Morgunblaðið - 30.07.1996, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ1996 45
BRÚÐHJÓNIN ásamt presti við Sáluhliðið á Hrafnseyri.
FÓLK í FRÉTTUM
HÓPURINN saman kominn að aflokinni gróðursetningu.
Ættarmót á
Auðkúlu
UM 170 manns komu saman á ætt-
armóti á Auðkúiu í Arnarfirði ný-
lega. Þar voru saman komnir niðjar
Bjarneyjar Jónínu Friðriksdóttur og
Jóhanns Jónssonar skipstjóra frá
Auðkúlu. Jóhann lést árið 1921 en
Bjarney 1952. Þau eignuðust níu
börn og af þeim er nú eitt á lífi,
Friðrik J. A. Jóhannesson, sem nú
er orðinn 82 ára. Hann mætti á stað-
inn og tók þátt í öllum dagskráratrið-
um mótsins. Gestir skemmtu sér
með ýmsum hætti þessa tvo daga.
Haldinn var' dansleikur, kveikt var
í varðeldi, griilað sungið og spjailað
auk þess sem 700 plöntur voru gróð-
urséttar í ættarreit. Á laugardaginn
var brúðkaup í Hrafnseyrarkirkju
þar sem Bjarney Friðriksdóttir og
Magnús Thejell voru gefin saman
af sóknarprestinum Guðrúnu Eddu
Gunnarsdóttur.
FRIÐRIK Jóhannesson að
gróðursetja birkiplöntu.
Loggia
bjargar
heiminum
► BANDARÍSKI kvik-
myndaleikarinn Robert
Loggia sem leikið hefur í
meira ein 60 kvikmyndum
þar á meðal „Scarface" og
„Big“ hefur sjaldan eða aldr-
ei fengið eins góð viðbrögð
við leik sínum og hann fær
nú fyrir hlutverk sitt í Kvik-
myndinni Independendce
Day þar sem hann leikur
herforingja. „Ég var á golf-
námskeiði um daginn og fóik
kallaði á mig af nærliggjandi
flötum; hei hershöfðingi,
þakka þér fyrir að bjarga
heiminum," sagði Loggia
sem er orðinn 66 ára gam-
all. „Að vera þakkað fyrir
að bjarga heiminum er frá-
bært og mér finnst viðtök-
urnar við myndinni og
frammistöðu minni framar
björtustu vonum,“ sagði
Loggia.
Mikið úrval af
þægilegum
útivistar- og
sportfatnaði
/
HREYSTI
VERSLANIR
LAUGAVEGI51 - S. 551-7717 - SKEIFUNNI19 - S.568-1717
S% staðgr.- og póstkröfuafsl.
FJÖLSPQRI - HAFNARFIRÐI, SP0RTVER - AKUREYRI, K-SPORI -KEFIAVÍK,
SPORTLIF - SELFOSSI, l-SPORT - |SAFIRÐI,HEIMAHORNIÐ - STYKKISHÓLMI
NJNA - AKRANESI, 0RKUVER - H0FN, SIGL0SP0RT - SipLUF(RÐI,
TAP OG FJÖR - EGILSSTÓÐUM, HEILSUR&KTIN - SAUÐARRROKI,
VIÐ LÆKINN - NESKAUPSSTAÐ. GARÐARSHOLMI - HUSAVJ.K,
SMART - VESTMANNAEYJUM, KAUPF. HUNVETNINGA - BLÓNDÓSI