Morgunblaðið - 25.08.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 B 19
RAÐAUGIYSINGAR
Vestur íbæ
Til leigu verslunarpláss á 1. og 2. hæð í
JL- húsinu. Stærð er frá 35-300 fm.
Hentar vel fyrir ýmsa starfsemi.
Upplýsingar í síma 511-1600.
Leigulistinn.
Miðbær - Þingholtin
80 fm húsnæði á götuhæð í nýl. steinh. á
Skólavörðustíg 6b til sölu (hjá Kjöreign sími
533 4040) eða leigu (eigandi 562 2788). Þrír
inngangar. Má breyta. Laust. Langtímaleiga.
Húsnæði óskast
til kaups eða leigu undir söluturn ca 100-120
fm. Einungis góð staðsetning kemur til
greina.
Upplýsingar í síma 554 2399.
Stórhöfði
Höfum fengið í sölu/leigu einstaklega snyrti-
legt og skemmtilega hannað skrifstofuhús-
næði, alls ca 570 fm. Eignin skiptist í mót-
töku, 20 skrifstofuherb., opið vinnurými,
fundarherbergi og starfsmannaaðstöðu.
Parket á gólfum, góðar innréttingar.
Góð aðkoma með nægum bílastæðum.
Leiguiistinn - Hóll,
Skipholti 50b, 105 Reykjavík,
sími 511 1600.
Opinber stofnun
Við leitum að ca 300 eða 700 fm skrifstofu-
húsnæði til leigu, helst í miðborg Reykjavíkur
fyrir opinbera stofnun. Möguleiki á langtíma
leigusamningi fyrir gott húsnæði.
Áhugasamir hafi samband við skrifstofu okk-
ar í síma 511 1600.
|i
■iEIGULISTINN
Skipholti 50b, 105 Reykjavík,
sími 511 1600.
Verslunar-
og lagerhúsnæði
Til leigu er rúmgott verslunar- og lagerhús-
næði við Þverholt í Reykjavík. Húsnæðið
skiptist í þrjár einingar, alls 1.050 fm, og er
laust nú þegar. Hægt er að fá það leigt allt
eða að hluta. Upplagt fyrir innflutningsversl-
un og skylda starfsemi.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN
Skúiagötu 30, 3. hœð,
sími 552 6600.
Lovísa Kristjánsdóttir, lögg. fasteignasali.
Fyrir kjötvinnslu
Til sölu eða leigu Þverholt 8,
Mosfellsbæ
Húsnæðið er 750 fm á einni hæð á besta
stað í Mosfellsbæ og er í dag innréttað fyrir
kjötvinnslu eða sambærilegan rekstur. Hús-
næðið er með góðri lofthæð, stórum inn-
keyrsludyrum og því getur fylgt frystir, hrað-
frystir og kælir. Laust fljótlega.
Upplýsingar gefa Haukur í síma 566 7146
eftir kl. 19.00 og Davíð í síma 566 6616.
Skeljungur hf.
Til leigu
120 fm mjög gott húsnæði við Smiðjuveg
11, Kópavogi. Hentugt fyrir lítið fyrirtæki,
arkitekta eða verkfræðinga.
Timbur og stál ehf.,
sími 564 2940.
Vantar - vantar - vantar
Vegna mikillar eftirspurnar eftir leiguíbúðum
vantar okkur flestar stærðir leiguíbúða á
skrá. Með einu símtali er íbúðin komin á
skrá hjá okkur og um leið ertu komin(n) í
samband við fjölda leigjenda. Árangurinn
mun ekki láta á sér standa og það besta er
að þetta er þér að kostnaðarlausu!
|i
HEIGULISTINN
LEIGUMIÐLUN
Skipholti 50B, 105 Reykjavík.
Skráning í síma 511 1600.
Grótta - fimleikar
Vetrarstarf hefst 2. september.
Innritun verður þriðjudaginn 27. ágúst og
miðvikudaginn 28. ágúst milli kl. 17 og 19 í
Gróttuherbergi eða í síma 561 1133.
Áhaldafimleikar - Trompfimleikar -
íþróttaskóli - Kvennaleikfimi (barnagæsla).
