússyni, Sigurbirni Har-
aldssyni, Ljósbrá Baldursdóttur, Ste-
fáni Jóhannssyni og bræðrunum Stein-
ari og Ólafi Jónssonum.
Sumarbrids í Reykjavík
Spilamennskan í Sumarbrids
heldur áfram af fullum krafti. Mið-
vikudaginn 24. júlí mættu 26 pör
til leiks og spiluðu tölvureiknaðan
Mitchell tvímenning með forgefnum
spilum. Spilaðar voru 10 umferðir
með þremur spilum á milli para.
Meðalskor var 270 og efstu pör í
hvora átt voru:
N-S:
Pétur Antonsson - J óhann Benediktsson 323
BjömAmarson-GuðrúnJóhannesd. 318
A-V:
Gísli Stóngrimsson - Erlendur Jónsson 351
BjömÁmason-AlbertÞorsteinsson 326
Fimmtudaginn 25. júlí spiluðu 24
pör 10 umferðir með þremur spilum
á milli para. Meðalskor var 270 og
bestum árangri í hvora átt náðu:
N-S:
Guðlaugur Sveinsson - Pál! Þór Bergsson 340
Gisli Steingrimsson — Gissur Ingólfsson 311
A-V:
Alfreð Kristjánsson - Jóhannes Guðmannsson 338
Sturla Snæbjömsson - Cecil Haraldsson 289
Föstudaginn 26. júií mættu 26 pör
og spiluðu þau 10 umferðir með þrem-
ur spilum á milli para. Meðalskor var
270 og hæstu pör í hvora átt voru:
N-S:
Dúa Ólafsdóttir — Þórir Leifsson 316
Matthías Þorvaldsson - Ásmundur Pálsson 312
A-V:
Geirlaug Magnúsd. - Torfi Axelsson 305
ísak Örn Sigurðsson - Svavar Björnsson 298
Að spilamennsku lokinni var síðan
spiluð Miðnætur-útsláttarsveita-
keppni. Spilaðir voru útsláttarleikir
með 6 spilum í hverri umferð. Átta
sveitir byijuðu keppnina og til úrslita
léku sveitir Guðlaugs Sveinssonar og
Isaks Arnar Sigurðssonar. Síðar-
nefnda sveitin vann úrslitaleikinn með
34 impum gegn 5. I sigursveitinni
spiluðu auk Isaks: Ásmundur Pálsson,
Matthías Þorvaldsson og Svavar
Bjömsson. í sveit Guðlaugs spiluðu
auk hans: Hjálmar S. Pálsson, Kristinn
Þórisson og Páll Þór Bergsson. Mið-
nætur-útslátturinn liefur mælst gífur-
lega vel fyrir þannig að Sumarbrids
1996 hefur ákveðið auk þess að spila
hana á föstudagskvöldum að bæta við
einum spiladegi, sunnudaginn 4. ágúst
þar sem mánudagurinn 5. ágúst er
frídagur verslunarmanna.
Sunnudaginn 28. júlí var spilaður
Monrad Barómeter með þátttöku 22
para. Spilaðar voru 7 umferðir með 4
spilum á milli para. Efstu pör voru:
Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Axelsson +52
Sævin Bjamarson - Guðmundur Baldursson +50
Þórður Sigfússon -h Gunnlaugur Sævarsson +42
fsak Örn Sigurðsson
vikumeistari
vikuna 22.-28. júlí
Isak Orn Sigurðsson skaust í efsta
sæti vikulistans með því að ná 4.
sætinu, sem gaf 10 bronsstig. Hann
hlaut 64 bronsstig í vikunni og eridaði
með 2 stigum meira en Guðlaugur
Sveinsson. Isak hlýtur að launum
glæsilega máltíð fyrir tvo að veitinga-
staðnum LA Café.
Staða efstu manna í vikukeppninni
varð þessi:
ísak Öm Sigurðsson 64
Guðlaugur Sveinsson 62
GeirlaugMapúsdóttir 56
Torfi Axelsson 56
Þess má geta að Geirlaug og Torfi
skoruðu 56 bronsstig á tveimur dögum
í röð og hafa ágætis möguleika í
Hornafjarðarleiknum.
Eiríkur Hjaltason leiðir Homafjarð-
arleikinn með 76 bronsstig sem hann
skoraði 15.-18. júlí. í 2. sæti er Sæ-
vin Bjarnason með 68 stig sem hann
skoraði dagana 7.-10. júlí.
Heimasíða
Hornafjarðarmótsins
Hornafjarðarmótið 1996 fylgist
með tímanum. Það er komið með sína
eigin heimasíðu. Þar er hægt að fá
allar upplýsingar um mótið, t.d. kostn-
aðinn og einnig er hægt að kanna
gistiaðstöðuna á Hótel Höfn. Fyrir þá
sem vilja tryggja sér sæti á mótið sem
fyrst þá geta þeir skráð sig í mótið á
síðunni.
