Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996
I
MORGUNBLAÐIÐ ft-
ERLEIMT
Hver ræður í Rússlandi?
, # # Reuter
BORIS Jeltsín ásamt bandarískum sérfræðingi sem skoðaði forsetann
áður en tekin var ákvörðun um að hann gengist undir hjartaaðgerð.
Víktor Anatolíj Alexander
Tsjernomyrdín Tsjúbais. Lebed.
Undirsátar Borís Jelts-
íns Rússlandsforseta
eru teknir að brýna
kutana í þeirri hörðu
valdabaráttu sem geis-
ar austur í Moskvu.
Asgeir Sverrisson
segir frá mönnunum
sem bíða hjarta-
aðgerðar Jeltsíns með
öndina í hálsinum.
AMEÐAN Borís Jeltsín
Rússlandsforseti býr
sig undir erfiða hjarta-
aðgerð eru undirsátar
hans teknir að beijast um völdin
innan Kremlarmúra. Jeltsín hefur
að sönnu oft áður verið afskrifað-
ur í rússneskum stjórnmálum en
freistandi er að álykta sem svo
að tekið sé að húma að kveldi í
pólitísku lífi forsetans og að end-
urkoma hans, verði á annað borð
af henni, reynist stutt. Þrír hópar
manna láta nú einkum til sín taka
í Kreml og virðast tilbúnir til að
beita fullri hörku í þeirri valdabar-
áttu sem hafín er eina ferðina enn
austur í Moskvu.
Alexander Lebed, forseti ör-
yggisráðs Rússlands, brosti sínu
breiðasta er hann sótti ráðamenn
í höfuðstöðvum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) heim í fyrri
viku. Um það bil sem Lebed lét
fremur óljósar yfírlýsingar falla
um samskipti Rússlands og NATO
og fyrirhugaða stækkun banda-
lagsins til austurs tóku fjendur
hans í Moskvu að brýna kutana.
Svo virðist sem mikilvægasta
verkefnið nú sé að freista þess
að einangra Lebed, sem náði lygi-
legum árangri í forsetakosn-
ingunum fyrr í ár og öðlast hefur
stöðu þjóðhetju í hugum margra
í Rússlandi.
Rógsherferð gegn manninum
með „malarröddina“
Hafín er skipulögð rógsherferð
gegn Lebed í rússneskum fjölmiðl-
um og má sú þróun heita merki-
leg fyrir þær sakir að dagblöð og
sjónvarpsstöðvar hafa fram til
þessa almennt verið vinsamlegar
í umQ'öllun sinni um manninn með
„malarröddina." Því er haldið
fram að óheft spilling þrífist í
kringum Lebed, framganga hans
í Tsjetsníju-deilunni hefur verið
harkalega gagnrýnd og hershöfð-
inginn fyrrverandi verið vændur
um linkind og bleyðimennsku.
Ljóst er að tilgangurinn er sá að
koma höggi á Lebed og stuðnings-
menn hans fyrir næstu forseta-
kosningar.
Þá hefur bandalag það sem
Lebed gerði við Alexander Korz-
hakov, fyrrum yfírmann lífvarða-
sveita forsetans og drykkjufélaga
Jeltsíns, mælst ákaflega illa fyrir.
Korzhakov er talinn hættulegur
maður og hann hræddust flestir
er hann var í náðinni hjá Rúss-
landsforseta. Því er haldið fram
að Korzhakov hafí m.a. freistað
þess að beita herforingja fjárkúg-
unum og þótt slíkar fullyrðingar
séu daglegt brauð í rússnesku
stjórnmálalífi getur það skaðað
mjög ímynd Lebeds að tengjast
þessum manni.
Valdahópurinn í kringum
Lebed samanstendur af mönnum
sem sameinast hafa um rússneska
föðurlandshyggju og staða hans
er einnig sterk innan hersins og
meðal hergagnaframleiðenda.
Hópurinn sem myndast hefur í
kringum Víktor Tsjernomyrdín
forsætisráðherra á einkum hags-
muna að gæta í tengslum við
rekstur rússneskra stórfyrirtækja
og margir þeirra hafa náð að
maka krókinn hressilega á undan-
förnum árum umbrota og um-
skipta.
