Morgunblaðið - 25.08.1996, Side 12

Morgunblaðið - 25.08.1996, Side 12
12 B SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR Verdur framhald á MEGA frumsýningum? á Þjóðhátíðardeginum brjóti blað í bíósýningarhaldi á Islandi. Myndin var frum- sýnd í fimm kvikmyndahús- um samtímis, í Háskólabíói, Regnboganum, Stjörnubíói og Laugarásbíói í Reykjavík og í Borgarbíói á Akureyri, og var skiljanlega eina myndin sem frumsýnd var þessa helgi. Kvikmyndahús- in hafa ekki áður starfað saman á þennan hátt og nú velta menn því sjálfsagt fyr- ir sér hvort framhald verði á slíkum megafrumsýning- um. Ekki er óeðlilegt að ætla að svo verði miðað við gengi Þjóðhátíðardagsins ef hingað koma myndir á borð við hana. Kvikmyndahúsin hafa nú í nokkur misseri lagt æ ríkari áherslu á að fá inn sem flesta áhorfendur fyrstu sýningarhelgina og beina auglýsingum sínum að því marki. Er það gert að bandarískri fyrirmynd. Samstarf kvikmyndahús- anna um sýningarhald hef- ur aukið þýðingu fyrstu sýningarhelgarinnar og í framtíðinni má búast við að leikurinn endurtaki sig. Innrás metsölumyndar; úr „Independence Day“. 15.701 fyrstu sýningardagana MET var sett í aðsókn á bíómynd á íslandi um síðustu helgi þegar 15.701 manns sáu bandarísku geiminnrásarmyndina Þjóðhátíðardaginn eða „Independence Day“ fyrstu þijá sýn- ingardagana og á forsýningum. Sé það margfaldað með verði aðgöngumiðans kemur í ljós að tekjur af myndinni þessa þijá daga námu 8.659.750 krónum. Aldrei hefur mynd tekið annað eins inn fyrstu sýningarhelgina hér á landi er. myndin var sýnd í fimm kvikmyndahúsum samtímis. Júragarðurinn átti fyrra metið hér heima en alls sáu hana 13.782 manns fyrstu sýningarhelgina og á forsýningum. Menn hafa velt því mikið fyrir sér hvernig Þjóðhátíðardegin- um vegnaði utan Bandaríkj- anna þar sem hún hefur slegið eftirminnilega í gegn en hún höfðar óneitanlega sérstaklega til Bandaríkja- manna og er hetjuóður til herkænsku þeirra og ætt- jarðarástar. Skyldi henni vegna jafnvel um allan heim, var spurning sem lá í loftinu. Svarið er komið. Myndin virðist eiga fyrir höndum sigurför um heim- inn. í Bretlandi námu tekjur af henni fyrstu sýningar- helgina alls um sex milljón- um punda. Til samanburðar má nefna að þar í landi tók Júragarðurinn inn 4,7 millj- ónir punda fyrstu sýningar- helgina. Stefnt var á metsölu hér heima frá upphafi. Myndin hefur mik- ið verið auglýst, hún var sýnd nán- ast allan sólar- hringinn eftir Arnald frá því á Indriðoson hádegi til hálf fjög- ur um nóttina (svipað var uppi á teningnum í Banda- ríkjunum) og sætaframboð- ið var nánast ótakmarkað. Mesta þriggja daga aðsóknin með forsýn- ingum ID4 ...........15.701 Júragarðurinn ... 13.782 Sannarlygar....11.200 Sendiförin.....10.800 AceVentura2 ... 10.700 Gullauga.......10.100 Hún hefur náð því að verða ein af þessum myndum sem fólk telur sig verða að sjá. Segja má að sýningarnar MBreski leikstjórinn Mike Figgis mun leikstýra næstu mynd gerðri eftir handriti Joe Ezsterhas. Hún heitir „One Night Stand“ eða Tjakíað til einnar nætur og fer Wesley Snipes með eitt aðalhlutverk- anna. Síðar mun Snipes leika í mynd- inni Lúsifer, mann sem gerir þann samn- ing við djöfulinn að brjóta öll boðorðin tíu. MNýjasta mynd Francis Ford Copp- ola, „Jack“, hefur verið frumsýnd vestra. Næst mun Coppola snúa sér að því að kvikmynda Grishamtryllinn „The Rainmaker“ og eftir það ætlar hann að leikstýra vísinda- skáldskap, framtíð- artryllinum Spegill eðá „Mirror". Mundi það verða fyrsta vís- indaskáldskapar- mynd Coppolas og kannski kominn tími til. Hann er gersam- lega hættur að gera myndir eftir sínu eig- in höfði, segir að eng- inn hafi áhuga á sín- um hugmyndum, en fær góðan pening fyr- ir að leikstýra ann- arra hugverkum. WkStórslysamyndir