Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 14
14 E SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AFÞREYIIMG/LISTIR
Söngsmiðjan reynir að kenna jafnt
laglausum og lagvísum söng
Kanadísk djass-
söngkona með
námskeið
SONGSMIÐJAN hóf göngu
sína sem skóli þar sem haldin
voru hópnámskeið fyrir byrj-
endur í söng, en fljótlega óx
starfseminni fískur um hrygg
og bryddað var upp á nám-
skeiðum fyrir laglausa sem og
lagvísa, söngleikjadeild, gosp-
elkór, barna- og unglingasöng-
smiðju og einsöngskennslu.
Esther Helga Guðmunds-
dóttir, einn forráðamanna
skólans, segir að nú í vetur,
þegar Söngsmiðjan er að hefja
sjötta starfsár sitt, hafi verið
ákveðið að sækja kennara til
útlanda og metnaður hafi ráðið
því að kanadíska djasssöng-
konan Tena Palmer varð fyrir
valinu.
Fengið jákvæða gagnrýni
Tena mun kenna einsöngs-
nemendum og halda tvö hópn-
ámskeið þar sem áhersla verð-
ur lögð á blús, djass, popp og
fleira í sama dúr. Tena hefur
sungið með djasskvartettinum
Chelsea Bridge sem hefur að-
setur í Ottawa en ferðast víða
um heim til tónleikahalds og
hefur gefið út geisladiska sem
innihalda meðal annars tón-
smíðar Tenu.
„Hún hefur fengið frábæra
dóma fyrir söng sinn og sviðs-
framkomu sem þykir brjóta
af sér ýmsar hefðir á þessum
vettvangi. Tena Palmer hefur
verið kölluð mest spennandi
djasssöngkona Kanada og það
er ekki lítill heiður, auk þess
sem hún hefur vakið mikla
athygli á þeim tónleikum og
tónlistarhátíðum sem hljóm-
sveitin hefur sótt heim,“ segir
Esther.
A barna- og unglinganám-
skeiðum, sem eru ætluð börn-
um allt frá fimm ára aldri, er
lögð áhersla á söngkennslu,
almenna tónlistarfræðslu,
hreyfingu og
leikræna
tjáningu. A al-
mennum námskeiðum
er hópkennsla fyrir laglausa
og lagvisa eins og áður er get-
ið, og námskeið fyrir jafnt
byrjendur og framhaldshópa
þar sem kennd er söngtækni,
tónfræði og samsöngur.
Léttari tónlist í boði
Einnig er meðal annars boð-
ið upp á hópnámskeið þar sem
áhersla er Iögð á Iéttari tón-
list, svo sem söngleiki, gospel,
blús, popp og djass. Þá er nám-
skeið haldið í söngtækni, sam-
söng, einsöng, tónfræði og
framkomu, svo eitthvað sé
nefnt.
LÖGÐ er áhersla á söngkennslu, almenna tónlistarfræðslu,
hreyfingu og leikræna tjáningu.
ta~V?-n STÝRIMANNASKÓLINN
í REYKJAVÍK
GMDSS
fjarskiptanámskeið
l.sept. -11.sept.
■ V
vVl
Nýja neyðar- og öryggisfjarskiptakerfið.
Námskeiðið hefst 2. september kl. 16.10.
Upplýsingar og skráning í síma 551 3194.
Bréfasími (fax) 562 2750.
Skólameistari
FÆÐIOG KLÆÐI
Hótel- og veitinga-
greinar í brennidepli
FRÆÐSLURÁÐ hótel- og veitinga-
greina stendur fyrir námskeiðum
um sölutækni, öryggismál, mat-
seðlagerð, fjármál, samskipti hótel-
og ferðaskrifstofa, undirbúning fyr-
ir kaupstefnur og verðlagningu á
gistingu og veitingum, svo eitthvað
sé'nefnt.
Gunnar Kristinsson hjá fræðslu-
ráðinu, segir hlutverk þess m.a. að
sinna sí- og endurmenntun fyrir þau
félög sem að því standa, en þau eru
Samband veitinga- og gistihúsa,
Félag framreiðslumanna og Félag
matreiðslumanna. Almenningi
standi þó mörg námskeið til boða
einnig.
