Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.10.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 15 Fyrir galleríið TONLIST Listasafn Kópavogs KAMMERTÓNLEIKAR Verk eftir Kuhlau, Mozart, Bach, Liszt, Doppler, Schubert og Dvorák. Guðrún Birgisdóttir, Martial Narde- au, flautur; Peter Máté, pianó. Lista- safni Kópavogs (Gerðarsafni), mið- vikudaginn 9. október kl. 20:30. SUNNAR í álfu þekkist máltæk- ið „að leika fyrir galleríið“. Gallerí er þar að vísu fremur í merking- unni „síðri sæti“ en „myndlista- safn“, en annars átti hvort tveggja nokkurn veginn við um tónleika ofangreindra þremenninga sl. mið- vikudagskvöld. Tónleikarnir fóru fram í véi lína og lita, og verkefnav- alið var fislétt. Undirritaður hefur áður orðið uppvís að því að velta fyrir sér inn- taki léttleikans í tónlist á prenti. Tvenns konar misskilnings virðist iðulega gæta; annars vegar, að létt tónlist sé undantekningarlaust rýr í roðinu og hins, að hún sé auðflutt- ari en önnur. Fyrra atriðið stóðst að hluta hvað varðar efnisskrá, þvi „sígaunalög- in“ Tveir gítarar og Svörtu augun (sem maður hélt að væru rússnesk þjóðlög) í lok tónleikanna mynduðu, þrátt fyrir glæsilega spilamennsku, óhjákvæmilega hádeyðu við það sem meira hafði til brunns að bera, jafnvel þótt sumt jaðraði við hljóm- skálamúsík, eins og Minningar frá Prag þeirra Doppler-bræðra. Hin hégiljan, að auðvelt sé að leika létta tónlist, stafar mest af galdri hins , frábæra flytjanda, sem kemur for- sendulausum hlustanda til að halda um stundarsakir að þessi kynngi- kliðmýkt sé kálfskinn eitt. Það mátti enda til sanns vegar færa, að hljóðfæraleikur þremenn- inganna náði svo til fullkomlega að dylja hve mikla vinnu þarf til að ná jafnmikilli fágun og samstillingu og hér gat að heyra - þ.e.a.s. að svo miklu leyti sem hin - því miður - fremur glamrandi akústík Gerð- arsafns leyfði. Tónleikaskráin var afar upplýs- ingasnauð. Verst var þó, að hvergi var aukatekinn stafur um hvað væri frumsamið fyrir flautu(r) og hvað ekki; s.s. hvað væri útsett, og 'úr hveiju, né heldur hveijir útsetjar- ar væru. Hafí flytjendur sjálfir átt einhveija hönd í bagga, er það mis- skilið lítillæti að láta það ekki koma fram. Danska tónskáldið Friedrich Ku- hlau, eitt sinn þjórvinur Beethovens og skotmark fyrir keðju hins síðar- nefnda, „Kúhl, nicht lau“ (svalur, ekki volgur), hefur lön^um verið í uppáhaldi hjá norrænum flautuleik- urum, enda reit hann á skammri ævi ógrynni verka fyrir hljóðfærið í ýmsum samsetningum. Það má þvi léiða að líkum, að tríóið í G-dúr Op. 119 hafi í raun og veru verið samið fyrir áhöfn kvöldsins. Þetta var létt og liðug góðborg- aramúsík frá Biedermeyer-tíma, trúlega hugsuð fyrir heimilismúsís- eringu á betri bæjum, en þó vel Galdramenning, barnabækur og listin að yrkja ENDURMENNTUNARSTOFNUN Háskóla íslands gengst fyrir nám- skeiði um trú, töfra og særingar, öðru um íslenskar barnabókmenntir og þriðja námskeiðið er um listina að yrkja. Næstu fjögur mánudagskvöld verð- ur námskeiðið um trú, töfra og sær- ingar og verður leiðbeinandi Matthías Viðar Sæmundsson dósent í íslensk- um bókmenntum við HI. „íjallað verður um íslenskt hugarfar á fyrri öldum, samband galdurs og ljóðlistar, vættatrú og hlutverk galdra í daglegu lífi,“ segir m.a. í kynningu. Barnabókmenntír Næstu sex þriðjudagskvöld verður námskeið um íslenskar barnabók- menntir, þar