Hægt er að skoða síðuna hér:
http://www.eldIhorn.is/bridge
Spilamennskan í Sumarbrids 1996
hefst kl. 19 sex daga vikunnar (ekki
laugardaga) og er spilað í húsnæði
Bridssambandsins að Þönglabakka 1,
3. hæð. Spilin eru alltaf forgefin.
Keppnisstjórar eru Sveinn R. Eiríks-
son og Matthías G. Þorvaldsson.
r
UTSOLUTILBOÐ
Verð áður:
3J)95;-
Verð áður:
nu:
Tegund: DR 2260
Stærðir: 36-40
Litur: Svartur.
1.495r
Tegund: GA 2701
Stærðir: 36-40
Litur: Brúnn.
rð nú:
1.495r
Póstsendum samdægurs
^^oppskórinn Ippskóri
nn
v.
1 Veltusundi við Ingólfstorg
• Sími 552 1212.
Útsölumarkaður Austurstræti
• Sími 552 2727.
ÍDAG
SKÁK
limsjón Margeir
Pétursson
HVÍTUR leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp í viður-
eign tveggja af stigahæstu
skákmönnum heims á stór-
móti í Novgorod í Rúss-
landi. Rússinn Vladímir
Kramnik (2.765) hafði
hvítt og átti leik, en Vasílí
ívantsjúk (2.730), Úkra-
ínu, var með svart.
23. Rxc5! — Rxc5 (Eftir
23. — Dxc5 24. Dxc5 —
Rxc5 25. axb4 vinnur hvít-
ur manninn til baka með
léttunnu endatafli) 24.
axb4 — Rb7
(Engu betra
var 24. — Rb3
25. b5! - Rxal
26. Hxal —
Bb7 27. Dxa7-+
- Kc8 28.
Bh3+ - Kc7
29. Da5+ -
Kb8 30. b6 og
vinnur) 25. b3!
Markmiðið með
þessum sterka
leik er að opna
c-línuna og
styrkja - hótun-
ina b4-b5.
Bæði 25. —
cxb3 og 25. — c3 er svarað
með 26. b5. ívantsjúk gafst
því upp.
Sex keppendur tefla tvö-
falda umferð á mótinu.
Staðan að loknum sjö um-
ferðum af tíu: 1. Topalov,
Búlgaríu 5 v. 2. Short,
Englandi 4 v._ 3. Kramnik
3V2 v. 4—5. Ivantsjúk og
Júdit. Polgar 3 v. 6. Gelf-
and, Hvíta Rússlandi ‘IVi v.
Farsi
9-13
01995 Farcus Cafloons/disl. by Unlvefsal Press Syndicatc W/I/S61+ ZS (cóÚLTUAQ-T
n L//& Aöfam eJcki sé&hann, siðom
hann uppgotva.bc, /Une.ói&."
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is.
Dýrtað hringja
til Grænlands
SÍMNOTANDI hringdi
til Velvakanda og spurði
hvernig stæði á því að
svo dýrt væri að hringja
til Grænlands sem raun
ber vitni. „Grænlending-
ar eru næstu nágrannar
okkar,“ sagði hann, „og
því finnst mér skjóta
skökku við að miklu dýr-
ara sé að hringja þangað,
en t.d. til Danmerkur."
Velvakandi kunni ekki
skil á þessu, en símnot-
andinn óskaði eftir skýr-
ingu frá forsvarsmönn-
um Pósts og síma.
Tapað/fundið
Tennisspaði
tapaðist
SVARTUR tennisspaði
af gerðinni Princess Dre-
am tapaðist á leiðinni frá
Efra-Breiðholti að Tenn-
ishöllinni í Kópavogi fyrir
nokkru. Upplýsingar í
síma 567-0683.
Hver erIngunn?
Stúlkubarnið Ingunn
mun hafa tapað gullarm-
bandinu sínu við Ægis-
íðu, en þar fannst það
21. júlí. Upplýsingar í
síma 551-5671.
Týndur köttur
SVARTUR fressköttur
með hvíta flekki, s. s. í
andliti, á bringu og kviði
tapaðist frá Skjólbraut í
Kópavogi mánudaginn
22. júlí sl. Hann er frekar
var um sig, en gæti hafa
lokast einhver staðar
inni. Hafi einhver orðið
ferða hans var er hann
beðinn að hringja í síma
554-0074.
HOGNIHREKKVTSI
tþeir -fanciu þann, elna* bictt sem
kemur cktj náhtgt - bctbicf /
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJA hefur borizt eftir-
farandi bréf:
„Kæri Víkveiji.
Ég get ekki orða bundist þegar
svo mikillar viðkvæmni gætir hjá
þér vegna mis- og vannotkunar
íslensks máls, að þú skorar á lög-
gilta málverndarmenn að leggja til
atlögu við ófögnuðinn. Svo nærri
liggur málverndin þjóðernisremb-
ingnum að fáir leggja í að and-
mæla málhreinsunarvitum, sem
hugsanlega geta þó Iátið ljósið sitt
skína þannig að tungutakið steyti
á grynningum andúðar.