Sérfæði, ábætisréttir og
klakaskurður
„Fræðsluráðið stendur auk þess
sem áður er nefnt fyrir kjamanám-
skeiðum, sem taka fjórar klukku-
stundir hvert. Hægt er að taka þau
öll saman á tveimur dögum, eða
hvert í sínu lagi. Um er að ræða
námskeið í innra eftirliti við mat-
vælaframleiðslu, námskeið um ör-
yggismál, um þjónustusamskipti og
námskeið um ræstingu," segir hann.
Ráðið stendur ennfremur í haust
og vetur fyrir endurmenntunarnám-
skeiðum í Matreiðsluskólanum okk-
ar, sem hann segir hugsanlegt að
verði hægt að fá metið til eininga
í fagnámi meistarnáms matreiðslu-
manna og framreiðslumanna. Með-
al þess sem þar er boði, má nefna
námskeið um íslenska matargerð,
strauma og stefnur í matargerð,
veitinga- og matvælalöggjöf, heilsu
og sérfæði, ábætisrétti o.fl.
I samvinnu við ráðið heldur skól-
inn síðan fjöldann allan af nám-
skeiðum fyrir fagfólk og almenning
um t.d. gerbakstur, fugla og villi-
bráð, kökubakstur, konfektgerð,
klakaskurð, patégerð, íslensk krydd
og úrbeiningu kjöts, svo stiklað sé
á stóru.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÆÐSLURÁÐ hótel- og veitingagreina býður meðal annars
upp á námskeið fyrir fagfólk og almenning í matreiðslu fugla
og villibráðar, kökubakstri og konfektgerð.
HANNA Hlíf Bjarnadóttir,
einn nemenda á pijónanám-
skeiði Storksins, velur sér
garn fyrir prjónaskapinn.
Sérstök að-
ferð við
peysuprjón
GARNVERSLUNIN Storkurinn
hefur haldið pijónanámskeið und-
anfarin tíu ár og seinustu ár hafa
námskeið í útsaumi bæst við.
Malín Örlygsdóttir hjá Storkinum
segir að fyrstu árin hafi verið
haldin um tvö námskeið á ári, en
aðsókn hafi margfaldast og hafi
verið haldin allt að 18 námskeið
á vetri seinustu misseri, með um
10 nemendum á hverju.
Hvert námskeið stendur í sex
vikur og er samtals 24 kennslu-
stundir. Sunneva Hafsteinsdóttir
textílkennari er leiðbeinandi og
hefur sér til aðstoðar einn starfs-
manna Storksins. Malín segir
námskeiðin eiga að nýtast bæði
byijendum og lengra komnum og
sé þeim ætlað að auka almenna
þekkingu á pijóni.
Á námskeiðum gefst nemend-
um meðal annars kostur á hjálp
við að pijóna „óskapeysuna" sína
að sögn Malínar, og segir hún
sumar þær peysur, sem þannig
hafa orðið til, vera listasmíði.
í PRJÓNASKÓLA Tinnu er
lögð áhersla á myndprjón.
FJÖLBRAUTASXÓUNN
BREI0H0LTI
RAFVIRKJUN
Fjölbrautasltólinn Breiðholti
Grunndeild rafiðna (1 ár)
Rafvirkjun í verknámsskóla (3 ár)
Rafvirkjun fyrir nema á samningi
FB þegar þú velur verknám
TRÉSMÍÐI
Fjölbrautaskólinn Breiðholti
Grunndeild undirstöðuatriði í trésmíði
Húsasmíði grunn- og framhaldsdeildir
Húsasmíði fyrir nema á samningi
FB þegar þú velur verknám
Prjónað við
kunnáttuna
PRJÓNASKÓLI Tinnu á árs af-
mæli um þessar mundir og eru
kennarar við skólann tveir, þær
Hanna Marinósdóttir og Halla
Benediktsdóttir, en báðar hafa
mikla reynslu af prjónaskap að
sögn Auðar Kristinsdóttur, stofn-
anda skólans.
Auður rekur jafnframt Garn-
búðina Tinnu í Hafnarfirði, og er
skólinn jafnframt þar til húsa.
Helstu kennslugreinar eru mynd-
pijón, almennt prjón fyrir byij-
endur og lengra komna og einnig
hekl. Auður segir viðtökur hafa
verið góðar og voru nemendur í
fyrra 145 talsins, þar af einn karl-
maður.
„Markmið skólans er hvoru
tveggja að viðhalda og bæta við
þekkingu fólks á prjónaskap,
jafnframt því að kenna ungu fólki
fyrsta handverkið,11 segir hún.