Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Tommi og Jenni
Ljóska
rehr@at-beam.com
Smáfólk
1 NOUJ MAVE three
PHIL0S0PHIE5..."UPE 60E5
ON," "WHO CARES?" ANO
"UOU) 5H0ULD I KKIOU)?"
WHO CARES7H0U) 5H0ULD
I KNOU)? LIFE 60ES ON í
Nú á ég þrjú einkunnarorð „lifið
heldur áfram“, „gildir einu“ og
„hvernig ætti ég að vita það?“
Mjög djúphugsað, ha? Kannski Gildir einu! Hvernig ætti ég að
dálitið of djúphugsað ... vita það? Lifið heldur áfram!
Húsnæðisstefna
R-listans
Frá Jóni Kjartanssyni:
MARGIR bundu vonir við sigur R-
listans hér í borginni fyrir tveimur
og hálfu ári, ekki síst ungt fólk og
aðrir sem höllum fæti standa í lífs-
baráttunni. Fyrir kosningar lagði
undirritaður áherslu á tvö mál sem
sérstaklega vörðuðu áðurnefnt fólk.
Það voru húsnæðismál og almenn-
ingssamgöngur. Strætó var í upp-
námi á tíma eins og flestir muna
og húsnæðisstefnan að sliga fólk.
Hvorutveggju þurfti að breyta.
Hvernig standa svo málin eftir tvö
og hálft ár? Strætó er enn í upp-
námi, tillögum um breytingar á að
fresta til vors og nota farþegana sem
tilraunadýr í vetrarfærðinni. Ekki
tekur þó betra við þegar kemur að
húsnæðismálunum. Húsnæðisnefnd-
in situr óbreytt sem fyrr, þrátt fyrir
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá
21. maí sl. en forstjóralaus því Guð-
rún Árnadóttir sem gegnt hefur
starfinu frá andláti fyrrv. forstjóra
hefur enn ekki verið skipuð í starf-
ið. Ég er ekki einn um að telja skip-
un Guðrúnar forsendu þess að ný
vinnubrögð verði tekin upp. Varð-
andi leiguíbúðir borgarinnar er fyrst
að nefna að íbúum í nokkrum íbúð-
um við Tjarnargötu var sagt upp,
ekki dugði þó venjuleg uppsögn því
hlaupið var með málið í sjónvarp
eins og um sakamál væri að ræða.
Síðan hefur leigan á íbúðum Félags-
málastofnunar verið hækkuð svo
nær dregur markaðsleigu þótt fólkið
fái ekki húsaleigubætur. Þarna búa
flestir við litlar tekjur og engin úr-
ræði í húsnæðismálum eins og kerf-
ið er. Sumir eiga erfitt með að greiða
þessa leigu og sumt af því sjúkling-
ar með önnur vandamál en þau fjár-
hagslegu. T.d. ræddi geðlæknir við
mig nýlega um áhyggjur vegna
sjúklinga sinna. Á þetta fólk hefur
nú verið sigað innheimtulögmönn-
um, en slíkt hefur ekki áður þekkst.
Er engu líkara en borgarstjórn telji
að þarna sé að finna helstu gróða-
menn í borginni, kannski þær 14
fjölskyldur sem mest var talað um
fyrir kosningarnar. Hver á svo að
borga þessum innheimtumönnum?
Varla búast menn við að allslaust
fólki geti greitt innheimtulögmönn-
um laun, þótt það geti ekki greitt
leiguna? Vitaskuld hlýtur kostnað-
urinn að lenda á borgarsjóði. Hingað
til hefur verið hægt að tala við fólk
um breytingar, en það er víst ekki
lengur.
JÓN KJARTANSSON
frá Pálmholti,
formaður Leigjendasamtakanna.
Forsetinn
og dægurþrasið
Frá Þorleifi Kr. Guðlaugssyni:
KOMIÐ hefur upp ágreiningur milli
þingmanna og forseta íslands, Ólafs
Ragnars Grímssonar, um viðhafðar
yfirlýsingar forseta um ástand vega
á Vestfjörðum sem eðlilega sýnist
vera í slæmu ástandi eftir myndum
að dæma og hefur sést fyrr, eins
og Halldór Blöndal vék að í sjón-
varpi á dögunum. Nú er deilt um
það hvort forseti á að gerast þing-
maður líka og beijast fyrir bættum
samgöngum og er ég algjörlega
sammála þeim þingmönnum sem
tjáðu sig um ummæli forsetans og
var búinn að móta mér skoðun í
orðum forseta áður en álit sam-
gönguráðherra kom fram á Stöð 2.
Olafur Ragnar Grímsson sagði ekki
orð um þessi mál vinanna sinna á
Vestfjörðum þegar hann var þing-
maður og efa ég jafnvel að forsetinn
núverandi hafi greitt atkvæði með
lagningu Vestfjarðarganga á þingi
er til atkvæðagreiðslu kom um fram-
kvæmdina miklu við Vestfjarðagöng
undir Breiðadals- og Botnsheiði sem
mun afstýra mannskaða um ókomin
ár og skal meta það þegar tekið er
tillit til forgangs, eins og Halldór
Blöndal minntist á. Ekki verður allt
gert í einu hasti, þvílíkt er ástand
þjóðmála í efnahag og er það ekki
við núverandi stjórn að sakast ef lit-
ið er til rótar þeirra mála.
Ég lít svo á að forsetinn sé farinn
að vinna sig aftur inn í þras dægur-
málanna og sé búinn að fyrirfara
friðhelgi embættis síns og sé nú
þörf aðgæslu og haga orðum betur
ef forðast á gagnrýni, nema hann
sé að gerast verndari vegagerðar á
landi hér, eins og forsetinn mótar
orðafar sitt og er það annað mál en
að vera verndari skógræktar á ís-
landi sem varðar jafnvel allan heim-
inn, allt líf á jöðrinni.
Vissulega hefur forsetinn mál-
frelsi en hann á að geta hagað orð-
um sínum á annan máta, annars
má búast við átökum innan forseta-
embættisins sem ekki þekktust fyrr
og þá er forsetaembættið óþarft,
jafnvel skaðlegt einræði.
ÞORLEIFUR KR. GUÐLAUGSSON,
Nökkvavogi 33, Reykjavík.
Hvað skal segja? 37
Væri rétt að segja: Sífellt fjölgar áhangendum hans.
Svar: Orðið áhangandi er eins og svo margt fleira komið úr
þýsku um dönsku og þykir ýmsum ekki sem snotrast. Gott má!
væri: Sífellt fjölgar fylgismönnum hans.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, e{ ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.