Morgunblaðið - 13.10.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 23
rekstrareiningar. Ein þeirra verði
Jóhann Ólafsson & Co. sem annist
atvinnurekstur, það er rekstur
heildverslunarinnar í Sundagörðum
og Villeroy & Boch verslunarinnar
í Kringlunni. Önnur muni annast
verðbréfaviðskipti og umsjón með
verðbréfum og hlutabréfum fyrir-
tækisins. Að sögn Jóhanns er stór
hluti af eignum fyrirtækisins í verð-
bréfum af ýmsu tagi, þessi deild
krefjist tiltölulega lítils vinnufram-
lags miðað við veltu og arðsemi.
Jóhann Ólafsson & Co. á meðal
annars 14% hlut í íslenska útvarps-
félaginu (Stöð 2/Bylgjunni). Jó-
hann segir að þessi hlutur standi
fyrir ámóta mikilli veltu og versl-
unarreksturinn allur. Þá á Jóhann
Ólafsson & Co. hlutabréf í ýmsum
fyrirtækjum. Þriðja rekstrarein-
ingin mun fást við fasteignaum-
sýslu en fyrirtækið á þrjár hús-
eignir og lóðir þar sem það var
áður til húsa við Hverfisgötu 18,
gegnt Þjóðleikhúsinu. Eins á fyrir-
tækið fjórar einingar í Sundaborg
eða helminginn af húsunum númer
11-13 þar sem það er nú til húsa.
Hugsj ónamaður
í verslun
Jóhann segir að sú reynsla að
komast til vits og ára meðan allt
var hér í höftum og faðir hans
reyrður af margvíslegum mann-
réttindabrotum hafi mótað allt sitt
líf.
„Atvinnusaga þjóðarinnar frá
1930 og til 1960 var hörmunga-
og haftasaga," segir Jóhann. „Mér
rennur blóðið til skyldunnar að
leggja auknu atvinnufrelsi lið. Ég
hef barist fyrir frelsi í atvinnumál-
um og viðskiptum. Ég hef áhuga
á frelsi og mannréttindum og er
svarinn andstæðingur kúgunar í
sérhverri mynd. Þjóðmálaáhugi
minn hefur beinst að því að stjórn-
málamenn hafi ekki of mikil áhrif
á þjóðlífið!"
Jóhann hefur verið mikilvirkur
í félagsmálum og setið í stjórnum
Félags íslenskra stórkaupmanna
og Verslunarráðs íslands og var
formaður Verslunarráðs í sex ár.
Hann segir að það hafi tekið mörg
ár að vinda ofan af haftafarganinu
frá miðbiki aldarinnar og bendir á
að margt hafi færst til betri vegar
síðustu ár. Verðbólgan er horfin,
vextir orðnir jákvæðir og skattum-
hverfið hafi breyst til hins betra.
Áhrifin hafa ekki látið á sér
standa. „Umfang íslensks efna-
hagslífs hefur aukist geysilega á
undanförnum árum,“ segir Jó-
hann. „Til dæmis geta nú allir ís-
lendingar setið samtímis í fram-
sætum bíla þjóðarinnar. Þegar ég
fæddist voru um það bil tvö þús-
und bílar í landinu."
Nokkur atriði skiptu sköpum að
mati Jóhanns. Hann nefnir fyrst
niðurfellingu aðstöðugjaldsins og
breytingu frá söluskatti yfir í
virðisaukaskatt. „Þessar breyting-
ar ollu því að samstarf íslenskra
fyrirtækja fór að blómstra og af-
köst stórjukust í landinu. Áður var
fyrirtækjum refsað fyrir að skipta
hvert við annað.“ Jóhann tekur
nærtækt dæmi. „Við bjóðum hótel-
um, veitingahúsum og mötuneyt-
um heildarlausnir í eldhúsbúnaði,
bæði eldunartæki, postulín, borð-
búnað og innréttingar úr ryðfríu
stáli. Áður fyrr fluttum við allt inn
en nú erum við í mjög ánægjulegu
samstarfi við Frostverk hf. sem
smíðar innréttingarnar. Eins erum
við hættir að flytja inn alla hluti
sjálf og kaupum frekar af öðrum
ef það er hagkvæmara. Samstarf
af þessu tagi var óhugsandi áður
vegna skattlagningar. Það hefði
lagst aðstöðugjald á viðskiptin
bæði hjá þeim og okkur og hækk-
að verðið vegna uppsöfnunar-
áhrifa." Jóhann segir að tilkoma
virðisaukaskatts, í stað söluskatts,
greiði einnig fyrir auknu samstarfi
fyrirtækja og hafi beinlínis orkað
til lækkunar á vöruverði.
