Morgunblaðið - 25.08.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ORYGGISNAM
Meðferð eitur- og
sprengiefna kennd
VINNUEFTIRLIT ríkisins heldur
| um 10-15 námskeið í haust og
vetur að sögn Hauks Sölvasonar
' deildarstjóra hjá stofnuninni, og er
( meðal annars hægt að læra með-
ferð sprengiefnis og varúðarrástaf-
anir samfara flutningi eiturefna.
Vinnueftirlitið heldur í vetur eins
og oft áður námskeið í sprengi-
tækni sem felst í að kenna mönnum
að reikna út og fræðast um sprengi-
efni, enda þurfa menn að hafa rétt-
indi til að sprengja fyrir jarð-
( göngum eða vegum og öðru slíku.
Ekki mikið sprengt
( „Á þessum námskeiðum er mesta
áherslan lögð á að menn þekki
sprengiefnin og kunni að með-
höndla þau, hvernig á að reikna út
sprengikraft, hvernig á að ganga
frá borholu miðað við dýpt og slíkt
til að sprengja ákveðið mikið af
efni, hversu mikið sprengiefni þarf
til að losa berg við ákveðnar að-
I stæður o.s.frv. Menn standa ekki
j utandyra og sprengja villt og galið,
, heldur er um að ræða fræðilega
útreikninga sem þarf til að bora og
hlaða holur,“ segir Haukur.
Stofnunin heldur einnig svo köll-
uð ADR-námskeið, fyrir t.d. olíubíl-
stjóra og aðra þá sem flytja efni
er flokkast sem hættuleg, svo sem
gastegundir, eiturefnategundir,
sprengiefni o.fl.
Þátttakendur öðlast vitneskju um
hvaða farmur telst vera hættulegur
og reglur þær sem gilda um efni,
hvaða efni má lesta saman og ann-
að slíkt. Einnig er rætt um hvaða
viðbragða er þörf komi upp óhapp
í slíkum flutningum. Dómsmála-
ráðuneytið hafði tilhlutan um að
þetta námskeið væri haldið.
„Þetta námsefni byggir á samn-
ingi þar að lútandi sem ísland er
ekki aðili að, en eftir því sem best
er vitað kemur tilskipun frá Evrópu-
bandalaginu nú í haust um að eftir
honum verði farið hér sem annars
staðar. Ráðuneytið er að sjálfsögðu
búið að ákvaða það með því að
gefa út reglugerð um meðferð þess-
ara efna.
Námskeiðin veita mönnum al-
þjóðlegt skírteini til þessara flutn-
inga, og því er einnig fjallað um
þau gögn sem þeir þurfa að hafa
tiltæk í bifreiðunum til að komast
á milli landa eða í fetjur,“ segir
hann.
Hann kveðst telja 300-400
manns þurfa að afla sér réttinda
vegna flutninga hættulegra efni
hérlendis.
Rækt við vinnuvernd
Vinnueftirlitið heldur sömuleiðis
námskeið fyrir þá sem vilja öðlast
réttindi á byggingakrana, og er það
haldið tvisvar á ári ef eftirspurn er
nægjanleg.
Einnig má nefna námskeið til að
öðlast réttindi á vinnuvélar, svo
kallað frumnámskeið, þar sem
MIKILLAR aðgátar er þörf
við meðhöndlun sprengiefna
á borð við dýnamít og er
hægt að læra hvernig menn
eiga að bera sig að þegar
sprenging er undirbúin.
menn eru undirbúnir fyrir verklegt
nám og próf til að aka minni gerð
lyftara, dráttarvélum, körfubílum,
valtara og steypudælukrana. Hluti
þess námskeiðs er á vegum Iðn-
tæknistofnunar og Nýja ökuskól-
ans.
Þá eru ótalin þau námskeið sem
snúa beint að öðrum þáttum vinnu-
verndar. Þannig eru haldin nám-
skeið fyrir stjórnendur í fyrirtækj-
um, öryggistrúnaðarmenn og ör-
yggisverði þar sem vinnuverndar-
lög- og reglur eru kynnt. Einnig
eru haldin námskeið fyrir ýmsa
starfsgreinahópa. Námskeið Vinnu-
eftirlitsins kosta frá 6.500 til
35.000 krónua.
FÓLK getur m.a. sótt sér fræðslu um rétt viðbrögð, falli einstaklingur í
sjó eða vatn, til Slysvavarnarskóla sjómanna.
Morgunblaðið/Júlíus
UM NÆSTU áramót ganga í gildi
lög sem krefjast þess að allir sjó-
menn sem ætla að fá lögskrán-
ingu í skipsrúm verði að hafa
lokið öryggisfræðslu við Slysa-
varnaskóla sjómanna eða aðra
sambærilega skóla. Frá stofnun
Slysavarnaskóla sjómanna árið
1985 hafa um 12 þúsund nemend-
ur tekið þátt í hinum ýmsu nám-
skeiðum skólans, en margir
þurfa að bæta við þekkingu sína
á þessu sviði að sögn Hilmars
Snorrasonar sem er þar í for-
svari.