sem leiðbeinandi verður Silja Aðalsteinsdóttir bókmennta- fræðingur. Einnig verða gestafyrir- lestrar nokkurra íslenskra barna- bókahöfunda. „Fjallað verður um hvenær fyrst Soren Robert Lund heldur fyrirlestur í Norræna húsinu DANSKI arkitektinn Soren Robert Lund heldur fyrirlestur í Norræna húsinu mánudaginn 14. október kl. 20 sem hann nefnir Milli innblásturs og veruleika. Soren Robert Lund er höfundur hins nýja listasafns „Arken“ í Koge í Danmörku sem var opnað í mars sl. Þetta nýja nútimalistasafn hefur vakið mikla athygli fyrir frumlegt útlit og hönnun. Hann vann fyrstu verðlaun í samkeppni um hönnun listasafnsins sem haldin var árið 1988 og hefur hann hlotið fjölda voru gefnar út bækur handa íslensk- um börnum og hver var hugmynda- fræði þeirra. Hvenær urðu til frum- legar íslenskar barnabækur, hvernig þróuðust þær og hvaða hugmyndir gefa þær af landi og þjóð? Saga ís- lenskra bamabókmennta til 1985 verður rakin og síðan verða teknar fyrir barnabókmenntir frá síðustu tíu árum,“ segir m.a. í kynningu. Listin að yrkja Næstu sjö miðvikudagskvöld verð- ur námskeið um listina að yrkja. Leiðbeinandi verður Þórður Helgason bókmenntafræðingur og rithöfundur, lektor í KHÍ. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa hug á að þjálfa sig í ljóðagerð. Á námskeiðinu verður leitast við að kynna sem flestar tegundir ljóða, hefðbundin ljóð jafnt sem „nútíma- ljóð“ og eiga nemendur að skila frumsömdum ljóðum, sem verða rædd í tímum annarra viðurkenninga fyrir verk sín. Þetta er annar fyrirlesturinn í röð- inni „Tilbrigði við húsagerð" sem Norræna húsið, Listasafn Reykjavík- ur og Arkitektafélag Islands standa sameiginlega að. Fyrirlesturinn fer fram á dönsku. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. samin, og eins og allt sem á eftir kom skínandi vel leikin. Ef leitað yrði í krók og kima mætti kannski helzt fetta fingur í styrkbeitingu píanistans, sem var fullvökur (eink- um í neðri enda skalans) í lokaþætt- inum, og gerði það yfirbragðið svo- lítið órólegt. Hins vegar bar ekkert á þeim agnúa það sem eftir var kvölds. Andante í C-dúr K 315 eftir Mozart reyndist að vísu frumsamið fyrir flautu og píanó (eða sembal), eins og sjá mátti með því að fletta upp í Köchelskrá. Guðrún Birgis- dóttir og Peter Máté léku stykkið mjög fallega, og þau Martial saman án undirleiks „Badinerie“-lokaþátt- inn úr 2. hljómsveitarsvítu Bachs í h-moll; nú til dags eitt af þessum óslítandi kynningarstefjum út- varpsþátta. Þó áð leikið væri af smitandi gáska, var hér samt kom- ið út á varhugaverða braut hvað umritunarstefnu varðar, því neðri flauturöddin samanstóð af upp- tínslubrotum ýmist úr fylgibassa- rödd eða innröddum strengjasveit- ar, og því músíklega hvorki fugl né fískur. Peter Máté lék Liebestraum Liszts með glæsibrag stórsnillings, og eftir hlé náðist hámark tónleik- anna (í flutningi, ef ekki í inntaki) í hinum heillandi og á köflum virtú- ósu Minningum Doppler-bræðra frá Prag. Sönglag Schuberts, Stánd- chen, og píanóstykki Dvoráks, Hú- moreska Op. 100 nr. 7, runnu og ljúflega niður í kjölfarið. Efnisskráin vakti óneitanlega þá spumingu, hvort verkavalið fyrir tvær flautur sé svo snautt, að grípa þurfi til umritunar á verkum fyrir önnur hljóðfæri. Á hinn bóginn er mikill vandi að ljá margþvældu „al- þýðlegu“ tónefni ferskleika, en óhætt er að segja, að þeir þremenn- ingar hafi þar