Afnám verðlagsákvæða er ann-
að atriði sem Jóhann telur hafa
leitt til aukinnar hagsældar. Hann
segir að verðlagsákvæðin hafi ver-
ið styrkasti hornsteinn verðbólg-
unnar og meginþáttur í að skapa
neikvæðan viðskiptajöfnuð þjóðar-
Linda B. Stefánsdóttir, verslunarstjóri
í heildsölu
og smá-
sölu
LINDA B. Stefánsdóttir sér um
búsáhaldadeild og er verslunar-
stjóri í Villeroy & Boch verslun-
inni í Kringlunni. Hún er búin
að vinna hjá Jóhanni Ólafssyni &
Co. í þrjú ár. Er mikill munur á
þvi að selja postulín í heildsölu
og smásölu?
„Já, hann er heilmikill," segir
Linda. „Við höfum haft heildsölu-
dreifingu á þessum vörum í rúm
70 ár. í heildsölunni er verið að
selja gömlum viðskiptavinum
sem gjörþekkja vöruna, það tek-
ur ekki langan tíma að selja mik-
ið magn. I smásölunni tekur hver
afgreiðsla lengri tíma, það þarf
að fræða viðskiptavininn um vör-
una.“
- Urðu einhveijar breytingar
á vöruúrvali með tilkomu búðar-
innar?
„Já, við höfum flutt inn nýjar
gerðir af stellum sem ekki hafa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LINDA B. Stefánsdóttir
fengist hér áður. Sumar gerðirn-
ar munu einnig fást í völdum
verslunum út um landið.“ Linda
segir að Villeroy & Boch vörur
hafi fengist í búsáhaldaverslun-
um hér áratugum saman og
gjafavörur auk þess í mörgum
öðrum verslunum. Ekki stendur
til að breyta því. En hvers vegna
að opna sérverslun?
„Við komumst í betra samband
við viðskiptavinina og sjáum
hvað þeir vilja. Eins getum við
haft hér breiðara vöruval. Vill-
eroy & Boch hefur lagt aukna
áherslu á gjafavörur á undan-
förnum árum ojg því viljum við
koma til skila. I heildverslun er
maður oft einangraður frá neyt-
endum. Nú erum við í beinu sam-
bandi við neytendur, sjáum hvað
gengur og það mun koma öðrum
verslunum sem selja þessar vörur
til góða.“
Morgunblaðið/Ásdís
SIGURÐUR H. Ingimarsson framkvæmdastjóri.
Sigurður H. Ingimarsson,
framkvæmdastjóri
„Þar sem er ljós -
þar erum við“
SIGURÐUR H. Ingimarsson hef-
ur verið framkvæmdastjóri Jó-
hanns Ólafssonar & Co. frá 1988.
Sigurður hóf störf hjá fyrirtæk-
inu 1979 og var fjármálasljóri
þess til 1981 að hann varð fram-
kvæmdasljóri Fjárfestingafélags
íslands. Þaðan lá leið hans til
Veltis hf. og síðan Marels hf. þar
til hann kom aftur til Jóhanns
Ólafssonar & Co.
Að sögn Sigurðar eru nú 17
starfsmenn hjá fyrirtækinu og
mun þeim fjölga á næstunni.
Heildversluninni er skipt í fjórar
deildir.
„Rafmagnsvörudeildin er
stærst og þar er Osram helsta
vörumerkið," segir Sigurður.
Sigurður segir að þeirra útreikn-
ingar bendi til þess að Osram
hafi stærstu markaðshlutdeild í
Ijósaperum hér á landi. Fyrir-
tækið selur lýsingarvörur fyrir
heimili, fyrirtæki, skip, bíla,
kvikmyndaver, kvikmyndasýn-
ingavélar, í jarðgöng, hafnir og
á íþróttavelli. „Þar sem er (jós,
þar erum við. Við kjósum að líta
svo á að við seljum lýsingu, frek-
ar en að við seljum perur. Það
er mikil áhersla lögð á að þjóna
vel viðskiptavinum okkar og
fræða þá um það nýjasta á sviði
lýsingar. í því skyni höldum við
námskeið fyrir viðskiptavini,
tæknimenntað fólk og stóra not-
endur."
Hótelvörudeildin hefur á boð-
stólum flest sem þarf til veitinga-
reksturs, fyrir utan mat og
drykk. „Við bjóðum heildar-
lausnir fyrir veitingahús, mötu-
neyti og stofnanir þegar vantar
eldhús og tilheyrandi búnað,“
segir Sigurður. „Við erum með
tæki í stóreldhús frá Zanussi,
bjóðum stálinnréttingar í sam-
vinnu við Frostverk hf., postulin
frá Villeroy & Boch, hnífapör frá
WMF auk vara frá öðrum fram-
leiðendum."
