Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Umdeildar kenningar halda því fram að ýmis manngerð efni í umhverfinu leiði til minnkandi sæðisframleiðslu í körlum um heim allan, skrifar Hugi Olafsson. Islendingar ættu að leggja hlustir við þessa umræðu: Efnamengun af þessu tagi finnst í auknum mæli í úthöfunum og á norður- slóðum og sums staðar er sérstaklega varað við fiskneyslu vegna hennar ÞÚSUNDIR manna dóu eða fæddust vanskapaðir í Minamata í Japan á 6. áratugnum eftir að hafa neytt kvikasiifursmengaðs fisks. Mengun af völdum „hormónaherma“ getur einnig valdið fósturskaða. Þessi kunna ljósmynd W.Eugene Smiths, Tomoko í baðinu, sýnir hvar eitt fórnarlamba mengunarinnar er baðað af móður sinni. H eimsendir hefur löngum verið mannskepnunni hugleikið við- fangsefni, ekki síst þegar líður að tímamótum eins og árþúsunda- skiptum. Það er enginn skortur á ógnum sem steðja að mannkyninu, frá kjamorkuvopnum til ýmiss kon- ar umhverfisvanda á borð við eyð- ingu ósonlagsins, veðurfarsbreyt- ingar af mannavöldum eða hrika- legar hungursneyðir í kjölfar of- Qölgunar. A undanfömum misserum hefur athygli vísindamanna og ijölmiðla beinst að nýrri ógn. Ýmis mann- gerð efni hafa þann eiginleika að líkja eftir virkni kvenhormónsins estrógens og annarra lífrænna boð- skiptaefna, sem getur ruglað lík- amsstarfsemi lífvera í ríminu, ekki síst kynlíf þeirra. Þar sem mikið er af þessum efnum í umhverfinu hafa fundist tilfelli um krókódíla með uppdráttarsýki, tvíkynja fiska og fleiri slík kynleg fyrirbæri, jafn- vel hér við íslandsstrendur. Hugsanlega eru þetta váboðar verri tíðinda. Sumar rannsóknir benda til þess að sæðisframleiðsla hjá karlmönnum víða um heim hafi minnkað á undanförnum ára- tugum og margir vilja kenna um aukinni efnamengun í umhverfinu og fæðunni sem við neytum. Svart- sýnustu spámennirnir boða að þessi þróun haldi áfram og kunni að ná því stigi að karlar verði upp til hópa ófrjóir í ekki allt of fjarlægri framtíð. Samkvæmt því er hér um ógn við sjálfa karlmennskuna og viðkomu mannkyns að ræða sem þarf að bregðast við. Hugtakið „náttúruvernd" öðlast nýja og víð- tækari merkingu í þessu samhengi. Nýleg bók sem boðar þessa kenningu, „Stolin framtíð“, hefur vakið nokkra athygli í Bandaríkj- unum. A1 Gore varaforseti lofar hana í inngangi og segir hana eiga brýnt erindi við okkur þar sem hún varði ekki minna efni en tilvist komandi kynslóða. Sérfræðinga greinir á um hve alvarlegt vanda- mál er hér á ferðinni, en umræða um „efni sem trufla innkirtlastarf- semi“ — sem e.t.v. mætti nefna hormónaherma á íslensku — verður æ fyrirferðarmeiri í vísindatímarit- um og á alþjóðaráðstefnum. Sú umræða kemur okkur íslendingum e.t.v. meira við en mörgum öðrum, en það stafar m.a. af því að sum þessarra efna hafa fundist í óvenju miklum mæli á norðurheimskauts- svæðinu og þau finnast einnig í vaxandi mæli í úthöfunum. Umræðan nú er ekki í fyrsta sinn sem meng- un af völdum manngerðra efna kemst í sviðsljósið. Árið 1962 sendi bandaríski líffræðing- urinn Rachel Carson frá sér bókina Raddir vorsins þagna, sem vakti líklega meiri athygli en nokkur önnur bók um umhverfismál fyrr og síðar. Þar vakti hún athygli á Þegar raddir vorsins þögnuðu mengun af völdum skordýraeiturs- ins DDT og skyldra efna og áhrif- um þeirra á dýr og menn. DDT hélt að sönnu skordýrap- lágum í skefjum — um hríð að minnsta kosti, því mörgum tegund- um tókst undraskjótt að aðlaga sig efninu — en eitrið safnaðist fyrir í fæðukeðjunni og olli því m.a. að spörfuglar drápust sums staðar í stórum hrönnum. Vorum við tilbúin að fóma röddum vorsins til þess að ná eilítilli uppskeruaukningu í nokkur ár, spurði Carson. Og hveij- ar yrðu langtímaafleiðingarnar af eitrun umhverfisins fyrir tegund sem er í efsta hlekk fæðukeðjunn- ar: manninn? Bók Carsons og rannsóknir vís- indamanna urðu til þess að notkun á DDT var bönnuð í Bandaríkjun- um og flestum öðram vestrænum iðnríkjum. Raddir vorsins fóru svo smám saman að heyrast aftur á ný þar sem þær höfðu hljóðnað í bandarískum og evrópskum smá- bæjum. Sagan er þar með ekki öll. DDT er enn í notkun víða um heim, eink- um í hitabeltislöndum. Á þeim stöð- um sem notkun DDT er bönnuð finnst efnið einnig enn í ríkum mæli í umhverfinu, þar sem það brotnar mjög hægt niður: Helming- unartími þess er um 50 ár. Efna- mengun er ekki fyrir bí þó að DDT og nokkur önnur efnasambönd hafí verið bönnuð í vestrænum löndum. Þannig má nefna að heild- arframleiðsla svokallaðra PCB- efna — sem voru m.a. mikið notuð í rafmagnstæki og teljast mjög ei- trað — er áætluð yfir ein milljón tonna. Nær þriðjungur af þessu magni hefur borist út í umhverfið og um 97% af því í hafið. Sá flokkur efna sem DDT og PCB teljast til hafa verið kölluð þrávirk lífræn efni á íslensku, en með orðinu „þrávirk" er vísað til þess að þau brotna seint niður í náttúranni. Þessi manngerðu efni era flest klórkolefnissambönd, sem leysast illa í vatni, en vel í fítu. Þess vegna er erfitt að finna þau í mælanlegu magni í sjó, en þau fínnast hins vegar yfírleitt í lifur og öðrum fituríkum vefjum lífvera — því meir sem ofar dregur í fæðukeðjunni. Þrávirk lífræn efni eru flest nokkuð rokgjörn, sem veldur því að þau geta borist lang- ar leiðir í loftinu, en falla til jarðar — eða sjávar — þegar kólnar. Þetta skýrir væntanlega hvers vegna mengunarefni frá iðnaði og skor- dýraeitur frá hitabeltislöndum finnast í svo miklum mæli sums staðar á norðurslóðum: Þau berast í norður með ríkjandi vindáttum eða Golfstraumnum og finna sér svo endanlega samastað í feitum sel á Beringssundi eða hvítabimi á Svalbarða. Sumir hafa jafnvel látið í ljós ótta um að hátt hlutfall meng- unarefna í hvítabjörnum, sem eru efsti hlekkurinn i fæðukeðjunni á norðurhjara heimsins, kunni að ógna tilvist tegundarinnar. Það er reyndar vandfundinn sá blettur á jörðinni þar sem ekki er að finna nein þrávirk lífræn efni. Þau finnast í haftyrðlum í Grímsey jafnt sem holræsarottum í New York. Líklegast fyrirfinnast þau í einhverju magni í hvetju einasta mannsbarni á jörðinni og þau ber- ast frá móður til afkvæmis. Rachel Carson Tvíkynja fiskar og kvenlegir krókódílar benti einkum á krabbameins- i valdandi áhrif ' DDT, þegar hún ________________[ reyndi að út- skýra hvaða ógn heilsu manna stafaði af efninu. Það er hins vegar tiltölulega nýlega sem menn fóru verulega að gefa því gaum hvaða áhrif manngerð efni hafa á starfsemi innkirtla og boðskiptakerfi lífvera. Hormónar eru sendiboðar líkam- ans. Hinir þekktustu eru líklega adrenalín, sem skipar hjarta og vöðvum að vinna hraðar þegar hættu ber að höndum, og kynhorm- ónarnir estrógen og testósterón, sem halda fólki við efnið þegar kemur að viðhaldi tegundarinnar. í náttúrunni er að finna fjölmörg efni sem líkja eftir virkni hormóna á borð við estrógen. Slíka náttúra- lega hormónaherma er m.a. að finna í grasi og fleiri plöntum og eru þeir hluti af eins konar eitur- hernaði jurtanna gegn grasbítum. Dýrin þróa hins vegar smám saman með sér varnir gegn hveiju nýju efni og þannig kemst á ógnaijafn- vægi í vopnakapphlaupi hinnar darwinísku lífsbaráttu. Margir vísindamenn hafa bent á að slíka náttúrulega hormóna- herma sé að finna í mun ríkara mæli í flestu því sem við leggjum okkur til munns en manngerð mengunarefni. Á móti er bent á að dýr hafa haft milljónir ára til að þróa með sér varnir gegn slíkum efnum. Nú hafa hins vegar yfir 50 manngerð efni verið skilgreind sem hormónahermar, þ. á m. mörg þrávirk lífræn efni á borð við DDT og PCB. Hvað gerist þeg- ar hanastéli af nýjum efnasam- böndum með óþekkta virkni er allt í einu hellt í stóram skömmtum út í umhverfið? Svarið er m.a. að fínna í Apopka- vatni í Flórída, þar sem mikið magn spilliefna frá landbúnaði og iðnaði hefur safnast fyrir. Þar þjást karlkyns krókódílar af uppdráttar- sýki, sem telja má víst að stafi af mengunarefnum sem líkja eftir virkni kvenhormóna. Slíkrar upp- dráttarsýki hefur líka orðið vart hjá otrum í Washington-ríki í Bandarikjunum og í enskum ám og vötnum hafa karlkyns fiskar breyst í tvíkynja og ófijóa einstakl- inga. Það þarf reyndar ekki að leita langt út fyrir landsteinana til að finna dæmi um viðlíka tilvik. Rann- sóknir á vegum Líffræðistofnunar háskólans hafa leitt í ljós að meng- un af völdum skipamálningar hefur valdið vansköpun í nákuðungum við sunnanverðan Faxaflóa, eink- um í grennd við höfuðborgarsvæð- ið. Þar lýsir vansköpunin sér í því að kvenkynið myndar karlkyns kynfæri og endar með að dýrin V i I t » ! I I i t I I t i g I I I I I I I J| ;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.