Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR13. OKTÓBER 1996 35
I
!
I
■I
i
i
i
i
i
(
i
i
i
i
(
i
i
<
i
i
<
I
<
j
i
Bjartsýnin
lengi lifi!
LEIKLIST
Ilcrmódur og Iláövör:
BIRTINGUR EFTIR
VOLTAIRE
íslensk þýðing eftir Halldór Lax-
ness. Leikgerð eftir Erling Jóhairn-
esson, Gunnar Helgason og Hilmar
Jónsson. IjeikstJóri: Hilmar Jónsson.
Leikmynd: Finnur Arnar Amars-
son. Lýsing: Björn B. Guðmundsson.
Búningar: Þónrnn Jónsdóttir. Brúð-
un Katrín Þorvaldsdóttir. Tónlist:
Hákon Leifsson. Danshöfundur:
Auður Bjamadóttir. Leikendur:
Björk Jakobsdóttir, Erling Jóhann-
esson, Gunnar Helgason, Halla Mar-
grét Jóhannesdóttir, Jón Stefán
Kristjánsson, Jóna Guðrún Jóns-
dóttir, Sigurþór Albert Heimisson
og félagar úr Háskólakómum.
Hafnarfjarðarleikhúsið, föstudagur
11. október.
ÞEGAR fréttir bárust af því
að leikfélagið Hermóður og Háð-
vör hygðist setja á svið bók-
menntaperlu Voltaires L’Optim-
iste, Bjartsýnismanninn eða Birt-
ing eins og verkið heitir í ís-
lenskri þýðingu Halldórs Laxness,
hvarflaði að manni rétt sem
snöggvast hvort bjartsýnin væri
ekki að bera félaga Hafnarfjarð-
arleikhússins ofurliði.
En ef undirrituð hafði
einhverjar fyrirfram
efasemdir um þæfni
Hermóðs og Háðvarar
til að sviðsetja söguna
um hinn bjartsýna
einfeldning (Candide
- eins og Voltaire kall-
ar hann) Birting og
ferðalög hans um löng
og álfur, þá ruku þær
út í veður og vind við
fyrstu sýn. Leikhóp-
urinn hafnfirski hefur
unnið glæsilega og
metnaðarfulla leik-
sýningu, sem er tví-
mælalaust það
skemmtilegasta leik-
hús sem lengi hefur
boðist á stór- Reykja-
víkursvæðinu.
Hérna vinna allir
þættir saman að því
að skapa sýningu sem
er í senn veisla fyrir
augu, eyru og ímynd-
unarafl. Leikmynd er
með afbrigðum
skemmtileg, vel fyrir
komið og sniðuglega
nýtt; búningar eru
yndislegir og undir-
strika húmor verks-
ins; tónlistin er vönd-
uð, vel flutt og hæfir verkinu
fullkomlega; og frammistaða allra
leikara er með miklum sóma.
Hilmar Jónsson leikstjóri (og einn
af höfundum leikgerðar) hefur
áður sýnt ótvíræða hæfileika sína
á þessu sviði, en stjórn hans á
þessari fjölskrúðugu leiksýningu
hlýtur að teljast meiri háttar af-
rek.
Þremenningarnir Hilmar Jóns-
son, Gunnar Helgason og Erling
Jóhannesson hafa kallað verkefni
sitt, að gera leikgerð af bókinni,
bæði ögrandi og ógnvekjandi. En
slíkar eru oftast forsendur góðra
verka og hafa þeir félagar reynst
vandanum vaxnir. Leikgerð
þeirra er skotheld og með ólíkind-
um hversu vel þeim tekst að halda
atburðarás bókarinnar til haga,
svo og að notfæra sér hinn frá-
bæra texta verksins.
Sterkur leikarahópur
Gunnar leikur sjálfur titilhlut-
verkið og fer hann á kostum í
rullunni, sem er sem sniðinn fyrir
hann. Útlit hans og allt látbragð
er mjög sannfærandi og hef ég
aldrei séð Gunnar betri.
Hinir leikaramir sex sem eru í
aðalhlutverkum verksins leika allir
fleiri en eitt hlutverk og virtust
eiga auðvelt með að skipta frá einu
gervi í annað. Jóna Guðrún Jóns-
dóttir leikur Kúnígúnd, hina heitt-
elskuðu ástmey Birtings og tókst
vel upp, bæði í gervi fagurrar yng-
ismeyjar og ekki síður þegar yndis-
þokkinn hafði vikið fyiir árum og
biturri reynslu. Erling Jóhannesson
var skemmtilegur sem Kakambus,
ferðafélagi Birtings. Samleikur
þeirra Gunnars var fínn og vom
andstæður í persónu hvors fyrir sig
sniðuglega skerptar. Björk Jakobs-
dóttir fór á kostum í hlutverki kell-
ingarinnar sem misst hafði þjó-
hnappinn og var atriðið þar sem
hún segir sögu sína með þeim bestu
í röð margra góðra atriða. Einnig
var hún eftirminnileg sem frönsk
léttúðardrós. Halla Margrét Jóns-
dóttir fór vel með sín mörgu hlut-
verk og kitlaði hláturstaugar áhorf-
enda bæði sem Don Femando og
sem vandlát kona í París. Jón St.