Hollusta og valdasýki
Staða Tsjernomyrdíns í valda-
baráttunni er mjög sterk. Vegna
veikinda sinna hefur Jeltsín feng-
ið honum mikil völd í hendur og
samkvæmt stjórnarskránni tekur
forsætisráðherrann við forseta-
embættinu reynist „forsetinn um
langan tíma ófær um að gegna
skyldustörfum sínum“ eins og
segir í 92. grein stjórnarskrárinn-
ar. Raunar getur stjómarskráin
ekki um það nákvæmlega hvenær
þessar aðstæður teljast ríkjandi
og því má heita öruggt að hat-
rammar deilur munu hefjast reyn-
ist Jeltsín ekki fær um að snúa á
ný til starfa.
Stjórnarskráin kveður enn-
fremur á um að boðað skuli til
forsetakosninga þremur mánuð-
um eftir að starfandi forseti hefur
lagt niður völd eða kvatt þennan
heim. Valdabaráttan í Kreml nú
um stundir er háð í þeim tilgangi
að undirbúa slíkar kosningar.
Tsjernomyrdín hefur heldur
haldið sig til hlés enda var það
hann sem hvatti Jeltsín til að
gangast undir hjartaaðgerðina.
Forsætisráðherrann hefur sýnt að
hann er klókur stjórnmálamaður.
Nái Jeltsín heilsu á ný, mun
Tsjernomyrdín hafa sýnt honum
fyllstu hollustu og ráðið honum
heilt. Snúi forsetinn ekki aftur til
starfa verður Tsjernomyrdín for-
seti og getur undirbúið kosninga-
baráttu sína í krafti yfirburða-
stöðu þess embættis. Þá er
Tsjemomyrdín að líkindum sá
stjórnmálamaður sem Vestur-
landabúar gætu best sætt sig við
sem arftaka Jeltsíns, - enda
æskja þeir þess jafnan að einhver
kunnuglegur taki við stjórnar-
taumunum - og sá stuðningur
gæti reynst mikilvægur, líkt og í
síðustu forsetakosningum er
Jeltsín var endurkjörinn.
Þriðji maðurinn
En nú um stundir virðist sem
þriðji maðurinn hafi náð yfírhönd-
inni í baráttunni, hvað svo sem
síðar verður. Sá heitir Anatolíj
Tsjúbaís og er skrifstofustjóri for-
setans. Tsjúbaís hefur tekist að
nýta sér þetta mikilvæga embætti
á undraskömmum tíma til að sölsa
undir sig aukin völd. Tsjúbaís er
ungur maður, aðeins 41 árs, en
hefur mikla reynslu af þeirri stöð-
ugu valdabaráttu sem fram fer í
Kreml og hefur farið nokkra
hringi með hinu pólitíska gæfu-
hjóli. Tsjúbaís stjórnaði einkavæð-
ingaráætluninni miklu árið 1992,
sem lyktaði með efnahagslegum
hörmungum og óðaverðbólgu.
Tsjúbaís var um tíma sennilega
hataðasti maðurinn í rússneskum
stjómmálum en það var ekki fyrr
en í janúar á þessu ári sem Jelts-
ín forseti varð við kröfum stjóm-
arandstöðunnar og gerði Tsjúbaís
að taka pokann sinn.
Tsjúbaís brást ekki við brott-
rekstrinum með hefðbundunum
yfirlýsingum um spillingu og
mannvonsku forsetans. Þess í stað
tók hann að vingast við áhrifa-
mikla menn í rússneska fjölmiðla-
heiminum og náði að vinna sér
traust Tatjönu Díjatsjenko, dóttur
Jeltsíns. Þau tvö náðu síðan að
hreinsa til í herbúðum forsetans
og gegndu-Iykilhlutverki í baráttu
hans fyrir endurkjöri. Líklegt má
heita að það sé Tsjúbaís sem
stendur að baki herferðinni gegn
Lebed og að hann nýti sér fjöl-
miðlatengsl sín óspart í þessu
skyni.
Aðgangurinn
að forsetanum
Tsjúbaís hefur nú náð að skapa
trúnaðarsamband við Jeltsín og
skipulagshæfileikar hans þykja
ótvíræðir. Framganga hans, sér-
staklega á þessu ári, sýnir að
hann er slægur stjórnmálamaður
sem býr yfír yfírburða þekkingu
á leikreglunum í Kreml og hefur
mikið innsæi. Hann er á hinn
bóginn maður óvinsæll og hæpið
má telja að breyting verði þar á
þótt nokkrir fréttaskýrendur telji
hugsanlegt að almenningur taki
að flykkja sér um hann er frjáls-
lynd efnahagsstefna hans tekur
að skila árangri. Þar er að líkind-
um um óskhyggju að ræða.
