Morgunblaðið - 20.11.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 23
LISTIR
Að utan og inn
BOKMENNTIR
Ljóð
VILLILAND
eftir Jónas Þorbjarnarson
60 bls. Forlagið 1996.1680 kr.
MÆLANDI ljóðanna í Villilandi
er ferðalangur í náttúru íslands.
Hann ferðast um víðar lendur lands-
ins, inntil heiða, útmeð strönd.
Strax í upphafsljóði bókarinnar
verður ljóst að hér er ekki venjuleg-
ur náttúrudýrkandi á ferð, þramm-
ari með bakpoka og viðlegubúnað,
heldur þéttbýlingur að upplifa töfra
lands og náttúru, seiðandi aðdrátt-
arafl hafsins, líf og kyrrð jarðarinn-
ar. Ferðalangur þessi er ofurlítið
einsog utangátta í alltumlykjandi
veldi náttúrunnar, reynir að máta
upplifun sína af óbyggðunum við
reynslu sína úr þéttbýlinu, en upp-
sker aðeins „snert af menningar-
sjokki“ einsog segir í upphafsljóð-
inu, Hvítum indjánum. Af sjokkinu
leiðir önnúr reynsla:
heimur minn ekki eini
heimurinn, nei það eru
dyr í allar áttir
Úr Hvítum indjánum
Ferðalangur hefur uppgötvað
víðátturnar, dyrnar sem standa
opnar til allra átta. En þessar dyr
eru ekki aðeins út, þær eru líka dyr
inn, inní ferðalang sjálfan. Ferðin
útí villilandið markar upphaf ennþá
lengri ferðar, þeirrar sem stendur
enn og mun e.t.v. standa til eilífðar-
nóns: ferðarinnar heim.
Hér mætum tilbrigði við hið sí-
gilda ferðaminni um son karis i
koti sem fer útí heim að freista
gæfunnar og ferðast langt og lengi,
út og suður, upp og niður, en aldr-
ei kemur hann á staðinn sem hann
leitaði. Þann leynda stað bar hann
nefnilega innra með sér, einmitt þar
sem honum hugkvæmdist aldrei að
leita.
Ferðalangur um
Villiland Jónasar Þor-
bjarnarsonar ferðast
reyndar með öllu opnari
huga. Skynjun hans á
mikilfengleik náttúr-
unnar er ekki aðeins
ytri skynjun, hún beinir
sjónum hans innávið —
hann uppgötvar stað-
inn sem karlssyni yfir-
sást, hann hefur ratað
á leiðina heim. Tilfínn-
ingin að vera eitt með
náttúrunni, einn i nátt-
úrunni er víða áleitin í
hugleiðingum ferða-
langs. Hann er einn útí
víðáttunni, einn við
Jónas
Þorbjarnarson
hafíð, einn undir jökli, einn í þoku,
einn hjá beljandi á. A sama tíma
er hann óijúfanlegur hluti þessarar
náttúru, hann er í henni og hún í
honum.
„Hið sígilda ferðaminni" er ein-
mitt sígilt vegna þess að ferð
mannsins gegnum tilveruna hefur
engan fyrirsjáanlegan enda. Er
nokkuð nærtækara en að sækja lík-
inguna fyrir þessa ferð til náttúr-
unnar? Hvert annað svosem? Þessi
risastóra lífvera sem jörðin er lýtur
að sönnu sömu lögmálum og við,
sem köllum okkur menn og þykj-
umst hafa allt í hendi okkar. Lík-
ingamál fyrir innra líf mannsins
sem ekki er sótt í náttúru jarðarinn-
ar eða annarra ytri fyrirbrigða hef-
ur enn ekki verið fundið upp. Enda
eru líkindin við náttúruna með ólík-
indum, einsog kerlingin sagði.
„Innra líf mannsins" hefur enga
lögun í sjálfu sér, en við skynjum
það sem landslag eða náttúru-
krafta, veður og vinda. „Innra líf
mannsins" er ekki staður, það er
ástand. Ljóðabókin Villiland er bók
um þannig ástand.
Síðasta ljóð bókarinnar bindur
endahnútinn á líkingu hennar milli
innri og ytri veruleika. Ljóðið heitir
íslönd og segir frá lestri ljóðmæl-
anda í gamalli bók um ísland eftir
höfund sem aldrei
hafði hingað komið.