Kristjánsson skapaði eftirminnileg-
ar persónur og var skipting hans
milli ólíkra hlutverka mjög fag-
mannleg. Hann sýndi frábæra
skoptakta í hlutverki greifans, gyð-
ingsins og Jakobs betrumskírða.
En bestur var hann kannski í hlut-
verki svartsýnismannsins Marteins,
sem er hið heimspekilega mótvægi
við bjartsýnismannsins Altungu,
vinar og uppfræðara Birtings. Sig-
urþór Albert Heimisson var ömgg-
ur í hlutverki Altungu og naut sín
betur eftir því sem ástand heim-
spekingsins ódrepandi varð bág-
bomara.
Enda þótt leikararnir standi sig
allir vel sem einstaklingar skiptir
ekki síður máli hvernig þeir ná
að vinna saman sem hópur. Fjöldi
atriða leiksýningarinnar er sam-
settur einmitt úr hópsenum þar
sem mæðir á samleik og heildar-
svip. Mörg skemmtilegustu
augnablik sýningarinnar em ein-
mitt úr slíkum hópsenum, t.d.
atriði meðal „listunnenda" í París
og meðal „villimanna“ í frum-
skógi Suður-Ameríku.
Það er sjaldgæft að sjá svo jafn-
sterkan leikarahóp eins og á þess-
arri sýningu. Jafnvel þótt nokkur
frumsýningarskjálfti hafi gert
vart við sig í örfáum mismælum
og ónákvæmni í tímasetningu,
átti hópurinn auðvelt með að
heilla áhorfendur. Einnig er vert
að taka fram að statistar úr Há-
skólakórnum stóðu sig með sóma.
Frá bók á svið
Þótt manni finnist, við lestur
bókar Voltaires, að verkið geti
hvergi betur notið sín en einmitt
í sínu eigin formi, hefur mynd-
rænn textinn og dramatísk fram-
vinda hans freistað margra lista-
manna gegnum tíðina. Þannig
hefur verkið ótal sinnum áður
verið sett upp í formi leikrita,
balletta, söngleikja, óperu, brúðu-
leikhúss og teiknimynda. í leik-
gerð Hermóðs og Háðvarar er
vitnað í þessa löngu „uppfærslu-
hefð“ verksins á mjög skemmti-
legan hátt. Þannig finnast innan
sýningarinnar tilvísanir til óperu,
söngleiks, brúðuleik-
húss og jafnvel teikni-
mynda. Slíkar tilvitn-
anir koma óvænt inn
í atburðarás leiksins,
eru sniðugar og auka
vídd sýningarinnar.
Einnig leyfir hópur-
inn sér að bæta inn í
verkið nokkrum nú-
tímaskírskotunum, en
slíkt er þó mjög í hófi
gert og er aðeins til
að auka á húmorinn.
Finnur Arnar Arn-
arsson hefur það erf-
iða verkefni að gera
leikmynd í hráu rými
leikhússins sem ætla
mætt að hefði ýmsar
takmarkanir sem svið
til leiksýningar. En
áhorfandinn finnur
aldrei fyrir þeim tak-
mörkunum, þvert á
móti er leikmynd
Finns Arnars einn af
burðarásum sýning-
arinnar í heild. Það
sama má segja um
lýsingu Björns B.
Guðmundssonar; hún
leikur burðarmikið
hlutverk í sýningunni
og er útsjónarsam-
lega hönnuð inn í leik-
mynd Finns Arnars. Hérna hefur
góð samvinna greinilega átt sér
stað. Búningar Þórunnar Jóns-
dóttur eru síðan punkturinn yfir
i-ið - hannaðir af mikilli kímnig-
áfu og list.
Hákon Leifsson semur tónlist við
sýninguna og hefur hann tekið
mið af miðaldatónlist, þótt líka
bregði fyrir nýrri töktum. Tónlist-
in er flutt lifandi, sýninguna út í
gegn, og eykur það vissulega á
áhrifagildi hennar. Tónlist Há-
kons féll mjög vel að öðrum þátt-
um sýningarinnar og átti sinn
þátt í að skapa hinn góða heildar-
svip.
Að síðustu legg ég að sjálf-
sögðu til að Hermóður og Háðvör
hljóti Bjartsýnisverðlaun Bröstes
í ár fyrir stórglæsilega sýningu.
Soffía Auður Birgisdóttir
Morgunblaðið/Golli
GUNNAR Helgason fer á kostum í hlutverki Birt-
ings, segir í dóminum.
Ármúla 1, sími 588 2030 - fax 588 2033
OPIÐ í DAG MILLI 12—14
FROSTAFOLD - GÓÐ ÍBÚÐ OG HAGSTÆÐ LÁN
Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli, þar af
6 fm geymsla. Sérþvottahús í íbúð. Frábært útsýni.
Stutt í alla þjónustu. Laus fljótlega.
