Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 39
BRÉF TIL BLAÐSINS
Um veiðileyfagjald
Frá Þorbergi Þórssyni:
ANDSTÆÐINGAR veiðileyfa-
gjalds hafa borið fram margvíslegar
röksemdir gegn því. Þeir hafa til
dæmis mótmælt þeirri útfærslu
veiðileyfagjaldanna, að þau verði
látin renna beint til ríkissjóðs. Sum-
ir þeirra segja að þjóðareign sé
óskilgreint fyrirbæri sem ekki sé
hægt að leggja að jöfnu við ríkis-
eign. Samt virðast flestir ganga út
frá því að ef arðurinn af fiskveiði-
réttindunum verður færður til þjóð-
arinnar, eins og réttmætt er, muni
hann renna beint í ríkissjóð. Á þeirri
hugmynd sjá svo margir ýmsa galla.
Nú er hægt að fara öðruvísi með
ákvæðið um „sameign þjóðarinnar“.
Hugsum okkur að þjóðin skipti fisk-
veiðiarðinum jafnt á milli sín. Það
verði túlkað þannig að sérhver nú-
lifandi (þálifandi) skattskyldur þegn
landsins fái á hvetju ári úthlutað
einum hlut kvótans af hverri fisk-
tegund. Svo er það í verkahring
hans að ávaxta þessa eign sína, sem
gæti numið allt að einum venjuleg-
um mánaðarlaunum á ári á mann,
þegar fiskveiðiarðurinn hefur vaxið
upp í það hámark sem reiknað hef-
ur verið með vegna aukinnar hag-
kvæmni veiðanna.
Framkvæmdin er einföld því um
leið og allir skattskyldir þegnar
landsins fá þennan hlut spretta upp
fyrirtæki sem bjóðast til að ráð-
stafa þessum eignum fyrir einstakl-
ingana. Vel má hugsa sér að við-
skiptabankarnir geti til dæmis boð-
ið upp á þægilega lausn á því máli
og séð um að senda kvótana á upp-
boð; og boðið einstaklingunum að
selja kvótana á hentugum tíma til
að greiða upp Visa-skuldir þeirra
og yfirdrátt.
Margir kostir eru við að láta
veiðileyfagjöldin renna fremur til
einstaklinganna í landinu en beint
til ríkisins. Ef þau rynnu beint til
ríkissjóðs er til dæmis hætt við að
ekki yrði eins vel með þau farið og
ef ef þau yrðu í höndum einstakling-
anna sjálfra, og með þessu mynd-
ast lítilsháttar viðnám við þeirri
útþenslu ríkisins sem annars mætti
kannski búast við.
ÞORBERGUR ÞÓRSSON,
Seilugranda 4, Reykjavík.
Góð sýning
Frá Rúnari Jóni Árnasyni:
Á HINUM ágætu lesendasíðum
Morgunblaðsins finnst mér ég oft-
ast lesa eintómar kvartanir og kvein
um strætisvagna, miðbæinn, nýbúa
og svona mætti lengi áfram telja.
Nú finnst mér ráð að breyta til því
ég get vart orða bundist yfir fá-
dæma skemmtilegri leiksýningu
sem ég sá í Borgarleikhúsinu á
dögunum.
Eg og konan mín brugðum nefni-
lega undir okkur betri fætinum eitt
laugardagskvöld og fórum á söng-
leikinn „Stone Free“.
Þegar við komum inn úr rigning-
unni kom okkur strax ánægjulega
á óvart að búið var að breyta inn-
ganginum og öllu andrúmsloftinu
sem venjulega er í húsinu. Þarna
var búið að koma upp snotrum tjöld-
um og leikarar úr sýningunni tóku
á móti okkur með léttara fasi en
ég er vanur alla jafna í leikhúsi.