Island höfundarins var
hugarsmíð hans, innri
veruleiki.
hér er fólkið gjammandi viðr-
ini
og gufustróka ieggur uppúr
helvíti
ég verð strax dálítið ringlaður;
og þótt maður hafi alltaf talið
sig
vera ýmsu vanan
og jafnvel alveg nógu stutt
frá helvíti, kalla ég nú gott
ef ég á afturicvæmt
heim á hitt íslandið skrýtna
er styðst við Esju
og okkar eigin hugmyndir -
æ hvar í hafinu er það að finna
hvar í myrkrinu?
já var það ekki alveg örugglega
raunveruleiki -
og ég heima þar en ekki hér -
eða var það bara eitthvert
ljóð sem ég las með kaffinu ...
mjólkurdropi í kaffinu?
Úr íslönd
Hvar er ísland hið innra, hið ytra?
Hvar er helvítið? Hver er veruleik-
inn, hvar er hann? Kemst ferðalang-
ur nokkurn tímann heim? Eða á
hinn bóginn: Er hann e.t.v. alltaf
heima, hvar sem hann fer? Bókin
skilur eftir sæg ósvaraðra spurn-
inga — spurninga serm lesanda
þykir brýnt að leita svara við, hið
innra. Nema hvar?
Stíll ljóðanna er óþvingaður og
ljær þeim „kumpánlegan rabbtón",
sem hæfir efni þeirra vel, að mínu
áliti.
Vilíiland er heildstæð bók, spunn-
in af traustum þræði, sem er bæði
rauður og blár, úr jörð og hafi, en
líka úr því sem hefur engan lit í
sjálfu sér, einhveiju sem er djúpt
innra með manninum og er bara
eitthvað.
Kjartan Árnason
Stórmarkaðslj óð
BOKMENNTIR
Ljóð
BÓNUSLJÓÐ
eftir Andra Snæ Magnason,
Ljóðasmiðja Andra Snæs
Magnasonar, Bónus, 1996 - 40 bls.
ÞAÐ hlaut að koma að því. Bón-
ussértilboð, Bónuskóla og hvers
vegna ekki Bónusljóð? Það er raun-
ar varla tilviljun að bók Andra Snæs
Magnasonar er tileinkuð aðilum
ljóðaiðnaðarins enda
eru ljóð hans íslensk
framleiðsla, eins og
segir á saurblaði, fyrir
Bónus. Meginhugmynd
Andra Snæs er ber-
sýnilega að skoða vöru-
samfélagið og vöru-
markaðssamfélagið í
skoplegu ljósi. Ljóða-
bókin er því ferðalag
gegnum stórmarkað-
inn; aldingarðinn
(grænmetisdeildina),
niflheim (kæligeymsl-
una) og hreinsunareld-
inn (hreinlætisvöru-
deildina). Þessi megin-
hugmynd er hreint ekki
Andri Snær
Magnason
fráleit og býður upp á marga kosti,
ekki síst til háðsádeilu en einnig til
alvarlegrar umræðu um stöðu ljóðs
og skáldskapar í klisjuheimi vöru-
framleiðslu og jafnvel stöðu manns-
ins í þeim heimi.
En svo metnaðarfullur er Andri
Snær ekki. Ljóð hans eru misjafn-
lega skoplegar smámyndir þar sem
leitað er fanga í hversdagsleika
stórmarkaðsins sem reyndar er
sameiginlegur reynsluheimur
flestra íslendinga. Einnig sækir
hann efni til auglýsinga.
Þótt ekki sé hægt að segja að
skophendingar Andra Más séu
beittur skáldskapur tekst honum
stundum haganlega að tengja
mannlegar aðstæður
auglýsingahnoði:
Hann straukst við stúlkuna
sem raðar kókinu í hillur
með hvítum armi
og hann fann að hárið ilmaði
sem lyng
og hann fann fyrir ungum
barmi
. og það var alveg einstök til-
finning.
