Morgunblaðið - 13.10.1996, Qupperneq 16
16 D SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996
17 5 km/k!st 11,3 sek 10,7 kg/ho 7,61
RENAULT Clio S er sport útgáfa af Clio gerð. Hann er
þriggja dyra, er á álfelgum og með vindskeið. Sætin að
framan eru körfusæti sem styðja vel við líkamann. Stað-
albúnaður er m.a. vökvastýri, fjarstýrðar samlæsingar,
fjarstýrt útvarp, samlitir stuðarar, styrktarbitar í hurðum
og loftpúði í stýri. Rúður og speglar eru rafdrifnir.
17 5 km/klst 14,3 sek 10,62 kg/ha 6,41
RENAULT Mégane var kynntur á íslandi fyrst í vor og
hefur slegið í gegn fyrir glæsilegt útlit að utan jafnt sem
innan. Mégane er arftaki Renault 19 sem hefur verið vin-
sælasta Renault tegundin á íslandi síðustu ár. Á næstu
mánuðum mun Mégane bjóðast sem 3 og 4 dyra og
einnig sem einrýmisbíllinn Scénic.
Renault Mégane 1,4 RN
1.338.000 kr.
• Vél: 1,4 lítrar, 4 strokkar, 8 ventlar.
• Afl: 80 hö við 6.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 107 Nm við 3.500 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 371/163/139 sm. 825 kg.
• Eyðsla: 7,6 I miðað við biandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Bein innspýting.
• Umboð: Bifreiðar og landbúnaðarvélar,
Reykjavík.
• Vél: 1,4 lítrar, 4 strokkar, 8 ventlar.
• Afl: 75 hö við 6.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 107 Nm við 3.500 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 413/170/137 sm. 1015 kg.
• Eyðsla: 6,4 lítrar innanbæjar.
• Eldsneytiskerfi: Bein innspýting.
• Umboð: Bifreiðar og landbúnaðarvélar,
Reykjavík.
Suzuki Baleno GLX 1,6 1.370.000 kr.
175 km/klst E.u.- 9.55 kg/ho 8,51
SUZUKI Baleno GLX er bíll í fullri stærð. Hann er með
l, 6 lítra vél sem skilar 98 hestöflum. Fáanleg er fjögurra
þrepa sjálfskipting með þremur stillingum sem ættu að
henta íslenskum aðstæðum. Með sjálfskiptingunni
hækkar verðið í 1.480.000 kr. GLX er óvenju vel búinn,
m. a. með ABS-hemlakerfi, samlæsingum, rafdrifnum
rúðuvindum, rafstýrðum speglum og líknarbelgjum.
Myndin að ofan sýnir bíl með aukabúnaði.
• Vél: 1,6 lítra, 16 ventlar, 4 strokkar.
• Afl: 99 hö við 6.000 snúnínga á mínútu.
• Tog: 127 Nm við 3.000 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 420/169/139 sm. 945 kg.
• Eyðsla: 5,3 I miðað við 90 km hraða og um 8,5
I í bæjarakstri.
• Umboð: Suzuki bílar hf., Reykjavík.
Suzuki Baleno GLX 1,6 4x4 1.480.000 kr.
175 km/klst E.u,- 9.55 kg/ha 8,51
FJÓRHJÓLADRIFIN útfærsla af GLX kom á markað hér-
lendis á þessu ár. Fáanleg er fjögurra þrepa sjálfskipting
með þremur stillingum sem ættu að henta íslenskum að-
stæðum. GLX er óvenju vel búinn, m.a. með ABS-hemla-
kerfi, samlæsingum, rafdrifnum rúðuvindum, rafstýrðum
speglum og fleiru. Allir Suzuki bílar eru búnir tveimur
líknarbelgjum. Myndin að ofan sýnir bíl með aukabúnaði.
• Vél: 1,6 lítra, 16 ventlar, 4 strokkar.
• Afl: 99 hö við 6.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 127 Nm við 3.000 snúninga á mínútu.
• Drifbúnaður: Sítengt aldrif.
• Mál og þyngd: 420/169/139 sm. 945 kg.
• Eyðsla: 5,3 I miðað við 90 km hraða og um 8,5
I í bæjarakstri.
• Umboð: Suzuki bílar hf., Reykjavík.
Subaru Impreza skutbíll LX 1.497.000 kr.
166 km/klst 13,6 sek 11,77 kg/ho 8,51
SUBARU Impreza nú einnig með 1,6 lítra vél, 90 hest-
afla, fæst aðeins sem skutbíll. Handskiptur skutbíll er
með háu og lágu drifi 5 gíra. Allir Subaru bílarnir eru meö
sítengdu fjórhjóladrifi, og eru vel búnir hvað staðalbúnað
varðar..