Veitingamenn
Tilboð óskast í rekstur veitingaaðstöðu í
tengslum við stóra fjölskylduskemmtun í
miðbæ Reykjavíkur, sem stendur í rúmar 5
vikur. Eingöngu eru um léttar veitingar að
ræða.
Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer til
afgreiðslu Mbl. fyrir 26. ágúst merkt:
„Víddir - 1085".
LjóðatónCeifar Qerðubergs
Auglýst er eftir umsóknum frá söngvurum
sem vilja koma fram á Ljóðatónleikum Gerðu-
bergs.
Umsóknareyðublöð ásamt frekari upplýsing-
um má fá á skrifstofu Gerðubergs.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Gerðu-
bergs eigi síðar en 1. október nk.
0
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
Gerðubergi »111 Reykiavlk • Slmi 5674060 • Bréfsími 5579160
Laugarneskirkja óskar eftir söngfólki.
Fjölbreytt tónlist.
Upplýsingar gefur Gunnar Gunnarsson, org-
anisti í síma 896 8869.
Starfsmennirnir eru auðlind félagsins og
leggja til það hugvit sem tryggja mun vöxt og
viðgang Skeljungs hf. Það er ásetningur
félagsins að hafa ætíð á að skipa hæfu og
áhugasömu starfsfólki þar sem áhersla er lögð
á markviss vinnubrögð, skýra ákvörðunartöku
og frumkvæði.
Ef þér finnst þetta áhugavert þá gæti starf hjá Skeljungi
hf. verið eitthvað fyrir þig. Við viljum komast í samband
við vel menntað fólk með áhuga og metnað til að vinna
að spennandi verkefnum hjá traustu og framsæknu
fyrirtæki.
Forstöðumaður þróunarsviðs
Starf forstöðumanns Þróunarsviðs felur í sér vinnu að
ýmsum þróunarmálum fyrir félagið, þ.m.t. þróun
hugmynda um ný viðskiptatækifæri, auk þess sem
viðkomandi annast ýmis sérverkefni sem tengjast
daglegum rekstri.
Háskólamenntun á sviði verkfræði eða viðskipta ásamt
góðri þekkingu á markaðsmálum er nauðsynleg. Mjög
góð enskukunnátta ásamt einu Norðurlandamáli
skilyrði. Starfið hentar vel hugmyndaríkum einstaklingi
með trú á eigin verðleikum.
Kerfisstjóri
Starf kerfisstjóra á tölvu- og upplýsingasviði felst m.a. í
uppbyggingu á grunntölvukerfum félagsins og
daglegum rekstri þeirra, ráðgjafarþjónustu og
skipulagsverkefnum.
Við leitum að tölvunarfræðingi eða verkfræðingi með
góða þekkingu á tölvumálum og upplýsingatækni.
Þjónustustjóri
Starf þjónustustjóra á tölvu- og upplýsingasviði er að
sinna daglegri þjónustu við tölvunotendur, þ.m.t.
aðstoð við lausn smærri vandamála, kennsla á
notendaforrit og undirbúningur fræðsluefnis.
Starfið hentar vel tölvunarfræðingi frá TVÍ eða aðila
með sambærilega menntun og/eða
starfsreynslu. Hæfni í mannlegum samskiptum og
skipulagshæfileikar eru skilyrði.
Ritari
Starf ritara á markaðssviði felst í almennum ritara- og
skrifstofustörfum, þ.m.t. tölvuvinnu (ritvinnsla og
töflureiknir), skjalavörslu og símaþjónustu auk þess
sem viðkomandi hefur með höndum ákveðin
sérverkefni. Leitum að ritara með góða framkomu,
menntun og starfsreynslu.
Umsóknir berist starfsmannahaldi Skeljungs hf.,
Suðurlandsbraut 4, 5. hæð, í síðasta lagi föstudaginn
30. ágúst n.k. Þeir sem þess óska geta pantað
viðtalstíma við starfsmannastjóra félagsins, Rebekku
Ingvarsdóttur, í síma 560 3847. Umsóknir eru
meðhöndlaðar af fyllsta trúnaði.
Skeljungur hf.
Shell einkaumboð