En of oft mistekst
þessi viðleitni þannig
að niðurstaðan verkar
á mann eins og gatslit-
inn brandari: „Sam-
kvæmt auglýsingum / eru allar
konur prinsessur / miðað við bláa
blóðið / í dömubindunum." Og á
Nýjar bækur
Austan tjalds
og vestan hafs
ÚT ER komin bókin
Ferðaslangur - austan
tjalds og vestan hafs
efitr Vilhjálm Hjálm-
arsson, fyrrverandi
ráðþerra. Hann segir
þar frá tveimur ferðum
sínum á íslendingaslóð-
ir í Vesturheimi og til
Austur-Evrópu.
Vestur-íslendingar í
Manitoba-fylki í
Kanada héldu hátiðlegt
aldarafmæli byggðar
sinnar 1975. Fjöldi ís-
lendinga fór til að
samfagna, þar á meðal
þjóðleikhúsfólkið, kór
og margir leikarar. Vil-
hjálmur var þá menntamálaráð-
herra.
Vilhjálmur
Hjálmarsson
Guðjón Ingi
kápu.
Sjö árum fyrr,
1968, fóru Vilhjálmur,
Ágúst á Brúnastöðum
og Þráinn Valdimars-
son til Austur-Þýska-
lands í boði Bænda-
flokksins í tilefni af-
mælisþings hans.
„Þetta er fróðleg
bók en ekki síður
skemmtilestur eins og
Vilhjálms er von,“ seg-
ir í kynningu. Fjöldi
mynda er í bókinni að
austan og vestan.
Útgefandi er Æsk-
an. Bókin er 224 bls.
Prentsmiðjan Oddi hf.
annaðist prentvinnslu.
Hauksson hannaði útlit
Fíll í postulínsbúð
UÓÐ 1980-1981 eftir
Einar Má Guðmunds-
son eru komin út.
„Sennilega tengja
flestir bókmenntaunn-
endur nafn Einars Más
Guðmundssonar frem-
ur við skáldsögur en
ljóð. Þó hóf hann rit-
höfundarferilinn sem
ljóðskáld og Ijóðrænan
er aldrei langt undan
í sögum hans,“ segir í
kynningu.
Ljóð 1980-1981
inniheldur þijár fyrstu
bækur Einars Más, Er
nokkur í kórónafötum
Einar Már
Guðmundsson
hér inni? (1980), Sendisveinninn Guillemette.
er einmana (1981) og
Róbinson Krúsó snýr
aftur (1981).
„Þessar bækur
vöktu feikna athygli
á sínum tíma og
fannst mörgum sem
Einar Már kæmi með
ljóðmáli sínu og frum-
legri sýn eins og fíll
í postulínsbúð ís-
lenskrar ljóðlistar,“
segir í kynningu.
Útgefandi er Mál
og menning. Bókin er
131 bls. unnin í
Prentsmiðjunni Odda
hf. Kápu gerði Robert
Verð 2.680 kr.
stundum er skáldskapurinn frekar
léttvægur:
Það var víst hjartnæmt
þegar strákurinn frá
10-11
kyssti Júlíu á kassa 3
bak við
svalafernurnar.
Vissulega má hafa einhveija
ánægju af þessari bók. Hún kitlar
stundum hláturtaugarnar í skamm-
deginu. En mörg Ijóðin eru nokkuð
ódýr - eins og margt annað sem
fæst í Bónus.
Skafti Þ. Halldórsson
TIL SOLU
RANGE ROVEV? 3.9 VOUGE
árg. 1992, ekinn 108.000
Upplýsingar í síma 551 4637
Jón Júlíusson
er framkvæmdastjóri Nóatúnsverslananna.
Hann er
Vélfrœðingur...
Starf hans felst í daglegum rekstri einnar stærstu
verslanakeðju landsins. Jón telur að
vélfræðingsnámið hafi kennt honum þau
sjálfstæðu, skipulögðu vinnubrögð sem þurfi
til að standa í umsvifamiklum atvinnurekstri.
Intemetnámskeið
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuraðgiöf • námskeið • útgáfa
Grensásvegi 16 • © 568 80 90
Við skiptum við
SPARISJOÐ VELSTJORA
Atvinnurehendur!
Vanti ykkur traustan starfsmann
med víðtæka sérmenntun á tæknisviði,
bæði bóklega og verklega,
þá eru þið að leita að vélfræðingi.
Nánari upplýsingar veitir:
Vélstjórafélag
Islands
Borgartúni 18,105 Reykjavík
Sími: 562-9062