haft erindi sem erfiði. Ríkarður Ö. Pálsson Gospel- tónleikar í Bústaða- kirkju GOSPELTÓNLEIKAR verða haldnir í Bústaðakirkju dagana 15. og 16. október næstkomandi. Slíkir tónleikar eru árlega í kirkjunni og hluti af þeirri við- leitni að kynna Islendingum gospeltónlist. A tónleikunum á þriðjudags- og miðvikudagskvöld koma fram danska gospelsöngkonan Beb- iane Böje ásamt hljómsveit sinni, gospelsöngvaranum Claes Weg- ener og kór Bústaðakirkju. Sljórnandi er að venju Guðni Þ. Guðmundsson organisti Bústaða- kirkju. Gospelsöngkonan Beb- iane Böje er vel þekkt í heima- landi sínu og hefur víða haldið tónleika. DANSKA gospelsöngkonan Bebiane Böje. Hljómsveit hennar skipa; Morten Rambsböl bassaleikari, Morten Eriksen trommuleikari og Peter Sörensen hljómborðs- leikari. Þetta er í fimmta sinn sem gospeltónleikar eru haldnir í Bústaðakirkju undir yfirskrift- inni „Kirkjuleg sveifla". Áður hafa komið fram íslensk- ir tónlistarmenn og skemmst er að minnast bandarísku gospel- söngkonunnar Ettu Cameron. A þriðjudagskvöld verða tvennir tónleikar kl. 20 og 22 og á miðvikudagskvöldið hefjast tónleikarnir kl. 20. Miðasala fer fram í Bústaða- kirkju alla daga milli kl. 17 og 19. Tno Romance í Bessastaðahreppi TRÍÓ Romance heldur tónleika þriðjudagskvöldið 15. október kl. 20.30 í samkomusal iþróttahúss' Bessastaðahrepps. Tríóið er skipað Guðrúnu Birgis- dóttur og Martial Nardeau flautu- leikurum og Peter Máté píanóleik- ara. Hljóðfæraleikararnir í Tríó Rom- ance eru nýkomnir úr tónleikaferða- lagi um Evrópu og Bandaríkin, en þau hlutu hvarvetna lof fyrir leik sinn. Á tónleikunum verður spilað á þijár tegundir af flautum, þver- flautu, piccoloflautu og altflautu. Á efnisskránni er m.a. konsert fyri piccolo eftir Vivaldi, sónata eftir Poulenc, Humoreska eftir Dvorak, verk eftir Karólínu Eiríks- dóttur, Martial og fleiri. Einnig verða leikin létt sígaunalög. SIEMENS Nýjar þvottavélar á ótrúlegu kynningarverði. Fáðu þér eina! Við bjóðum á næstu vikum þessar tvær glæsilegu Siemens þvottavélar á sérstöku kynningarverði sem ekki verður endurtekið. Nú er lag að gera góð kaup. • 11 grunnkerfi fyrir suðuþvott, mislitan þvott, straufrítt og ullarþvott. •Stiglaus stilling á þeytivinduhraða: 500 - 800 sn./mín. (WM 20850SN), 600-1000 sn./mín. (WM 21050SN). • Vatnsborðshnappur. • Skolstöðvunarhnappur. • Hagkvæmnihnappur (e). • Fíngangshnappur (aðeins á WM 21050SN). • Sérstakt ullarkerfi. • Frjálst hitaval frá köldu upp í 90° C. • Ryðfrítt stál í belg og tromlu. SMITH & NORLAND Nóatúni 4 ■ Sími 511 3000 UMBOÐSMENN 0KKAR Á LANDSBYGGÐINNI: Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarf jördur: Rafstofan Hvítárskála Snæfellsbær: -Blómsturvellir Grundarf jörður: Guðni Hallgrímsson Stykkishólmur: Skipavik Búðardalur: Ásubúð ísaf jörður: Póllinn Hvammstangi: Skjanni Sauðárkrókur: Rafsjá Sigluf jörður: Torgið Akureyri: Ljósgjafinn Húsavík: Öryggi Vopnafjörður: Rafmagnsv. Árna M. Neskaupstaður: Rafalda Reyðarf jörður: Rafvélaverkst. Árna E. Egilsstaðir: Sveinn Guðmundsson Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson Höfn í Hornafirði: Króm og hvítt Vík í Mýrdal: Klakkur Vestmannaeyjar: Tréverk Hvolsvöllur: Rafmagnsverkst. KR Hella: Gilsá Selfoss: Árvirkinn Grindavík: Rafborg Garður: Raftækjav. Sig. Ingvarss. Keflavík: Ljósboginn Hafnarf jörður: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.