njóta aukins áhuga og vinsælda. Væntan- leg er ein slík sem heitir Flóðið, „The Flood“, og er með Christian Slater og Morgan Freeman í aðalhlutverkunum. í BÍÓ LIÐLEGA fjórðungur landsmanna fer aldrei í bíó samkvæmt nýlegri neyslukönnun Félagsvís- indastofnunar, sem Morgunblaðið hefur birt. Rfflega 38 prósent að- spurðra fer sjaldnar en á tveggja mánaða fresti í bíó. Um 36 prósent fara á tveggja mánaða fresti eða oftar. Samkvæmt tölum Hagstofu íslands eru seldir eitthvað á milli 12 og 1.300.000 bíómið- ar f Reykjavík árlega. Það er því ekki nema rúmur þriðjungur þjóðar- innar sem heldur uppi þessari miklu bíósókn. Úrtak könnunarinnar var 1.200 manns en í þeim hópi þjóðarinnar sem úr- takið var eru íslendingar á aldrinum 14-80 ára; 185.172 einstaklingar. Nú er langmesta bíó- sóknin f Reykjavík og má vel ímynda sér að niðurstöður hefðu orðið aðrar ef aðeins fbúar á Stór-Reykjavíkursvæð- inu hefðu verið spurðir. LEIKSTJÓRINN og poppstjarnan; frá tökum á Evítu eftir Andrew Lloyd Webber. Madonna vildi ólm leika Evítu Söngleikur Andrews Lloyds Webbers, Evíta, hefur verið kvikmyndaður af Alan Parker og er vænt- anlegur í kvikmyndahús um næstu jól. Með titilhlutverkið fer Madonna eins og mörgum mun kunnugt en hún sótti það æði fast að hreppa hlut- verk Evítu og valtaði m.a. yfir Meryl Streep og Michelle Pfeiffer í þeim tilgangi. „Madonna var ólm í hlut- verkið", er haft eftir Parker, sem fékk leikstjórastarfið eftir að Oliver Stone hafnaði því á endanum. „Hún skrifaði mér langt, ástríðufullt bréf og það snart mig. Hún vissi að þetta var hlutverk ætlað henni og því oftar sem við hittumst því betur kom í Ijós að hún var sú rétta fyrir mig.“ Framleiðandinn, Andy Vanja, hafði áhyggjur af því að hún væri þessi mikla popp- stjarna og erfið viðureignar en fékk að vita hjá Penny Marshall, sem stýrði Ma- donnu í „A League of Their Own“, að hann þyrfti engar áhyggjur að hafa af henni. Madonna fór í stíft söngnám og hafði með sér söngkenn- ara í tökur enda vildi Parker að tónlistin yrði sungin eins og Webber skrifaði hana. Madonna lagaði sig að því og Parker er ánægður með árangurinn. „Hún er ótrú- leg.“ Samstarf kvikmynda gerðarmanna HÓPUR ungra norrænna framleiðenda, leik- stjóra og handritshöfunda hefur ákveðið að kanna grundvöllinn fyrir stofnun félags norrænna kvik- myndagerðarmanna til að efla samvinnu þeirra á mill- um og finna leiðir til að auka áhuga landanna á framleiðslu þeirra. Það varð niðurstaðan á fjögurra daga ráðstefnu sem 38 ungir kvikmyndagerðar- menn af Norðurlöndunum tóku þátt í og haldin var fyrir skemmstu með þátt- töku fyrirlesara hvaðanæva að úr Evrópu. Þar á meðal má nefna leikstjórann Colin Nutley frá Svíþjóð, Aki Kaurismaki frá Finnlandi, írska rithöfundinn Roddy Doyle og framleiðandann Lyndu Myles frá Bretlandi. íslensku þátttakendurnir voru Þór Siguijónsson, Inga Lisa Middleton, Óskar Jón- asson og Júlíus Kemp. Meðal þess sem fjallað var um á ráðstefnunni var undirbúningur, íjármögnun og markaðssetning mynda. 25.000 höfðu séð Algjöra plágu Alls höfðu um 25.000 manns séð gaman- myndina Algjöra plágu í Stjörnubíói og Sambíóunum eftir síðustu helgi. Þá höfðu rúm 6.000 manns séð Nornaklíkuna í Stjörnubíói, 13.000 Vonir og væntingar og um 2.000 „Mrs. Winterbome". Næstu myndir Stjörnu- bíós eru m.a. gamanmynd- in„Multiplicity“ með Mich- ael Keaton, Djöflaeyjan eftir Friðrik Þór Friðriks- son, sem væntanleg er í lok september, „No Way Home“ með Tim Roth, gamanmyndin „High School High“, „Maximum Risk“ með Jean-Claude van Damme og Natasha Henstridge (hét upphaf- lega „The Exchange") og gamanmyndin Matthildur með Danny De Vito og eig- inkonu hans, Rhea Perl- man. SÝND á næstunni; Damme í „Maximum Risk“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.