• Vél; 1.6 lítrar, 4 strokkar, 16 ventlar.
• Afl: 90 hö við 5,600 snún. mín.
• Tog: 128 Nm við 4.000 sn./mín.
• Mál og þyngd: 4,35/1,69/1,46 sm, 1.115 kg.
• Eyðsla; 8,5 I f bæjarakstri.
• Eldsneytiskerfi: Bein innsprautun.
• Umboð: Ingvar Helgason hf. Reykjavík.
Toyota Corolla HB XLi 1,3 (5d) 1.339.000 kr.
170 km/klst 12,8 sek 14,0 kg/ha 6,71
TOYOTA Corolla er nú með endurbættri 1,3 lítra 16 vent-
la vél með aukinni vinnslu og aksturseiginleikum frá því
sem áður var. Toyota Corolla Hatchback XLi er með
styrktarbita í hurðum, forstrekkjara á bílbeltum, bremsu-
Ijós í afturrúðu og höfuðpúða á aítursætum. Þessi útgáfa
er með rafdrifnum rúðum að framan, samlæsingu hurða,
fjarstýrðum speglum og snúningshraðamæli. Sjálf-
skiptur kostar bíllinn 1.429.000 kr.
• Vél: 1,3 lítrar, 4 strokkar, 16 ventlar.
• Afl: 75 hö við 5.400 snúninga á mínútu.
• Tog: 115 Nm við 4.100 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 409/168/138 sm. 1.050 kg.
• Eyðsla: 6,7 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Tölvustýrð innsprautun.
• Umboð: P. Samúelsson ehf., Kópavogur.
4-
185 km/klst 11,2 sek 11,7 kg/ha 7,81
RENAULT Mégane er með 1,6 I vél og er fáanlegur bein-
skiptur og sjálfskiptur. Meðal búnaðar er vökvastýri, raf-
drifnar rúður, fjarstýrðar samlæsingar, fjarstýrt útvarp,
útihitamælir, loftpúðar og höfuðpúðar í fram- og aftur-
sætum. I
• Vél: 1,6 lítrar, 4 strokkar, 8 ventlar.
• Afl: 90 hö við 5.000 snúninga á mínútu. I
• Tog: 122 Nm við 3.500 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 413/170/137 sm. 1.055 kg.
• Eyðsla: 7,8 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Bein innspýting.
• Umboð: Bifreiðar og landbúnaðarvélar,
Reykjavík.
175 km/klst E.u,- 10,50 kg/ha 8,51
SUZUKI Baleno GLX langbakur kom á markað á þessu
ári. Hann er með 1,6 lítra vél sem skilar 98 hestöflum.
Fáanleg er fjögurra þrepa sjálfskipting með þremur still-
ingum sem ættu að henta íslenskum aðstæðum, „nor-
mal, power og snow-mode“. Með sjálfskiptingunni
hækkar verðið í 1.560.000 kr. GLX er óvenju vel búinn,
m.a. með ABS-hemlakerfi, samlæsingum, rafdrifnum
rúðuvindum, rafstýrðum speglum og líknarbelgjum.
• Vél: 1,6 lítra, 16 ventlar, 4 strokkar.
• Afl: 99 hö við 6.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 127 Nm við 3.000 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 435/169/146 sm. 1.040 kg.
• Eyðsla: 5,3 I miðað víð 90 km hraða og um 8,5
I í bæjarakstri
• Umboð: Suzuki bílar hf., Reykjavík.
EFTIR tollabreytingar er Toyota Corolla XLi 1,6 þrennra
dyra nú fáanleg aftur. Vélin er kraftmikil og skemmtileg
og auk þess er bíllinn ágætlega útbúinn, s.s. loftpúði í
stýri, vönduð innrétting, forstrekkjari á bílbeltum,
styrktarbitar í hurðum og margt fleira. Corolla XLi 1,6
hlaðbakur er einnig til 5 dyra og kostar bíllinn þá
1.399.000 kr.
• Vél: 1,6 lítrar, 4 strokkar, 16 ventlar.
• Afl: 114 hö við 6.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 145 Nm við 4.800 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 410/168/138 sm. 1.020 kg.
• Eyðsla: 7,3 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Tölvustýrð innsprautun.
• Umboð: P. Samúelsson ehf., Kópavogur.
>
>
>
i
í
>
t
f
I
t
I
L