Búsáhalda- og gjafavörudeild-
in selur til verslana víða um land
auk þess sem Villeroy & Boch
verslunin í Kringlunni heyrir
undir þessa deild. Þessi deild er
mikið með vörur frá sömu fram-
leiðendum og hótelvörudeildin,
einnig selur hún vörur frá Zwies-
el, Dema og Duralex. Einnig er
Jóhann Ólafsson einkasöluaðili á
Islandi fyrir Alpan potta og
pönnur frá Eyrarbakka.
Tæknivörudeildin er tvískipt.
Annars vegar selur hún rekstrar-
vörur til prentiðnaðarins, ljós-
næmar prentplötur, prentlit og
fleira. Hins vegar margs konar
bílavörur svo sem ljósabúnað frá
Hella, Wagner og Osram.
„Mcgnið af innflutningnum
hefur verið frá Þýskalandi," seg-
ir Sigurður. „Við höfum lagt
okkur í líma við að selja gæða-
vörur á góðu verði.“
innar. Verðlagshöftin hafi hvatt
til óhagkvæmra innkaupa, því dýr-
ari sem varan var í innkaupi þess
fleiri krónur fengust í álagningu.
„Sá tími sem áður fór í biðstofur
banka fer nú í að ná hagstæðu
innkaupsverði erlendis," segir Jó-
hann.
Það er ekki aðeins að efnahags-
umhverfið sé orðið annað, sjálf
verslunin og neytendur hafa einnig
breyst. Jóhann bendir á að-neyt-
endur séu orðnir mun sjálfstæðari
sem sýni sig best í aukinni sjálfsaf-
greiðslu. Fólk kaupir mikið í stór-
mörkuðum, bensínstöðvar eru
farnar að selja bílavarahluti í stór-
um stfl, meira að segja er komin
sjálfsafgreiðsla í Ríkinu!
Samgöngubyltingin hefur gjör-
breytt samskiptum við viðskipta-
vini innan Iands og utan og vöru-
flutninga. „Það er orðinn miklu
meiri hraði á öllu og sambandið
við útlönd miklu meira. Fólk ferð-
ast orðið mikið, horfir á sjónvarp
og kvikmyndir og fær saman-
burð,“ segir Jóhann. „Þetta er orð-
inn meiri kaupendamarkaður en
áður. Það þarf meira til að upp-
fylla þarfir viðskiptavinanna og
nauðsynlegt að hafa náin tengsl
við kaupandann.“ Sem dæmi um
viðbrögð við þessari þróun nefnir
Jóhann Villeroy & Boch búðina.
Verksmiðjurnar hafi álitið nauð-
synlegt að hafa milliliðalaust sam-
band við neytendur til að fá strax
viðbrögð þeirra við nýjum vörum,
verðlagningu og fleira. Eins nefnir
hann að nýlega keyptu íslendingar
stóra keðju fiskveitingahúsa í
Bandaríkjunum, það hljóti að
koma okkur til góða í sölu fiskaf-
urða. Jóhann tekur undir það sjón-
armið að auðlindin felist ekki í
fiskinum í sjónum heldur mörkuð-
unum. Ef fiskurinn selst ekki þá
er hann einskis virði. Markaðurinn
er hin raunverulega auðlind og
allt sem skapar sterkari tengsl
framleiðenda og seljenda við
markaðinn hljóti að vera til bóta.
Umsvif hins opinbera
Þótt nú sé betri tíð telur Jóhann
að hið opinbera sé enn alltof um-
fangsmikið í atvinnurekstri, skatt-
heimta og neyslustýring sé of mik-
il. „Hið opinbera er að reka banka,
Póst og síma, skóla, spítala, Ríkis-
útvarp, leikhús, veitingastaði um
allar jarðir, það er mötuneytin,
járnblendiverksmiðju, hafnir,
veitustofnanir og kirkjur. Það er
þó hætt í útgerð! Svo á hið opin-
bera fasteignir, lönd og jarðir út
um allt.“ Þessu vill Jóhann breyta
og færa mikið af umstangi hins
opinbera til einkaaðila, þeim sé
fyllilega treystandi til að sinna
flestum þessum þáttum. Hann tel-
ur vel veijandi að hið opinbera ali
önn fyrir þeim sem eru ósjálf-
bjarga og örvasa, til dæmis gamal-
mennum og geðsjúkum. Raunin
sé sú að þessir lendi fyrst undir
niðurskurðarhnífnum, enda ekki á
vísan að róa með atkvæði þeirra.