Sýningin fannst mér fádæma
skemmtileg. Tónlistin og allur
flutningur hennar var stórkostleg-
ur. Þau Emilíana Torrini og Daníel
Ágúst voru hreint frábær. Það var
nú stór þáttur í því hvað þessi sýn-
ing höfðaði mikið til mín og konunn-
ar minnar að við erum af þessari
svokölluðu ’68 kynslóð. Þarna voru
leikin mörg uppáhaldslögin okkar
og margar persónurnar komu okkur
kunnuglega fyrir sjónir. Við hrein-
lega gleymdum okkur í anda liðinna
tíma.
Ég var stoltur af íslensku leik-
húsi þegar við fóram út í hryssings-
legt haustmyrkrið að lokinni sýn-
ingu. Ég vil þakka Leikfélagi
Reykjavíkur og frábærum lista-
mönnum þess fyrir góða sýningu
sem ég get hiklaust mælt með. Eg
og konan mín erum staðráðin í því
að fara aftur með krakkana og
sýna þeim að við gátum líka verið
skemmtileg.
RÚNAR JÓN ÁRNASON,
Eiðismýri 8a, Seltjarnarnesi.
Upplýsingar um
alnetstengingu við
Morgunblaðið
Tenging við heimasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast heimasíðu
Morgunblaðsins, sláið inn slóðina
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar upp-
lýsingar um blaðið, s.s netföng
starfsmanna, upplýsingar um
hvernig skila á greinum til blaðs-
ins og helstu símanúmer.
Morgunblaðið á alnetinu
Hægt er að nálgast Morgun-
blaðið á alnetinu á tvo vegu.
Annars vegar með því að tengjast
heimasíðu Strengs hf. beint með
því að slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða
með því að tengjast heimasíðu
blaðsins og velja Morgunblaðið
þaðan.
Strengur hf. annast áskriftar-
sölu Morgunblaðsins á alnetinu
og kostar hún 1.000 krónur.
Sending efnis
Þeir sem óska eftir að senda
efni til blaðsins um alnetið noti
netfangið: mbl@centrum.is.
Mikilvægt er að lesa vandlega
upplýsingar um frágang sem má
finna á heimasíðu blaðsins. Það
tryggir öruggar sendingar og
einnig að efnið rati rétta leið í
blaðið. Senda má greinar, fréttir
og myndir eins og fram kemur á
heimasíðu blaðsins.
Mismunandi tengingar
við alnetið
Þeir sem hafa Netscape/Mos-
aic-tengingu eiga hægt um vik
að tengjast blaðinu. Einungis þarf
að slá inn þá slóð sem gefin er
upp hér að framan.
Þeir sem ekki hafa Netscape/
Mosaic-tengingu geta nálgast
þessar upplýsingar með Gopher-
forritinu. Slóðin er einfaldlega
slegin inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota a.m.k.
14.400 baud-mótald fyrir
Netscape/Mosaic tengingar.
Hægt er að nota afkastaminni
mótöld með Gopher-forritinu.
SÓLHEIMAR 27 — OPIÐ HÚS
í dag kl. 14-17 er til sýnis 101 fm íb. á 8. hæð í góðu fjöl-
býlishúsi með lyftu. íbúðin er 4ra herb. og mjög rúmgóð.
Húsvörður er í húsinu.
Dagbjört tekur vel á móti þér.
Fasteignasalan Bifröst,
sími 533 3344.
Mímir
Tómstundaskólinn
Sími: 588 7222 / 588 2299
Fax: 533 1819
FLÍSAR
;:í rrH |\T1
lu W
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
"I
EIGULISTINN
LEIGUMIÐLUN
511-1600
ATVIN NUHUSNÆÐI
iIÓLl
FASTEIGN ASALA
Skipholti 50B, 2. hæð t.v.
511-1600
Við sérhæfum okkur í
otvinnuhúsnæði.
Hjó okkur er úrvolið.
Guðlougur Örn Þorsteinsson, rek-
strarverkfræðingur og Viðor
Kristinsson, sölumaður.
Fax 562 2330
Til sölu
Hlíðarsmári - Kóp.
Um 160 fm verslhúsn. á jarðhæð í nýju hús-
næði í Miðjunni. Um er að ræða endaeiningu
með glugga á þrjá vegu sem sjást vel frá nær-
liggjandi umferðargötu. Eignin verður afh.
tilb. til innr.