Slysavarnafélag Islands stofn-
aði skólann á sínum tíma til að
sinna öryggisfræðslu fyrir sjó-
menn. Markmið hans er að auka
öryggi sjómanna með fræðslu og
þjálfun í meðferð björgunar- og
öryggisbúnaðar, auk almennrar
fræðslu um slysavarnir á sjó.
Skóli um borð í skipi
„Frá upphafi hefur verið lögð
áhersla á fjölda afmarkaðra
námskeiða, sem sniðin eru fyrst
og fremst með þarfir íslenskra
sæfarenda í huga. Skólinn hefur
boðið upp á almenn grunnnám-
skeið ásamt sérhæfðuin nám-
skeiðum fyrir áhafnir far- og
fiskiskipa, auk trillusjómanna og
Sniðið að
þörfum
sæfar-
enda
skemmtisiglingafólks. Námskeið
skólans eru öllum opin en á
námsskrá er einnig að finna
kennslu sem hentar einkum þeim
er vinna við hafnir eða dvelja við
leik og störf við ár eða vötn,“
segir Hilmar.
Skólinn hefur meðal annars
þá sérstöðu, að hann er staðsett-
ur í skólaskipinu Sæbjörgu sem
liggur yfir vetrarmánuðina í
Reylqavíkurhöfn en yfir sumar-
mánuðina er hægt að fá nám-
skeið til hinna ýmsu hafna víðs
vegar um landið. Hægt er að fá
námskeið hvert á land sem er
að sögn Hilmars, allt árið um
kring.
Námskeið skólans eru frá
fimm klukkustundum að lengd,
upp í fimm daga og er meðal
annars boðið upp á almennt
grunnnámskeið í björgunar og
öryggisbúnaði, upprifjun á
grunnnámi og grunnnámskeið
um þetta efni fyrir skóia. Einnig
er boðið upp á smábátanámskeið,
öryggisnámskeið fyrir kaupskip
og upprifjun á þeim, leiðbein-
endanámskeið í björgunar- og
öryggismálum skipa, framhalds-
námskeið skóla í öryggismálum
kaupskipa, námskeið um hafnar-
öryggi, meðferð slasaðra og
notkun lyfjakistu, framhalds-
námskeið fyrir vélskóla, skip-
stjórnanámskeið og eldvarn-
arnámskeið.
Viðbrögð við ofkælingu
Ennfremur býður skólinn upp
á námskeið sem eru sérsniðin að
þörfum viðskiptavina, svo sem
sérnámskeið fyrir skipsáhafnir,
hópa og félagasamtök. Þar á
meðal er námskeið um beitingu
handslökkvitækja og skyndi-
hjálp, námskeið um viðbrögð ef
einstaklingur fellur í sjó eða vötn
og námskeið um endurlífgun og
ofkælingu.
Verð námskeiða er frá 2.500
krónum til 14.000 króna, eftir
tímalengd og námskostnaði.
SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 E 19
íT
FJÖLBRAUTASXÚUNN
BREIÐHOLTi
V
SJÚKRALIÐANÁM
Fjölbrautaskólinn Breiðholti
Bóklegt og verklegt nám
til sjúkraliðaprófs
FB þegar þú velur verknám
HANDÍÐANÁM
FJÖLBRAUTASKÖUNN
BREIÐHOLTI
Fjölbrautaskólinn Breiðholti
Handíðabraut 1 ár
(Fatahönnun, fatasaumur,
mótelteikning, sniðteikning
vefjaefnafræði, hekl og prjón)
FB þegar þú velur verknám
Frá Fósturskóla íslands
Eftirtaldar námsbrautir eru starfræktar við Fósturskóla íslands:
A)
Þriggja ára leikskólakennaranám. Fullt nám.
Fjögurra ára leikskólakennaranám, að mestu í
fjarnámsformi. 75% nám á ári.
Eins árs framhaldsdeild. Viðfangsefni misjöfn
eftir árum. Sérstök áhersla er lögð á
framhaldsnám í stjórnun og sérkennslu
á leikskólastigi.
Ýmis stutt endurmenntunarnámskeið.
Leikskólakennaranám er nú metið tii 45 eininga
við Kennaraháskóla íslands.
Nám í framhaldsdeild er í síauknum mæli metið
jafngilt eins árs framhaidsnámi leikskólakennara
við norska háskóla.
Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans.
Fiskvinnsluskólinn
Frá Fiskvinnsluskólanum
- sjávarútvegsdeild Flensborgarskólans -
Fiskvinnsluskólinn - sjávarútvegsdeild
Flensborgarskólans - verður settur þriðju-
daginn 3. september 1996 kl. 10.00 í
húsnæði skólans á Hvaleyrarbraut 13,
Hafnarfirði.
Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu
miðvikudaginn 4. september.
Yerkefnisstjóri