Félagslegu hjálpinni sé mest beint
að virkum kjósendum.
„Ég er ekki á móti velferð, en
tel ekki að ríkisrekstur sé forsenda
hennar," segir Jóhann. „Velferð
er þegar fólki líður vel. Ef það
verður ekki stefnubreyting í ríkis-
rekstrinum þá mun þetta kerfi
hrynja. Hvernig getur það staðist
að sami sjóður borgi rekstur
sjúkrahúsa, geri við vegi, reki
Þjóðleikhús og Háskóla? Þetta
gengur aldrei upp.“ •
Efni ákvörðunarinnar ræður
Jóhann hefur um árabil haft
mörg jám í eldinum, verið virkur
í félagsmálum, setið í stjórnum
fyrirtækja, farið í framhaldsnám
jafnframt því að veita fyrirtæki
sínu forstöðu. Hvernig fer hann
að?
„Ég hef átt gott með að skipu-
leggja tíma minn,“ segir Jóhann.
„Fyrir mörgum árum fór ég á Time
Manager tímastjórnunarnámskeið
og lærði mikið af því.“ Jóhann
dregur úr jakkavasa sínum saman-
brotin blöð, skipulag næstu fjög-
urra vikna. Hann segist skipu-
leggja tíma sinn eftir efni og inni-
haldi ákvörðunarinnar.
Jóhann fór í framhaldsnám í
Harvard háskóla árin 1986-88 fyr-
ir forstjóra og eigendur fyrirtækja.
Hann rifjar upp að dag einn kom
kennarinn með 100 blaðsíðna les-
efni, fékk hveijum nemanda og
sagði þeim að búa sig undir að
ræða þetta efni daginn eftir. Einn
spurði hvernig hægt væri að ætl-
ast til þess að þeir læsu 100 blaðs-
íður fyrir morgundaginn. Þá sagði
kennarinn að þetta væri nú bara
eins og daglega lífið, þeir þyrftu
alltaf að velja úr það sem skipti
máli! „Skipulagið felst í því að
finna það sem skiptir máli og
sleppa hinu. Mér hefur gengið
ágætlega að finna kjarna málsins.
Eins hef ég getað treyst öðrurn."
Vakandi á verðinum
Auk þess að laga sig að bfeytt-
um markaði verður sífellt að fylgj-
ast með vöruþróuninni. Jóhann
segir að sífellt séu að opnast ný
svið og nýir möguleikar sem versl-
unarstéttin verði að fylgjast með.
Örtölvutækninni fleygir fram og
hún kemur nú orðið inn í æ fleiri
vöruflokka. Því til sönnunar dreg-
ur Jóhann upp sýnishorn af spar-
peru frá Osram þar sem vel má
sjá flókinn rafeindabúnað í fót-
stykki perunnar. „Þessi pera lýsir
eins og 60 watta pera, en eyðir
ekki nema 11 wöttum,“ segir Jó-
hann. „Ef hver íslendingur keypti
eina svona peru þá gæti þjóðin
sparað virkjun. En við eigum svo
mikið af rafmagni að perur eru
tollaðar alveg sérstaklega!"
„Viltu sjá nýjustu bílperuna,“
spyr Jóhann og tekur upp glæran
plastkubb. Inn í kubbinn er steypt
örsmá ílöng pera frá Osram. Þessi
xenon-pera er svonefnd úthleðslu-
pera og byggð á tækni gömlu kol-
bogaljósanna. Þrátt fyrir smæðina
gefur hún flennibirtu. Jóhann seg-
ir að svona perur verði algengar
í bílum um og eftir næstu aldamót.
Óðal feðranna
Jóhann Ólafsson & Co. er á
hraðferð inn í framtíðina. Börn
Jóhanns forstjóra og Guðrúnar
Jónsdóttur konu hans, þau Mar-
grét Jóhanna, Jón Árni og Ásta
Guðrún, hafa unnið í fyrirtækinu
í skólafríum frá unglingsárum.
Tvö þau elstu eru nú í fullu starfi
og það gefur fyrirheit um að í
framtíðinni muni þriðja kynslóðin
setjast við stjórnvölinn. „Ég lít á
fyrirtækið líkt og bóndinn á jörðina
sína. Hana verður að rækta mann
fram af manni, kynslóð eftir kyn-
slóð. Maður tekur við þessu af
foreldrum sínum og vill skila því
til barnanna,“ segir Jóhann. „Ef
börnin hafa áhuga þá taka þau
við og halda áfram.“