Til sölu í JL-húsinu!
Vorum að fá í sölu eftirtaldar einingar í JL-hús-
inu. Á 4. hæð nýlega innréttað skrifstofurými
ca 800 fm sem nú er leigt Siglingamálastofn-
un ríkisins auk samliggjandi skrifstofurýmis á
5. hæð hússins sem er ca 500-600 fm.
í bakhúsi eru til sölu ca 300 fm rými á 2. hæð
með inngangi af 1. hæð svo og ca 300 fm rými
á 3. hæó sem þarfnast lagfæringar en er
með mikilli lofthæð, byggingaréttur gæti hugs-
anlega fylgt 3. hæðinni. Aðrir eigendur í hús-
inu eru íslandsbanki, Nóatún og Landsbanki
íslands. í húsinu er m.a. rekin matvöruverslun,
blómabúð, bakarí, söluturn o.fl. Aðgangur að
fjölda bílastæða fylgir. Frábært útsýni yfir
hafið blátt. Verð: Tilboð.
Viðarhöfði
Mjög gott 1400 fm iðnaðar- og lagerhúsnæði
með 140 fm millilofti. Vinnusalurinn gefur
möguleika á fjórum innkdyrum og er með 5,5
metra lofthæð. Einnig er ca 500 fm þrískipt
tengibygging með þremur innkdyrum. Góðir
stækkunarmöguleikar eru fyrir hendi. Úti-
svæði stórt og öll aðkoma að húsinu góð.
Eignin er til sölu/leigu í heild eða einingum.
Auðbrekka - Kóp.
Ágætt iðnaðarhúsn. sem er ca 670 fm og
skiptist i tvær einingar sem auðvelt er að sam-
eina. Lofthæð er um 4,5 metrar. Skritstofur og
starfsmannaaðstaða er i báðum einingum.
Tvennar rafdrifnar innkeyrsludyr. 600 fm
steypt útivistarsvæði. Verð 26 millj.
Hverfisgata 33
Húsið er allt til sölu eða leigu samtals 920
fm á fjórum hæðum. Verslunarhæðin er
að mestu eitt opið rými. Á 2. hæðinni og i
risinu er innréttað skrifstofurými en lager-
rými með innkeyrsiudyrum í kjallara og að-
komu frá Klapparstíg. Byggingarréttur. Hús
í hjarta borgarinnar með mikla möguleika.
Verð 35 millj. Áhv. 20 millj.
Kjötvinnsla
Gott iðnaðar- og skrifsthúsn. alls ca 1030
fm. Eignin skiptist í vinnusali með innk-
dyrum, lagerrými, skrifstofur og aðstöðu
fyrir starfsmenn, Þetta húsnæði getur hent-
að fyrir ýmiskonar starfsemi aðra en kjöt-
vinnslu. Vel staðsett i austurborginni með
góðri aðkomu. Verð 36,2 millj.
Fyrir iðnaðarmenn
Gott 150 fm iðnaðarhúsnæði sem er eitt opið
rými. Hluti raf- og pípulagna er endurnýjaður.
Liggur vel við umferð. Hentar einnig vel sem
lagerhúsnæði. Verð 6 míllj.
Fiskvinnsla
Um 240 fm fiskVerkunarhús með innkeyrslu-
dyrum ásamt 60 fm millilofti. Tilvalið fyrir hvers
kyns matvælavinnslu. Tveir kælar eru á staðn-
um 12 og 24 fm og úttak fyrir reykofn. Nýleg
gólfílögn og gott vatnsrennsliskerfi. Ágæt
starfsmannaaðstaða. Verð 13,9 millj. Áhv.
10 millj.
Verslunarhúsnæði - Hf.
Ágætlega staösett 168 fm verslunarhúsnæði
ásamt lageraðstöðu við Hringbraut. Talsvert at
tækjum er til staðar. Á jarðhæð eru 3 iðnað-
ar- og lagerpláss með ágætri aðkomu. Ýmsir
möguleikar. Gott tækifæri.