Aldrei er reynt að útskýra í
hveiju liggur þessi mikla hætta
sem íslenskri tungu 0g menningu
stafar af erlendum slettum eða
tökuorðum. Eitt sinn var Akureyri
danskur bær vegna áhuga á
danskri tungu, en nú munu fáir,
a.m.k. af yngri kynslóðinni, hafa
vald á því máli, hvað þá að tal
þeirra sé dönskuskotnara en al-
mennt gerist. Málhreinsun RÚV
metur a.m.k. hreiminn.
Á laugardag og sunnudag hlust-
aði ég á tvo ágæta menn vera að
lýsa golfleik og eins og oft áður
þegar þessum keppnum er lýst hér
koma upp vandamál, sem ég hef
ekki orðið var við hjá erlendum
lýsendum golfleikja né leikjalýs-
endum annarra íþrótta. Þeir voru
í vandræðum með notkun einstöku
alþjóðaheita, sem hjá okkur virðist
endilega þurfa að þýða eða afbaka
— og þykir betra þótt úr verði
óþörf ónefni.
Þeir sem leika golf skilja al-
þjóðaheitin, hinir eru engu nær
með íslenskuðu orðin og í mörgum
tilfellum er óþarfi að búa til sér-
stök heiti vilji menn fremur tala
íslensku.
Það er t.d. óþarfi að vera sífellt
að stagast á „glompum" þegar átt
er við sandgryfjur eða bara gryfj-
ur. „Skolli“ var til skamms tíma
uppnefni á ref, nánast blótsyrði, og
fer því ekki vel á að lýsa þannig
einum yfir pari eða „bogey“, sem
er alþjóðlegt ónefni — og tvöföldum
„bogey“ sem „skramba", (hver
skrambinn!). Enn er þó furðulegra
að kalla óslægju, hálfslegið eða
órækt „karga“, „lúða“ eða eitthvað
enn verra. Þetta furðulega fyrir-
brigði er bein afleiðing óþarfa af-
skipta misvísandi málhreinsunar-
manna — sem taka menn á taugum.
Ég er alveg hissa að Víkveiji
skuli firtast fremur yfir enskunni á
strætó en beinagrindunum. — Held-
ur vil ég að flugmenn skilji hvern
annan, en að þeir tali „hreina“ ís-
lensku — a.m.k. þegar ég er með.
Kveðja,
ÁRNI BRYNJÓLFSSON,
Rauðalæk 16.“
x x x
AF HVERJU ætli Akureyringar
tali ekki lengur dönsku?! Og
raunar á það við um Reykvík-
inga líka. Sagt er að „fína“ fólkið
í Reykjavík hafi fyrir einni öld frem-
ur viljað tala dönsku en íslenzku.
Ástæðan er einföld. Það var hafin
barátta gegn því, að fólk talaði
dönsku í stað íslenzku. Þessi bar-
átta var hörð og þegar hún hófst
var engan veginn ljóst, hvernig
henni mundi lykta. Til allrar ham-
ingju fór svo, að þjóðin kaus fremur
að tala íslenzku en dönsku.
Nú er það ekki lengur danskan,
sem ógnar íslenzkunni, heldur ensk-
an. Því fer hins vegar íjarri, að
enska sé alþjóðamál. Um leið og
komið er á meginland Evrópu verð-
ur fólki ljóst, að það er ekki hægt
að ganga út frá því sem vísu, að
enska sé töluð. Raunar er það til
sérstakrar fyrirmyndar hvað meg-
inlandsþjóðunum hefur tekizt vel
að halda engilsaxneskum menning-
aráhrifum í hæfilegri ijarlægð.
Við liggjum hins vegar undir
miklu álagi frá enskri tungu. Og
metnaðarleysi manna í því sam-
bandi er illskiljanlegt. Hvað mundi
t.d. Árni Brynjólfsson segja, ef
Morgunblaðið væri skrifað dag
hvern með þeim enskuslettum, sem
tíðkast í daglegu tali fólks. Hætt
er við að bæði honum og öðrum
mundi þykja metnaðarleysi Morg-
unblaðsins mikið.
Tilraunir manna til þess að is-
lenzka, t.d. það tungumál, sem tal-
að er á golfvöllum, eru til fyrir-
myndar. Það er afar hæpið að tala
um alþjóðlegt tungumál í golfi eða
■'á öðrum sviðum. Bretar og Banda-
ríkjamenn vilja hafa það svo og við
erum vissulega á áhrifasvæði þeirra
að þessu leyti, en aðrar þjóðir láta
hins vegar ekki bjóða sér það.
xxx
RJARNI málsins er hins vegar
sá, að málvernd snýst ekki um
þjóðrembing heldur er hún megin-
þáttur í baráttu smáþjóðar við að
viðhalda tungu sinni og menningar-
arfleifð. Hefur Árni Brynjólfsson
ekki áhuga á því að það takist?
Víkveiji vill trúa þvL En af hveiju
gengur hann þá í lið með úrtölu-
mönnum?