Verð 7.950.000. Áhv. byggsj. 5,2 millj.
HJARÐARHAGI - HÆÐ
Góð 131 fm hæð við Hjarðarhaga. Stórar stofur, góðar
suðursvalir, 3 svefnherbergi.
Verð 10,9 millj. Áhv. 5,7 millj.
TRÖNUHJALLI - HAGSTÆÐ LÁN
Nýleg mjög góð 2ja herb. íbúð á 2. hæð. Glæsilegt útsýni.
Suðursvalir.
Verð 6,6 millj. Áhv. byggsj. 4,1 millj.
Viltu verða
vinur?
Kynningarfundur fyrir verðandi sjálfboðaliða Vinalínunnar verður haldinn
miðvikudaginn 16 októberkl. 20.30 í Þverholti 15. Sjálfboðaliðar
Vinalínunnar eru ekki sérfræðingar, heldur venjulegt fólk, sent vill deila
með öðrum reynslu sinni og tíma. Markmið okkar er að vera til staðar,
hlusta og gera okkar besta til að liðsinna þeim sem hringja.
Upplýsingar veittar í símum Vinalínunnar fyrir hádegi og á kvöldin.
Allir 25 ára og eldri velkomnir.
Vinalínan+
Sími 561 6464 Grænt númer 800 6464
Reykjavíkurdeild Rauða krossins.
-Ábyrg þjónusta í áratugi.
Sími 588 9090 - Fax 588 9095
Síðumúli 21.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
EINBÝLI
Fornaströnd. Vorum að fá í sölu
glæsilegt 258 fm vel byggt einb. með innb. bíl-
skúr. Nýtt þak. Fráb. útsýni. Skipti á minni eign
koma til greina. V. 19,6 m. 6676
Miðtún. Vomrn að fá til sölu tvílyft 225 fm
einb. sem mikið hefur verið standsett. Á hæðinni
eru m.a. 3 herb., 2 stofur, eldh., bað o.fl. Allt
endumýjað. í kj. eru m.a. 5 herb. o.fl. Samþ. teikn.
að 36 fm bílskúr. Skipti á hæð á Teigunum æski-
leg. V. 13,5 m. 6636
Þverholt-áhv. 5 m. Giæsiieg ib. a
3. hæð í steinhúsi. íb. hefur öll verið standsett,
nýjar hurðir, nýtt parket, nýtt eldhús, nýl. bað,
rafl. o.fl. Laus strax. Áhv. 5,1 m. V. 7,2 m. 6669
Tjarnarból. 5 herb. falleg íbúö á 2. hæö.
Parket. Góðar innr. Sérþvottah. á hæð. Mjög
gott geymslurými á jarðh. Góð sameign. V. 8,5
m. 6635
Miðbær - 2 íbúðir. Vorum aö fá í
sölu tvær 2ja-3ja herb. íbúðir í sama húsi sem
eru báðar um 60 fm að stærð. Seljast saman
eða i sitt hvoru lagi. V. 4,3 og 5,4 m. 6661
Selvogsgata - Hf. 3ja-4ra herb 76
fm íb. á 1. hæð með sérinng. á góðum stað.
2-3 svefnh. Laus strax. V. 5,5 m. 6666
Skaftahlíð. 3ja herb. einstaklega falleg
og björt 86 fm íb. Nýtt bað. Endurn. eldhús,
góð gólfefni. Nýl. vandaðir skápar. Laus strax.
V. 6,7 m. 6665
Nökkvavogur. 3ja herb. mjög björt og
falleg íb. í kj. Nýtt eldhús, nýtt bað, nýir gluggar,
parket, skápar o.fl. Ákv. sala. Verö tilboð. 6672
Trönuhjalli - glæsileg.
Gulifalleg ca 95 fm to. á 2. hæö i verölaurta-
bbkk. Sérþvottah. Stor og ^ört lierb. og fan-
egt útsýni. Áhv. byggq. 5,2 m. V 8,9 m. 6581
Verslunar- og skrifstofupláss óskast - háar greiðslur í
boði. Traustir fjárfestar hafa beðið okkur að útvega verslunar- og skrif-
stofupláss, helst pláss sem eru i leigu. Kaup á eignum (gjarnan
nokkrum plássum) fyrir allt að 100-150 millj. koma vel til greina. Nánari
uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
Sóivallagata 27, 3. h. - OPIÐ HÚS. Glæsileg 3ja herb. 85 fm íb. á 3. hæð. Vandaðar innr. Nýl. innr. í eldhúsi. Parket. Tvennar svalir. Falleg eign. íbúðin verður til sýnis í dag sunnudag milli kl. 16 og 18. V. 7,4 m. 6645
Álfhólsvegur 63 - OPIÐ HÚS. Björt 73 fm íb. á 2. hæð í góðu fjórbýli. Nýl. eldhúsinnr. Góðar svalir útaf stofu. Fallegt útsýni. Áhv. hagstæð lán 4,2 m. íb. verður til sýnis I dag sunnudag milli kl. 13 og 15. V. 5,9 m. 6062