Nálægt skólafólki
Ef skólafólk er þinn markhópur þá er þetta
rétta húsnæðið fyrir þig. Um er að ræða 600
fm húsnæði beint á móti Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti (2300 nemendur). Húsnæðið get-
ur hentað vel undir ýmiskonar þjónustustarf-
semi tengda námsfólki, heilsurækt ýmiskon-
ar, kaffihús, biljardstofu o.fl. Auðvelt er að
skipta húsinu í einingar frá 70-170 fm. Verð
22,2 millj.
Vinnuaðstaða/íbúð
Til sölu um 280 fm skrifstofuhúsnæði á 3.
hæð við Mjölnisholt sem nýlega hefur ver-
ið tekið í gegn að utan. Skrifstofurýmið
sem er ca 220 fm skiptist í opið vinnu-
rými, móttöku, tvær lokaðar skrifstofur,
fundarherb. og kaffihorn. (búðin er um 60
fm, stofa, eldhús, svefnherb., baðherb.
og geymsla. Parket. Verð 14,6 millj. Áhv. ca
8 millj.
Viðarhöfði
Óinnréttað 340 fm súlulaust skrifstofuhúsnæði
á 3. hæð með 170 fm svölum og frábæru út-
sýni. Raf- og hitalögn fyrir hendi. Ýmis eigna-
skipti koma til greina. Mikið áhv.
Til leigu
Mörkin
Mjög gott 160 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð
undir súð á þessum vinsæla stað. 5 lokuð
skrifstofuherb., fundarherb., móttaka, kaffi-
krókur og snyrting. Dúkur og teppi á gólfum.
Halogen-lýsing. Mánaðarleiga kr. 104 þús.
Matvælavinnsla í Reykjavík
Um 800 fm húsnæði sem var áður kjötvinnsla
og skiptist í 2-3 vinnusali, tvo frysta 40 og 60
fm og tvo kæla 50 og 70 fm. Ágæt starfs-
mannaaðstaða. Mánaðarleiga 240 þús.
Norðurstígur - miðbær
Tvær skrifstofueiningar 90 og 100 fm á 2. og
3. hæð með útsýni yfir gömlu höfnina. Báðar
einingarnar eru nánast opin vinnurými með
kaffiaðstöðu, geymslu og snyrtingu. Svalir.
Dúkur á gólfum. Mánaðarleiga 50-55 þús.
Suðurlandsbraut
- biáu húsin
Til leigu einstakl. snyrtil. og gott 150 fm skrif-
sthúsn. á 3. hæð. Eignin skiptist í 3-4 skrif-
stofuherb., móttöku og vinnurými í risi. Mán-
aðarleiga 100 þús.
Hús verslunarinnar
Gott 528 fm skrifstofuhúsnæði fyrir alvöru fyr-
irtæki á 5. hæð i þessu vel staðsetta og
þekkta húsnæði. Mögul. að skipta húsnæðinu
í tvær til þrjár einingar en i húsnæðinu eru 25
skrifstofuherb., 2-3 móttökur, stórt fundar-
herb. o.fl. Verð: Titboð.
Skemmuvegur - Kóp.
Prýðis 280 fm iðnaðarhúsnæði með tvennum
innkeyrsludyrum og 3,5 metra lofthæð. Hús-
næðið stendur á horni og sést vel frá götu.
Ágætt útipláss er fyrir framan og aðkoma góð.
Hentar undir ýmsan rekstur, t.d. bílaþjónustu.
Mánaðarleiga 120 þús.
Stórhöfði
Höfum fengið í sölu eða leigu glæsilegt 577 fm skrifstofu-
húsnæði á 2. hæð í þessu sérstaka húsi sem stendur fyrir
ofan Gullinbrú. (húsnæðinu eru 20 skrifstofuherb., góð mót-
taka, fundarherb, kaffistofa o.fl. Parket. Fallegt útsýni. Hús-
næði með gott auglýsingagildi, góða aðkomu og næg bíla-
stæði. Áhv. 25 millj.
Hringdu núna - við skoðum strax