í krafti embættis síns getur
Tsjúbaís stjómað öllum aðgangi
að forsetanum og það er hann sem
ákveður hvaða plögg, skýrslur og
skjöl fara inn á borð Jeltsíns þar
sem hann dvelur á heilsuhæli og
bíður hjartaaðgerðarinnar.
Tsjernomyrdín hefur ekki sama
aðgang að forsetanum og Lebed
reyndi árangurslaust vikum saman
að ná fundi Jeltsíns í ágústmánuði.
Veikleiki Tsjúbaís felst á hinn
bóginn í því að hann á allt sitt
undir heilsulausum forseta og
hann og hinir frjálslyndu skoðana-
bræður hans eiga lítinn sem eng-
an stuðning vísan í röðum al-
mennings. Saman gætu þeir
Tsjúbaís og Tsjernomyrdín á hinn
bóginn reynst Lebed erfíðir and-
stæðingar.
Valdabaráttan í Kreml mun
komast á nýtt stig á næstu vikum
og mánuðum. Lyktir hennar munu
reynast mjög mikilvægar fyrir
þróunina í Rússlandi og samskipti
austurs og vesturs og marka lok
valdaferils Borís Jeltsíns.
Þýskaland
Gíslum
sleppt úr
banka
Neuenstein. Reuter.
VOPNAÐUR maður, sem hélt sex
mönnum í gíslingu í þýskum banka
í 14 klukkustundir, gaf sig á vald
lögreglu í gær og sleppti gíslunum
án þess að til átaka kæmi. Gíslana
sakaði ekki.
Lögreglan nafngreindi ekki
manninn, en sagði að hann væri 25
ára Þjóðvetji, sem hefði verið dæmd-
ur fyrir ýmsa glæpi, svo sem tilraun
til fjárkúgunar. Hann var síðast lát-
inn laus úr fangelsi í júlí.
Maðurinn hafði hótað að myrða
gíslana, þtjár konur og þijá karl-
menn, ef ekki yrði greitt lausnar-
gjald, fimm milljónir marka, rúmar
220 milljónir króna. Lögreglan telur
að hann hafi ætlað að ræna bank-
ann, sem er í Neuenstein, skammt
frá Heidelberg, en mistekist og því
gripið til þessa örþrifaráðs.
Reuter
Friðarákall
í Belfast
HUNDRUÐ kaþólikka og mótmæl-
enda komu saman við ráðhúsið í
Belfast á föstudag til að hvetja írska
lýðveldisherinn (IRA) og hryðju-
verkamenn úr röðum sambandssinna
til að grípa ekki til frekari hermdar-
verka og hefja þannig nýjan vítahring
ofbeldis. Fólkið hélt á 3.000 pappírs-
myndum sem áttu að tákna fóm-
arlömb 25 ára átaka kaþólskra lýð-
veldissinna, er vilja að Norður-írland
sameinist írlandi, og mótmælenda
sem vilja að landið verði áfram hluti
af Bretlandi. Ræðumenn sögðust
talsmenn „þögia meirihlutans“ sem
vildi að deilan um framtíð Norður-
írlands yrði leyst með friðsamlegum
hætti.
Fregnir herma að leiðtogar
hermdarverkamanna úr röðum sam-
bandssinna hyggist koma saman
bráðlega til að ræða hvort þeir eigi
að ijúfa tveggja ára vopnahlé sitt
og hefna sprengjutilræðis IRA í
breskri herstöð á Norður-írlandi á
mánudag.
-----♦ ♦ ♦---
Ráð að sofa
í náttfötum
LEIGUBÍLSTJÓRA í Árhus í Dan-
mörku var brugðið þegar hann sá
nakinn mann á gangi á götunum í
nístingskulda að næturlagi nýlega,
að sögn dagblaðsins Berlingske Tid-
ende á föstudag.
Lögreglumenn voru sendir á stað-
inn og komust að því að maðurinn
var hvorki drukkinn, undir áhrifum
eiturlylja né genginn af göflunum
en á hins vegar vanda til að ganga
í svefni. Þeir óku manninum heim
og ráðlögðu honum að sofa í náttföt-
um hér eftir.
»
>
»
*
►
i
\
i
þ.